Morgunblaðið - 31.12.1993, Page 28

Morgunblaðið - 31.12.1993, Page 28
28 B MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 31. DESEMBER 1993 16500 • • Jólamynd Stjörnubíós Stórmyndin Old sakleysisins Daniel Day-Lewis Michelle Pfeiffer Winona Ryder ttARUN SCOISKB HOST fASSIONATt ANO fOWllflíl HOTION flCTUIÍ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ mu thí ruui?a nm winninc novu COLUMtU HCTITB h. . amm hna . w sœtsm ** P.AN1EI OAV IÍWIS MICHT.tU' fifjftll WiVONA IVDKT *THf. ACF. öí INNOCE.VCE* *t£LMEI 0EÍVSTESN eCAEIIEUA EfiCt'CCÍ ^THELMA SCHOöNF* tgDAXTE EFMrrri áWMICHAIt ÍAUHACS.uc Æ5EDITH WHAITö.N'-tlAT COCKS t HAITIN SCOISESE gjlg **t8SIISIA DE EINA *-TMAlTIN SCOISESE -naaa .....-- «5S3£fy| ★ ★★★ A.l. MBL. ★ ★ ★ H.K. DV. gerð eftir Pulitzer-verðlaunaskáldsögu Edith Wharton. DflNIEL DAY-LEWIS, MICHELLE PFEIFFER OG WINONfl RYDER í STÓRMYND MARTINS SCORSESE. EINSTÖK STÓRMYND SEM SPÁÐ ER ÓSKARSVERÐLAUNUM. STÓRBROTIN MYND - EINSTAKUR LEIKUR - SÍGILT EFNI - GLÆSILEG UMGJÖRÐ - GULLFALLEG TÓNLIST - FRÁBJER KVIKMYNDATAKA - VÖNDUÐ LEIKSTJÓRN. í NÝJU OG STÓRGLÆSILEGU STJÖRNUBÍÓI Sýnd kl. 4.45, 9 og 11.30. EVRÓPUFRUMSÝNING Á GEGGJUÐUSTU GRÍNMYND ÁRSINS Hún er algjörlega út í hött.. Já, auðvitað, og hver annar en Mel Brooks gæti tek- ið að sér að gera grín að hetju Skírisskógar? Um leið gerir hann grín að mörgum þekktustu mynd- um síðari ára, s.s. The Godfather, Indecent Propos- al og Dirty Ilarry. Skelltu þér á Hróa; hún er tví- mælalaust þess virði. Leikstjóri: Mel Brooks. ★ * ★ ★ BOX OFFICE ★ ★ ★ VARIETY ★ ★★ L.A.TIMES Sýnd kl. 5,7,9og11. SVEFNLAUS í SEATTLE sýnd í A-sai ki. 7.10. Lokaó gamlársdag, sýningar á nýársdag ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★ ★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★★ 10 bestu myndimar 1993 Sæbjörn Valdimarsson 1. Ljótur leikur — Crying Game Rómantísk, spennandi, ögrandi, ógleymanlegt snilldarverk um mannlegar tilfinningar í nýju ljósi og ómanneskju- legu umhverfi. (Neil Jordan 1992.) 2. Píanóið — The Piano Stórbrotinn leikur Holly Hunter, seiðandi og framandi efni ásamt traustri leikstjóm gera myndina eina þá eftirminnilegustu á ánnu. (Jane Campion 1992.) 3. Old sakleysisins — Age of Innocense Besta mynd Scorsese síðan Raging Bull er meistaraleg skoðun á háttum heldri manna og ást í meinum á öldinni sem leið, þar sem tilfinningarnar ólga undir yfirborðinu. (Martin Scorsese 1993.) 4. Við árbakkann — A River Runs Through It Það fer ekki saman lukkan á árbakkanum og lífslánið í einni best teknu mynd um langt árabil. Heillandi óður til mannsins og umhverfisins. (Robert Redford 1992.) 5. Aladdín Þær gerast ekki betri né skemmtilegri teiknimyndirnar frá Disney, fyrr né síðar og íslenska talsetningin óaðfinnanleg. (John Musker, Ron Clemens 1992.) 6. Konuilmur — Scent of a Woman Beinskeytt mynd um tragikómískt sam- band tveggja, gjörólíkra einstaklinga. Vel skrifuð og A1 Pacino í Óskarsverðlauna- formi eina ferðina enn — og vann. (Mart- in Brest 1992.) 7. Rauði lampinn Afar fínleg, döpur, minnisstæð mynd um tilgangslitla jafnréttisbaráttu kvenna í karlaveldinu Kína. (Zhang Yimou 1992) 8. Hinir óæskilegu — Menace II Society Hreinskilni og vonleysi þessarar sterku myndar um virðingarleysi og vond kjör þeldökkra unglinga kemur eins og köld vatnsgusa framan í áhorfandann. (Allen og Albert Hughes 1993.) 9. Indókína — Indochina Hádramatísk stórmynd, óaðfinnanleg út- lits, um ástir og umbrot í Indókína undir Frökkum. Catherine Denevue ómótstæði- leg. (Régis Wargnier 1992.) 10. Feilspor — One False Move Hrottaleg glæpasaga með rómantísku ívafi, skýrum persónum, hnökralausri framvindu og fínum leik. Frumleg í ein- faldleik sínum og gott vitni um gróskuna í sjálfstæðri kvikmyndagerð vestan hafs. (Carl Franklin 1992.) Arnaldur Indriðason 1. Öld sakleysisins - The Age of Innocence Glæsilegt kvikmyndaverk um samfélags- gerð aðalsins í New York á síðustu öld, sem hlekkjar menn fasta í ósýnileg en alltumlykjandi boð og bönn. Martin Scor- sese. 1993. 2. Malcolm X Barátta svertingja í Bandaríkjunum fyrir auknum mannréttindum í ljósi þess sem X-ið boðaði. Merkilegt hvernig Spike ger- ir alltaf betri og betri myndir. Spike Lee. 1992. 