Morgunblaðið - 07.10.1993, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ VIDSKIPTI/ATVINNIILÍF FIMMTUDÁGUR 7. OKTÓBER 1993
B 7
tM.mmuT
Vilja víðtækar takmark-
anir á rússaáli
ÁLFRAMLEIÐENDUR í Vestur- Evrópu berjast nú fyrir varanlegum
takmörkunum á innflutningi áls frá Rússlandi og öðrum samveldisríkj-
um vegna ástandsins á álmarkaðinum. Benda þeir meðal annars á,
að þeir hafi dregið úr framleiðslu sinni um 25% síðasta hálfa þriðja
árið og sagt upp 10.000 manns og neyðist til að draga saman seglin
enn frekar verði ekki settar skorður við ódýra álinu frá Rússlandi.
„Það eru Rússar, sem hafa valdið þessum erfiðleikum,“ segir Dick
Dermer, forseti EAA, Samtaka evrópskra álframleiðenda. „Við verð-
um að fá aðlögunartíma. Það er engin þörf fyrir rússnesku fram-
leiðsluna."
Alútflutningur samveldisríkjanna
til Vestur-Evrópu rúmlega fjórfald-
aðist frá 1990 til 1992 og var þá
orðinn rúmlega ein milljón tonna á
ári. Dag Flaa, stjórnarformaður
EAA og yfirmaður álframleiðslu
Norsk Hydro, segist áætla, að álút-
flutningur samveldisríkjanna til
Vestur-Evrópu, Bandaríkjanna og
Japans slái öll met á þessu ári og
verði um 1,4 milljónir tonna.
EB-kvótinn skiptir litlu
í ágúst ákvað Evrópubandalagið
að setja kvóta á álinnflutning frá
samveldisríkjunum, 60.000 tonn síð-
ustu fjóra mánuði ársins, og vonast
EAA til, að kvóti verði einnig settur
á næsta ári. Talsmenn samtakanna
viðurkenndu þó, að slíkur EB-kvóti
kæmi ekki að miklu gagni. Álvið-
skiptin fara nefnilega fram á opnum
heimsmarkaði og álverðið lækkaði
raunar eftir að EB-kvótinn var sett-
ur á í ágúst. Birgðir hafa líka hald-
ið áfram að aukast og eru nú áætlað-
ar átta milljónir tonna í heiminum
eða meiri en helmingur árlegrar ál-
notkunar á Vesturlöndum. Hún er
15,5 milljónir tonna.
Vegna landfræðilegrar nálægðar
varð Vestur-Evrópa fyrst fyrir barð-
inu á ódýra álflóðinu frá Rússlandi
en EB-kvótinn virðist hafa beint því
að. nokkru leyti til Bandaríkjanna.
Þess vegna gera framleiðendur í
Vestur-Evrópu sér vonir um, að
bandarísk stjórnvöld loksins til við-
ræðu um samvinnu við Evrópu-
bandalagið um að takmarka útflutn-
ing Rússa.
Karl Wobbe, framkvæmdastjóri
VAW Aluminium AG, hefur hvatt
til samkomulags allra álframleið-
enda í heimi, þar á meðal Rússa,
um að minnka framleiðsluna um eina
milljón tonna eða meira en í staðinn
bjóðist evrópski áliðnaðurinn til að
hjálpa Rússum við endurnýjun
bræðslnanna og við að draga úr
menguninni, sem er gífurleg.
10 ára bann við rússaáli?
Líkur á slíku samkomulagi þykja
þó ekki miklar, meðal annars vegna
stjórnmálaástandsins í Rússlandi, og
Dag Flaa hefur því krafist róttækra
ráðstafana. Hann segir, að áliðnað-
urinn í Vestur-Evrópu þurfi að vera
laus við innflutninginn frá Rússlandi
í tíu ár til að hafa tíma til að endur-
skipuieggja sig. „Við erum að biðja
um aðlögunartíma svo unnt verði
að komast hjá víðtækum og alvarleg-
um afleiðingum," segir hann.
Á síðustu fimm árum hefur ál-
verðið fallið um næstum 50% og er
nú um 1.150 dollarar tonnið. Rúss-
neskir framleiðendur geta samt boð-
ið álið á 25% lægra verði. Ef verði'
lækkaði enn frekar, ætti stór hlut.
vestur-evrópskra framleiðenda ekki
annarra kosta völ en loka bræðslun-
um.
imillU.IKLUIJ .......
Meiri lax til
Bandaríkjanna
MIKIL aukning hefur verið í
útflutningi á reyktum laxi til
Bandarikjanna. Ura er að ræða
magnaukningu auk þess sem
hlutur íslendinga á Bandaríkja-
markaði hefur aukist. Á síðasta
ári fluttu Islendingar þangað
reyktan lax fyrir rúmar 70 millj-
ónir og er það tæplega tvöföld-
un á einu ári.
