Morgunblaðið - 07.10.1993, Page 1

Morgunblaðið - 07.10.1993, Page 1
FJÁRMÁL: Fjárhagsáætlanir fyrir heimili dýrar en gefast vel/4 LANBÚNADUR: Athyglisverö tilraun með útflutning á lambakjöti /6 IHtu'ðuublflít tít Flug Batnamli rekstraraf- koma hjá Flugleiðum Fjölgun farþega, hagstæð gengisþróun og sparnaður í rekstri ollu því að tekjur jukust umfram gjöld fyrstu sjö mánuði ársins AFKOMA Flugleiða fyrstu sjö mánuði ársins varð betri en gert var ráð fyrir í áætlunum félagsins á fyrri hluta ársins. Heildartap nam um 80 milljónum á tímabilinu samanborið við 352 milljónir á sama tíma í fyrra. Þetta má m.a. rekja til þess að farþegum fjölgaði um 1,3% á tímabilinu en jafnframt olli tæplega 14% hærra gengi dollars því að tekjur urðu hærri í krónum en ella. Gengisþróunin hefur á hinn bóginn þýtt hækkun kostnaðar í erlendri mynt og meðalfar- gjald í dollurum var um 11% lægra fyrstu sjö mánuðina en á sama tíma í fyrra. Arangur af sparnaðarátaki félagsins hefur þó vegið þar upp á móti að einhverju leyti. Á heildina litið hækkuðu tekjur að raungildi um 1,5% milli ára en gjöld aðeins um 0,6%. Rekstrarhagnaður án fjármuna- tekna og fjármagnsgjalda var 283 milljónir fyrstu sjö mánuði ársins samanborið við 216 milljónir á sama tíma í fyrra. Fjármunagjöld að frá- dregnum fjármunatekjum jukust verulega milli ára eða úr 505 millj- ónum í 750 milljónir sem fyrst og fremst má rekja til gengisbreytinga. Einnig jukust vaxtagjöld milli ára vegna aukningar á skuldum félags- ins úr tæplega 18 milljörðum í tæp- lega 22,2 milljarða milli ára. Þessi hækkun skulda skýrist að mestu leyti af gengislækkun krónunnar milli ára en einnig tók félagið ný lán vegna flugskýlisbyggingarinnar á seinni hluta sl. árs. Flugleiðum hefur tekist að ná fram fyrstu markmiðum sínum í sparnaði m.a. með því að endurnýja samninga um kaup á vörum og þjón- ustu. Þannig hafa nýir samningar um þjálfun flugmanna í flughermum erlendis leitt til þess að gjöld fyrir þessa þjónustu hafa lækkað veru- lega. Sömuleiðis hafa allir samning- ar um afgreiðslu á flugvöllum er- lendis verið endurskoðaðir sem leitt hefur til lækkunar gjalda auk þess auglýsingakostnaður og kostnaður við farþegaþjónustu er nú minni en áður svo dæmi séu tekin. Handbært fé frá rekstri fyrstu sjö mánuði ársins nam alls um 840 milljónum og átti félagið um 1,1 milljarð í bankainnstæðum í lok júlí. Að sögn Sigurðar Helgasonar, for- stjóra, er greiðslustaðan mjög góð um þessar mundir og fyrirsjáanlegt að ekki þurfi að taka rekstrarlán í vetur. Eigið fé í lok júlí var alls tæpir 4 milljarðar og eiginfjárhlutfall 15% samanborið við 18% á sama tíma í fyrra. Farþegum fjölgar en fargjöld lækka Flugleiðir fluttu -alls rúmlega 300 þúsund farþega í millilandaflugi fyrstu sjö mánuði ársins og fjölgaði þeim um 2,8%. Aftur á móti fækk- aði farþegum í innanlandsflugi um 1,6% en á heildina litið fyölgaði far- þegum um 1,3% á tímabilinu frá því í fyrra. Félagið flutti rúmlega 15 þúsund farþega íleiguflugi og fækk- aði þeim um 19% frá því í fyrra. Af einstökum mörkuðum félags- ins varð mest aukning á farþegum frá Hollandi eða 60%. Þá fjölgaði farþegum frá Þýskalandi um 33% og 20% frá Noregi. Aftur á móti varð um 15% samdráttur í Frakk- landi og sömuleiðis fækkaði farþeg- um frá Danmörku um 13% en hér á landi varð einungis um 2,6% sam- dráttur. Flug Flugleiða milli Ham- borgar og Kaupmannahafnar hefur gengið vel það sem af er og sagði Sigurður að ráðgert væri að íjölga ferðum í 14 á viku næsta sumar á þessari áætlanaleið. Sjá einnig Torgið B8 Erlendir ferðomenn á íslandi ffyrstu níu mánuði áranna 1992 Heildarfjöldi Frá 125.936 134.747 +7,0% Norðurl. samtals Hollandi Japan' Þýskalandi Noregi Bandaríkjunum Bretlandi Austurriki Danmörku Frakklandi Svíþjóð Sviss Ítalíu Finnland 40.442 3.174 1.287 1.619 23.193 28.270 9.532 11.030 17.696 19.823 38.639 -4,3% | 4.588 +44,5% ■■ +25,8% ■ +21,9% | +15,7% +12,0% 4.013 3.473 -13,5 481 2.349 -47,6% Hvernig getur þú tryggt fjárhagslegt öryggi þitt á eftirlaunaárunum? Kynntu þér lífeyrisnámskeið VIB sem haldið verðúr 19. október. Þér er velkomið að koma við í Armúla 13a eða haí'a samband við ntig í síma 91-68 15 30 og ræða málin. Vilborg Lofts, adstodarframkvœmdosljóri VIB VlB VERÐBRÉFAMARKAÐUR ÍSLANDSBANKA HF. Ármúla 13a, 155 Reykjavik. Sími 68 15 30. Myndsendir 68 15 26.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.