Morgunblaðið - 22.02.1994, Síða 1
KNATTSPYRNA
VETRAROLYMPIULEIKARNIR
HANDKNATTLEIKUR
adidas
EQUIPiyiENT
Það besta
frá Adidas
1994
ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR
BLAÐ
Lokatilboð: IHF býðst til að
greiða hluta sjónvarpskostnaðar
ALÞJÓÐA handknattleikssam-
bandið, IHF, er tilbúið að taka
þátt i sjónvarpsupptöku- og
sendingarkostnaði vegna leikja
heimsmeistarakeppninnar á
næsta ári. íslenska fram-
kvæmdanefndin og HSÍ hafa
f rest til 28. febrúar til að ganga
að tilboðinu, en verði því hafn-
að, verður keppnin ekki á ís-
landi.
Eins og greint var frá fyrir helgi
fóru fjórir fulltrúar HSÍ og
HM-nefndarinnar á framkvæmda-
stjórnarfund IHF í Vínarborg s.l.
laugardag. Þeir höfðu á tilfinning-
unni að búið væri að ákveða að taka
keppnina af Islendingum, en fengu
að leggja gögn á borðið máli sínu
til stuðnings. Þar kom fram að í
samningi IHF við svissneska fyrir-
tækið CWL, sem keypti sjónvarps-
réttinn frá keppninni, var ekki skýrt
hverjum bæri að greiða framleiðslu-
kostnað sjónvarpsefnis. IHF féllst á
þessi rök og gerði HSÍ tilboð, bauð
hlutdeild í sjónvarpskostnaðinum.
Samkvæmt útreikningum íslenska
Sjónvarpsins er áætlaður kostnaður
um 58 milljónir króna, en ekki fékkst
uppgefið í hvetju tilboð IHF fellst
nákvæmlega. Raymond Hahn, fram-
kvæmdastjóri IHF, sagði það mál
IHF og HSÍ, Kjartan K. Steinbach,
varaformaður HSÍ, sagði um álitlega
upphæð að ræða og Ólafur B.
Schram, formaður HSÍ, sagði að
nærri léti að IHF fjármagnaði kostn-
að vegna 40 leikja af 86 í keppninni.
íslenska sendinefndin þakkaði
Staffan Holmqvist, formanni Hand-
knattleikssambands Evrópu og
Sænska sambaiidsins, að hlustað var
á rök hennar á laugardag. Holmqvist
sagði það ekki rétt, er Morgunblaðið
ræddi við hann í gær, en vera íslend-
inga á staðnum hefði verið sterkur
leikur hjá Ólafi B. Schram. Fyrir
vikið hefðu menn geta tekið málið
fyrir að öllum viðstöddum, sem hefði
haft mikið að segja. Hins vegar sagði
hann að ekki hefði verið ákveðið að
taka keppnina af íslendingum og
Hahn þvertók fyrir það.
HM-nefndin ræddi tilboð IHF á
fundi í gær og sambandsstjórnar-
fundur HSÍ tekur málið fyrir í kvöld,
en formaður HSÍ leggur til að tilboð-
inu verði tekið.
HAIMDBOLTI: VÍKIIMGSSTÚLKUR BIKARMEISTARAR EFTIR ÆSISPENNANP) LEIK / B8
Landslið-
ið keppir í
Bandaríkj-
unum í vor
ÍSLAND og Bandarfkin leika æf-
ingalandsleik í Cleveland í
Bandarikjunum 24. apríl. Við-
ræður um leik hafa staðið að
undanförnu og f gær fékk KSÍ
staðfestingu á boði Bandaríkja-
manna.
Knattspyrnusamband Bandaríkj-
anna bauð ferðir og uppihald
fyrir 25 manns. íslenski hópurinn fer
héðan 21. apríl og kemur heim dag-
inn eftir leik.
Að sögn Eggerts Magnússonar,
formanns KSÍ, kemur boð Banda-
ríkjamanna sér mjög vel fyrir ís-
lenska landsliðið, sem leikur vænt-
anlega þijá ieiki í Evrópukeppninni
i haust. Hann sagði þetta enn eina
staðfestingu á stöðu íslenskrar
knattspyrnu, en á skömmum tíma
hefur KSÍ þegið boð frá Japan og
Brasilíu um leiki ytra á næstunni og
verður Bandaríkjaferðin þar á milli.
Ásgeir fylgist með Þorvaldi
Ásgeir Elíasson, iandsliðsþjálfari,
heldur í dag til Englands í þeim til-
gangi að fyigjast með Þorvaldi Örl-
ygssyni í leik með Stoke gegn Bolton
í 1. deildinni. Þorvaldur hefur þótt
leika geysilega vel með félaginu að
undanförnu, og fær verðuga and-
stæðinga í þessum leik; Bolton er
komið í átta liða úrslit ensku bikar-
keppninnar; sló Aston Villa út úr
keppninni um helgina.
Gritsjúk og
Platov hlutu
ísdansgullið
RÚSSARNIR Oksana Gritsjúk og Evgení
Platov, sigruðu í ísdansi á Ólympíuleikun-
um í Lillehammer í gærkvöldi, er þriðji
og síðasti hluti keppninnar fór fram.
Skylduæfíngarnar voru á föstudag, svo-
kallaðar grunnæfingar á sunnudag og
frjálsi dansinn í gærkvöldi. Annað rússn-
eskt par, heimsmeistararnir Maya Usova
og Alexander Zhulín, sem búsett eru í
Bandaríkjunum, varð í öðru sæti og Bret-
arnir Jayne Torvill og Christoper Dean
urðu í þriðja sæti.
Bretarnir — sem sigruðu á Ólympíuleik-
unum fyrir tíu árum og hófu nýlega keppni
á ný eftir að hafa starfað sem atvinnu-
menn í nokkur ár — urðu Evrópumeistar-
ar í Kaupmannahöfn fyrir mánuði, en
breyttu frjálsu æfingunum verulega eftir
það mót og breytingarnar féllu dómurun-
um níu greinilega ekki í geð í gær.
Breska parið náði sér ekki sérlega vel
á strik á föstudag, varð í þriðja sæti, en
dansaði stórglæsilega rúmbu á sunnudag,
sigraði í þeirri grein, og var í efsta sæti
ásamt Usovu og Zhulin fyrir síðasta
keppnisdag. Gritsjúk og Platov voru þriðju.
Þau síðastnefndu fengu hæstu einkunnir
fyrir fijálsu æfingarnar á EM á dögunum
en voru of langt á eftir Bretunum til að
ná meistaratitlinum. Rússarnir ungu, sem
eru á myndinni til hliðar, dönsuðu aftur
glæsilega í gærkvöldi undir dúndrandi
rokktónlist og gullið var þeirra. Gritsjúk,
sem er 22 ára, brast í grát af gleði þegar
úrslitin lágu ljós.
■ Ólympíuleik
arnir / B3-B7
Reuter
/