Á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs var hlutur íslands í heildarinn-
flutningi Bandaríkjanna á reykt-
um laxi 13% en var 8% árið 1992.
Þetta kemur fram í Útskoti, frétta-
blaði Útflutningsráðs íslands.
hu
X—
'OJ
*o
D
CÖ
(D
CQ
U)
C
'xo
'o)
OJ
cD
•C
p
>
CT>
vv»
=3 !
E __
< pne
V)
3
ta
c
'O
TD
tO
Ct
■e
1
c
c
'ö j.
CL
s
öci
<D
E
to
«o
o
XI
E
3
■■ n ■■
■• Vr ■■
■■ Va. ■■
TÆKNI- 0G TOLYUDEILD
Heimilistæki hf.
SÆTÚNI 8 * 105 REYKJAVfK • SÍMI 60 15 00 • BEINN SÍMI 69 14 00 • FAX 69 15 55
AceR {♦
F-21 -
Innbyggður faxdeilir
Tengi f. síma og símsvara.
íslenskar leiðbeiningar.
Kr. 44.900 stgr. m/vsk.
ÍT
n
i
F-22
Innbyggður faxdeilir
Tengi f. síma og símsvara.
íslenskar leiðbeiningar.
Veljari fyrir símanúmer.
Kr. 49.900 stgr. m/vsk.
F-24
Innbyggður faxdeilir
Tengi f. síma og símsvara.
íslenskar leiðbeiningar.
Innbyggður símsvari.
Kr. 59.900 stgr. m/vsk.
OT
r ^ ;ln
j &
F-26
Innbyggður faxdeilir
Tengi f. síma og símsvara.
íslenskar leiðbeiningar.
Tölvutenging f. Windows.
Kr. 59.900 stgr. m/vsk.
AcerFax fjölskyldan
fyrir heimilið og vinnustaðinn.
Kaupmenn athugið!
Frá og með 1. október ber ykkur skylda til að veita
lántakendum upplýsingar um kjör neytendalána.
Forritið Tryggur reiknar út lánsupplýsingar skv. nýju
lögunum.
Menn og mýs hf.
Tæknigarður, Dunhaga 5,
107 Reykjavík.
Sími: 91-694938, fax: 91-694991.
I
Vaskhugi
forrit sem sparar
Pétur Guðmundsson, framkvæmdastjóri PET hf.
„Ég rek einn lítiðfyrirtœki og hef nánast engan tíma til almennra
bókhaldsstarfa. Til þess að einfalda þessi störf keypti ég mér ífyrra
tölvu, prentara og Vaskhuga. Þetta reyndist byltingfyrir minn rekstur.
Vaskhugi er forrit sem hentar mér“.
Vaskhugi er fjárhags-, viðskipta-, launa- og birgðabókhald ásamt sölukerfi,
verkefnabókhaldi, skýrslugerð m.m. Upplýsingar eru færðar aðeins einu
sinni í tölvuna og mánaðar- og áramótauppgjör verða leikur einn.
Kynntu þér Vaskhuga hjá okkur á Grensásvegi 13 eða hringdu í
.- síma 682 680 og fáðu sendar upplýsingar.
^N^Vaskhugi hf.
Grensásvegi 13 • Sími 682 680 • Fax 682 679
Við veitum láu
til athafnaskálda
sem yrkja fraihfaraverk
á Veslur - Norðurlöndmn
Lánasjóður Vestur-Norðurlanda er í eigu Norðurlandanna
allra og er samvinnuverkefni til eflingar og þróúnar atvinnu-
lífi í Færeyjum, á Grænlandi og íslandi.
Sérstök áhersla er lögð á verkefni sem geta þróað nýja fram-
leiðslu til útflutnings, eða bætta þjónustu og nýsköpunar-
verkefni, sem byggja á hugvitsauðlind þegnanna.
Starfsmenn sjóðsins meta arðsemi verkefna í samvinnu
við umsækjendur og lögð er áhersla á, að komast skjótt
að niðurstöðu.
Lán eru gengistryggð og með hagstæðum greiðslukjörum.
Trygging fyrir láni skal vera veð í fasteign eða
bankaábyrgð.
Skilyrt lán frá sjóðnum eru einnig í boði, til dæmis vegna
forkönnunar á verkefni.
Hafðu samband. Við veitum fúslega nánari upplýsingar um
lán til raunhœfra framfaraverkefna í öllum amnnugreinum.
LÁNASJÓÐUR VESTUR- NORÐURLANDA
Rauðarárstígur 25, Box 125 Reykjavík
Sími: (91) - 60 54 00 Fax: (91) - 2 90 44