Morgunblaðið - 24.12.1993, Page 6

Morgunblaðið - 24.12.1993, Page 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. DESEMBER 1993 4 MENNIRNIR eiga sér drauma sem þeir sjá ekki alltaf rætast - en samt er það svo að draumarnir lifa mennina. Það var árið 1852 sem fyrsta finnska óperan, „The Hunt of King Charles“, eftir Pacius, var flutt, en sungin á sænsku. Þá þegar áttu Finnar sér þann draum að eignast óperuhús - og höfðu reyndar átt hann frá 1817, þegar fyrst var óskað eftir byggingu þess - þótt fyrsta óperan á finnsku, „Pohjan neiti (Mær norðursins), eftir Merikanto, hafi ekki hljómað fyrr en 1899. Þrátt fyrir aldalanga baráttu um sjálfstæði - við Svía og Rússa á víxl - höfðu þeir enn ekki náð því markmiði, en draumarnir voru á sínum stað. að er ekki víst að margir sem sáu þessa fyrstu óperu, hafi lifað að sjá sjálf- stæðisdrauminn rætast árið 1917, en þegar það gerðist var krafan um óperuhús orðin nokkuð hávær og strax árið eftir var Finnsku óperunni afhent „Alexander-leikhúsið,“ sem hafði verið rússneskt leikhús í Hels- inki frá 1879. Það var þó ljóst frá upphafi að þetta litla fallega leikhús, sem rúm- aði um fimm hundruð manns í sæti, uppfyllti engan veginn þær kröfur sem mikilfenglegar óperuuppfærslur gera og menn byrjaði að dreyma um hús sem væri byggt sérstaklega fyr- ir Finnsku óperuna. Þá þegar var óperulistin orðin það fðst í sessi sem listgrein í Finnlandi að helstu tón- skáld þeirra, Launis, Merikanto, Madetoja, Krohn og Palmgren, skrif- uðu óperur sem fluttar voru á fyrstu „ árunum sem óperan hafði aðsetur í pLlexander-Ieikhúsinu. En Finnar máttu bíða og þeir sem fyrst orðuðu drauminn um óperuhús, lifðu ekki að sjá hann rætast - ekki einu sinni þeir sem unnu við óperuna í Alexander-leikhúsinu á fyrstu árum þess, því nýja óperuhúsið í Helsinki var ekki vígt fyrr en nú nýlega - eða 30. nóvember 1993. Það var mikið um dýrðir í Hels- inki vikuna sem húsið var opnað og strax fyrstu vikuna voru þrjár frum- sýningar. Fyrsta frumsýningin var fínnska óperan „Kullervo“ eftir finnska tónskáldið Aulis Sallinen, næsta kvöld var ballettinn „Svana- vatnið", eftir Tsjaikovskíj frumsýnd- ur - en það er sá ballett sem notið hefur hvað mestrar hylli í Finnlandi. Þriðja frumsýningin var svo á „Carmen,“ eftir Bizet - sem er óp- eran sem nýtur hvað mestra vinsælda meðal Finna. Óperuhúsið Mestan áhuga vakti þó húsið-sjálft - sem er ákaflega stflhreint og fal- legt - þótt vissulega heyrist þær raddir að það sé kuldalegt í sínum bláu, grábláu og snjóhvítu litum - það er að segja að innan. En saga sjálfs óperuhússins er orðin nokkuð löng, því það var árið 1975 sem aug- lýst var samkeppni um hönnun þess. Það er ekki lítið tækifæri fyrir arki- tekta að fá að hanna svo viðamikla opinbera byggingu og alls barst 101 hugmynd í samkeppnina. Niðurstað- an var kunngerð í janúar 1977 og sigurvegarinn bar leyninafnið Scalapuikko. Á bak við það leyninafn reyndust vera þrír arkitektar; þeir Eero Hyvámáki, Jukka Karhunen og Risto Parkkinen. Undirbúnings- og hönnunarvinna tók þijú ár en þegar henni lauk, samþykkti borgarstjórn Helsinki að úthluta óperunni lóð, þar sem gömul sykurverksmiðja stóð. Menntamála- ráðuneytið samþykkti tillögumar og lóðina - en síðan sigldi allt í strand, þar sem enn hafði ekki verið ákveðið hvenær ætti að hefja verkið. Þar við sat í þijú ár, eða þar til ráðuneytið flutti verkefnið yfir á verksvið stofn- unar sem sér um allar opinberar byggingar. Það þurfti að breyta lóð- inni og umhverfi hennar og þær breytingar