Morgunblaðið - 06.04.1994, Síða 8
___
/ÞROntR
KNATTSPYRNA / EVROPA
Spennaá
Englandi,
Spáni og í
Þýskalandi
LEiKMENN Blackburn höfðu betur íviðureigninni gegn Manc-
hester United í Blackburn, þar sem Alan Shearer tryggði heima-
mönnum sigur, 2:0, með tveimur mörkum í seinni hálfleik. Það
var mikil taugaspenna hjá leikmönnum liðanna, sem sást best
á því að fyrri hálfleikurinn var bragðdaufur — ekkert skot að
marki, en dómarinn dæmdi 31 aukaspyrnu.
' lan Shearer opnaði leikinn strax
í seinni hálfleik, er hann skor-
aði með skalla — þrumaði knettinum
framhjá Peter Schmeichel, eftir auka-
spyrnu frá Tim Sherwood. Leikmenn
United gerðu harða hríð að marki
Blackburn eftir það og ekki munaði
miklu að leikmenn United næðu að
skora — tvisvar komst mark Black-
burn í hættu. Tim Flowers varði vel
skoti frá Andrei Kanchelskis og Paul
Ince átti stangarskot. Blackburn, sem
hafði ekki tapað ellefu leikjum á
Ewood Park, fagnaði sínum fyrsta
heimasigri á Manchester United í 32
ár, eftir að Shearer bætti við öðru
marki á 77. mín. Shearer var ánægð-
ur eftir leikinn og sagði: „Fólk af-
skrifaði okkur eftir tapið gegn
" Wimbledon, en við erum komnir á
ferðina á ný — ákveðnir að beijast.
Það eru margir leikir eftir í baráttu
okkar við United.“
Bæði liðin voru í sviðaljósinu á
annan í páskum. Manchester United
tók á móti Oldham á Old Trafford
og fagnaði sigri, 3:2, en leikmenn
Blackbum gerðu góða ferð á Goodi-
son Park í Liverpool, þar sem þeir
lögðu Everton að velli, 0:3. Manchest-
er United og Blackbum eiga eftir að
leika sex leiki. United hefur þriggja
stiga forskot og tólf mörk í plús.
Hörö fallbarátta
Baráttan um fall er mikil, en mörg
fræg félög eru að beijast um að halda
• sæti sínu í úrvalsdeildinni, eins og
Tottenham, Manchester City, Ever-
ton, Southampton og Sheffield
United.
Teddy Sheringham lék sinn fyrsta
leik með Tottenham í fimm mánuði
og virkaði sem lukkudýr er Totten-
ham lagði Norwich að velli, 2:1, á
útivelli. Sheringham skoraði fyrsta
mark leiksins, en síðan varði Ian
Walker, markvörður Tottenham, víta-
spyrnu frá Chris Sutton. Það var svo
Sutton sem jafnaði, 1:1, en heppnin
var með Tottenham þegar Colin
Woodthorpe, varnarmaður Norwich,
skoraði sjálfsmark og færði Lundún-
arliðinu sinn annan sigur í síðustu
tólf leikjum.
Sheringham var ánægður eftir
leikinn og sagði: „Þetta er eins og
draumur. Ég trúi þessu varla ennþá.
Það var stórkostlegt að koma aftur,
skora mark og fara frá Norwich með
þijú dýrmæt stig.“ Leikmenn Totten-
ham komu síðan niður á jörðina á
annan í páskum, en þá máttu þeir
þola skell, 1:4, á heimavelli gegn
West Ham.
Leikmenn Everton riðu ekki feitum
páskahesti — þeir töpuðu tveimur
leikjum stórt. 1:5 fyrir Sheffield
Wednesday á útivelli og síðan 0:3
fýrir Blackburn heima — fimmta tap
liðsins i sex leikjum. Southampton
tapaði einnig báðum leikjum sínum,
en aftur á móti fögnuðu leikmenn
Manchester City tveimur sigrum og
leikmenn Sheffield United lögðu Li-
verpool að velli og gerðu jafntefli við
Arsenal.
Norðmaðurinn Jostein Flo skoraði
bæði mörk Sheffield Utd. í sigurleik
á Anfíeld Road, 1:2. Flo hafði aðeins
skorað eitt mark í síðustu 20 leikjum
Sheff. Utd. og Liverpool mátti þola
sitt fyrsta tap á heimavelli síðan í
september. Leikmenn Sheff. Utd.
léku sinn áttunda leik í röð án taps,
þegar þeir gerðu jafntefli, 1:1, við
Arsenal á ar.nan í páskum.
