Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 09.01.1994, Blaðsíða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. JANÚAR 1994 Bandaríkjamenn f ram úr Japönum í bílaf ramleiðslu ÞAÐ hillir undir það í fyrsta sinn í yfir 13 ár að Bandarílga- menn taki forystuna af Japönum sem mesta bílaframleiðsluþjóð heims. Hátt gengi japanska jensins hefur dregið mjög úr bíla- framleiðslu Japana og bandaríska vikuritið Automative News spáir því að Bandaríkjamenn framleiði 200 þúsund fleiri bíla á nýbyrjuðu ári en Japanar, eða 11,2 milljónir bíla og að forysta Bandaríkjamanna á þessu sviði verði ekki svo auðveldlega hnekkt næstu árin. Samkvæmt Automative News skarast línurnar strax á þessu ári þegar framleiðsla Japana fellur úr 11,1 milljón bíla frá 1993 í 11 milljónir á næsta ári. Bflafram- leiðsla Bandaríkjamanna eykst hins vegar um 4,6%, fer úr 10,7 milljónum bfla í 11,2 milljónir á árinu. Árið 1991 var forysta Japana óvéfengjanleg en þá framleiddu þeir 4,4 milljónum fleiri bíla en Bandaríkjamenn en síðan hefur dregið saman með þjóðunum. Á sama tíma og hátt gengi jensins hefur dregið úr bfla- framleiðslu Japana hefur hagvöxtur í Bandaríkjun- um aukið mönnum þrótt vestra. Mest varð fram- leiðsla Japana 1990, alls 13,5 milljónir bfla en á sama tíma fram- leiddu Bandaríkjamenn tæpar 9,9 milljónir bíla. „Vináttu taktík" Nobuyoshi Yoshida, forseti samtaka bílaframleiðenda í Tókýó, segir að Japanir verði að laga sig að breyttum tímum og verði að færa starfsemi sína út yfir japönsk landamæri ef þeir ætli sér ein- hvem hlut í ört vaxandi sam- keppni. Hann segir að japanskir bílaframleiðendur verði jafnframt að beita fyrir sig „vináttu taktík“ ti! að beijast gegn pólitískum hindrunum sem séu að rísa víðs vegar um heiminn. Yoshida segir að japanskir bílaframleiðendur á erlendri grund verði að starfa í einingu við heimamenn með því að ráða þá til starfa, jafnt í háar stöður sem lágar, þeir verði að kaupa hluti til framleiðslunnar í heimalandinu og hagnaðurinn verði í meiri mæli að sitja eftir í framleiðslulandinu og minna að fara til höfuðstöðvanna í Jap- an. ■ Mercedes Benz í Formula MERCEDES Benz tekur þátt í Formula 1 kappakstrínum á þessu ári og í IndyCar-keppninni á næsta ári. Mercedes keypti nýlega hlut Chevrolet í Ilmor Engineering, fyr- irtæki sem sérhæfir sig í smíði véla. Þáttaka Mercedes í akstursíþrótta- keppnum á þessu ári eru rakin til þessara kaupa. Ákvörðunin hefur verið harðlega gagnrýnd af starfs- mönnum Mercedes Benz. ■ CADILLAC kynnti framtíðarsýn sína í flokki lúxusbíla, Cadillac LSE. LSE er afturhjóladrifinn með 3,8 lítra V-6 vél með 24 ventla tækni. Bíll- inn verður settur á markað á miðju ári 1996. STJÓRNARFORMAÐUR Chrysler, Robert Lutz, kynnir 1994 árgerð Chrysler Cirrus á bílasýning- unni í Detroit. BíUinn verður framleiddur fyrir Evrópumarkað en þá undir öðru nafni. Stórar bílasýningar í Detroit og tos Angeles TVÆR stórar bílasýningar standa yfir í myndabíllinn frá Honda, Honda EVX, Izusu Detroit og Los Angeles og er margt um Trooper blæjujeppi, nýr Monte Carlo frá frumsýningar á