Morgunblaðið - 21.09.1993, Side 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
jrk
19
18
17
16
15
14
13
12
11
10
9
8
7
6
5
4
3
2
1
0
MbUKG
Þórður jafnaði markametiö!
ÞÓRÐUR Guðjónsson jafnaði markamet Péturs
Péturssonar og Guðmundar Torfasonar í 1. deild
karla um helgina, en hann skoraði síðara mark
ÍA gegn ÍBK. Þórður hefur skorað í hverjum
leik síðan í 10. umferð.
'ÆF Þórður Guðjónsson, IA
Óli Þór Magnússon, ÍBK B
Helgi Sigurðsson, Fram
Haraldur Ingóltsson, ÍA, 13 mörk
Hörður Magnússon, FH, 12 mörk
Mihajlo Bibercic, ÍA, 12 mörk
Tryggvi Guömundsson, ÍBV, 12 mörk
■ LÁRUS Guðmundsson, þjálfari
Víkings, og Heimir Karlsson, að-
stoðarmaður hans, voru á leikmanna-
skýrslu í leiknum gegn ÍBV. Gárung-
amir sögðu að meðalaldur og þyngd
liðsins hefði hækkað verulega.
■ GUNNAR Sigvrðsson, formað-
ur Knattspyrnufélags ÍA, svaraði
því játandi í ríkissjónvarpinu eftir
leikinn gegn ÍBK á laugardag, er
hann var spurður hvort sigurganga
liðsins í sumar hefði ekki verið
ánægjuleg, en bætti þó við að eitt
væri slæmt við sigurgönguna; hann
væri orðinn þreyttur á öllum veislun-
um, sem velgengninni fylgdu!
■ STAÐAN í 1. deild er orðin eins
og Fylkismenn hafa óttast í allt sum-
ar — að leikurinn í Vestmannaeyjum
í síðustu umferðinni gæti ráðir úrslit-
um um fall.
■ VÍKINGAR leika sinn síðasta
leik í 1. deild í Keflavík og sögðu
gárungamir að Eyjamenn hefðu
stimplað svæðisnúmerið í Keflavík
á Víkinga — 92!
■ ORMARR Örlygsson, sem hefur
verið einn besti leikmaður KA í 2.
deildinni í sumar, hefur ákveðið að
leggja knattspyrnuskóna á hilluna.
■ INGI Björn Albertsson, þjálfari
Breiðabliks gerði útum fimm mán-
aða gamalt veðmál sitt við Hákon
Gunnarsson, stjórnarmann í félag-
inu, þegar þjálfarinn stökk yfír 5
metra í langstökki eftir leik UBK
við Leiftur á laugardaginn. Ingi
Björn fékk fímm tilraunir; fyrsta
stökkið mældist 4,41 metrar, næstu
tvö 4,91 m, en síðan sveif hann yfir
5,02 metra. Til glöggvunar fyrir les-
endur má geta þess að íslandsmet
karla í langstökki er 7,79 metrar og
stelpna (12 ára og yngri) 5,08 metr-
■ WERNER Gunther frá Sviss,
sem er þrefaldur heimsmeistari í
kúluvarpi, lýsti því yfír um helgina
að hann væri hættur keppni fyrir
fullt og allt. Hann er 32 ára og tók
þátt í síðasta mótinu í Genf á laug-
ardaginn. Hann sigraði að vanda og
varpaði kúlunni 20,79 metra.
■ _ UM þrjúhundruð manns mættu
á ÍSÍ-hótelið á sunnudaginn, til að
horfa á beina sjónvarpsútsendingu
frá leik Manchester United og Ars-
enal á Old Trafford.
■ ÁKVEÐIÐ var um helgina að
ísrael fengi aukaaðild að Knatt-
spyrnusambandi Evrópu, UEFA.
Þetta gefur Israelsmönnum mögu-
leika á að taka þátt í Evrópukeppni
landsliða í fyrsta sinn, en forkeppni
EM 1996 hefst á næsta ári. Ákveðið
verður hvort ísrael fái fulla aðild
að UEFA á stjórnarfundi í Vín í
Austurríki í apríl á næsta ári og eru
taldar miklar líkur að það verði sam-
þykkt. Israelskum félagsliðum var
heimiluð þátttaka í Evróukeppninni
í fyrsta sinn á síðasta ári.
