Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.04.1994, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 9. APRÍL 1994 C 7 MENNING OG LISTIR NÆSTU VIKU MYNDLIST Norræna húsið Olav Ch. Jensen og Bodil Kaalund sýna til 17; apr. Listasafn íslands Verk Barböru Árnason til 8. maí. Safn Ásgríms Jónssonar Skólasýn. í 30 ár fram í maí. Gallerí Sólon íslandus Guðrún Kristjánsd. sýnir til 12. apr. Gerðuberg Ósk Vilhjálmsd. sýnir til 24. apr. Gallerí Onnur hæð Karin Sander sýnir til 30. apr. Hafnarborg Henrik V. Jensen, Ásdís Sigurþórsd. sýna til 11. apr. Mokka kaffi Steingrímur Eyfjörð Kristmundss. sýnir til 14. apr. Listasafn Sigurjóns Hugmynd-Höggmynd til 1. maí. Listasafn ASI Dröfn Friðfinnsd. sýnir til 24. apr. Hallgrímskirkja Haukur Halldór sýnir til 24. apr. Gallerí Úmbra Dominique Ambroise sýnir til 20. apr. Nýlistasafnið Veggspjaldasýn. Guerilla Girls og Haraldur Jónsson sýnir til 24. apr. Portið Samsýn. fimm listakvenna til 24. apr. Galleri 11 Margrét Sveinsdóttir sýnir til 25. apr. Galleríið „Hjá þeim“ Soffía Sæmundsdóttirs sýnir til 28. apr. Slunkaríki ísaf. Ólafur Már sýnir til 17. apr. TONLIST Laugardagur 9. apríl Lúðrasv. Tónlistarsk. í Keflavík á maraþontónl. kl. 13. Vortónl. Lúðra- sv. Verkalýðsins í Bústaðakirkju kl. 17. Mánudagur 11. apríl Ntna Margret Grímsd. píanól. t Nor- ræna húsinu kl. 20.30. Sólveig A. Jónsd., Hólmfríður Þóroddsd. og Danner Stonham á tónleikum í Skjól- brekku kl. 21. Þriðjudagur 12. apríl Sönghópurinn Sólarmegin á tónl. í Safnaðarh. Selfosskirkju kl. 20.30. Gítarl. David Russell á einleikstónl. í Áskirkju ki. 20.30. Miðvikudagur 13. apríl Kammersveit Hafnarfjarðar heldur tónl. í Víðistaðakirkju íd. 20.30. Sól- veig A. Jónsd., Hólmfríður Þóroddsd. og Darren Stonham á tónleikum í Safnaðarh. Akureyrarkirkju kl. 20.30. Karlak. Fóstbræður í Lang- holtskirkju kl. 20.30. Fimmtudagur 14. apríl Karlakórinn Fóstbræður í Langholts- kirkju kl. 20.30. Föstudagur 15. apríl Karlakórinn Fóstbræður t Langholts- kirkju kl. 20.30. Laugardagur 16. apríl Karlakórinn Fóstbræður t Langholts- kirkju kl. 15. LEIKLIST Borgarleikhúsið Gleðigjafarnir kl. 20; fim. 14. apr., sun. Eva Luna kl. 20; lau. 9. apr., sun., mið., fös., lau. Leiklestur á grískum harmleikjum lau. 9. apr. kl. 16., sun. kl. 16. Þjóðleikhúsið Gauragangur kl. 20; sun. 10. apr. Allir synir mínir kl. 20; fös. 15. apr. Skilaboðaskjóðan sun. 10. apr. ki. 14. Blóðbrullaup kl. 20; lau. 9. apr., fös. íslenska leikhúsið - Hitt húsið Vörulyftan kl. 20; lau. 9. apr. Leik- félag Akureyrar Óperudraugurinn kl. 20.30; lau. 9. apr., fös., lau. Bar Par kl. 20.3Ö; sun. 10. apr., fnn. Nemendaleikhúsið Sumargestir kl. 20; þri. 12. apr., fim. KVIKMYNDIR MÍR Uppsprettan sun. 10. apr. kl. 16. Norræna húsið Kvikm. „Sigurd Drakedreper" lau. 9. apr. kl. 14. Umsjónarmenn listastofnana og sýningarsala! Upplýsingar um listviðburði sem óskað er eftir að birtar verði í þessum dálki verða að hafa borist bréflega fyrir kl. 16 á miðvikudögum merkt- ar: Morgunblaðið, menning/ listir, Kringlunni 1, 103 Rvík. Myndsendir: 91-691181. METRÓPÓLITAN SAFNIÐ Í NEWYORK ÞEIR ERU ófáir íslensku mynd- listarmennirnir sem hafa numið við Konungiega akademilð f Kaupmannahöfn. Þar innrituð- ust flestir sem teljast til fyrstu kynslóðar fslenskra myndlistar- manna, til að mynda Þórarinn B. Þorláksson, Asgrfmur