Morgunblaðið - 22.02.1994, Side 12
KORFUBOLTI
Lazlo var
aftur rek-
inn úr húsi
I
i
FRJALSIÞROTTIR
Methjá
Jóni Arnari
Jón Amar Magnússon úr UMSS
setti íslandsmet í 60 metra
grindahlaupi í móti sem fram fór í
Arósum um helgina. Jón Arnar tók
þar þátt í sjöþraut og í 60 metra
grindahlaupi fékk hann tímann 8,16
sekúndur en gamla metið var frá
árinu 1986, 8,29 sekúndur.
Jón Arnar naði 5.504 stigum í
sjöþrautinni en hann á sjálfur ís-
landsmetið, 5.620 stig, sett í fyrra.
Árangur Jóns Arnars var þannig að
hann hljóp 60 metrana á 7,08 sek-
úndum, stökk 7,33 metra varpaði
kúlu 13,94 metra, stökk 1,95 metra
í hástökki og 4,30 metra í stangar-
stökki og 1000 metrana hljóp hann
á 3.03,53 mínútum.
BADMINTON
ísland í
efsta sæti
Islensku landsliðin, karla og
kvenna, sem þátt taka í Heims-
meistaramóti landsliða sem fram fer
í Glasgow, eru í efstu sætum eftir
fyrstu tvo keppnisdagana. Stúlkurn-
ar hafa lagt Spánveija og ísraela
að velli, 4:1 í báðum leikjunum og
strákarnir unnu Spánveija 5:0 og lið
Barbados einnig 5:0.
SKOTFIMI
Ólafur þriðji
ÆT
Olafur Jakobsson tók þátt í opnu
móti um helgina í Svíþjóð.
Hann keppti í loftskammbyssu og
varð þriðji, hlaut 575 stig sem er
einu stigi frá íslandsmeti hans. Per
Erik Persson vann með 579 stig
annar varð Ragnar Skanaker með
577 stig.
í fréttatilkynningu frá Skotsam-
bandinu segir að þetta sé tvímæla-
laust besti árangur skotmanns hér
á landi á þessu keppnistímabili.
Reulcr
Gulldrottningin frá Rússlandi
LJUBOV Jegorova frá Rússlandi geysist hér framúr Anitu Moen frá Noregi á síðasta spretti í 4x5 km göngu kvenna.
Rússar sigruðu í göngunni og var þetta sjötta ólympíugull Jegorovu og níundi verðlaunapeningurinn sem þessi 27 ára
gamla göngukona fær á Ólympíuleikum. Hún fær tækifæri til að krækja sér í tíunda verðlaunapeninginn í 30 km göngunni
sem jafnframt verður síðast keppni hennar á Ólympíuleikum því hún ætlar að hætta keppni fyrir næstu leika og ger-
ast kennari og eignast börn.
■ Nánar/ B3
Lazlo Nemeth, þjálfari úrvals-
deildarliðs KR í körfuknatt-
leik, var vísað af keppnisstað
strax eftir leik ÍA og KR í úrvals-
deildinni á sunnudaginn. Annar
dómari leiksins, Kristinn Óskars-
son, hefur sent kæru til aganefnd-
ar KKI vegna þessa atviks og verð-
ur málið tekið fyrir hjá nefndinni
í dag.
Undir lok leiksins á sunnudag
dæmdi Kristinn ásetningsvillu á
KR-ing og fengu því heimamenn
bónusskot og boltann við miðlínu
að þeim loknum. Skagamenn sigr-
uðu með einu stigi og var Lazlo
ekki ánægður með það og sagði
eitthvað við dómarann sem veitti
honum brottrekstrar víti, sem
Lazlo var allt annað en ánægður
með.
Lazlo tók nýlega út eins leiks
bann vegna brottrekstrar og að
sögn þeirra sem til þekkja gæti
þessi brottrekstur orðið honum
dýrkeyptur, enda var skýrsla dóm-
arans óvenju harðorð.
