Morgunblaðið - 19.03.1994, Qupperneq 1
mrgmtfifaMfe
MENNING
LISTIR
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
LAUGARDAGUR 19. MARZ 1994
BLAÐ'
c
%
Á
ÞAÐ ER orðin rík hefð hjá Leikfé-
lagi Akureyrar að enda starfsár-
ið á því að sýna söngleik af ein-
hverju tagi. Sett hafa verið á
svið ýmis heimskunn söngverk
og jafnan verið sýnd við góða
aðsókn og undirtektir áhorf-
enda. Nefna má verk eins og
My fair Lady, Fiðlarann á þak-
inu, Piaf og Leðurblökuna. Að
þessu sinni verður söngleikja-
hefð LA ekki rofin og viðfangs-
efni þessa leikárs er ekki af lak-
arataginu: Óperudraugurinn
eftir Ken Hill, gerður eftir skáld-
sögu franska rithöfundarins
Gastons Leroux. Tónlistin í sýn-
ingunni er úrval þekktra atriða
úr frægum óperum, meðai ann-
ars Parísarlífi og Ævintýrum
Hoffmans eftir Offenbach,
Faust eftir Gounod, Perluköfur-
unum og Grfmudansleik eftir
Verdi og Brúðkaupi Ffgarós eftir
Mozart.
_ að er ekki einasta að boginn
sé spenntur við verkefnavalið
heldur hefur LA af kostgæfni valið
afburðafólk til að halda utan um
og stýra sýningunni. Leikstjórinn
er Þórhildur Þorleifsdóttir, en eng-
inn íslenskur leikstjóri hefur svið-
sett jafnmargar óperur með jafn-
góðum árangri og hún. Þórhildur
kemur nú til starfa hjá LA eftir tíu
ára hlé, en síðast setti hún á svið
nyrðra My fair Lady, sem er talin
marka upphaf söngleikjahefðar-
innar hjá félaginu. Þýðandi Óperu-
draugsins er Böðvar skáld Guð-
mundsson, sem áður hefur unnið
slík verk fyrir LA auk þess sem
félagið hefur sýnt frumsamin verk
eftir hann. Búninga og leikmynd
gerir Sigurjón Jóhannsson, en
hann hefur áður sannað list sína
í Akureyrarleikhúsinu, meðal ann-
ars með viðamikilli og glæsilegri
leikmynd í Fiðlaranum á þakinu.
Tónlistarstjóri er Hollendingurinn
Gerrit Schuil, sem nýverið settist
að nyrðra og hóf. að kenna við
Tónlistarskólann á Akureyri. Hann
hefur notið mikillar hylli úti í hinum
stóra heimi fyrir píanóleik sinn og
þó einkum hljómsveitarstjórn og
hefur í vetur meðal annars stjórn-
að Sinfóníuhljómsveit Norður-
lands. Hér stýrir hann hljómsveit
og hefur æft og undibúið söngvar-
ana. Lýsing og hönnun hennar er
sem löngum fyrr í höndum Ingvars
Björnssonar, en hann hefur auk
þess að vera Ijósameistari hjá LA
sett mark sitt á sýningar fjöl-
margra áhugaleikhúsa á Norður-
landi á undanförnum árum.
Draugur í Óperuhúsinu
Óperudraugurinn, sem Leikfé-
lag Akureyrar setur nú á svið, er
leikgerð Bretans Kens Hills eftir
skáldsögu franska rithöfundarins
Gastons Leroux. Sagan gerist í
Parísaróperunni um síðustu alda-
mót og varð til þegar höfundur
heyrði sögur um ógnvænlegan
draug þar á bæ og dauðsföll sem
tilvist hans voru tengd. Þá varð til
sagan um Óperudrauginn með
andlitsgrímuna, valdabráttu hans
og forráðamanna óperuhússins og
samband hans við unga og glæsi-
lega söngkonu, sem lengi vel naut
ekki hylli sem skyldi. Sagan var
samin í aldarbyrjun en varð ekki
S AMKOMUHÚSIÐ Á AKUREYRI
verulega þekkt fyrr en löngu síðar.