Jóns- son og Kjarval. Akademfið hafði vitaskuld ákaflega mótandi áhrif á danskt listalíf og þar námu allir þeir málarar sem f dag eru taldir til gullaldarinnar f dönsku málverki, en hún er sögð standa frá 1816 til 1848. Um þessar mundir hangir uppi í Metrópólitan safninu f New York sýning á mörgum helstu verkum þessa tímabils, og hef- ur hún notið allnokkrar athygli. rátt fyrir sterk tengsl íslenskra myndlistarmanna við Aka- demíið í Kaupmmannahöfn er ekki hægt að segja að danskir málarar frá síðustu öld séu kunnir á ís- landi; franskir og enskir samtíma- menn eru mun þekktari. Þannig hefur það líka verið hér í Bandaríkj- unum, listasagan er byggð um- hverfis listamenn stórþjóðanna og aðrir komast varla að. Og þá stór- þjóðir dagsins í dag ber á góma, þá teljast Danir seint þar með, í það minnsta í landfræðilegu tilliti. En á nítjándu öldinni höfðu Danir þó nokkur áhrif; þeir áttu nýlendur og þeir áttu Kirkegaard, H.C. And- ersen, Bertel Thorvaldsen — sem íslendingar reyna árangurslítið að minna á að þeir eigi helminginn í, það sannar þessi eina setning þar að lútandi í Thorvaldsensafninu — og þeir áttu góðan myndlistarskóla sem dró að nemendur víðsvegar úr Evrópu. Kunnasti málarinn til að útskrifast frá Akademíinu er lík- lega þýski rómantíkerinn Caspar David Friedrich, en það má spyrja hverjir þekki Martinus Rorbye, Wilhelm Bendz, Carl Dahl, Jens Juel, P.C. Skovgaard, J.T. Lundbye, C.W. Eckersberg og Christen Kobke. Og hina átta málarana sem eiga myndir á Gullaldarsýningunni. Nöfnin eru ekki kunnugleg, fyrir utan kannski tvö þau síðast- nefndu, en myndirnar gefa fyllilega tilefni til að kynnast þeim betur og sannfærast um að danskir lista- menn voru ekki að gera síðri hluti á þessum tíma en kollegar sunnar í Evrópu. Á árunum 1790 til 1850 var Kaupmannahöfn ein helsta lista- miðstöð Evrópu og átti Konung- lega akademíið stóran þátt í því. Á þessum tíma þróaðist myndlistin frá nýklassískum hugmyndum um túlkun goðsagna og sögulegra fyr- irmynda, til aukinnar tilfinningar fyrir náttúrunni og því sem henni tilheyrði, þar sem listamennirnir hylltu samtímamann og heiminn sem þeir hrærðust í. í Danmörku var breytingin til þessa nýja veru- leika og túlkunar að miklu leyti skrifuð á reikning Christoffer Wil- helm Eckerbergs (1783-1853). Hann hafði hlotið nýklassíska skól- un á vinnustofu Davids í París, en hélt þaðan til Rómar og kynntist öðrum og frjálsari flötum á tilver- unni. Upphaf gullaldarinnar dönsku er talin koma Eckerbergs frá Ítalíu árið 1816, en í farteskinu hafði hann nýja tegund af mál- verki; léttan og leikandi stíl, mynd- ir sem sóttu í venjulegar daglegar fyrirmyndir, litirnir bjartir og pensil- skriftin nákvæm. Auk þess að vera virtur og afkastamikill málari, þá tók Eckersberg þegar að kenna við Akademíið og varð fljótt ákaf- lega áhrifamikill. Þannig voru flest- ir hinir málararnir sem kenndir eru við gullöldina nemendur hans í ein- hvern tíma. Þetta tímabil er talið enda árið 1848, með ótímabærum dauða tveggja bestu og efnileg- ustu listamannanna, Kobke og Lundbye. Á sýningunni í Metrópólitan safninu eru rúmlega 100 málverk eftir 17 listamenn. Sumir þeirra eiga einungis tvö eða þrjú verk, meðan heilu herbergin eru lögð undirtvo þeirra: foringjann Eckers- berg og síðan Kobke. Og sá síðar- nefndi er eiginlega í heiðurssæt- inu, og