Morgunblaðið - 03.10.1993, Qupperneq 1
WILLYSJEPPILGEGNUMNYBYGGINGARAÐ - OKU-
KENNARANAMIJLENNARAHASKOLANUM - FORD GA-
LAXY1959ARGERÐ - RAFDRIFIÐ REIÐHJOL -
Fiat Uno Arctic-
reynsluekid. Billinn
þykir rúmgóður,
sparneytinn og lip-
ur. Á þjóóvegunum
liggur hann vel.
&
Ford Galaxy árgeró
1959 svifur brátt-
um göturnar aó
nýju, eftir 1.000
vinnustundir Sæv-
ars Péturssonar.
1993
SUNNUDAGUR 3. OKTÓBER
BLAÐ
Haf ravatnshringurinn ekinn á upphækkuðum Land Cruiser GX neyðarbíl hjálparsveitanna
Einn með öllu - ekki
síst 100% drif læsingu
P. SAMÚELSSON, söluaðili Toyota, hefur gefið Hjálparsveit skáta
og Flugbjörgunarsveitinni sérútbúinn neyðarbíl og var hann af-
hentur á jeppasýningunni í Laugardalshöll um síðustu helgi. Bíll-
inn sem er Toyota Land Cruiser GX, með sex strokka, 4,2 lítra
díselvél er mikil listasmíð og hefur verið hækkaður og breyttur
hjá verkstæði Toyota í Kópavogi. Hann verður í vörslu slökkviliðs-
ins í Reykjavík. Blaðamanni gafst tækifæri til að reynsluaka bíln-
um í vikunni en þess ber að geta að eftir er að breyta hlutföllum
í drifi svo ekki er að marka að undirrituðum þótti hann fullseinn
í viðbragði, enda ekki gerður í upphaflegri mynd fyrir 44“ tommu
dekk.
Maður fyllist einhverri öryggis-
tilfinningu sem erfitt er að henda
reiður á þegar sest er undir stýri
á neyðarbílnum. Okumaður er
náttúrulega hátt yfir áðra öku-
menn hafinn á upphækkuðum
bílnum og öll stjórntæki eru innan
seilingar í þessum sjálfskipta bíl
sem er 5,3 milljóna kr. virði eftir
breytingamar. Bíllinn kom hingað
á 29 tommu dekkjum en er nú á
44 tommu dekkjum og var hækk-
aður um fjórar tommur frá grind.
Skipt var um gorma allan hringinn
og þeir lengdir um tvær tommur.
Settir voru undir hann Downy-
gormar frá samnefndu fyrirtæki í
Kaliforníu sem sérhæfir sig í
breytingum á Toyota-jeppum. Þá
er bíllinn með diskapressur allan
hringinn.
Lét illa á malbiki
Ekið var sem leið lá frá bæki-
stöðvum Toyota í Auðbrekku norð-
ur Kringlumýrarbraut og austur
Vígalegur
NEYÐARBÍLLINN,
Toyota Land
GX, er verklegur á
vegum sem vegleys
um.
Miklubraut. Ekki verður sagt að
bíllinn hafi látið vel að stjórn á
malbikinu, hjólbarðarnir vildu leita
í hjólför og nokkur titringur var í
stýrinu. Einnig var hann lengi upp
enda þótt vélarorkan sé yfrið næg.
Bíllinn var upphaflega 160 hest-
öfl, en er nú 190 hestöfl með milli-
kæli, sem kælir loftið sem túrbínan
sem blæs og nýtir. Drifin verða
lækkuð í honum, þau eru nú 1:4,10
en fara niður í 1:4,88. Bíllinn verð-
ur þá allur léttari á gjöfinni. Auk
þess eru dekkin enn stíf af notkun-
arleysi og vantar alla mýkt.
Góður á keyrslu
Á keyrslunni nær hann hins
vegar nægum hraða og líkast til
hefur undirritaður gerst brotlegur
við umferðarlög þegar hann ók
bílnum yfir leyfilegum hámarks-
hraða á Vesturlandsvegi. Reyndar
hefur hann það sér til málsbóta
að hraðamælirinn sýndi ekki nema
tænleom 80 km hraða á klst.
bíllinn hafi líkast til
verið á um 110 km
hraða. Það helgast
af því að hraðamæl-
irinn hafði ekki ver-
ið stilltur til sam-
ræmis við
dekkjastærð-
Gefendur og viötakandi
Morgunblaðið/Sverrir
GUNNAR Pétursson hjá Slökkviliði Reykjavíkur og Loftur Ágústs-
son blaðafulltrúi P. Samúelssonar við neyðarbílinn.
ma.
Þá var bætt við bílinn brettak-
öntum, gangbrettum, Ramsey-
spili og KC-ljóskösturum. 100%
driflæsing er á öllum hjólum sem
stýrt er með takka úr mælaborði
og er það staðalbúnaður í þessum
bíl og er þetta eini bíllinn sem
framleiddur er með 100% driflæs-
ingu að framan og aftan. Neyðar-
bíllinn er með ABS-hemlalæsivörn
og rafstýrðum rúðum og honum
fylgir loftkerfi með kút til að dæla
lofti í hjólbarða. Á bílnum eru leit-
arljós sem hægt er að beita sem
þröngri Ijóskeilu og eins er hægt
að dreifa ljósgeislanum meira og
nota hann sem vinnuljós.
LímdurvlA möllna
Þegar ekið var af malbikinu út
malarveginn við Hafravatn fóru
aksturseiginleikarnir að gera vart
við sig. Bíllinn var sem límdur við
malarveginn og skrikaði
ekki til þótt ekið væri á
töluverðum hraða í
beygjum. Á kafla er
vegurinn í kringum
Hafravatn engin
spegilbraut heldur
alsettur djúpum
holum, algert
þvottabretti. Neyð-
arbíllinn flaut yfir
þessa vegarkafla
svo það fannst
ekki að ekið væri
yfir ójöfnur. Því
miður gafst ekki
tækifæri til að
reyna bílinn í snjó,
eða við þær aðstæð-
og mest koma að gagni við björg-
unarstörf. En fátt eitt ætti að
stöðva hann í sköflum þegar hon-
um er ekið af þjálfuðum jeppaöku-
mönnum. ■
Land Cruiser
minna búinn
SEX Toyota Land Cruiser
GX jeppar hafa selst á einni
viku, eða frá því að auglýs-
ingar fóru að birtast um bíl-
inn^ Margar fyrirspurnir
hafa borist um jeppaun, að
sögn starfsmanna Toyota, en
hann kostar rúmar 3,839.000
kr. kominn á götuna en er
með minni aukabúnaði en
VX sem kostar 4.559.000 kr.
VX er á álfelgum og breiðum
dekkjum. Þá er hann með
brettakanta og stigbretti,
hliðarlista og ABS-hemlalæsi-
vörn. Plussklæðning er á sæt-
um og fallegri innrétting en í
GX, auk þess sem miðstöðvar-
kerfið er með snertitökkum og
þá fylgir geislaspilari með í
kaupnum. GX-bfllinn er án alls
þessa og þar með skýrist verð-
ið á honum. GX-bíllinn er meira
ætlaður fyrir þá sem ætla sér
hvort eð er að láta breyta biín-
um. Það er um eitt ár síðan
P. Samúelsson hóf innflutning
á bílnum en hann hefur ekki
verið auglýstur að ráði fyrr en
nú. ■
Morgunblaðið/Þorkell