JUDO
Halldórog
Sigurður
þriðju
Halldór Hafsteinsson, Ármanni,
og Sigurður Bergmann,
Grindavík, unnu til bronsverðlauna
á alþjóðlegu mótti, Matsumae Cup,
sem fram fór í Kaupmannahöfn
um helgina.
Halldór, sem ketti í -86 kg
flokki, eftir einnar mín. glímu.
Halldór vann þijár aðrar glímur á
ippon, en tapaði einni. Sigurður
lagði Danann Jensen að velli í
keppninni um bronsið í +95 kg
flokki. Hann náði fastataki á Jens-
en þegar hálf mín. var eftir.
Vernharður Þorleifsson, KA,
tapaði fyrir Finnanum Kolanen í
keppni um bronsið í -95 kg flokki
og hafnaði í fimmta sæti. Saman-
lagur íslensku júdómannanna
tryggði þeim fimmta sætið í sveita-
keppni, en í efstu tveimur sætunum
voru sveitir frá Japan.
ÞYSKALAND
KNATTSPYRNA / 1. DEILD
Leikir í 10 umferðum
á sama degi í sumar
- og leikir í sjö umferðum skiptast á tvo daga. Mótið hefst
19. maí og þá mætast m.a. efstu liðinfrá ífyrra, ÍAog FH
Þórður
skoraði
Lék vel og var í liði
vikunnar í Kicker
órður Guðjónsson skoraði með
skalla þegar Bochum vann
SV Meppen, 4:0, í þýsku 2. deild-
inni í knattspyrnu um helgina.
Guðjón fékk mjög góða dóma fyr-
ir leik sinn og var valinn í lið vik-
unnar hjá íþróttablaðinu Kicker.
Uwe Wegmann, fyrirliði Boch-
um, skoraði þrjú mörk og lagði
upp markið sem Þórður skoraði.
Wegmann var einnig valinn í lið
vikunnar. Bochum er í efsta sæti
2. deildar og virðist fátt geta kom-
ið í veg fyrir að félagið endur-
heimti sæti sitt í úrvalsdeildinni.
Þórður Guðjónsson
KEPPNI í 1. deild karla íknatt-
spyrnu hefst með fjórum leikj-
um fimmtudaginn 19. maí n.k.,
en fimmti leikurinn verður dag-
inn eftir. Leikir 10 umferða
verða leiknir á sama degi í
sumar, sjö umferða á tveimur
dögum og leikir einnar umferð-
ar dreifast á þrjá daga.
Fjórar síðustu umferðirnar verða
leiknar á laugardögum í sept-
ember, en auk þess fara þrjár
umferðir fram um helgar, þar af
tvær af þremur í ágúst. Fimmtu-
dagur verður helsti leikdagur sum-
arsins, en leikir í átta umferðum
fara nær allir fram á fimmtudög-
um. Ein umferð verður á mánu-
degi, önnur á mánudegi og þriðju-
degi og ein til á föstudegi og laug-
ardegi.
Samkvæmt -niðurröðun hefjast
allir nema tveir laugardagsleikir
klukkan 14, en leikir á öðrum dög-
um klukkan 20 með örfáum undan-
tekpingum.
Á síðasta ársþingi KSÍ var sam-
þykkt að leikir í tveimur síðustu
umferðunum, sem geta haft úr-
slitaáhrif á stöðu efstu og neðstu
liða, skulu fara fram á sama tíma.
í 17. umferð mætast FH og Stjarn-
an, ÍBV og Fram, ÍBK og ÍA, KR
og Þór og UBK og Valur, en í 18.
umferð Stjarnan og UBK, Fram
og FH, ÍA og ÍBV, Þór og ÍBK
og Valur og KR._ Allir þessir leikir
eiga að hefjast lilukkan 14.
Sem fyrr segir hefst mótið 19.
maí en þá leika Fram og Stjarnan,
ÍA og FH, Þór og ÍBV og UBK
og KR, en Valur og ÍBK mætast
kvöldið eftir.
ENGLAND: X 2 1 2X1 1X1 X 2 X