Morgunblaðið - 22.02.1994, Side 5

Morgunblaðið - 22.02.1994, Side 5
B 5 MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994 VETRARÓLYMPÍULEIKARNIR í LILLEHAMMER Reuter Þeir hafa tekið völdin VERÐLAUNAHAFARNIR ungu í listhlaupi karla á skautum; frá vinstri: Elvis Stojko frá Kanada (silfur), Rússinn Alexej Urmanov (gull) og Frakkinn Candeloro (brons). Þeir eru allir um tvítugt. Seizinger öruggur sigurvegari í bruni KATJA Seizinger hefur forystu í stigakeppni heimsbikarsins í risasvigi og ætlaði sér sigur í greininni á Ólympíuleikunum. Þýska stúlkan datt hins vegar í risasviginu í sfðustu viku, en bætti það upp á laugardaginn með því að sigra f bruni. „Eg reyndi að slaka á en auðvitað var mikil pressa á mér. Sigur- inn skiptir mig gífurlega miklu máli,“ sagði þessi 21 árs þýska stúlka eftir sigurinn. Þrátt fyrir að hafa dottið í risa- sviginu var Seizinger talin sig- urstranglegust í bruninu og hún stóð undir væntingunum. Hún var þriðja í rásröðinni, fékk tímann 1.35,93 mín., og eftir það má segja að að- eins hafa verið um að ræða keppni um silfurverðlaun. „Þetta var ekki fullkomin ferð hjá -mér, ég gerði nokkur mistök í efri hlutanum en fór mjög hratt um miðbik braut- arinnar," sagði Seizinger, sem varð í fjórða sæti bæði á Ólympíuleikun- um 1992 og á heimsmeistarmótinu í fyrra. Bandaríska stúlkan Picabo Street náði silfrinu, var 0,66 sek. á eftir Seizinger og hlutu Bandaríkjamenn þar með fjórðu verðlaun sín í jafn mörgum alpagreinum. Glæsilegur árangur og mun betri en t.d. banda- rískir fjölmiðlar höfðu reiknað með, en þeir voru ekki bjartsýnir fyrir leikana. Isolde Kostner frá Ítalíu varð þriðja og fékk þar með önnur bronsverðlaun sín á leikunum. Aðrar en þessar tvær voru meira en sek- úndu á eftir sigurvegaranum. Uppalin á flatlendi Það þykir merkilegt við Seizinger að hún er ekki alin upp í hinum hálenda suðurhluta landsins, eins og flestir bestu skíðamenn Þýskalands, heldur í því mikla iðnaðarhéraði Ruhr, sem er nánast algjörlega flatt, og það var á fríum í Frakklandi sem hún lærði að renna sér á skíðum. Pjölmiðlar hafa sagt hana dóttur milljónamærings; verksmiðjueig- anda sem sé með 4.000 manns í vinnu. Hún er ekki hrifin af þessu og vildi lítið tjá sig um málið eftir sigurinn. Sagðist hafa verið í skóla undanfarin ár og ekki vita nákvæm- lega hvað faðir hennar væri að bjástra... Reuter Katja Seizinger með gullpeninginn langþráða eftir sigur í bruninu. Vill draga úr hradanum Mikið hafði verið rætt um öryggi brunara eftir dauða austurrísku stúlk- unnar Ulriku Maier í keppni í Garmisch-Partenkirchen í Þýskalandi fyrir skömmu. Nokkrar stúlkur duttu í keppninni á laugardag, en enginn slasað- ist alvarlega. Sigurvegarinn Seizinger, sem þykir hugdjörf, hafði gagn- rýnt brautina sem keppt var í á laugardag; taldi hana of auðvelda og óspennandi. Eftir sigurinn talaði hún hins vegar á öðrum nótum: „Þetta var góð braut. Ekki hættuleg en reyndi mjög á tæknina.“ Seizinger hvatti til þess að framvegis yrði keppt í „hægari" og öruggari brautum en áður — eins og þeirri sem keppt var í á laugardag, sem var óvenju „hæg“; — beygjurnar voru óvenju krappar og þannig dregið úr hraðanum. „Aðeins góðir skíðamenn ná miklum hraða í braut eins og þessari," sagði hún og bætti við að engin hætta væri á að hinir iakari næðu of miklum hraða. „Beygjurnar ráða hraðanum." „Mér þótti þetta frábær braut fyrir Ólympíu- leika. Hún krafðist tækni en var alls ekki hættuleg. Við þurftum hvergi að sýna sérstakt hugrekki." Kynslóðaskipti í listhlaupinu Verðlaunahafar um tvítugt en fyrrum heims- og ólympíumeistarar sátu eftir ALEXEJ Urmanov frá Rússlandi var ekki talinn meðal þeirra fimm sigurstranglegustu þegar keppni hófst í listhlaupi karla á skaut- um í Hamar í síðustu viku, en hann fagnaði sigri á laugardags- kvöldið eftir glæsilega frammistöðu. Urmanov er aðeins tvítugur og það vekur athygli hve verðlaunahafarnir eru