Morgunblaðið - 06.04.1994, Page 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ IÞROi I IUmIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR MIÐVIKUDAGUR 6. APRÍL 1994
B 5
SKIÐAMOT ISLANDS
Kom til að sigra
- sagði Kristinn Björnsson sem varð þrefaldur íslandsmeistari
KRISTINN Björnsson hafði mikla yfirburði íalpagreinum karia
eins og vænta mátti. „Ég kom hingað til Siglufjarðar til að sigra
og það tókst.“ Það var sérstakt að vinna þrjá meistaratitla sama
daginn. Vilhelm Þorsteinsson frá Akureyri varð annar í báðum
greinum og ísfirðingurinn Arnór Gunnarsson þriðji. Þessir þrír
voru í nokkrum sérflokki.
Kristinn sagði að skíðafærið hafi
verið of mjúkt fyrir sinn
smekk. „Það var ekkert annað að
gera en að fylgja
,, , „ sporinu. Ef maður
lónatansson stel£ of fast attl
skrifar maður það til að
festast. Því var um
að gera að láta sig fljóta í gegn,“
sagði hann. „En þetta var eins fyr-
ir alla.“
Kristinn var með besta tímann í
öllum fjórum ferðunum á sunnu-
daginn. Munurinn á honum og Vil-
helm í bæði sviginu og stórsviginu
var þó ekki mikill — tæp sekúnda
samanlagt. „Ég vissi að Vilhelm
ætlaði sér stóra hluti svo ég mátti
Ólafur Björnsson varð tvöfaldur
meistari í stökki og norrænni tví-
keppni. Hér svífur hann 41,5 metra
sem var lengsta stökkið í keppninni.
ekkert gefa eftir. Ég keyrði þétt
og tók énga óþarfa áhættu,“ sagði
Kristinn.
Ólafsfirðingurinn ungi er greini-
lega á mikilli uppleið sem skiðamað-
ur og ef heldur fram sem horfir er
varla langt að bíða að hann fari
að renna sér í heimsbikarmótunum.
„Ég er að nálgast þá bestu, en síð-
asta skrefið er mjög erfitt á topp-
inn. Ég þarf enn að bæta mig
punktalega til að geta farið á fullu
í Evrópubikarimí eða heimsbikar-
inn. Ég ætla að æfa á fullu næsta
vetur, en ég veit ekki hvernig þetta
verður því það er ekki möguleiki
fyrir mig að vera lengur í Geilo því
ég er búinn með skólann.
Vilhelm Þorsteinsson frá Akur-
eyri, sem varð þrefaldur ís-
landsmeistari í fyrra, vann þrenn
silfurverðlaun á Siglufirði. Hann
sagðist vera nokkuð ánægður með
árangurinn. „Ég vonaðist eftir
þessu fyrirfram. Það er aðeins
Kristinn sem nær að slá mig út
og það er engin skömm að vera
rétt á eftir honum. Ég náði að
sanna að ég er næst bestur, þó ég
vildi reyndar meina að ég hafí ver-
ið búinn að því fyrir Ólympíuleik-
ana, en það kom enn betur í ljós
Það þarf að marka afreksstefnu
hjá Skiðasambandinu fyrir hæsta
vetur og peninga til þess. Það sem
hefur hjálpað mér í gegnum þennan
vetur fjárhagslega eru styrkir úr
afreksmannasjóði ÍSÍ og eins hef
ég fengið aðstoð frá Sparisjóði
Ólafsfjarðar, Skíðasambandinu og
fleirum. Þetta er mjög dýrt dæmi
og vonandi að ný stjórn geti tekið
þessi mál fastari tökum en áður.
Það er mjög mikilvægt að ráða
landsliðsþjálfara. Ég get ekki séð
annað en að hann verði að vera
erlendur."
Kristinn segir það bestu lausnina
á landsliðsmálunum að ný stjórn
SKÍ bytji á því að ráða landsliðþjálf-
ara. „Ég held að landsliðið þurfi
að vera með aðsetur í Austurríki
svipað og Akureyringar og Ar-
menningar gerðu í vetur. Æfa þar
og keppa til að ná árangri. Það
þýðir ekki að æfa hér heima því
aðstæður leyfa það ekki.“
núna,“ sagði Vilhelm, sem hefur
æft í Austurríki í allan vetur.
Arnór Gunnarsson frá ísafirði
sagðist vera frekar svekktur með
útkomuna. „Ég er sáttur við brons-
verðlaunin'en ég hefði viljað veita
þeim meiri keppni, sérstaklega í
sviginu. Þetta var einum of létt
hjá Kristni," sagði Arnór, sem hef-
ur verið við æfingar í Noregi í all-
an vetur og ætlar sér að halda
áfram að æfa á fullum krafti næsta
vetur.
Rögnvaldur snýr
sér að frjálsum
Rögnvaldur Ingþórsson frá Akureyri hefur ákveðið að leggja göngu-
skíðin á hilluna — fengið nóg. „Ég var mjög óánægður með
Skiðsambandið í vetur. Þó svo að ég hafi keppt á Ólympíuleikunum
fékk ég ekki krónu í styrk,“ sagði Rögnvaldur. Hann sagðist nú ætla
að snúa sér alfarið að frjálsíþróttum sem er mun ódýrara að stunda.
