Morgunblaðið - 22.02.1994, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 22. FEBRÚAR 1994
B 9
Stemmning og spenna
Lokamínúturnarvoru æsispennandi, en Víkingar höfðu heppnina með sér og fögnuðu sigri
VÍKINGSSTÚLKURNAR höfðu svo sannarlega heppnina með sér,
þegar þær lögðu ÍBV að velli ífjörugum bikarúrslitaleik, 18:17,
í Austurbergi á laugardaginn. Lokamínútur leikins voru æsi-
spennandi og fengu Vestmannaeyingar þrjú tækifæri til að jafna
leikinn og knýja fram framlengingu, en heppnin var ekki með
þeim. Rétt áður en leiktíminn rann út, hafnaði knötturinn í stöng
Víkingsmarksins.
að var mikil stemmning og
spenna í Austurbergi strax
í byrjun leiks. Greinilegt var að
leikmenn beggja
liða voru taugaó-
Kristjánsdóttir styrkir til að byrja
skrifar með og til marks
um það má geta þess að fyrsta
markið kom ekki fyrr en á sjö-
undu mínútu, þrátt fyrir ágætis
færi hjá báðum liðum. ÍBV-stúlk-
ur hristu svo af sér slenið og
náðu þriggja marka forystu 6:3
um miðbik hálfleiksins, en Vík-
ingar jöfnuðu og í leikhléi var
staðan 8:8.
Víkingsstúlkur komu ákveðnar
til leiks í seinni hálfleik og skoruðu
þrjú fyrstu mörkin, 11:8, en ÍBV-
stúlkur náðu að jafna 16:16, þó svo
að þær væru tveimur færri. Inga
Lára og Hulda skoruðu tvö næstu
mörk Víkinga, 18:16, og Hanna
fískaði vítakast og gátu Víkingar
þar gulltryggt sigurinn, en Inga
Lára skaut í stöng. Mikið var um
mistök síðustu mínútumar hjá báð-
um liðum. Knötturinn var dæmdur
af Víkingsstúlkum þrisvar í röð og
á lokamínútunni voru þær tveimur
færri. ÍBV-stúlkur fengu ágætis
færi til að jafna og þegar 10 sek-
úndur voru eftir fór Sara Ólafsdótt-
ir inn úr hominu — skaut í stöng
og bikarinn varð Víkinga.
Bestar í annars jöfnu liði Vík-
inga vom Halla María Helgadóttir
og Hanna M. Einarsdóttir, sem
fiskaði fimm vítaköst. Þetta var
hennar besti leikur í vetur. Judit
Esztergal og Andrea Atladóttir
voru bestar í liði ÍBV.
Hefða Erllngsdóttlr sækir að vörn Eyjastúlkna. Ingibjörg Jónsdóttir og Andrea Atladóttir eru til varnar.
Morgunblaðið/Bjarni Eiríksson
KNATTSPYRNA / ENSKA BIKARKEPPNIN
Gamlir refir í sviðsljósinu
MARGIR gamalkunnir refir
voru f sviðsljósinu þegar leikið
var 116-liða úrslitum ensku
bikarkeppninnar. Hinn 34 ára
Lee Capman, sem lék lykilhlut-
verk með Leeds, þegar félagið
varð Englandsmeistari 1992,
skoraði sigurmark West Ham
gegn utandeildarfélaginu Kidd-
erminster. Chapman, sem hef-
ur aldrei leikið bikarúrslitaleik
á Wembley, skoraði markið
með skalla á 69. mín.
að var varamaður sem kom
West Ham í 8-liða úrslit og
er það annað árið í röð sem vara-
maður leikur stórt hlutverk hjá fé-
laginu í 16-liða úrslitum. Trevor
Morley kom inná fyrir Clive Allen
og lagði upp sigurmarkið með sinni
fyrstu snertingu við knöttinn — lék
laglega á bakvörðinn Kevin Row-
land og sendi knöttinn síðan til
Chapman, sem skoraði með skalla.
Alvin Martin, 35 ára varnarleik-
maður West Ham, var heppinn að
vera ekki rekinn af leikvelli, eftir
að hafa brotið á Jan Purdie, hættu-
legasta sóknarleikmanni utandeild-
arliðsins, undir lok fyrri hálfleiks-
ins. „Ég hef oft séð leikmenn fá
reisupassann fyrir svona brot,“
sagði Billy Bond, framkvæmda-
stjóri West Ham.
Andy Ritchie, 33 ára, skoraði
sigurmark Oldham, 1:0, gegn
Barnsley, aðeins fimm mín. eftir
að hann kom inná sem varamaður.
Tveir 36 ára kappar voru í sviðs-
ljósinu á heimavelli Úlfanna, Mol-
ineux. John Wark, sem var bikar-
meistari með Ipswich 1978, skoraði
fyrir Ipswich, en jafnaldri hans
Cyrille Regis, sem varð bikarmeist-
ari með Coventiy 1987, lagði upp
jöfnunarmark, Úlfanna, 1:1, sem
David Kelly skoraði. Úlfarnir léku
án markaskorarans Steves Bulls,
sem er meiddur.
Glenn Hoddle, 36 ára leikmaður
og framkvæmdastjóri Chelsea,
fagnaði sigri, 2:1, gegn Oxford.
„Við ætlum okkur alla leið til
Wembley," sagði Hoddle. Chelsea
hafði heppnina með sér á síðustu
sek. leiksins, er Robert Ford tók
vítaspyrnu fyrir Oxford — skot hans
hafnaði á tréverkinu á marki
Chelsea.
