Morgunblaðið - 01.12.1993, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. DESEMBER 1993
43
íslensk sveit í 2. sæti á alþjóðlegn móti á Sikiley
Úrslitaleikurinn tapað-
ist með eins stigs mun
Morgunblaðið/GSH
Island í 2. sæti
ÍSLENSKA liðið á verðlaunapalli í Pálermo. Frá vinstri eru Gian-
arrago Rona forseti ítalska bridssambandsins, Aðalsteinn Jörgens-
en, Björn Eysteinsson, Jón Baldursson, Sverrir Ármannsson, Aldo
Borzi skipuleggjandi mótsins og Helgi Jóhannsson forseti Bridge-
sambands íslands.
___________Brids____________
Guðm. Sv. Hermannsson
ÞAÐ vantaði aðeins tvo impa á
islenskan sigur á alþjóðlegu
bridsmóti sem haldið var á Sik-
iley um miðjan síðasta mánuð.
í úrslitaleik mótsins vann pólsk
sveit íslenskt úrvalslið með eins
impa mun, 60-59.
Mótið, sem nefnt er Palermo
Superbowl, var haldið í Palermo
á Sikiley og þangað er árlega
boðið einni sveit frá hveiju Evr-
ópulandi sem unnið hefur heims-
eða Evrópumót í sveitakeppni.
Þessi lönd eru Ítalía, Svíþjóð,
Bretland, Þýskaland, Holland,
Frakkland, Grikkland, Austurríki,
Pólland og ísland. Mótið er haldið
af ferðamálayfirvöldum á Sikiley
í samvinnu við ítalska og evrópska
bridssambandið og er því einskon-
ar míní-Evrópumót. Bretar mættu
ekki til leiks að þessu sinni og
því var ítalska kvennaliðinu boðið
í staðinn, en það varð í 2. sæti á
Evrópumóti kvenna í sumar.
ísland tók fyrst þátt í þessu
móti í fyrra en gekk ekki vel þá.
Að þessu sinni var íslenska liðið
skipað Aðalsteini Jörgensen, Birni
Eysteinssyni, Jóni Baldurssyni og
Sverri Ármannssyni. Liðunum var
fyrst skipt í tvo riðla sem spiluðu
einfalda umferð með 20 spila
leikjum og tvær efstu sveitimar
í hvorum riðli komust í úrsiitin. í
fyrsta leiknum vann íslenska liðið
ítalska kvennaliðið, 20-10 og í
öðrum leik mættust Norðurlanda-
þjóðirnar tvær. Tónninn í leiknum
var sleginn í fyrsta spilinu:
Norður
♦ D84
4 DG732
Vestur ♦ 103 4G64 Austur
4 ÁKG753 42
4 964 4 ÁK5
♦ G7 ♦ ÁKD64
4 K10 4D532
Suður 41096 4108 ♦ 9852 4Á987
Við annað borðið spiluðu Björn
og Aðalsteinn 4 grönd í AV og
fengu 11 slagi. En við hitt borðið
voru þetta sagnir:
Vestur Norður Austur Suður
Bjerreg. JB Morath SÁ
2 hjörtu(!)2 grönd pass
3 spaðar pass 3 grönd pass
4 grönd pass 6 tíglar/
Jón opnaði á veikum tveimur
hjörtum og líklega hefur það ýtt
Svíunum Morath og Bjerregárd í
6 tígla, sem er ágæt slemma og
á opnu borði er erfitt að sjá hvern-
ig hægt er að tapa henni. Komi
út hjarta getur sagnhafi einfald-
lega tekið trompið, trompað spað-
ann góðan og spilað blindum inn
á laufakóng. Spili suður út laufa-
ás og meira laufi getur sagnhafi
trompað lauf í borði og hent hjarta
niður í spaðakóng.
