Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
B 3
SKIÐAMOT ISLANDS
ísfirðingar og
Ólafsfirðingar
unnu öll gull-
verðlaunin
ÍSFIRÐINGAR og Ólafsfirð-
ingar unnu öll 16 gullverð-
launin sem í boði voru á 56.
Skíðamóti íslands sem fram
fór við frekar erfið veðurskil-
yrði á Siglufirði um páskana.
Þrátt fyrir slæmt veður tókst
heimamönnum að Ijúka við
fyrirhugaðar greinar mótsins
nema samhliðasvig. Ásta S.
Halldórsdóttir og Daníel Jak-
obsson fóru fremst íflokki
ísfirðinga sem unnu 10 gull-
verðlaun og bræðurnir Krist-
inn og Ólafur BjörnSsynir
unnu fimm gullverðlaun fyrir
Ólafsfjörð.
Urslitin í alpagreinum voru al-
veg eftir bókinni. Ásta S.
Halldórsdóttir frá ísafirði
hafði mikla yfirburði í kvenna-
■■■■■ flokki. Það var að-
ValurB. eins Harpa Hauks-
Jónatansson dóttir sem náði að
skirfar ógna sigri hennar.
Kristinn Bjðrnsson frá Ólafs-
firði var sterkastur í karlaflokki
eins og búist var við. Hann sann-
aði það enn einu sinni, eins og
Ásta, að hann er okkar besti skíða-
maður. Vilhelm Þorsteinsson frá
Akureyri veitti honum þó harða
keppni, sérstaklega í stórsviginu
þar sem hann náði nánast sama
tíma í síðari umferð. Arnór Gunn-
arsson frá Ísafirði var öruggur
með bronsverðlaunin í báðum
greinum.
Ólympíufarinn Haukur Arnórs-
son frá Reykjavík náði sér ekki á
strik — fór útúr í síðari umferð
svigsins eftir að hafa náð fjórða
besta tímanum í fyrri umferð og
hafnaði í 6. sæti í stórsvigi. Ungur
Dalvíkingur, Sveinn Brynjólfsson,
stóð sig vel í stórsviginu — náði
þriðja besta tímanum í síðari um-
ferð og hafnaði í 4. sæti.
Ganga
Það sem helst vakti athygli í
göngugreinunum var að Ólafsfirð-
ingurinn Sigurgeir Svavarsson
sigraði ólympiufarana Daníel Jak-
obsson og Rögnvald Ingþórsson í
fyrstu göngugrein mótsins, 15 km.
„Ég vildi sanna að ég átti fullt
erindi á Ólympíuleikana,“ sagði
Sigurgeir. Daníel varð ekki fóta-
skortur í hinum tveimur göngun-
um, 30 km og boðgöngunni —
sýndi þá sitt rétta andlit. Rögn-
valdur náði einnig að rétta hlut
sinn frá því í 15 km með því að
ná öðru sæti í 30 km göngunni.
í piltaflokknum voru óvænt úr-
slit er Árni Freyr Elíasson frá
ísafirði kom fyrstur í mark í 15
km göngunni. Gísli Einar Árnasyni
og Kristján Hauksson frá Ólafs-
firði hafa verið nær einráðir í þess-
um flokki. Gísli Einar sigraði í 10
km göngunni og varð annar á eft-
ir Arna Frey í 15 km göngunni,
en báðir voru þeir í sigursveit ísa-
fjarðar í boðgöngunni með Daníel.
Auður Ebenezerdóttir frá
ísafiðri sigraði enn eina ferðina í
5 km göngu kvenna og Ólafur
Björnsson sigraði í sjötta sinn í
norrænni tvíkeppni og stökki.
íftémR
FOLK
I KRISTJÁN R. Guðmundsson
frá Isafirði keppti í 15 km göngu
og var þetta 25. landsmót hans. „Eg
byrjaði á Siglufirði og því varð ég
að loka hringnum. Þetta er búið að
vera takmarkið lengi. Ég ætlaði að
keppa fyrir fjórum árum, en þá komst
ég ekki vegna ófærðar," sagði Krist-
ján göngukappi sem keppti í Vasa-
göngunni sænsku í síðasta mánuði.
„Ég er búinn að skrá mig í Vasa-
gönguna næsta vetur.“
■ ÁSTA S. Halldórsdóttir frá
Isafirði hefur verið sigursæl á lands-
mótum. Hún varð þrefaldur íslands-
meistari um helgina og eru meistara-
titlar hennar nú orðnir 16 talsins; 3
í stórsvigi og samhliðasvigi, 5 í svigi
og 5 í alpatvíkeppni. Hún varð fyrst
íslandsmeistari 1987, í samhliðas-
v'gi- ..