3. Skaði - Damage Framhjáhald leiðir af sér dauða og eyði- leggingu í firnasterkri mynd um von- lausar ástir. Louis Malle. 1992. 4. Konuilmur - Scent of a Woman A1 Pacino fer á kostum í hlutverki blinda hershöfðingjans sem ætlar að skemmta sér eina helgi enn og drepa sig svo. Raf- magnaður leikur. Martin Brest. 1992. 5. Aladdín Seinni gullöld Disneyfyrirtækisins nær hámarki með þessari spennandi og einkar skemmtilegu teiknimynd sem að auki er talsett á íslensku. John Musker og Ron Clemens. 1992. 6. Píanóið - The Piano Áhrifamikið drama frá nýsjálenskum kvikmyndagerðarmönnum með Holly Hunter í aðalhlutverki. Hunter er kannski eftirminnilegust úr góðri mynd fyrir sína þöglu angist. Jane Campion. 1993. 7. Ljótur leikur - The Crying Game Það má varla segja frá þessari mynd enn þann dag í dag til að varðveita best geymda leyndarmál síðari tíma kvik- mynda en hún kemur inná ótrúlegustu hluti og er einstaklega góð. Neil Jordan. 1992. 8. Tina - Tina: What’s Love Got To Do With It Hoppandi fjörug ævisöguleg mynd um ömmu rokksins og stormasama og oft ofbeldisfulla sambúð hennar og Ikes. Frábær leikur hjá Angelu Bassett og Larty Fishburne. Brian Gibson. 1993. 9. A ystu nöf - Cliffhanger Einkar spennandi háfjallatryllir. Atriðin í fjöllunum voru eitt af því besta sem spennumyndimar á árinu höfðu uppá að bjóða. Renny Harlin. 1993. 10. Júragarðurinn - Jurassic Park Einfaldlega af því að hún opnar nýjar víddir í kvikmyndagerð. Og svo var þetta árið hans Spielbergs. Steven Spielberg. 1993. ISLENSKA OPERAN sími 11475 eftir Pjotr I. Tsjajkovskí. Texti eftir Púshkín í þýðingu Þorsteins Gylfasonar. Hátíöarsýning sunnnud. 2. jan. kl. 20, örfá sæti laus. Verð á hátíðarsýn. kr. 3.400. Boðið verður uppá léttar veitingar á hátíðarsýningunni. 3. sýn. fos. 7. jan. kl. 20. 4. sýn. lau. 8. jan. kl. 20. Miðasalan er opin frá kl. 15-19 daglega, sýningardaga til kl. 20. Sími 11475. - Greiðslukortaþjónusta. MUNID GJAFAKORTIN OKKAR! pli>r0«itAMciíiAÍÍ» Metsölubioó á hverjum degi! Umhverfísráðherra í Bústaðakirkju Á NÝÁRSDAG mun Össur Skarphéðinsson umhverf- isráðherra flytja stólræðu við hátíðarguðsþjónustu kl. 14 í Bústaðakirkju. Það hefur verið venja undan- farinna ára að fá leikmann til að stiga í stól kirkjunnar á þessum degi. Það er ávallt gleðiefni að fá leikmenn til þátttöku í starfi kirkjunnar og sérstak- lega viljum við fagna um- hverfisráðherra í þessum er- indum í Bústaðakirkju. Við hátíðarguðsþjón- ustuna á nýársdag mun Ing- unn Osk Sturludóttir syngja einsöng og Gunnar Gunnars- son leika á þverflautu. Á gamlársdag er aftan- söngur klukkan 18 og þá er einsöngvari Guðrún Jóns- dóttir. Við guðsþjónustu sunnu- daginn 2. janúar verður ein- söngvari Reynir Guðsteins- son. Þá verða einnig fermd tvö ungmenni, Dýrleif Ár- sælsdóttir, Básenda 9, og Hannes Bergmann Eyvinds- ÁKVEÐIÐ hefur verið að efna til atkvæðagreiðslu um heimild til verkfalls- boðunar meðal starfs- manna SVR hf. Atkvæða- greiðslan er skrifleg og gert er ráð fyrir að niður- staða liggi fyrir fljótlega eftir helgi. Sjöfn Ingólfsdóttir, for- maður Starfsmannafélags Reykjavíkurborgar, sagði að son, Breiðagerði 31. Við áramót þakka sókn- arprestur og sóknarnefnd Bústaðakirkju velunnurum kirkjunnar fyrir ánægjuleg samskipti á senn liðnu ári og biðja þess að blessun Guðs megi leiða land og þjóð á nýju ári. Pálmi Matthíasson Starfsmenn S VR hf. leita eftir verkfallsheimild atkvæðagreiðslan næði til starfsmanna SVR sem hefðu óskað eftir að vera í félag- inu, en á sínum tíma hefðu nánast allir starfsmenn fyrir- tækisins verið í félaginu með- an það var borgarfyrirtæki. Hún sagði að fímm manna samninganefnd hefði verið kjörin á fjölmennum fundum starfsmanna fyrr í desember til að fara með mál þeirra og, myndi nefndin fara með verkfallsheimildina. Ástæðan væri sú að þau vildu gera kjarasamning fyrir starfs- menn, það væri ekki nóg að gera ráðningarsamning nema hann hvíldi á kjara- samningi. Þarna væri um nánast öll kjör starfsmanna að ræða og eðlilegast væri að byggja á kjarasamningi starfsmannafélags sem hefði gilt áður en fyrirtækið varð , að.hlutafélagi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.