Lögreglan varð að skerast í leikinn
á heimavelli Oxford, þegar stuðn-
ingsmenn Oxford veittust að stuðn-
ingsmönnum Chelsea í leikhléi. Um
100 áhorfendur stukku þá inn á
völlinn, þannig að seinni hálfleikur-
inn hófst sex mín. seinna.
Bolton hélt sigurgöngu sinni
áfram í bikarkeppninni og voru leik-
menn Aston Villa fórnarlömbin á
sunnudaginn. Bolton, sem sló Ever-
ton og Arsenal út, lagði Aston Villa
að velli, 1:0. Varnarmaðurinn Alan
Stubbs skoraði sigurmarkið úr
aukaspyrnu af 35 m færi — knöttur-
inn hafnaði niður við stöng, óverj-
andi fyrir Mark Bosnich. Bolton
leikur í fyrsta skipti í 35 ár í 8-liða
úrslitum.
Manchester United, sem hefur
ekki tapað í síðasta 31 leik sínum,
vann Wimbledon örugglega, 0:3, á
útivelli. United mætir Charlton eða
Bristol City á Old Trafford í 8-liða
úrslitum.
Blackburn nálgaðist Manchester
United í úrvalsdeildinni, með þvi
að leggja Néwcastle að velli. Nú
munar aðeins sjö stigum á félögun-
um. David May skoraði sigurmark
Blackburn, sem hefur unnið sjö leiki-
í röð.
Norðmaðurinn Jan Fjörtoft skor-
aði tvö mörk fyrir Swindon gegn
Norwich, 3.3, og hefur hann skorað
sjö mörk í síðustu fimm leikjum
Swindon.
■ Úrslit / B11
■ CARLOS Valderrama, fyrir-
liði Kólumbíu, verður frá keppni í
fjórar vikur vegna meiðsla á hægra
hné, sem hann hlaut í vináttulands-
leik gegn Svíum, 0:0, í Miami.
■ ÞESS má geta að Valderrama
og Svíinn Joachim Björklund voru
reknir af leikvelli í leiknum. Vald-
errama var rekinn af leikvelli eftir
að brotið var á honum, en hann var
ekki ánægður með það.
■ LEO Beenhakker var rekinn
sem landsliðsþjálfari Saudi-Arabíu
um helgina, en S-Arabar voru ekki
ánægðir með störf hans.
Beenhakker var ráðinn landsliðs-
þjálfari S-Arabíu í nóvember, eftir
að Brasilíumaðurinn Jose
Candido var rekinn. S-Arabía tek-
ur þátt í HM í Bandaríkjunum.
■ ALLY McCoist hélt upp á að
leika á ný með Glasgow Rangers,
eftir meiðsli, með því að skora
þrennu í bikarleik gegn Alloa, 6:0.
Duncan Ferguson, sem kostaði
Rangers fjórar millj. punda, skor-
aði einnig. Hann lék sinn fyrsta
leik síðan í september. Dave
McPherson, varnarleikmaður, var
þriðji leikmaðurinn sem fagnaði því
að vera byijaður að leika eftir
meiðsli, skoraði einnig. McCoist,
sem lék síðast í nóvember, skoraði
mörk sín á 48., 71. og 83. mín.
■ ROMARIO skoraði þijú mörk
fyrir Barcelona, sem vann stórsig-
ur 8:1 á Osasuna á Nou Camp í
Barcelona. Romario, sem var í
leikbanni í fjórum síðustu leikjum
Barcelona, hefur skorað 21 mark
fyrir félagið. Hollendingurinn
Ronald Koeman skoraði tvö mörk
úr vítaspymum.
■ REAL Madrid lagði nágranna-
liðið Atletico Madrid að velli, 1:0.
Aðeins mínútu eftir að Paco Buyo,
markvörður Real, varði glæsilega
skot frá Navaraez, skoraði hinn
ungi Jose Morales sigurmark Re-
al, á 82. mín. Hann sendi knöttinn
framhjá varamarkverðinum Abel
Resino, sem kom inná fyrir Diego
Diaz, sem fékk högg þannig að rif
brákaðist.
■ BENITO Flores, þjálfari Real
Madrid, stjórnaði sínum 100. leik
í 1. deildarkeppninni á Spáni.
„Þetta er lélegasti leikurinn sem
Real Madrid hefur leikið undir
minni stjórn. Ég er aðeins ánægður
með úrslitin."
■ RUUD Gullit skoraði tvö mörk
fyrir Sampdoría, sem vann Atal-
anta, 3:1. Hann hefur skorað þrett-
án mörk í vetur.
■ LEIKMENN Bayern Munc-
hen fögnuðu sínum fyrsta sigri
undir stjórn Franz Beckenbauer,
þegar þeir léku gegn botnliðinu
Leipzig, 1:3. „Ég er mjög ánægður
með þennan sigur. Við lékum frá-
bæra knattspyrnu og vorum heppn-
ir að skora tvö mörk strax í byijun
leiksins,“ sagði Beckenbauer, sem
skammaði leikmenn sína fyrir að
gefa eftir síðustu tuttugu mín.
lsiksins.“
■ FRANKFURT náði ekki að
komast á toppinn, þar sem félagið
tapaði óvænt fyrir Karlsruhe, 1:0.
Anthony Yeboah lék á ný heilan
leik með Frankfurt, eða síðan hann
meiddist í september. Hann á enn
langt í land að ná fyrri getu — er
ekki eins fljótur og hættulegur og
hann var.
NI55AIM
í stöðugri sókn