„Ég ætla að reyna við íslandsmetið í 3.000 metra hindrunarhlaupi í
sumar. Til þess þarf ég að bæta mig um 15 sekúndur."
IMáði að sanna mig
- sagði Vilhelm Þorsteinsson frá Akureyri
íslandsmeistarar
ÞESSIR íþróttamenn urðu sigursælastir á Skíðamóti Islands á Siglufirði. Frá vinstri; Asta S. Halldórsdóttir, Isafirði,
Sigurgeir Svavarsson, Ólafsfirði, Daníel Jakobsson, Isafirði, Kristinn Björnsson, ísafirði, Ólafur Björnsson, Ólafsfirði,
Árni Freyr Elíasson, íspfirði og Gísli Einar Árnason, ísafirði,
Ekkert hægt að bóka
fyrirfram í íþróttum
- sagði Daníel Jakobsson skíðagöngukappi sem stendur á ákveðnum tímamótum
Þátttakendur í alpagreinum á landsmótinu urðu að bíða í fimm daga eftir
að hægt væri að keppa vegna veðurs. Þeir voru ekki aðgerðarlausir og dund-
uðu sér m.a. við að búa til snjókarla.
„ÉG er sáttur við árangurinn á
þessu landsmóti ef á heildina
er litið, þó ég hefði vissulega
viljað fara heim með fullt hús.
Þetta sýnir að ekkert er hægt
að bóka fyrirfram í íþróttum,"
sagði ísfirðingurinn Daníel Jak-
obsson, sem vann þrenn gull-
verðlaun og ein silfurverðlaun.
Hann sagði að Sigurgeir hefði
komið sér á óvart í fyrstu
göngunni, „en eftir það var ég
staðráðinn f að vinna restina."
Daníel sagði að Sigurgeir hefði
átt skilið að vinna eina göngu
miðað við hve mikið hann væri
búinn að leggja á sig í vetur. „Hann
gekk þetta reglulega vel og fékk
ákveðna uppreisn æru eftir að hafa
ekki komist á Ólympíuleikana. En
ég sýndi honum það í boðgöngunni
og 30 kílómetrunum að ég er best-
ur,“ sagði Daníel.
Hann sagði að uppgangur væri
í göngunni og breiddin væri meiri
en áður. „Það eru fleiri sem eru að
berjast um verðlaunasætin en áður.
Urslitin í unglingaflokknum er gott
dæmi um það. Það átti engin von
á því að Árni Freyr næði að vinna
Gísla og Kristján Hauksson. En
hann gerði það samt.“
Æfi á fullu næstu tvö árin
„Ég er ákveðinn í að æfa á fullu
næstu tvö árin — gefa allt í þetta
og sjá svo til hvar ég stend og gera
þá upp hug minn um framhaldið.
Ég veit að ég get bætt mig enn
frekar. Það þarf þó að finna ein-
hveija lausn á mínum þjálfunarmál-
um. Þetta hefur ekki verið alveg
nógu gott í vetur eftir að ég flutti
til Östersund. Það er erfitt að
standa í þessu meira og minna einn.
Það er margt sem þarf að laga.
Ég held ég hafi ekki þróast eins
hratt sem skíðamaður og þegar ég
var í Jerpen. Ég er betri en í fyrra
en það hefur verið hægari framför."
Þarf að komast inn
hjá Norðmönnum
„Ég stend á hálfgerðum tíma-
mótum því ég veit ekki hvar ég
æfí næsta vetur. Besta lausnin fyr-
ir mig og sjálfsagt Skíðasamban-
bandið líka er að koma mér inn hjá
norska B-landsliðinu. Ég held að
það sé hægt því ég hef verið í sam-
bandi við fyrrum þjálfara norska
landsliðsins sem býr í Östersund
og hann er tilbúinn að hjálpa mér.
Sem einstaklingur þarf ég að leggja
meiri áherslu á kraftþjálfun en áð-
ur,“ sagði Daníel.
Hann fer út til Svíþjóðar fyrir
helgi og mun keppa í nokkrum
mótum og kemur svo heim til ís-
lands aftur í sumar og ætlar þá
meðal annars að taka þátt í Reykja-
víkurmaraþoninu í ágúst ásamt
Rögnvaldi Ingþórssyni.
Morgunblaðið/Golli
Kristinn Björnsson var sigursæll á Siglufirði. Hann vann þijá íslandsmeistaratitla af þremur mögulegum og það sama daginn. Hér
er hann að kéýra til sigurs í stórsviginu.
Sigurgeir
og Gísli
bikar-
meistarar
Sigurgeir Svavarsson frá Ólafs-
firð varð bikarmeistari SKÍ í
göngu karla árið 1994. Þetta var
tilkynnt á lokahófi landsmótsins á
Siglufirði á sunnudagskvöld.
Hann hlaut 100 stig út úr bikar-
mótum vetrarins. Haukur Eiriksson
frá Akureyri varð annar með 80
stig og Daníel Jakobsson, ísafirði,
þriðji en einu bikarmót hans voru
á Siglufirði.