SPENNUFALL
Spennufall varð hjá yíkingum
fyrir leikinn gegn ÍBV í 17.
og næst síðustu umferð í 1. deild
karla á laugardaginn. Víkingar
mættu í Laugardalinn fulllr
sjálfstrausts — vitandi
að enn væri von um að
halda sæti sínu i deild-
inni. í búningsklefanum
fyrir leikinn voru menn
að stappa stálinu hver í
annan og góð stemmn-
ing í hópnum. Þegar
gengið var inná leikvöllinn bár-
ust þær fréttir að Víkingur væri
fallinn því leik Fylkis og Fram
var að ljúka og Fylkir yfír 3:0.
Þessar fréttir virkuðu sem köld
vatnsgusa framan í Víkinga og
ekki uppörvandi að fara í leikinn,
enda að litlu að keppa fyrir Vík-
inga gegn Eyjamönnum enda
töpuðu þeir stórt 2:9. En þar
með er ekki öll sagan sögð.
Fallbaráttan var í algleymingi
fyrir þessa umferð milli þriggja
liða; Víkings, ÍBV og Fylkis.
Leikir þessarra liða skiptu miklu
máii og voru því settir á sama
tíma eins og eðlilegt er. Sam-
kvæmt mótabók KSl átti leikur
Fylkis og Fram að hefjast kl.
14.00, en mótanefnd KSI ákvað
réttilega í síðustu viku að seinka
honum til kl. 16.00, svo hann
færi fram á sama tíma og hinn
leikurinn í fallbaráttunni milli
Víkings og ÍBV. En á laugardag-
inn kom babb í bátinn því ekki
var flugfært frá Vestmannaeyj-
um fyrri hluta dags og því kom-
ust leikmenn ÍBV ekki til lands
í tæka tíð. Mótanefnd ákvað þá
að fresta Víkingsleiknum til kl.
17.30, en lét leiktímann (kl.
16.00) halda sér hjá ífylki og
Fram. Þetta gerði það að verkum
að þegar leikur Víkings og ÍBV
hófst klukkan 17.30 var leik
Fylkis og Fram að pka og ljóst
að Víkingar voru fallnir og leikur-
inn gegn ÍBV því ónýtur fyrir þá.
Að mínu mati gerði mótanefnd
KSÍ mistök með því að fresta
ekki leik Fylkis og Fram í sam-
ræmi við leik Víkings og ÍBV.
Mótanefndin hefði þess vegna
getað sett báða leikina á á sunnu-
deginum — á sama tíma. Hvað
var því til fyrirstöðu? Þetta sann-
ar enn einu sinni hversu mikil-
vægt það er að láta alla leiki
sömu umferðar fara fram á sama
tíma, ég tala nú ekki um í síð-
ustu umferðunum þegar spennan
er í hámarki. Það segir sig sjálft
að lið sem er fallið áður en leikur
þess hefst hefur ekki að miklu
að keppa. Eyjamenn geta þakkað
mótanefnd KSÍ greiðann.
Það er ljóst eftir þessa næst
síðustu umferð íslandsmótsins
að það verður hreinn úrslitaleikur
á milli ÍBV og Fylkis í loka-
umferðinni í Vestmannaeyjum á
laugardaginn kemur, um það
hvort liðið heldur sæti sinu í
deildinni. Fylkir er með 19 stig
og 12 mörk í mínus og nægir
jafntefli, en ÍBV er með 16 stig
og 11 mörk í mínus og þarf því
sigur til að tryggt sér sætið eft-
irsótta. Eyjamenn voru í sömu
aðstöðu í fyrra er þeir mættu
KA frá Akureyri i síðasta leik
mótsins. KA-mönnum hefði þá
nægt jafntefli, eins og Fylki
núna, en Eyjamenn sigruðu 2:1
og þar með var fyrstu deildarsæt-
ið þeirra.
Nú er það spumingin hvort
sagan endurtaki sig í Vest-
mannaeyjum á laugardaginn?
Valur B.
Jónatansson
Mistök mótanefndar
að seinka ekki aftur
leik Fylkis og Fram
Hvernig tilfinning varþað fyrir ARON KRISTJÁNSSON að skora sigurmarkið?
