Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 21.09.1993, Blaðsíða 1
KNATTSPYRNA HANDKNATTLEIKUR / HEIMSMEISTARAKEPPNI U-21 Verðlaunahafarnir frá Kairó Morgunblaðið/Bjöm Blöndal ISLENSKA land3liðið í handknattleik^ skipað leikmönnum tuttugu og eins árs og yngri, kom heim frá Heimsmeistarakeppninni í Kairó í Egyptalandi á sunnudaginn með bronsverðlaunin. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Schram, formaður HSÍ, Þorgils Óttar Mathiesen, fararstjóri og aðstoðar þjálfari, Sonja Ýr, dóttir Þorbergs Aðalsteinssonar landsliðsþjálfara, Þorbergur landsliðsþjálfari, Ólafur Stefáns- son, Róbert Sighvatsson, Valgarð Thoroddsen, Reynir Reynisson, Sigfús Sigurðsson, Erlingur Richardsson, Páll Þórólfsson, Dagur Sigurðsson og Davíð B. Sigurðsson, liðsstjóri. Fremri röð frá vinstri: Aron Kristjánsson, Brynjólfur Jónsson læknir, Jón Freyr Egilsson, Þórarinn Ólafsson, Patrekur Jóhannesson, JAson Ólafsson, Ingvar Ragnarsson og Björgvin Björgvinsson. Nánar / B3 ÞÓRÐUR GUÐJÓIMSSON JAFNAÐIMARKAMETIÐ í 1. DEILD / B4 adidas EQUIPM ENT 21 árs landslið Islands leikur í Adidas |ílior@w*lAÍ>iiíí 1993 ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER BLAD Bochum sýnir Þórði áhuga HANDKNATTLEIKUR KA lifir í voninni KA-menn gera sér vonir um að fá Valsmennirnir Valdimar Gríms- son og Jón Kristjánsson til liðs við sig á komandi keppnistíma- bili. Skýrt var frá þessu í fréttum Stöðvar 2 í gærkvöldi en Alfreð Gíslason, þjálfari og leikmaður KA, sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að hann væri ekkert allt of bjartsýnn á að þetta gengi eftir, en málin myndu skýrast á allra næstu dögum. Jón Kristjánsson sagðist fastlega gera ráð fyrir að málin skýrðust í vikunni. „Ég er búinn að sækja um starf fyrir norðan og það yrði skref uppá við fyrir mig ef ég fengi það. Þetta er ekki samhangandi hjá okkur Valda og raunar á ég ekki von á að við förum báðir frá Val,“ sagði Jón. „Þetta er mjög óljóst eins og er en ég vona að þetta skýrist fljót- lega. Ég er atvinnulaus og ef ég fæ gott starf á Akureyri, fer ég,“ sagði Valdimar. ÞÓRÐUR Guðjónsson, lands- liðsmaður í íslands- og bikar- meistaraliði Skagamanna, fer til Bochum í Þýskalandi eftir Evrópuleikinn gegn Feyenoord í Hollandi í næstu viku. Þýska liðið hefur sýnt markahróknum áhuga og ef honum líst á það, sem félagið hefur að bjóða, gerir hann fastlega ráð fyrir að semja, jafnvel til tveggja ára. Klaus Hilbert, sem er við stjórn- völinn hjá þýska félaginu, þjálfaði ÍA 1979 og hefur verið í sambandi við Skagamenn síðan. Þegar Gunnar Sigurðsson, formað- ur knattspymufélags ÍA, sagði hon- um að Þórður hefði áhuga á að vera í Þýskalandi í vetur og sameina knattspymu og nám, vildi Hilbert Þórður Guðjónsson fá miðheijann þegar eftir leikinn gegn Feyenoord, en í gær var geng- ið frá því að bíða til sunnudagsins 3. október. Þórður sagði við Morgunblaðið í gærkvöldi að tilboð Bochum væri mjög spennandi, en hann hefði einn- ig heyrt af ýmsum fýrirspurnum frá öðrum erlendum félögum. Fyrir lægi að unnusta sín, Anna Lilja Valsdóttir, leikmaður kvennaliðs ÍA, vildi fara í iðjuþjálfun í Þýskalandi og því kæmi tilboð Bochum báðum til góða. Bochum féll úr úrvalsdeildinni s.l. vor, en hefur byrjað vel í 1. deild og er með fullt hús eftir fjóra leiki. Hilbert hittir Skagamenn í Rotterdam eftir viku, en Þórðpr sagði að ef allt færi á besta veg gæti svo farið að hann gerði tveggja ára samning við þýska félagið. +

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.