Morgunblaðið - 22.02.1994, Side 8

Morgunblaðið - 22.02.1994, Side 8
8 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994 KÖRFUKNATTLEIKUR || HANDKNATTLEIKUR / BIKARÚRSLIT KVENNA Þriðji ÍAí Skagamenn héldu sigurgöngu sinni áfram þegar þeir sigruðu KR-inga 111:110 í æsispennandi leik í úrvalsdeildinni í körfuknattleik á Akranesi á sunnudags- Gunntaugur kvöld'ð- Þetta var þriðji Jónsson sigur þeirra í roð. skrifar Heimamenn komu fullir sjálfstrausts í leikinn og strax í byijun var ljóst að þeir ætluðu að selja sig dýrt. Þeir höfðu frumkvæðið í fyrri hálfleiknum en aldrei munaði meiru en sex stigum og í hálfleik var staðan 59:53 fyrir ÍA. Munurinn jókst í upphafi seinni hálfleiks, KR-ingar lentu snemma í villuvandræðum og það gerði þeim erfitt fyrir. Um miðjan seinni hálfleik- inn, þegar munurinn var rúmlega 10 stig, breyttu KR-ingar vöminni, byij- uðu að pressa Skagamenn og náðu þá að minnka muninn. Þegar 22 sek- úndur voru eftir var munurinn kom- inn niður í tvö stig, 109:107 og þá var dæmd ásetningsvilla á KR-inga. Jón Þór Þórðarson skoraði úr tveimur vítum, kom ÍA í 111:107 og Hermann Hauksson minnkaði muninn í eitt stig með þriggja stiga körfu í næstu sókn KR, þegar nokkrar sekúndur voru eftir. KR-ingar pressuðu, og brutu á Einari Einarssyni strax og hann fékk boltann. Einar fékk vítaskot en tókst ekki að skora en tíminn var of naum- ur fyrir KR-inga. Steve Grayer átti frábæran leik fyrir ÍA, skoraði 35 stig og tók íjölda frákasta. Jón Þór, ívar Asgrímsson og Einar Einarsson voru einnig dijúg- ir. Hermann Hauksson og Lárus Árnason voru bestir KR-inga. ÍBK sterkari á lokasprettinum Keflvíkingar „stálu" sigrinum frá Tindastólsmönnum á elleftu stundu í fjörugum leik á Sauðár- króki. Heimamenn höfðu frumkvæðið lengstum af og voru mest með átta stiga forskot, 51:43, í seinni hálfleik. Keflvíkingar söxuðu jafnt og þétt á forskotið og þegar 1,30 mín. voru til leiksloka var stað- an jöfn, 69:69. Keflvíkingar voru sterkari á lokasprettinum og munaði þar mest um góða nýtingu í vítaköst- um úr bónusskotum. Keflvíkingar fögnuðu sigri, 73:77, í skemmtilegum baráttuleik. Það var greinilegt strax í byrjun leiksins að heimamenn ætluðu að selja sig dýrt. Vamarleikur þeirra var sterkur og þá réðu þeir hraða leiks- ins. Robert Buntic hafði góðar gætur á Raymond Foster, sem skoraði að- eins eitt stig í fyrri hálfleiknum. Guðjón Skúlason og Sigurður Ingi- mundarson voru hættulegustu menn Keflvíkinga í sókninni. Hinrik Gunn- arsson var mjög góður hjá heima- mönnum og einnig Sigurvin Pálsson, en hann varð að fara af leikvelli með fímm villur fljótlega í seinni hálfleik. Ingvar Ormarsson og Robert Buntic áttu góða spretti og þá gerði Páll Kolbeinsson oft usla í vörn Keflvík- inga. Valsmenn komu Haukum á óvart Valsmenn komu Haukum á óvart með mikilli baráttu en urðu samt að láta í minni pokann þegar Hafnfirðingarnir Stefán unnu 90:68 á Strand- Stefánsson götunni á sunnudag- skrifar inn. Valsmenn léku án erlends leik- manns, komu Haukum á óvart. Van- matið hjá Haukum var greinilegt, en Pétur Ingvarsson og Jón Öm Guð- mundsson héldu heimamönnum á floti í fyrri hálfleik. Munurinn varð minnstur 3 stig um miðjan fyrri hálf- leik þegar Ragnar Þór Jónsson og Brynjar Karl Sigurðsson fóru á kost- um. En Haukar höfðu þó átta stiga forskot í leikhléi og eftir hlé jókst bilið jafnt og þétt svo sigurinn var aldrei í hættu. Björn Björnsson skrífar sigur röð „Við fengum stigin og það er aðal- atriðið. Þeir gerðu okkur erfítt fyrir með mikilli baráttu og stukku á alla bolta,“ sagði John Rhodes, sem gerði 17 stig þó hans væri vel gætt, og bætti við „við ætlum að enda tímabil- ið vel, það er enn sex möguleg stig eftir og ekki öll nótt úti enn.