sýningunum. Meðal nýj- Chevrolet. Látum myndirnar tala. unga sem þar eru kynntar er fyrsti rafhug- ■ CHEVROLET afhjúpaði Monte Carlo, tveggja dyra arftaka Chevrolet Lumina. Sala á bílnum hefst í Bandaríkjunum næsta vor en hann er m.a. búinn öryggis- púðum fyrír ökumann og far- þega í framsæti, ABS-hemlalæsi- vörn og V-6 vél. (Til vinstri) FORD Taurus hafnaði í efsta sæti annað árið í röð yfir best selda fólksbílinn í Bandaríkjun- um 1993. Alls seldust tæpir 360 þúsund bílar. Honda Accord var í öðru sæti annað árið í röð. HEIMSFRUMSÝNING á 1995 árgerð Porsche Cabriolet. Bíllinn vakti mikla athygli frétta- manna á sýningunni í Detroit. LINCOLN-MERCURY, sem er deild innan Ford Motor, kynnti frumggerð Mercury Premys sem er með svipaða útlitshönnun og Ford Mondeo. Framleiðslan Japan Bandaríkin 1994 11.000.000 11.200.000 1993 11.100.000 10.700.000 1992 12.499.284 9.777.899 1991 13.245.432 8.883.767 1990 13.486.796 9.888.036 1989 13.025.678 11.124.945 1988 12.699.807 11.009.762 1987 12.249.174 10.975.334 1986 12.259.817 11.372.865 1985 12.271.095 11.671.475 1984 11.392.711 10.924.077 1983 11.055.711 9.512.781 1982 10.731.794 6.876.034 1981 11.179.962 7.981.167 1980 11.042.884 8.010.374 1979 9.635.546 11.391.867 Mikill samdrátt- ur í bíla- sölu á síð- asta ári 231 nýr fólksbíll seldist í des- embermánuði í samanburði við 262 bíla í sama mánuði í hitteðfyrra. Þetta er 21,7% samdráttur á milli ára. Alls seldust 5.482 bílar á öllu ár- inu, sem er 1.560 færri bílar en seldust 1992. Þetta er ann- að árið í röð sem svo mikill samdráttur er í bílasölu. Pétur Óli Pét- ursson forstjóri Bílaumboðsins kveðst óttast að svo mikil sölu- tregða á bílum komi niður á eðli- legri endumýjun bflaflotans. Hann segir að 1986- 1988 hafi 45 þús- und bflar verið fluttir inn. Þeir séu nú allir að komast á þann tíma sem eðlileg- ur þykir sem end- umýjunartími. Of marglr um hituna „Markaðurinn er bara ekkert að taka við sér og ég á ekki von á því að það lifni yfir honum fyrr en í fyrsta lagi 1995. Ég á von á öðru ári eins neðarlega í bílasölu og 1993 og sé ekki teikn á lofti um annað. Fólk er farið að eygja möguleika á því að greiða niður skuldir með lækkandi vöxtum miklu fremur en að fjárfesta í bíl- um. Það eru einnig greinileg merki þess að ódýrari bílar seljast betur en þeir dýrari,“ segir Pétur Óli. Pétur Óli segir lítil rök mæla með því að hátt í fímmtán fyrir- tæki séu starfandi við það að af- greiða 5.500 nýja bíla á ári. Um- setningin sé alltof mikil miðað við söluna. Toyota mest seldi bíllinn Toyota var mesti seldi bfllinn á síðasta ári og seldust alls 1.211 bílar sem er fækkun um 325 bíla frá 1992. Mitsubishi varð í öðru sæti með 834 selda bfla sem er fækkun um 110 bíla frá 1992. Alls seldust 806 Nissa-bílar sem er 14 bflum meira en 1992. Hu- yndai varð í fjórða sæti yfir mest seldu bílana og seldust alls 423 bílar sem er 152 bílum meira en 1992. Sala á Daihatsu dróst veru- lega saman á árinu, alls seldust 198 bflar miðað við 623 bíla 1992 sem er samdráttur um 425 bfla.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.