ungir; silfurverð- launahafinn Stojko frá Kanada er 21 árs og Frakkinn Candeloro, sem fékk bronsið, er ári aldri. í hópnum voru nokkrir fyrrum ólympíu- og heimsmeistarar, en þeir verða að sætta sig við að fara heim án verðlauna að þessu sinni. Ekki var búist við miklu af Ur- manov því honum gekk heldur illa í báðum hlutum keppninnar, grunnæfingunum og frjálsu æfing- unum, er hann varð þriðji á Evrópu- meistaramótinu í Danmörku fyrir aðeins mánuði. „Eg veit ekki hvers vegna mér hefur farið svona mikið fram síðan í Kaupmannahöfn,“ sagði hann eftir sigurinn. „Það eina sem ég veit er að þegar ég einbeiti mér, get ég sigrað. Þegar ég er með hug- ann annars staðar en í keppnishöll- inni, gengur ekkert." Urmanov sagðist aldrei hafa hugsað til þess að hann næði í gull- ið, vegna þess hve margir góðir keppendur hefðu tekið þátt, þar á meðal tveir ólympíumeistarar og fjórfaldur heimsmeistari. Þeir þrír gerðu hins vegar nánast út um von- ir sínar um verðlaun með slakri frammistöðu í fyrri hluta keppninn- ar, grunnæfingunum, á fimmtudag- inn en gekk mun betur í seinni hlut- anum á laugardag og færðust upp töfluna. Viktor Petrenko frá Úkra- ínu, ólympíumeistari 1992 og fyrrum heimsmeistari fór úr níunda sæti í það fjórða, núverandi heimsmeistari, Kurt Browning frá Kanada úr 12. sæti í það fimmta og ólympíumeist- arinn frá 1988, Brian Boitano frá Bandaríkjunum, úr áttunda sæti í það sjötta. Hefðbundið Urmanov — sem hlotnaðist frægð á Ólympíuleikunum í Albertville fyr- ir tveimur árum, er hann varð fyrst- ur til að framkvæma fjórfalt skrúfu- stökk — varð hlutskarpastur bæði í grunnæfingunum á fimmtudag og ftjálsu æfingunum á laugardag. Seinni daginn fékk hann mjög góðar einkunnir bæði fyrir tækni og eins listræna tilburði, en aðal keppinaut- ar hans tveir fengu ekki eins háar einkunnir þjá dómurunum fyrir síð- arnefnda atriðið. Æfingar Ur- manovs voru mjög hefðbundnar en þeir Stojko og Candeloro buðu hins vegar upp á nýstárlegar æfingar, og lögðu báðir áherslu á það á eftir að hægt væri, með góðum árangri, að framkvæma æfingarnar öðruvísi en lengi hefur verið gert. „Við Philippe gerðum eitthvað öðruvísi," sagði Stojko. „Dómararnir verða að átta sig á því að hægt er að fram- kvæma æfingarnar á fleiri en einn veg, og klassíska aðferðin mun ekki alltaf sigra.“ Ekkert varð úr stökkeinvígi þeirra Urmanovs og Stojkos. Báðir höfðu lofað fjórföldu skrúfustökki og þre- faldri skrúfu strax í kjölfarið, en slíkt hefur aldrei verið framkvæmt í keppni. Þeir hættu hins vegar við og kusu að setja öryggið á oddinn. Urmanov tileinkaði sigurinn móð- ur sinni, þjónustustúlku sem býr í Pétursborg, en þau eru sögð mjög samrýmd. Það voru einmitt móðir hans og amma sem fyrst fóru með hann á skautasvell þegar strákur var fimm ára. Þá hafði hann engan^ áhuga, en það hefur heldur betur breyst. Rússinn, sem gerði frjálsu æfing- arnir undir tónlist Rossinis, fram- kvæmdi átta þrefaldar skrúfur og allar tókust þær fullkomnlega, nema sú síðasta undir lokin, er hann missti jafnvægið í lendingunni og minnstu munaði að hann rækist í auglýsinga- skiltin, sem umlykja svellið. Það þótti reyndar tíðindum sæta hve vel stökkin heppnuðust hjá honum, þeg- ar haft er í huga að hann öklabrotn- aði fyrir aðeins tæplega tveimur árum, og hafði ekki náð sér að fullu í fyrra þegar hann varð fimmti á Evrópumeistaramótinu. Páska iio knallspjrmiviMsla í Mawkstor 30. mars - 5. apríl ,,£48.925 kr. Btt allra skemmtilegasta knattspyrnulið sögunnar. Bóka og greiða skal miða á knattspyrnuleiki a.m.k. 10 dögum tyrir brottför. AP MiLAN - mvmm 11.-14. mans Meistari Guilit og félagar á móti besta knattspyrnuliði í heimi á San Siro 18. mars. Síðast fór 3-2 í stórkostlegum leikl Verðfrá 4 4 tfaURVAL-UTSYN Uígrmíla 4: sími 699300, f HafnarfírÖi: sími 65 23 66, við Ráðbústorg á Akureyri: simi 2 50 00 - og bjá umboösmönnum um land allt.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.