En sagnhafi sá ekki allar hend-
urnar. Við borðið spilaði Sverrir
út hjartatíu. Anders Morath tók
með ás og síðan fjórum sinnum
tromp. Jón í norður sá hvert
stefndi og henti því laufafjarkan-
um í eitt trompið; kallaði þannig
í laufi til að þylq'ast eiga laufásinn.
Og Morath þótti það ekkert
ósennilegt eftir opnun Jóns og
spilaði næst laufi á tíuna. Jón
drap með gosa og vissi að Sverrir
átti laufásinn. En hann sá einnig
að ekkert lá á að taka laufslaginn
og spilaði því hjarta. Morath tók
á kóng og svínaði spaðagosa í
örvæntingu. Jón drap á drottn-
ingu og spilaði meira hjarta og á
endanum fór Morath fjóra niður
á slemmunni. 12 stig til íslands.
Jón fylgdi þessu eftir strax í
næsta spili þegar hann hélt á:
49652 462 4K1087532 4-
Hann var á hættu gegn utan og
sagnir gengu.
Vestur Norður Austur Suður
Bjerreg. JB Morath SÁ
1 hjarta
1 spaði pass 3 spaðar pass
4 spaðar ?
Jón sagði 5 tígla og var doblað-
ur umsvifalaust. En Sverrir átti:
4- 4ÁKG93 4964 4KDG76
og þegar tígulás og laufás voru
réttir fékk Jón 12 slagi og 950
fyrir. Við hitt borðið fengu Björn
og Aðalsteinn að spila 4 spaða,
tvo niður og ísland fékk 13 stig.
Leiknum lauk svo með sigri ís-
lands, 25-5.
Oruggt úrslitasæti
í þriðja leiknum tapaði ísland
fyrir Hollandi, 13-17 og gerði
jafntefli við Frakka, 15-15, í þeim
fjórða. Þar með var ísland öruggt
með úrslitasæti þótt liðið ætti yfir-
setu í síðasta leik, og vann raunar
riðilinn örugglega með 91 stigum.
í öðru sæti urðu Frakkar með 87
stig, einu stigi meira en Hollend-
ingar. Hinn riðilinn unnu Pólverj-
ar en Austurríkismenn voru í öðru
sæti.
ísland spilaði 24 spila undanúr-
slitaleik við Austurríki og tók
strax nokkuð örugga forustu. I
hálfleik munaði 20 stigum og í
þeim síðari virtist sigurinn aldrei
í hættu; Aðalsteinn og Björn gátu
meira að segja leyft sér þann
munað í síðasta spilinu að fara í
alslemmu þar sem vantaði tvo ása
án þess að það breytti úrslitunum.
Pólveijar unnu Frakka örugg-
lega í hinum leiknum og því
mættust íslendingar og Pólveijar
í 24 spila úrslitaleik. í pólska lið-
inu spiluðu Piotr Tuszynski, sem
hefur tekið þátt í Bridshátíð hér,
Apolinary Kowalski, Janusz Polec
og Krzysztof Gwys.
ísland byrjaði betur í leiknum
en síðan fóru Pólveijarnir að skora
og staðan í hálfleik var 40-13
fyrir Pólland. í síðari hálfleik sax-
aði íslenska liðið smátt og smátt
á forskotið og Pólveijarnir voru
sumir orðnir býsna taugaóstyrkir
þegar leið á leikinn. En fyrir síð-
asta spilið munaði enn 12 stigum:
A/AV
Norður
4 ÁD3
4 K3
♦ D732
4 KG64
Vestur Austur
4 KG9854 4 72
4 K986 4 DG862
♦ Á ♦ 10
4 4109875
Suður
4106
4 Á1075
♦ ÁG54
4 D32
Við bæði borð endaði norður í
3 gröndum eftir að suður hafði
opnað á tigli og vestur sagt spaða.