H BJÓRN Þór Ólafsson frá Ólafs-
firði keppti fyrst á Skíðamóti ís-
lands 1957 og hefur aðeins misst
þijú mót úr síðan. Hann fór ekki
tómhentur heim frekar en áður —
vann silfurverðlaun í norrænni tví-
keppni og brons í stökki. „Ég verð
með svo lengi sem ég þori fram af
stökkpallinum. Ég viðurkenni að ég
fann fyrir hræðslu núna,“ sagði
Björn Þór, sem er 53 ára.
Morgunblaðið/Golli
GÖNGUMENNIRNIR létu veðrið ekki aftra sér frá keppni á Skíðamóti íslands
á Siglufirði. Hér er það ísfirðingurinn Gísli Einar Árnason sem gengur til sigurs
í 10 km göngu pilta 17 19 ára á fyrsta keppnisdegi mótsins. Gísli vann þrenn
gullverðlaun og ein silfurverðlaun á mótinu.
Veðurbarinn
Sigurður
hættir sem
formaður
Sigurður Einarsson, formaður
SKÍ, lýsti því formlega yfir
í mótslok á Siglufirði að hann
myndi hætta sem formaður
Skíðasambandsins á ársþinginu í
maí. Hann hefur verið formaður
í sex ár og verið tíu ár í stjórn.
Hann sagði framtíð skíðaíþróttar-
innar bjarta og að nú ættum ís-
iendingar fleiri frambærilegra
keppendur en áður.
Hans Kristjánsson, varafor-
maður SKÍ, gefur heldur ekki
kost á sér til endurkjörs í stjórn-
ina. Benedikt Geirsson, gjaldkeri
SKÍ, hefur verið orðaður við
formannsembættið.
Morgunblaðið/Golli
Asta S. Halldórsdóttir hafði mikla yfírburði í alpagreinum kvenna eins og vænta mátti. Hér er hún á fullri ferð
LstórsagiiUL_____________________________________________________________________________________________
Leikandi iétt
hjá Ástu
ÁSTA S. Halldórsdóttir fra ísafirði sýndi yfirburði sína í alpagrein-
um kvenna á Skíðamóti íslands sem lauk á Siglufirði á páskadag.
Hún vann öruggan sigur í svigi, stórsvigi og alpatvíkeppni og má
segja að keppnin um sigurinn hafi aldrei verið spennandi. „Eg kom
til þess að sigra og þó svo að aðstæður hentuðu mér ekki vel,
náði ég markmiðinu auðveldlega," sagði Ásta. Harpa Hauksdóttir
frá Akureyri varð önnur bæði í svigi og stórsvigi.
Asta sagði að það væri alltaf
gaman að koma heim og
keppa á landsmóti. „Veðrið hefði
mátt vera betra en við búum á ís-
landi og ráðum ekki við það. Við
megum alltaf gera ráð fyrir þessu,“
sagði hún.
Ásta var tæplega þremur sek-
úndum á undan Hörpu Hauksdóttur
í sviginu og 3,73 sek. á undan henni
í stórsvigi þó svo að Ásta hafi ver-
ið sett í annan ráshóp. Harpa var
reyndar sú eina sem hafði roð við
Ástu. Hinar stúlkurnar, sem flestar
eru enn í unglingaflokki, eiga tölu-
vert langt í land. „Ég held að mun-
urinn hefði verið enn meiri ef skíða-
færið hefði verið harðara eins og
það gerist best erlendis," sagði
Ásta. „Það var ekki hægt að taka
mikið á þessu því snjórinn var svo
mjúkur."
Um framhaldið sagðist Ásta
reikna með að verða áfram í háskól-
anum í Östersund í Svíþjóð næsta
vetur þar sem hún stundar nám í
sænskum bókmentum. Þar hefur
hún mjög góða aðstöðu til æfinga
og nýtur leiðsagnar Hans Ottoson-
ar, þjálfara skólaliðsins. Ásta hefur
bætt sig það mikið stigalega séð í
vetur að hún er nú komin með þátt-
tökurétt í fyrsta ráshópi í Evrópu-
bikarmótum. Sem þýðir að hún fær
greiddan ferðastyrk og uppihald frá
mótshaldara' fyrir sig og þjálfara
eða aðstoðarmann. Næsta skref hjá
henni er þátttaka í heimsbikar-
keppninni. „Nú er bara að stíga
skrefið alla leið,“ sagði Ásta. t