“ Pétur og Jón Öm voru bestir Hauka fram- anaf en Tryggvi Jónsson á enda- sprettinum. „Þetta var erfítt en við höfum engu að tapa,“ sagði Brynjar Karl, sem eins og áður kom fram, lék stórvel ásamt Ragnari Þór. Guðni Hafsteins- son og Bragi Magnússon áttu góða spretti. Njarðvíkingar máttu taka á honum stóra sínum Njarðvíkingar urðu að taka á hon- um stóra sínum þegar þeir mættu Skallagrími frá Borgamesi í ■■■■■■ „Ljónagryfjunni" í Björn Njarðvík á sunnu- Blöndal dagskvöldið. Borg- skrífarfrá nesingar börðust vel Njarövik og ijyu munaði að þeim tækist að jafna á síðustu mínút- unni. Lokatölur urðu 83:74. Leikur- inn var ekki vel leikinn og mikið var um mistök á báða bóga. Borgnesing- ar sem tefla fram mörgum nýjum mönnum börðust af krafti og þeir náðu 10 stiga forystu, 25:35 um tíma í fýrri hálfleik. Njarðvíkingar hmkku þá í gang og settu 15 stig í röð og breyttu með því gangi leiksins. Eftirleikurinn virtist ætla að verða léttur hjá heimamönnum, en Borg- nesingar voru á öðra máli. Þeir neit- uðu að gefast upp og þeim tókst næstum að vinna upp 15 stiga for- skot Njarðvíkinga á lokamínútunum. Munurinn varð minnstur 3 stig 77:74, en leikreynsla Njarðvíkinga dugði þeim til sigurs að þessu sinni. „Við gerðum of mikið af mistökum og það var slæmt að fá á sig 15 stig í röð í fyrri hálfleik. Þessi atriði vógu þungt fyrir okkur í leikslok," ságði Birgir Mikaelsson þjálfari og leikmaður Skallagríms. Bestir hjá Njarðvík vora Valur Ingimundarson, Rondey Robinson, Friðrik Ragnarsson og Jóhannes Kristbjömsson en hjá Skallagrími þeir Alexander Ermolinskij, Grétar Guðlaugsson, Birgir Mikaelsson og Henning Henningsson. Naumur sigur Grindvíkinga Grindvíkingar lentu í mesta basli með spræka Snæfellinga í leik liðanna í úrvalsdeildinni s.l. sunnu- dag. Þeim tókst þó að sigra 71:68. Ólafsson Heimamenn naðu skrífar góðum leikköflum í fyrri hálfleik og vora 11-15 stigum yfír, en þegar Guð- mundur Bragason fékk sína fjórðu villu snemma í seinni hálfleik og fór af vefli náðu Snæfellingar góðum leikkafla og komust yfir þegar 5 mínútur vora eftir, 65:63. Bergur Eðvarðsson jafnaði fýrir Grindavík og kom iiðinu yfír 67:65. Kristinn Einarsson skoraði 1 stig úr vítaskoti en Pétur Guðumundsson skoraði 2 stig úr vítum þegar mínúta var eftir. Snæfellingom mistókst körfuskot og Marel Guðlaugsson innsiglaði sigur Grindvíkinga með tveimur bónusvíta- skotum þegar 12 sek. vora eftir. Sverrir Þór Sveirisson skoraði síðustu körfu leiksins fyrir Snæfell en tíminn var of naumur fyrir liðið. Grindavíkurliðið var nokkuð jafnt en það er gaman að sjá til ungu strák- anna í liðinu, Bergs, Inga Karls, Marels og Péturs, sem vaxa með hveijum leik. Hjá Snæfelli lék Eddie Collins vel í vörninni en gekk illa undir körfu andstæðinganna, Hreiðar gætti Casey með góðum árangri og Bárður truflaði spilið. Sverrir átti góða spretti og skoraði mikilvæg stig fyrir liðið. Staðan / B11 Morgunblaðið/Bjami Eiríksson Ingibjörg Jónsdóttir er búinn að bijótast í gegnum vöm Víkinga og skorar. Inga Lára Þórisdóttir og Matthildur Hannesdóttir koma engum vömum