höfðu ekki verið sam- þykktar en eftir mikið japl og jaml og juður, hafðist samþykki i gegn þremur árum seinna. Boranir og gröftur á lóðinni hófst fljótlega og 1. nóvember 1988 var homsteinn að Finnska óperuhúsinu lagður. Upphaf Finnsku óperunnar Finnska óperan var formlega stofnuð árið 1911, af söngkonunni Aino Ackté, sem hefur náð einna lengst finnskra söngvara á alþjóðleg- um vettvangi, og píanóleikaranum Edvard Fazer, sem á þeim tíma var framkvæmdastjóri Tónleikamið- stöðvarinnar, sem naut alþjóðlegrar viðurkenningar. Nafnið sem þau völdu óperufélaginu var „Kotimainen Ooppera" sem má útleggja sem Inn- lenda óperan. En hún bar einnig sænska nafnið „Inhemska Operan," vegna þess að í Finnlandi hefur lengst af verið mælt á tvær tungur og óperufélagið þurfti að afla sér stuðnings sænskumælandi mennta- stéttarinnar í Helsinki sem og finn- skumælandi alþýðunnar. Stofnendur óperufélagsins vom einnig tenór- söngvarinn Váino Sola og tónskáldið, píanóleikarinn og hljómsveitarstjór- inn Oskar Merkanto. Þegar árið 1911 fékk óperan afnot af Alexander-leik- húsinu og á fyrsta leikárinu ýoru tvær óperur settar upp, „I Pagl- iacci", eftir Leoncavallo, sungin á sænsku og „La Navarraise",/ eftir Massenet, sungin á finnsku. í þeirri seinni söng Aino Ackté og gersam- lega heillaði landa sína. En Innlenda óperan naut ekki krafta hennar lengi, því af einhveij- um ástæðum stirðnaði samkomulag- ið milli hennar og herranna og Aino Ackté yfirgaf Innlenda óperufélagið. Það mæddi töluvert á Fazer, sem var framkvæmdastjóri og sá sem hafði verið hugmyndafræðingurinn, ásamt Aino Acté, á bak við félagið. Það má segja að óperan hafí verið líf hans, því honum þótti ekkert starf þar fyrir neðan sína virðingu og varði nánast ölium sínum péningum í að halda Innlenda ópemfélaginu á lífi. Árið 1914 var nafni félagsins breytt í „Finnsku óperuna". Til að byija með voru aðeins sex uppfærsl- ur á ári á vegum hennar og fyrri heimsstyijöldin raskaði starfseminni Odile og prinsinn nánast ekkert - vegna þess að starf- semin hafði hvort eð er ekki neitt sérstakt skipulag og sýningar voru óreglulegar. Þegar svo bylting bosé- víka braust út í Rússlandi árið 1917, ákváðu Finnar að nú væri rétti tíminn til að losa sig endanlega undan yfir- ráðum erlends ríkis og lýstu yfir sjálfstæði sínu 6. desember 1917. En áður en hið unga lýðveldi náði fótfestu, geysaði blóðug borga- rastyijöld í landinu, milli hægrisinn- aðra og sósíalískra fylklinga. Þá styijöld unnu hægrisinnar og lögðu þeir undir lýðveldið allar fyrmm byggingar rússneska keisaradæmis- ins, þar á meðal Alexander-leikhúsið og ríkisstjómin úthlutaði Finnsku óperanni það til eignar. Alexander-leikhúsið og ballettflokkur Strax var ráðist í að breyta og gera endurbætur á leikhúsinu og fyrsta fmlmsýningin þar var óperan , eftir Verdi, í janúar 1919. voru erlendir listamenn í stöð- ur aðalstjórnanda, leikstjóra og kór- stjóra, þar sem ekki var nóg af fólki innanlands sem uppfyllti þær kröfur sem gerðar voru og má segja að óperuhúsið sem Fazer stjórnaði á 3. áratugnum hafi verið æði alþjóðleg stofnun. En „innrás" útlendinganria vakti úlfuð meðal fjölda finnskra listamanna sem fannst framhjá sér gengið. Það er þó Ijóst að þótt Finnska óperan hafi átt fjöldann all- an af góðum/Söngvurum, hefði ung- versk/þýski hljómsveitarstjórinn Franz Mikorey aldrei getað mannað hina viðamiklu sýningu á „Tannháus- er“ eftir Wagner ef ekki hefði komið til aðstoð erlendis frá. Viðbrögð gagnrýnenda við sýningunni voru góð. Þeir álitu Tannhaauser