Nýliðarnir hjá Manchester City
Peter Beagrie, Paul Walsh og Þjóð-
veijinn Uwe Rosler skoruðu allir í
sigurleik gegn Aston Villa, 3:0. Leik-
menn Southampton, sem hafa leikið
sjö leiki án sigurs, urðu síðan fórn-
arlömb leikmanna City. Þjóðveijinn
Stefan Karl, sem er í láni frá Dort-
mund, skoraði sigurmark City tveim-
ur mín. fyrir leikslok á The Dell.
Frankfurt tapaði
óvænt í Leipzig
Barern Múnchen stefnir á þrett-
ánda meistaratitil sinn í Þýskalandi,
eftir heppnissigur 1:0 gegn Köln á
sama tíma og Frankfurt tapaði
óvænt, 0:1, fyrir botnliðinu Leipzig.
Kólumbíumaðurinn Adolfo Valencia
skoraði mark Bæjara gegn Köln, eft-
ir að hann fékk 30 m sendingu fram
völlinn frá varnarmanninum Christ-
ian Ziege á 67 mín. Hann hljóp með
knöttinn og sendi hann framhjá Bodo
Illgner af 14 m færi.
Frankfurt lék án miðheijans Anth-
ony Yeboah, sem var að leika með
Ghana í Afiríkumeistarakeppninni.
Leikmenn liðsins náðu sér ekki á strik
og skoraði Júrgen Rische fyrir heima-
menn á 27 mín. — þeir fögnuðu sínum
fyrsta sigri í fjórtán leikjum. „Ég var
búinn að vara mína leikmenn fyrir
þennan leik. Eftir þetta tap okkar
geta leikmenn Bayern Múnchen fagn-
að meistaratitlinum,“ sagði Klaus
Toppmöller, þjálfari Frankfurt.
Reuter
Andy Cole fagnar fímmtugasta marki sínu fyrir Newcastle, í fimmtugasta
leik sínum fyrir félagið.
Franz Beckenbauer, þjálfari Bay-
ern, sagði að sínir leikmenn hefðu
engan tíma til fagna. „Ef við leikum
áfram eins og gegn Köln, er löng
leið að meistaratitlinum. I fyrra var
Bayern með fjögurra stiga forskot,
en missti af meistaratitlinum til
Bremen.“
AC Milan missti af sigri
Roberto Donadoni sofnaði smá-
stund á verðinum, eða þegar fimm
mín. voru til leiksloka á leik AC Milan
og Parma og það kostaði meistarana
sigur — vítaspyrna var dæmd á Dona-
doni, sem felldi Argentínumanninn
Nestor Sensini. Gianfranco Zola skor-
aði úr vítaspyrnunni, 1:1. Daniele
Massaro skoraði fyrir heimamenn á
72. mín., eftir aukaspyrnu frá Dona-
doni. AC Milan þarf þijú sig út úr
fjórum síðustu leikjum til að fagna
meistaratitli þriðja árið í röð.
Inter Mílanó tapaði sínum fjórða
leik í röð, þegar leikmenn félagsins
sóttu Juventus heim í Tórínó. An-
tonio Conte skoraði sigurmark heima-
manna, 1:0, með skalla á 85. mín.,
eftir sendingu frá Roberto Baggio.
Juventus er í öðru sæti á Ítalíu, sex
stigum á eftir AC Milan, með 41 stig,
en Sampdoría í þriðja sæti með 40
stig.
Einvígi La Coruna
og Barcelona
Eftir að Real Madrid tapaði óvænt,
2:3, fyrir botnliðinu Celta, er ljóstað
meistarabaráttan á Spáni stendur á
milli La Coruna og Barcelona, en
ekki má þó afskrifa Real Madrid.
Tvær vitaspyrnur á síðustu sjö mín.
leiksins bjargaði félaginu frá háðung.
Emilio Butragueno og Fernando Hi-
erro skrouðu úr vítaspyrnunum. Real
Madrid er nú fímm stigum á eftir
La Coruna og þremur á eftir Bracel-
ona.
Barcelona átti í erfiðleikum með
Lerida og var það ekki fyrr en undir
lokin að liðið náði að tryggja sér sig-
ur. Ivan Iglesias skoraði, 1:1, á 77
mín. og sjö mín. seinna skoraði Guilil-
ermo Amor sigurmarkið. Þess má
geta að Barcelona tapaði heima, 0:1,
fyrir Lerida fyrr í vetur.
Brasilíumaðurinn Bebeto skoraði
tvisvar þegar Deportivo La Coruna
lagði Real Oviedo að velli, 5:2. Leikur-
inn tók sinn toll, því að tveir leik-
menn La Coruna fengu að sjá gula
spjaldið í fímmta skipti á keppnis
tímabilinu og missa af leik gegn At-
letico Madrid nú í vikunni. Það voru
þeir Jose Ribera og Salvador Voro.