Fyrstu leikgerð Óperudraugsins
samdi Ken Hill árið 1976 og þá við
tónlist eftir lan Armit. Árið 1984
samdi Ken Hill þá leikgerð sem
síðar hefur farið sigurför um heim-
inn og er nú komin á svið Sam-
komuhússins á Akureyri. í þessari
gerð er notuð tónlist úr frægum
óperum gömlu meistaranna, enda
eðlilegt þegar fjallað er um raun-
verulegt óperuhús og
fólkið sem þar starfar.
Aðrir höfundar hafa
glímt við sögu Laroux
um drauginn í Óper-
unni. Meðal kunnra
sýninga má nefna gerð
Andrews Lloyds Web-
bers, sem átti um hríð
samstarf við Ken Hill
um nýjan Óperudraug,
en rifti samstarfi og fór
eigin leiðir. Að sögn
Hlínar Agnarsdóttur,
starfandi leikhússtjóra
á Akureyri, er sú leik-
gerð mjög frábrugðin
fyrri gerðum Kens Hills.
Arið 1990 var gerð kvik-
mynd eftir leikgerð Art-
hurs Kopits um Óperu-
drauginn. Að sögn Ger-
rits Schuils, tónlistarstjóra, fer
kvikmyndin að sumu leyti nær upp-
runalegri sögu Leroux en gert er
í hinni sjájfstæðu leiksviðsgerð
Kens Hills. I þessum tveimur leik-
gerðum er þó farin sama leið hvað
varðar tónlist, að notuð eru þekkt
söngatriði úr óperum gamalla
meistara.
Úrval söngvara og leikara
Hálfur annar tugur söngvara og
leikara tekur átt í sýningu LA á
Óperudraugnum. Hlín Agnarsdótt-
ir segir að raunar sé svo að flestir
komi eitthvað við söng, þótt lítið
sé í sumum tilfellum, en nokkrir
bregða sér í fleiri en eitt hlutverk.
Stærstu sönghlutverkin, Draug-
urinn sjálfur og unga söngkonan
Christine, eru í höndum söngvar-
anna Bergþórs Pálssonar og
Mörtu G. Halldórsdóttur. Með
önnur hlutverk fara Ragnar Davíðs-
son, Már Magnússon, Ágústa S.
Ásgeirsdóttir, Aðalsteinn Bergdal,
Rósa Guðný Þórsdóttir, Þráinn
Karlsson, Sunna Borg, Sigurveig
Jónsdóttir, Gestur Einar Jónasson,
Ingibjörg Gréta Gísladóttir, Dofri
Hermannsson, Sigurþór A. Hei-
misson og píanóleikarinn og tón-
listarstjórinn Gerrit Schuil.
Söngur, leikur, gaman og
alvara
Óperudraugurinn er skemmtileg
saga um ástir, harma, spennu og
glens í einhverju glæsilegasta
óperuhúsi veraldar. Með glæsi-
legri óperutónlist undir stjórn Ger-
rits Schuils, smellinni þýðingu
Böðvars Guðmundssonar, traustri
leikstjórn Þórhildar Þorleifsdóttur
á viðamiklu og glæsibúnu sviði
Sigurjóns Jóhannssonar og lýsingu
Ingvars Björnssonar að ógleymd-
um hópi traustra söngvara og leik-
ara má telja á svið komna sýningu
sem er ekki síður búin til að slá í
gegn norðan fjalla en sýningar
sama söngvaleiks um Óperu-
drauginn um víða veröld.
Sverrir Páll
Sagan gerisl
i Parisar-
óperunni um
sióustu alda-
mót og varó
til þegar höf-
undur heyrói
sögur um
ógnvsenleg-
an draug þar
á bæ og
dauósföll
sem tilvist
hans voru
tengd