eðlilega, enda kenna Danir sjálfir myndlist þessa tima við Christen Kobke, mann sem dó 37 ára gamall en náði engu að síður að skapa nokkrar helstu myndlist- arperlur sem þeir eiga. Sýningin er fallega hengd upp. Herbergin hafa verið máluð í sömu mildu Pompei-litunum og eru í Thorvaldsensafninu og myndirnar njóta sín vel þrátt fyrir smæð þeirra flestra. Ólíkt því sem gerðist nefnilega á þessum tíma í öðrum Evrópulöndum, þar sem kirkjur, efnamenn og stofnanir styrktu listamenn til að gera stór verk fyr- ir sali sína, þá unnu danskir lista- menn aðallega fyrir litla en vaxandi kaupmannastétt og þeir virðast ekki hafa viljað stórar myndir á heimili sín (nokkur stærstu mál- verk sýningarinnar voru gerð eftir pöntun Berten Thorvaldsens og í eigu hans, enda hafði hann drjúg salarkynni til umráða). Michael Kimmelman, gagnrýnandi New York Times, fjallar í lofsamlegri umsögn sinni um það hversu inni- legar þessar myndir séu; þær voru gerðar til að hanga á heimilum borgarastéttarinnar og hann segir að þetta séu einmitt myndir sem allir geta hugsað sér að lifa með, „málverk eins og dýrgripur Bendz af dönsku herbergi, litlar fínlegar og mjúkar skissur Lundbye sem upphefja danska tandslagið og þortrett Jensens, þar sem fyrir- myndirnar virðist vera fólk sem þú þekkir eða vilt þekkja.11 Kimmelman beinir athyglinni sérstaklega að Eckersberger og Kobke. Hann dáist að björtum og skörpum Rómarmyndum þess fyrrnefnda og sumum módel- og landslagsmyndunum, en þykir hann í öðrum full kuldalegur; of tengdur uppruna sínum í formlegri nýklassíkinni. Annar bandarískur gagnrýnandi, Schwartz að nafni, hefur haldið nafni Kobke mjög á lofti og skrifaði í bók um hann á síðasta ári að „þegar farið er í gegnum listasöguna þá hafi eng- inn listamaður á undan Kobke náð að spegla heiminn með svona miklum léttleika í andrúmsloftinu". Kimmelman er sammála þessu og talar um að málverk hans séu mjúk, undarlega nákvæm, litirnir aðdáunarlega þyngdarlausir og að þau séu máluð með ofurfínni ná- kvæmni. Danir eru að vonum stoltir yfir þessum fulltrúum menningar sinn- ar og hafa fjallað mikið um sýning- una og viðtökurnar. Reyndar hafa ekki allir verið sáttir við heitið og benda á að fleiri hópar danskra listamanna hafi skapað álíka hæð- ir í sinni list, þar eru Skagenmálar- arnir nefndir, Den frie og Gronnig- en hóparnir. Myndirnar á sýning- unni koma frá öllum helstu lista- söfnum Danmerkur og vitaskuld er þeirra saknað af veggjunum þar sem þær hanga venjulega. En Peter Hornung, gagnrýnandi Poli- tiken, bendir á að í New York sjá að minnsta kosti 250 þúsund manns sýninguna og hafi hún þeg- ar náð að vekja athygli á listsköpun Dana gegnum tíðina og komið þeim inn á síður listasögubóka þar sem þeir eiga óneitanlega heima. Sýning sem þessi geti glætt áhuga erlendra gesta á að sækja dönsk söfn heim og sjá meira og þá telur hann að hún hafi einnig hvetjandi áhrif heima fyrir. En Kornung bæt- ir við að nú megi búast við því að verðgildi verka þessara málara aukist verulega, þegar megi sjá það á markaðinum og stór söfn séu farin að falast eftir lykilverkum eftir þá Kobke og félaga. En hvað skyldum við íslendingar þurfa að bíða í marga áratugi eftir því að stór erlend söfn fari að fá áhuga á okkar gullaldarmálurum? Einar Falur Ingólfsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.