óperu sem væri vel til þess fallin að lyfta á hærra plan listrænum og siðfræði- legum metnaði óperunnar. Verdi var „Aida": f Ráðnir álitinn „banal“ og „léttvægur" á þeim tíma og var ekki fyllilega viður- kenndur fyrr en síðar. Helstu erfíðleikar Finnsku óper- unnar á þessum tíma vom þeir að hún hafði ekki eigin hljómsveit til umráða og Fílharmóníuhljómsveit Helsinki var aðeins laus til þjónustu við hana fjögur kvöld í viku. Samt sem áður vom sex til sjö fmmsýning- ar á hveijum vetri, en auk þeirra voru aðrar óperur á efnisskránni - eða alls 20 á hverju starfsári og sýn- ingar vom alls 150 á ári. Árið 1922 rættist svo einn af stærstu draumum ópemstjórans, Fazers, þegar hann stofnaði ballettflokk við Finnsku óperuna. Mikorey var aðalhljómsveitarstjóri á árunum 1919 til 1924 og fyrir utan skort á hljóðfæraleikurum var aðalvandamál hans skortur á fjár- magni því fátæklegir ríkisstyrkir dugðu skammt og þegar hann yfir- gaf stöðu sína, var Finnska óperan í rauninni gjaldþrota - þótt vissulega ætti Mikorey enga sök þar á. En til að bjarga óperunni, veitti ríkisstjórn- in leyfi fyrir lotteríi árið 1925 og allar götur síðan hefur rekstur Finnsku óperunnar verið tryggð- ur með ríkisreknum happdrættum og ágóða af knattspyrnugetraun- um. Árið 1924 staðfestu Finnar sitt eigið óperutungumál við framsýn- ingu á óperanni „Pohjalaisia" (Fólkið í Austurbotni) sem hlaut fádæma góðar viðtökur og hefur verið mjög vinsæl meðai Finna allar götur síðan. Og það verður að segja þeim Finnum sem stjórnuðu óperumálum á 3. ára- tugnum til hróss að þröngsýni hijáði þá ekki. Þeir leituðu út fyrir eigin landamæri að frumlegum og nýjum óperum og á þessum árum settu þeir upp „Jenufa“ eftir Leos Janacek og „Jonny spielt af“, jassóperu eftir Ernst Krenek. Um 1930 leið hinsvegar andi mód- emismans undir lok hjá Finnsku óperunni. Kreppan tæmdi áhorfenda- pallana og hin hið dapurlega pólitíska andrúmsloft tímans var ekki vinveitt ópemlistinni; svo lítið fjármagn barst og svo mikið var áhugaleysið að reynt var að setja upp óperettur til að trekkja alþýðuna að húsinu - en til einskis. Árið 1932 var Armas Járnfelt skipaður aðalhljómsveitarstjóri óper- unnar. Hann hafði skapað sér virð- ingarsess og átt glæsilegan feril sem hirðhljómsveitarstjóri óperunnar í Stokkhólmi. Jámfelt gerði miklar kröfur hvað varðar metnað og sið- fræði við óperuna og í hans huga vom óperettur og ballett lágkúruleg- ar listgreinar. Hans metnaður fólst í að sviðsetja allan Niflungahring Wagners. Sjálfur var hann bæði hljómsveitarstjóri og leikstjóri í upp- setningunni. Járnfelt þótti einnig afburða Mozart-stjórnandi. Árið 1935 hafði honum tekist að höggva ballettflokkinn af Óperunni og á sama tíma var uppsetningum á ópe- rettum hætt. Hann gerði sér hins vegar ekki grein fyrir hvílíkra vin- sælda ballettflokkurinn naut meðal borgarbúa og eftir kröftug mótmæli þeirra, varð hann að beygja sig og innlima dansflokkinn aftur. í fram- haldi af því sagði hann stöðu sinni lausri árið 1935. Árið 1938 ákvað Fazer að hætta sem framkvæmdastjóri Finnsku óp- erunnar og kallaði nú söngkonuna Aino Ackté aftur heim til að taka við starfínu. Eftir eitt ár sagði hún af sér. Næsti framkvæmdastjóri var hetjutenórinn Oiva Soini, sem söng með Finnsku óperunni, en var jafn- framt bóndi og bisnessmaður. Fljót- lega eftir að hann tók við starfi braust „vetrarstríðið“ milli Finnlands og Sovétríkjanna út og í framhaldi af því seinni heimsstytjöldin, en aldr-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.