Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 1
MERCEDES A SMABILAMARKAÐ - BANDARIKJAMENN FRAM ÚR JAPÖNUM - KÖNNUNÁ RYÐMYNDUN IBILUM - BILASYNINGARIDETROIT OG LOS ANGELES Fcrir leggjca i hringveginn á venjulegum fólksbíl um hávetur en það hafðist á fjórhjóladrifnum Mitsubishi Lancer. 1994 SVNNVDAGUR 9. JANÚAR BLAÐ Mest keypll bíll é íslandl sfOastllðin flðgur ér <® TOYOTA Tákn um gœði Skattar á bíleigendur 17,6 milljarðar á árinu SKATTAR af bifreiðum hækka um 7,13% á milli ára, fara úr 16,420 milljónum 1993 í 17.590 milljónir 1994, samkvæmt fjárlög- um ársins og áætlun Félags íslenskra bifreiðaeigenda um tekjur ríkissjóðs af bifreiðum. Islensk skattyfirvöld hafa náð töluverðu forskoti á skattyfirvöld nágrannaþjóðanna í skattheimtu á bíleig- endur, að sögn Runólfs Ólafssonar framkvæmdastjóra FÍB. milljónir kr. Opinberar. álögur af bensínlítranum er um 72%. Gert er ráð fyrir að tæpir 7 milljarðar renni til vegamála, þar af 530 milljónir kr. til ferja og flóabáta. Áhrif á bílgreinina Renault með minni vél BÍLAUMBOÐIÐ hf., umboðsað- ili Renault, á von á nýjum Re- nault 19 RN með 1400 rúmsenti- metra vél. Fyrstu bílarnir af þessari gerð eru væntanlegir upp úr næstu mánaðamótum, og er áætlað verð á þeim á bil- inu 1.150-1.180 þúsund kr. Fyrsta sendingin sem Bílaum- boðið hf. fékk af Renault 19 RN 1400 seldist upp skömmu fyrir ára- mót, alls tíu bílar. Bíllinn er með 1400 rúmsentimetra vél en er að öðru leyti ágætlega búinn. ■ Tekjur ríkissjóOs af bifreiðum 1992-1994 Heimildir: Fjárlög fyrir 1994, fjármálaráðuneytið og FÍB um áætlaðr tekjur rlkissjóðs al bifreiðum Skattar af bifreiðum milljónir kr. 1992 1993 1994 Skatttekjur ríkissjóðs af hverri bifreið 1992 1993 1994 Skatttekjur af bifreið vísitölusfjölskyldu (m.v. 1,3) 171.932 1992 1993 1994 11% hækkuná skoðunargjaldi Heildarskatttekjur ríkissjóðs af bifreiðum 1992 námu 15.354 millj- ónum kr. en eru áætlaðar eins og fyrr segir tæpir 17,6 milljarðar á þessu ári. Á sama tíma hefur heild- arbílaeign dregist saman um 2,35% og með því hafa skatttekjur ríkissjóðs af hverri bifreið hækkað hlutfallslega meira. Um áramótin hækkuðu bif- reiðagjöld um 35% sem gefur ríkis- sjóði 450 milljónir í auknar tekjur á árinu. Bensíngjald hækkaði um 5% og svipuð hækkun varð á þungaskatti af díselbílum sem eykur skatttekjur um 250 milljón- ir kr. á ári. Hækkun tolls af bens- íni eykur tekjur ríkissjóðs um 140 Runólfur Ólafsson fram- kvæmdastjóri FÍB sagði að félagið hefði rekið sig á vegg þegar það tók upp þessi mál við ASÍ á sínum tíma og samtök atvinnubílstjóra. „Það sem háir okkur er að það er misleitur hópur manna sem á bíla. Það væri æskilegast ef hægt væri að virkja bíleigendur gegn slíkum hækkunum, t.a.m. með akstursstöðvun, en bílar eru orðn- ir þvílík nauðsynjatæki að við höf- um ekki trú á því að það sé fram- kvæmanlegt," sagði Runólfur. Hann sagði að íslendingar hefðu forystu í skattheimtu af bíl- eigendum. „Það er ekki sýnilegur mikill samdráttur í tekjum hins opinbera af bílum í umferð þrátt fyrir gífurlegan samdrátt í inn- flutningi. Við höfum einnig áhyggjur af þeim áhrifum sem slík skattheimta getur haft á bílgrein- ina í framtíðinni. Aukin skatt- heimta á færri bfla þýðir hlutfalls- lega hærri skatta og þróunin á bflgreinina, verslun, viðskipti og viðgerðir, og afleiðingarnar geta orðið alvarlegri eftir því sem lengra líður,“ sagði Runólfur. ■ EINKARÉTTUR Bifreiðaskoðunar íslands féll niður um áramót- in og skoðunarfyrirtækjum sem hlotið hafa faggildingu Löggild- ingarstofunnar verður nú heimilt að annast lögboðna endur- og aðalskoðun. Jafnframt urðu um áramótin breytingar á skoð- unarskyldu ökutækja og gjaldskrám. í reglum sem dóms- og kirkju- málaráðuneytið hefur gefið út eru ákvæði um að fólksbifreiðir skuli skoða í fyrsta sinn á þriðja ári eftir fyrstu skráningu og síðan áriega frá og með fimmta ári. Með þessu verð- ur sú breyting að ekki þarf lengur að skoða fólksbifreiðir á fjórða ári frá fyrstu skráningu. Þá hefur ný gjaldskrá vegna skráningar og skoðunar ökutækja verið gefið út. Hámarksgjald vegna skoðunar bifreiða minni en 5 þúsund kg hækkar um 11,2%, úr 2.230 kr. í 2.480 kr. Breyting á skoðunar- skyldu lækkar hins vegar skoðunar- kostnað hins almenna bifreiðaeig- anda um 4,5% miðað við 10 ára end- ingartíma bifreiðar. Gjöld vegna skráningar ökutækja og fyrir skrán- ingarmerki hækka ekki. ■ AF og til á síðasta ári birtust óstaðfest- ar fréttir af nýrri gerð BMW sem vænt- anleg væri á tnarkað, bíl sem væri ætlað að keppa á sama stærðarntarkaði og VW Golf og Toyota Corolla og fleiri bilar. Nú hefur BMW AG samsteypan sent frá sér yfirlýsingu um að bíllinn sé væntanlegur á markað með vorinu. BMW hefur verið þekkt fyrir fram- leiðslu á afar vönduðum bflum og það verður í engu slakað á gæðakröfunum í nýja bílnum en hann verður minni en fyrir- rennaramir. Bíliinn sem er í BMW 3-lín- unni verður tveggja dyra hlaðbakur, 4.20 m á lengd eða 23' srn stj’ttri en fjögurra dyra stallbakurinn í 3-línunni. Fyrsta útfærsla nýja bílsins verður svo- kallaður 316i með fjögurra strokka 102 hestafla vél. Minni BMW

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.