við. „Heppnin með okkur“ - sagði Inga Lára Þórisdóttir, fyrirliði bikarmeistara Víkings etta var mjög erfiður leikur sem var í jámum allan tímann. Það var greinilega mikil taugaspenna í liðinu hjá okkur til að byija með því við nýttum færi okkar mjög illa. IBV-liðið byijaði leikinn betur og við áttum á brattann að sækja allan fyrri hálfleikinn. Lokamínútumar voru erfiðar, við tveimur færri og ÍBV gat jafnað leikinn. En við höf- um það af og ætli megi ekki segja að heppnin hafi verið okkar meg- in,“ sagði Inga Lára Þórisdóttir. Theódór Guðfinnsson, þjálfari Víkings „Stelpurnar voru ótrúlega taugaóstyrkar til að byija með og misstu boltann hvað eftir annað í fyrri hálfleik. Þær byijuðu seinni hálfleikinn mjög vel og ég hélt að þetta væri að koma hjá okkur en þá byijuðu þær aftur á sömu mis- tökunum og í fyrri hálfleik. Tauga- spennan var ótrúlega mikil í lokin en við höfðum lukkuna með okkur I dag.“ Halla María Helgadóttir.Víkingi „Ég var svo stressuð í fyrri hálf- leik og ég held að þetta hafí verið erfiðasti úrslitaleikur sem ég hef spilað um ævina. Þetta var ekta bikarleikur þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en á lokasekúndunum.“ Ragnar Hilmarsson, þjálfari ÍBV „Þetta var jafn leikur sem gat farið á báða vegu, við fengum tæki- færi til að jafna leikinn en nýttum þau ekki. Ætli megi ekki segja að leikreynsla Víkinga hafí gert út- slagið en stelpumar hafa nú fengið smáreynslu sem kemur til með að koma þeim að notum seinna. Við snúum okkur núna Tað íslandsmót- inu, það má gera ýmislegt þar.“ Andrea Atladóttir, fyrirliði ÍBV „Þetta var mjög góður og spenn- andi leikur og kannski má segja að leikreynslan hjá Víkingum hafí sagt til sín í lokin. Við erum reynsl- unni ríkari og komum bara til baka að ári og hirðum dolluna.“ KORFUKNATTLEIKUR / NBA-DEILDIN Pippen og félagar brot- lentu í IMew York Patrick Ewing og félagar hans hjá New York Knicks sýndu leikmönnum Chicago Bulls í tvo ■■■■■■ heimana, þegar Frá Scottie Pippen og Gunnarí hans menn brot- Valgeirssyni ientu í New York. / Bandaríkjunum sem skoraði 20 stig og tók 18 fráköst, var aðal- maðurinn í geysilega sterkum varn- arleik New York, sem vann 86:68. Chicago hefur ekki skorað svo fá stig í leik í vetur og karfa á síð- ustu sek. leiksins kom í veg fyrir að skor liðsins hafi verið það lægsta í NBA-deildinni í vetur. New York hefur ekki fengið svo fá stig á sig síðan Indiana skoraði ekki nema 64 stig 10. desember 1985. „Þetta var sætur sigur fyrir okk- ur,“ sagði Pat Riley, þjálfari New York. Leikmenn New York byijuðu leikinn með miklum látum og léku þeir mjög sterkan vamarleik, sem sést á hálfleiksskorinu, 50:28. Pipp- en skoraði aðeins fjögur stig í fyrri hálfleiknum, en hann náði sér betur á strik í þeim síðari og skoraði alls 25 stig. Chicago náði ekki að minnka muninn nema í fjórtán stig. Þetta var þriðji tapleikur Chicago í röð, en liðið hefur ekki náð sér á strik síðan Pippen sýndi frábæran leik í stjörnuleiknum á dögunum. Chicago mátti t.d. þola tap fyrir Denver, en það var fyrsti sigur Denver í átján leikjum. Chicago lék án Toni Kukoc, sem Patrick Ewlng lék vel með Ncw York. er meiddur. Shaquille O’Neal skoraði 38 stig og tók fjórtán fráköst þegar Or- lando Magic lagði Milwaukee 109:104. Charles Barkley fór á kostum — skoraði 32 stig þegar Phoenix vann LA Lakers 113:96.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.