Við annað borðið spilaði austur
út litlu hjarta og Bjöm lét sjöuna
nægja í blindum og drap níu vest-
urs með kóng. Hann spilaði næst
tígli á ásinn í borði og þaðan kom
lítið lauf. Þegar ásinn birtist frá
vestri var spilið unnið: Bjöm fékk
þijá slagi á lauf, tvo á tígul, tvo
á hjarta og tvo á spaða. 400 til
íslands.
Við hitt borðið spilaði Jón út
spaða og nú virtist vörnin hafa
yfirhöndina. En við nánari skoðun
sást að sagnhafi getur unnið spil-
ið: Hann fer inn í blindan á hjarta-
ás og spilar þaðan laufi. Inni á
laufás frýjar vestur spaðalitinn
en þegar sagnhafi tekur laufa-
slagina verður vestur að henda
einum spaða ef hann vill vernda
tígulkóng. Sagnhafi tekur þá
hjartaás og spilar vestri inn á
spaða og fær tvo tígulslagi í lok-
in. Velji vestur að henda af sér á
annan hátt hefur sagnhafi svör
við því, svo framarlega sem hann
les spilið rétt.
En Kowalski spilaði laufakóng
í öðmm slag og eftir það átti
hann sér ekki viðreisnar von.
Hann endaði raunar tvo niður,
100 til íslands. En það gaf ís-
landi aðeins 11 stig og þótt Islend-
ingarnir ynnu síðari hálfleikinn
46-20 unnu Pólveijar leikinn,
60-59.
HREINLÆTISTÆKI
Baðkör
Formað með arm-
hvílum, króm-
handföngum og
hljóöeinangrun
170x75
Kr. 10.900
160x75
170x70
Kr. 6.940
160x70
Kr. 6.520
140x70
Kr. 5.790
Kr. 9.950
WC
sett
með stút í vegg
eða yfirbyggt í
gólf m/harðri
setu Kr.
9.97°
Sturtubotnar
70x70 80x80
Kr. 2.650 Kr. 2.950
Á vegg:
45x55 cm Kr. 2.490
35x45 cm Kr. 2.290
^orð: 60x49 cm
55x47 cm
Kr. 6.420
64x52 cm Kr. 6.990
Kr. 10.790
Öll verð eru stgr.verð m/VSK.
Opið mánudaga
til föstudaga 9-18.
Opið laugardaga 10-16.
FAXAFEN9
SÍMI 91-677332
■ DREGIÐ hefur verið í happ-
drætti Handknattleiksdeildar IR.
Vinningar komu á eftirtalin númer:
1. vinningur númer 18, 2.-3. vinn-
ingur nr, 708 og 1150, 4.-6. vinn-
ingur 504, 1064 og 2379, 7.-16.
vinningur 1205, 303, 1105, 57,
862, 1166, 2169, 1259, 802, 1554,
17.-22. vinningur 304, 1080, 583,
1712, 1958, 252 og 23.-28. vinn-
ingur komu á númer 229, 1219,
1776, 2153, 1803 og 1539. Vinn-
ingar verða afhentir á skrifstofu
Handknattleiksdeildar ÍR, Gren-
( inu, Arnarbakka 2.
(Birt án ábyrgðar)
X-Jöfdar til
JLXfólksíöllum
starfsgreinum!
555C3'.-
KRABBAMEINS F E L A G S I N S 1993
VEITTU STUÐNING - VERTU MEÐ!
í þetta sinn voru miðar sendir konum, ááldrifium 23ja - 75 ára. Við þökkum öllum þeim
sem þegar hafa borgað miðana og minnurrvþiná á dfeðan málstað og verðmæta vinninga
Greiða má í banka, sparisjóði eða pöstafgfáðslu til hádegis á aðfangadag jóla.
I Vakin er athygli á því að hægt er að-borgfl’með greiðslukorti (Visa, Eurocard).
| Hringið þá í sírfia4[9*1) 621414.
Hver keyptur miðí eflir sókn og vörn gegn krabbameini!