Gísli Einar Árnason frá ísafirði
varð bikarmeistari SKÍ í göngu pilta
17 - 19 ára. Hann hlaut_95 stig.
Kristján Hauksson frá Ólafsfirði
varð annar með aðeins fimm stigum
minna, eða 90 stig. Árni Freyr El-
íasson, ísafirði, endaði í þriðja sæti
með 70 stig.
Bikarmeistarar SKÍ í alpagrein-
um fullorðinna verða krýndir eftir
alþjóðamótin sem verða hér um
aðra helgi.
Danfel Jakobsson fagnar hér sigrinum er hann kemur í markið eftir
30 km gönguna á sunnudaginn. Hann vann þrenn gullverðlaun og ein
silfurverðlaun á mótinu. Á minni myndinni óskar hann Árna Frey til
hamiogju með óvæntan sigur í 15 km göngu pilta 17 - 19 ára.
Gerði mér aldrei vonir um sigur
- sagði SigurgeirSvavarsson, íslands-
meistari í 15 km göngu karla
SIGURGEIR Svavarsson frá Ólafsfirði sigraði mjög óvænt i
15 km göngu karla, sem fram fór fyrsta keppnisdag mótsins.
Fyrirfram var búist við að Daníel Jakobsson frá ísafirði ætti
sigurinn vísann. „Ég er geysilega ánægður. Draumurinn var
aðeins að ná öðru sæti því ég gerði mér aldrei vonir um að
vinna Daníel," sagði Sigurgeir.
etta var annar íslandsmeist-
aratitill Sigurgeirs á ferlinum
því þeim fyrsta náði hann í
15 km göngu fyrir fjórum árum.
Hann gekk mjög vel frá upphafi
til enda. Veður var ekki eins og
best verður á kosið, snjókoma og
talsverður vindur. „Ég er bestur í
vondu veðri því ég er svo þijóskur
og gefst aldrei upp,“ sagði Sigur-
geir, sem er 27 ára.
„Ég var mjög svekktur að kom-
ast ekki á Ólympíuleikana í Lille-
hammer og þess vegna var mikil-
vægt fyrir mig að vinna báða
ólympíufarana. Ég er búinn að
leggja mikið á mig í vetur og þessi
árangur undirstrikar að ég hefði
átt fullt erindi til Lillehammer.“
Sigurgeir segist reikna með að
minnka æfingaálagið og jafnvel
hætta alvöru keppni. Hann hefur
meiri áhuga á að rífa upp göngu-
íþróttina hér á landi og leggja al-
farið fyrir sig þjálfunina, en hann
hefur þjálfað yngstu krakkana á
Ólafsfirði í vetur með góðum
árangri. „Ég er búinn að æfa á
fullu í átta ár og nú er kominn
tími til að slaka aðeins á.“
Daníel sagði að færið og veðrið
hafi gert sér erfitt fyrir, en það
væri þó engin afsökun. „Sigurgeir
gekk mjög vel og var einfaldlega
betri en ég. Hann átti þetta skilið
því hann er búinn að leggja mjög
mikið á sig. Það er ekkert öruggt
fyrirfram í þessu,“ sagði Daníel
eftir 15 km gönguna og var greini-
lega svekktur.
Ami setti strik
í reikninginn
Gísli Einar Árnason frá ísafirði,
sem hefur haft nokkra yfir-
burði síðustu tvö árin í flokki pilta
17-19 ára, sigraði örugglega í
10 km göngunni en fékk óvænta
keppni frá félaga sínum, Árna Frey
Elíassyni, í 15 km göngunni á
sunnudaginn. Árni Freyr, sem er
aðeins 56 kg, var mjög léttur á
sprettinum og nánast sveif er hann
koin fyrstur í gegnum markið.
„Ég trúi þessu varla. Ég hugs-
aði um að ná öðru sæti því eg hef
ekki unnið Gísla í vetur. Ég var
alveg útkeyrður þegar ég kom í
markið," sagði Árni Freyr eftir 15
km gönguna á sunnudag.
Gísli Einar, sem vann þrefalt í
þessum flokki í fyrra, var að sjálf-
sögðu ánægður með fyrri gönguna
sína (10 km) en svekktur með að
tapa fyrir Árna Frey í 15 km. „Ég
er búinn að vinna hann í allan vet-
ur og bjóst því ekki við þessu, en
Árni gekk mjög vel,“ sagði Gísli,
sem gat þó vel við unað því hann
kom heim með þrenn gullverðlaun
og ein silfurverðlaun.
Sigurgeir Svavarsson frá Ólafs-
firði kom, sá og sigraði í 15 km göngu
karla. Hann sagðist hafa undirstrikað
það með sigri sínum að hann hefði átt
fullt erindi á Vetrarólympíuleikana í
Lillehammer — en fékk ekki að fara.
Hann varð einnig bikarmeistari SKÍ
1994. Nú ætlar hann að snúa sér alfar-
ið að þjálfun unglinga.
Morgunblaðið/Golli
í stöðugri sókn
k