Barcelona hefur ekki leikið vel að
undanförnu, en unnið samt leiki. „Ef
við höldum áfram að fagna sigrum
þrátt fyrir að leika illa, sé ég ekki
annað en við getum fagnað meistar-
atitli,“ sagði Koeman, miðvörðurinn
sterki. Brasilíumaðurinn Romario
segir að leikmenn La Coruna eigi
eftir að leika erfiðari leiki en Barcel-
ona. „Þeir eiga eftir að tapa þremur
til fjórum stigum.“
Urslit / B6
Stöður/ B6
ÍÞR&ntR
FOLK
XABIER Azkargorta, lands-
liðsþjálfari Bolivíu, sem er Spán-
verji, stendur í stappi þessa dagana
þar sem tvö af bestu félögum
landsins vilja ekki lána leikmenn
sína í æfingabúðir. Landslið Boliv-
íu, sem kemur til Islands og leikur
vináttuleik í maí, fer í þriggja vikna
æfingabúðir til Spánar á næstu
dögum.
INTER Mílanó hefur tilkynnt
Arsenal að hollenski landsliðsmað-
urinn Dennis Bergkamp sé ekki
til sölu, en hann er óánægður hjá
félaginu. Arsenal var tilbúið að
borga 443 millj. ísl. kr. fyrir Berg-
kamp.
ANDY Cole skoraði sitt fimm-
tugasta mark fyrir Newcastle í
fimmtíu leikjum, þegar Newcastle
gerði jafntefli, 1:1, við Leeds.
■ CHRIS Fairclougii skoraði
mark Leeds og bjargaði því að fé-
lagið hefði þurft að sætta sig við
tap, eftir fimmtán heimaleiki í röð
án taps. Leeds hefur aðeins tapað
þrisvar í síðustu 61 leik á Elland
Road.
■ KEVIN Keegan, framkvæmda-
stjóri Newcastle, gerir sér miklar
vonir að Newcastle tryggi sér rétt
til að taka þátt í Evrópukeppni í
fyrsta skipti í sautján ár. Newc-
astle er í þriðja sæti, sem gefur
félaginu rétt á sæti í UEFA-keppn-
inni.
■ 200 rciðir stuðningsmenn QPR,
sem hafa ekki verið ánægðir með
framgang stjórnarformannsins Ric-
hard Thompson að undanfömu,
ruddust inn á Loftus Road, rétt
fyrir leikhlé. Það tók meira en
fimmtán mín. að koma áhorfendun-
um út af vellinum. QPR tapaði, 0:4
fyrir Leads.
■ SEAN McCarthy skoraði 1000
mark ensku úrvalsdeildarinnar,
þegar hann skoraði fyrir Oldham
gegn Manchester United, sem
vann 3:2.
■ DION Dublin skoraði fyrir
United, tveimur mín. eftir að hann
kom inná sem varamaður — kom
félaginu yfir 2:1.
■ EVERTON gekk illa um pásk-
ana og getur svo farið að félagið
keppi ekki í hópi þeirra bestu næsta
keppnistímabil, en félagið hefur
leikið í 1. deild og síðan úrvalsdeild
síðan 1954. Everton hefur aðeins
náð einu stigi úr síðustu sex leikjum
— og aðeins skorað tvisvar.
■ TREVOR Morley, sem nær var
búinn að ganga til liðs við Totten-
ham fyrir tveimur vikum, skoraði
tvö mörk fyrir West Ham gegn
Tottenham, 4:1.
■ JULEN Guerrero, 20 ára mið-
heiji Athletio Bilbao var fyrstur
leikmanna á Spáni 5 vetur til að
skora fjögur mörk í leik. Það gerði
hann gegn Sporting Gijon, 7:0.
Þetta var í fyrsta skipti í 35 ár síð-
an Athletio hefur skorað sjö mörk
í leik.
■ JOAO Havelange, hinn 78 ára
forseti FIFA, ætlað að gefa kost á
sér til endurkjörs á ársþingi alþjóða
knattspyrnusambandsins í ár, en
hann tók við starfínu 1974. „Ég er
tilbúinn í slaginn og mun ekki gef-
ast upp,“ sagði Havelange, en
margir telja að tími hans sé útrunn-
inn sem forseti FIFA.
■ BÚLGARINN Krassimire Bal-
akov, sem leikur með Sporting
Lissabon, skoraði fimm mörk þegar
Sporting lagði Lourosa að velli,
6:0, í undanúrslitum bikarkeppninn-
ar í Portúgal. Þá lagði hann upp
sjötta markið. Sporting mætir
Porto í úrslitum.
■ FRANZ Beckenbauer, þjálfari
Bayern Miinchen, sagði fyrir helg-
ina að hann myndi vilja sjá Morten
Olsen sem eftirmann sinn hjá Bay-
ern. Olsen er þjálfari Köln.
SVIÞ./ENGLAND: 1 2 X 2 12 11
ITALIA:X X1 X12 X11 1X11