Nánast
ólýsanlegt
ARON Kristjánsson, handboltamaður úr Haukum í Hafnar-
firði, var hetja 21 s árs iandsliðsins sem nældi sér í bronsverð-
launin á heimsmeistaramótinu í Egyptalandi á laugardaginn
er hann skoraði sigurmarkið gegn Rússum í teik um þriðja
sætið á síðustu sekúndu leiksins. Þess má geta að þetta var
eina skot hans að marki i leiknum. Hann var settur inná í
stöðu leikstjórnandans Dags Sigurðssonar sem var rekinn
af leikvelli um miðjan síðari hálfieik.
Eftir
ValB.
Jónatansson
Aron er 21 árs og hefur æft og
leikið handknattleik með
Haukum frá því hann var 14 ára.
Hann er fæddur í
Stykkishólmi og
bjó þar til ellefu ára
aldurs að hann
flutti til Hafnar-
Qarðar þar sem hann kynntist
handboltanum í fyrsta sinn. Hann
stundar nám við fjölbrautarskólann
í Garðabæ og útskrifast af íþrótta-
braut næsta vor. En hvemig var
sú tilfinnig að skora þetta mikilvæga
mark í Egyptaiandi?
„Hún var nánast ólýsanleg. Það
var ótrúlegt að ná að skora þetta
mark á síðustu sekúndu Ieiksins.
Eftir að ég skaut leit ég á dómarann
og sá að hann lyfti hendi 'til merkis
um að markið væri gott og gilt. Þá
hneig ég niður og allir strákamir
ruku á mig og fögnuðu. Þetta var
rosalegt. Þetta er augnablik sem
maður á líklega aldrei eftir að upp-
lifa aftur.“
En hvemig var aðdragandinn að
markinu og var ákveðið fyrirfram
að þú ættir að taka síðasta skotið?
„Þorbergur þjálfari kallaði inná
völlinn þegar um 20 sekúndur voru
eftir að við ættum ekki að ljúka
sókninni fyrr en þijár sekúndur
væru eftir. Við spiluðum því rólega
til að byija með en Rússamir komu
mjög framarlega út á móti okkur
og trufluðu. Ég ætlaði að leysa inn
og fór inní vöm Rússa, en sá að
Patrekur var í vandræðum að gefa
boltann, þá kom ég út aftur og fékk
boltann og sá þá að aðeins fímm
sekúndur voru eftir á klukkunni. Ég
„fintaði" því inn að punktalínu og
einn Rússinn reyndi að bijóta á
Morgunblaðið/Björn Blöndal
Aron Kristjánsson tryggði Islendingum bronsverðlaun á heimsmeistara-
móti leikmanna 21 árs og yngri í Egyptalandi á laugardaginn.
mér, en ég rétt náði skoti og boltinn
fór neðst í homið alveg út við stöng.
Skotið var ekki fast en hnitmiðað."
Var ísland með besta liðið í mótinu?
„Já, ég held það. Við vorum alla
vega þeir einu sem unnu Egypta svo
unnum við Dani, sem léku til úr-
slita við Egypta, örugglega á Norð-
urlandamótinu. Það var slæmt að
tapa fyrir Rúmenum og það tap
kostaði okkur úrslitaleikinn. Okkar
lið er geysilega gott og á svo sann-
arlega framtíðina fyrir sér.“
Hvernig kom það til að þú fórst
að æfa handknattleik og hvenær
varstu fyrst valinn landslið?
„Þegar ég flutti til Hafnarfjarðar
frá Stykkishólmi þekkti ég ekki
handboltann. En Hafnarfjörður er
þekktur handboltabær svo ég fór
fljótlega að æfa þá íþrótt. Ég fór
í Hauka vegna þess að unglinga-
starfíð þar var mjög gott. Ég byij-
aði að spila með meistaraflokki
fyrir þremur árum og hef spilað
allar stöður í því liði nema í marki.
Ég var fyrst valinn í landsliðið í
sumar og það kom mér satt að
segja mjög á óvart þegar Þorberg-
ur valdi mig.“
Hver eru framtíðaráform þín í
handboltnum?
„Það er nú mikið til óráðið, en
ég hef þó áhuga á að fara í íþrótta-
skóla erlendis þegar ég er búinn
með skólann hér og leika handbolta
með náminu. Þá væri helst að fara
til Noregs eða Þýskalands, en það
verður bara að koma í ljós hvað
framtíðin ber í skauti sér. Nú er
það deildarkeppnin hér heima og
við eigum að mæta Stjörnunni í
fyrsta leik á fimmtudaginn.“