Morgunblaðið - 14.08.1993, Page 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 14. ÁGÚST 1993
HÓLAHÁTÍÐ
Á SÍÐSUMRI
GERDUR
BOLLADÓTTIR:
Syngur lög við
ljóð eftir Davíð
Stefánsson frá
Fagraskógi.
Hin árlega Hólahátíð, að Hólum í Hjaltadal, verður haldin á
morgun sunnudaginn 15. ágúst. Hátíðin hefst með guðsþjón-
ustu í Hóladómkirkju klukkan 14.00. Klukkan 16.30 verður
hátíðarsamkoma þar sem á dagskrá er upplestur, tónlist og
söngur. í anddyri Hólaskóla stendur yfir sýning á verkum eft-
ir Hörð Ágústsson, listmálara, en það eru myndraðirnar
„Mannsonurinn" og „Monsieur Maitre."
Að sögn Bolla Gústafssonar,
vígslubiskups á Hólum, verð-
ur hátíðin í ár með hefðbundnu
sniði, en hún var fyrst haldin fyrir
miðja öldina. Frá því 1950 hefur
hún verið haldin árlega, eða frá
því að vígður var á Hólum tum
til minningar um Jón Arason.
Hólahátíð er kirkjuleg síðsum-
arshátíð og hefst með guðsþjón-
ustu. Þrír prestar þjóna fyrir alt-
ari, auk Bolla og að þessu sinni
eru það Sr. Egill Hallgrímsson á
Skagaströnd, Sr. Eiríkur Jóhanns-
son á Skinnastað og Sr. Kristján
Bjömsson á Hvammstanga. Préd-
ikun flytur Sr. Kristján Bjömsson
á Hvammstanga. „Það hefur verið
siður á Hólahátíð að fá norðlensk-
an kór í heimsókn til að syngja
við guðsþjónustuna," segir Bolli,
„og í ár er það Kirkjukór Hvamms-
tanga sem heimsækir okkur. Stól-
vers syngur Gerður Bolladóttir við
undirleik Rögnvalds Valbergsson-
ar.
Eftir guðsþjónustuna verður
boðið upp á kaffí í Bændaskólan-
um og síðan hefst hátíðarsam-
koma klukkan 16.30. Dagskráin
þar hefst með því að Gerður Bolla-
dóttir syngur lög við ljóð eftir
Davíð Stefánsson, en hátíðin í ár
er helguð minningu hans. Undir-
leikari með Gerði verður Rögn-
valdur Valbergsson og lögin sem
þau flytja er Blítt er undir björkun-
um, í dag skein sól og Sjá, dagar
koma. Þá mun Gunnar Stefánsson,
bókmenntafræðingur, fy'alla um
trúarviðhorf í kveðskap Davíðs
Stefánssonar og nefnist erindi
hans „Ég kveiki á kertum mín-
um.“ Leikararnir Valgerður Dan
og Þorsteinn Gunnarsson lesa úr
ljóðum skáldsins og á eftir syngur
Kirkjukór Hvammstanga sálm
Davíðs Stefánssonar, Ég kveiki á
kertum mínum,“ við lag Páls
Isólfssonar. Stjómandi er Helgi
Sæmundur Ólafsson."
Lokaorð hátíðardagskrárinnar
Ljóóasöngur, tón-
list, upplestur,
myndlist og helgi-
hald er ó meóal
þess sem prýóir
Hólahótió i Hjalta-
dal sem sett veró-
ur ó morgun
sunnudag.
flytur Bolli Gústafsson, en ekki er
þar með sagt að hátíðin sé á enda,
því í anddyri Hólaskóla er mál-
verkasýning. Þar eru til sýnis tvær
myndraðir eftir Hörð Ágústsson,
listmálara, „Mannsonurinn," sex
olíumálverk unnin á árunum 1972-
1973 og „Monsieur Maitre," sjö
kolateikningar unnar í París 1950.
„Ég legg mikla áherslu á að fá
eina myndlistarsýningu á hveiju
sumri,“ segir Bolli, „og það gladdi
mig að fá þessi verk eftir Hörð.
Ég hef líka gaman af að segja frá
því að við tókum eins konar for-
skot á Hólahátíð fyrr í sumar,
þegar við fengum Leikfélag Akur-
eyrar í heimsókn með Hallgríms-
dagskrá, sem Signý Pálsdóttir hef-
ur unnið. Það tókst mjög vel og
við höfum mikinn áhuga á að halda
starfsemi af þessu tagi áfram. Ég
hef alltaf verið þeirrar skoðunar
að listin og kirkjan eigi samleið
og vona að okkur takist að efla
listastarfsemi í Hólakirkju í fram-
tíðinni."
„Er eitthvað sérstakt á döfínni?
„Já, en það sem nú er hvað
mikilvægast er að það er verið að
leggja drög að því að koma upplýs-
andi safni um sögu Hólakirkju.
Þjóðminjasafnið hefur það verk-
efni með höndum og ég verð að
segja að ég hlakka til að sjá það
rísa.“
ssv
MENNING/LISTIR
í NÆSTU VIKU
MYNDLIST
Kjarvalsstaöir
Norræni textílþríæringurinn til 15. ágúst.
Verk Jóhannesar Kjarvals til hausts.
Listasafn tslands
Verk úr eigu safnsins og Markúsar H.
ívarssonar fram í sept.
Norræna húsið
Hönnun Alvar Alto til 31. ágúst.
Hafnarborg
Sigurlaugur Elíasson sýnir til 22. ágúst.
Nýlistasafnið
Ralf Samens ásamt 10 ísl. myndlistar-
mönnum til 22. ágúst.
Önnur hæð
Ludwig Gosewitz sýnir fram í september.
Gallerí Úmbra
Leszek Golinski og Maciej Deja sýna til 1.
september.
Ásmundarsafn
Náttúran f list Ásgríms Sveinssonar.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sumarsýning
Listsalurinn Portið
Ámi Rúnar Sverrisson sýnir til 15. ágúst.
Gallerí Sævars Karls
Gréta Ósk sýnir til 1. sept.
Listhús Laugardal
Samsýning fram yfir miðjan ágúst.
Hulduhólar /
Sumarsýning til 22. ágúst.
Sólón íslandus
Róska sýnir til 15. ágúst.
Kringlan
Tolli sýnir til 31. ágúst.
Gallerí Borg
Kjarvalssýning
Gallerí einn einn
Didda H. Leaman til 19. ágúst.
Hótel Örk
Sýning 22 myndhöggvara til 12. sept.
Slunkaríki/Ísafirði
Guðrún Guðmundsdóttir til 29. ágúst.
TONLIST
Laugardagur 14. ágúst.
Camilla Söderberg á blokkflauta, Cather-
ine Mackintosh á fiðlu, Laurence Dreyfus
á víóla de gamba, Jonathan Manson á
selló, Helga Ingólfsdóttir á sembal og
Guðrún Óskarsdóttir á orgel leika í Skál-
holti kl. 15 og 17. Einnig fyrirlestur Laur-
ence Dreyfus um fúgulist á barokktíman-
um kl. 14 og einsöngvarar.
Sunnudagur 15. ágúst.
Iain Quinn, organisti, leikur f Hallgríms-
kirkju kl. 20.30. Camilla Söderberg á
blokkflauta, Catherine Mackintosh á fiðlu,
Laurence Dreyfus á vfóla de gamba, Jon-
athan Manson á selló, Helga Ingólfsdóttir
á sembal og Guðrún Óskarsdóttir á orgel
leika í Skálholti kl. 15 og við messu kl. 17.
Þriðjudagur 17. ágúst
Sigriður Jónsdóttir, mezzósópran, ogNfna
Margrét Grfmsdóttir á pfanó, leika í Lista-
safni Siguijóns kl. 20.30.
Miðvikudagur 18. ágúst
Auður Hafsteinsdóttir, fiðluleikari, f
Gerðubergi kl. 20.30.
Fimmtudagur 19. ágúst
Söngvaramir Björk Jónsdóttir, Ingunn
Sturludóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir, Jó-
hanna Þórhallsdóttir, Magnús Torfason,
Sigriður Gröndal, ásamt píanóleikumnum
Vilhelmínu Ólafsdóttur og Kristni Emi
Kristinsyni á tónleikum í sal FÍH, Rauða-
gerði 27. kl. 20.30.
Fös. 20. til sun. 22. ágúst
Kammertónleikar á Kirkjubæjarklaustri
með Eddu Erlendsdóttur, Áuði Hafsteins-
dóttur, Berþóri Pálssyni, Bryndísi Höllu
Gylfadóttur, Steinunni Bimu Ragnars-
dóttur og Zoltan Toth.; fös. kl. 21, lau.
kl. 17 og sun. kl. 15.
BOKMENNTIR
Miðvikudagur 18. ágúst
Sex yóðskáld lesa upp úr verkum sínum
í Hafnarborg, Hafnarfirði kl. 20.30.
LEIKLIST
Light Nights
Sýningar Ferðaleikhússins Light Nights
kl. 21. frá fim. til sun. til loka sumars.
Umsjónarmenn listastofnana og sýn-
ingarsala!
Upplýsingar um listviðburði sem óskað
er cftir að birta f þessum dálki verða að
hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á mið-
vikudögum. Merkt: Morgunblaðið, menn-
ing/listir, Kringlan 1,103 Rvk. Myndsend-
ir: 91-691222.