Morgunblaðið - 20.04.1994, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 20.04.1994, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNIR MIÐVIKUDAGUR 20. APRÍL 1994 B 11 MikU gróska í byggíngariðnaði á Egílsslöðum Fólksfjölgun á Iivcrju ári GRÓSKUMIKLU tímabili í byggingariðnaði á Egilsstððum er nú að Ijúka. Mikið hefur verið byggt á undanförnum árum, enda hefur bærinn stöðugt bætt við sig nýjum íbúum. Egilsstaðir eru fyrst og síðast þjónustubær. Iðnaður hefur þar blómstrað svo og verslun. Þetta hefur í för með sér uppbyggingu á iðnaðar og versl- unarhúsnæði, og er nú svo komið að offramboð er fyrirsjáanlegt á þeim vígstöðvum. Egilsstaðahreppur var stofnaður 1947 og er því ungur að árum. Bærinn hefur nánast byggst allur upp á síðustu áratugum í nágrenni við hið stórfenglega Eg- ilsstaðabú sem landsfrægt er vegna stærðar sinnar. Bærinn liggur í þjóðbraut, eins og þeir kann- ast við sem ferð- ast hafa um Aust- urland og segja má að þaðan liggi vegir til allra átta, hvort sem það er til sjávar eða sveita, eða upp á hálendi. Umhverfi hans frábrugðið öðrum stöðum á landinu vegna skóganna sem eru í næsta ná- grenni og ekki síður fyrir þá sök að Egilsstaðir liggja ekki að sjó. Vatnslaust er þó ekki alveg, því Lagarfljótið líður þar hjá í grennd- inni, þungt og mikið. A Egilsstöð- um er stærsti flugvöllur landsins fyrir utan Reykjavík og Keflavík og setur það mark sitt á bæjarlíf- ið. íbúar eru rúmlega fimmtán hundruð, en voru 1975 aðeins rétt rúmlega níu hundruð. Nær stanslaus uppbygging Uppbygging á Egilsstöðum hefur verið hröð á síðustu árum. Á tíma- bilinu 1979-1982 var mikil gróska í byggingariðnaðinum og síðan hófst annað tímabil 1987 sem stendur enn og ekki er séð fyrir endann á. Til marks um hina hröðu uppbyggingu íbúðarhúsnæðis á svæðinu má nefna að síðustu ár hafa verið teknar í notkun 22 íbúð- ir á ári. Þetta árið hafa 7 íbúðir fengið fokheldisvottorð. Lang mest hefur verið byggt af einbýlis- húsum og raðhúsum, en einungis sex fjölbýlishús eru á Egilsstöðum og eru þau öll í minni kantinum. Það vekur athygli þegar ekið er um Egilsstaði hvað mörg hús þar eru úr tré. Það er að segja, platan er steypt og síðan er húsið byggt úr tré. Mörg eru þó í seinni tíð klædd með stein klæðningu. Lætur nærri áð um helmingur allra íbúða sé byggður á þennan hátt. Það kemur því ekki á óvart að Tré- smiðja Fljótsdalshéraðs sérhæfir sig í smíði þess konar húsa en hún situr þó ekki ein að þeim markaði. Allar lóðir inni í bænum uppurnar Að sögn Guðmundar Pálssonar bæjartæknifræðings er eftirspurn eftir lóðum jöfn og góð, enda er verðið á þeim hagstætt. Sjöhundr- uð og fimmtíu fermetra lóð sem á verður byggt 400 rúmmetra hús kostar, með fullfrágenginni götu með slitlagi, um 460 þúsund krón- ur. Inni í þessu verði er ekki sími, rafmagn og hiti. Allar lóðir inni í bænum eru uppurnar og verið er að skipuleggja svæði fyrir áfram- haldandi uppbyggingu. Nú þegar er lokið við gatnagerð við svæði sem kallast Einbúablá og einungis eru eftir lóðir fyrir um 20 íbúðir, en búið er að úthluta lóðum undir tæplega 30 íbúðir. Uppbygging á því svæði byijaði fyrir tveimur árum. Guðmundur áætlar að úthlutun verði lokið í byijun næsta árs. Það hefur komið á óvart að menn hafa ekki setið við orðin tóm, heldur eru margir byijaðir á framkvæmd- um og er ekki að merkja neinn beyg í húsbyggjendum. Fyrir ligg- ur skipulag að næsta svæði sem tekið verður undir húsbyggingar. Þar eru áætlaðar lóðir undir 54 íbúðir, einbýlishús og raðhús. Er það svæði ákaflega aðlaðandi og spennandi kostur. Að öllum líkind- um verða framkvæmdir þar hafnar með haustinu. Af þessu má sjá að bæjaryfirvöld verða að hafa sig öll við að anna eftirspurn eftir byggingalóðum á komandi árum. Ekkert offramboð á atvinnuliúsnæði Ólíkt sumum stöðum á landinu er ekki offramboð á iðnaðarhús- næði á Egilsstöðum. Mikil iðnaður þrífst þar og er hlutur smáiðnaðar í heimahúsum töluverður. Því má segja að ef allir þeir sem við iðnað fást myndu taka sig til og flytja í svo kallað iðnaðarhúsnæði, þá yrði vöntun á því. Verslunarhús- næði er nokkuð vel setið, en hægt er að fá minni einingar til afnota. Stórhýsið að Miðvangi 2-4, sem í daglegu tali er kallað „Kleinan" , sbr. Kringlan í Reykjavík, og er nýlega byggt, er ekki fullsetið ennþá. í byggingu er annað stórt verslunarhúsnæði, en ekki er fyrir- séð hvenær það kemst í gagnið. Guðmundur Pálsson segir að alltaf sé eitthvað af verslunar og iðnað- arhúsnæði í byggingu á hveijum tíma. Á Egilsstöðum er mikil opinber þjónusta. Má þar nefna RARIK, menntaskólann, Byggðastofnun, sjúkrahúsið og Skógrækt ríkisins. Nokkur uppbygging hefur verið í kringum þessar stofnananir og fleiri eru í byggingu. Má þar nefna íþróttahús sem er hálfnað, sund- laug og safnahús. Góð þjónusta við byggingariðnaðinn Margvísleg þjónusta er við byggingariðnaðinn á Egilsstöðum. Má þar nefna byggingavöruversl- anir, verktakafyrirtæki, steypu- stöð, einingarverksmiðju, ofnasölu og fleira. Stærsta einstaka fyrir- tækið sem vinnur í byggingariðn- aðinum er Brúnás. Það hefur á sínu snærum m.a. steypustöð, ein- ingarverksmiðju og síðast en ekki síst hinar landsfrægu innréttinga- smíð. Ekki verður annað séð, en að uppbygging á Egilsstöðum muni enn um sinn verða nokkuð jöfn og stöðug. Landrými er til staðar fyrir nýbyggingar og ennfremur öll þjónusta við húsbyggjendur og atvinnuleysi er lítið meðal iðnaðar- manna. eftir Benedikt Sigurðsson SKIPTIÐ VIÐ FAGMANN Félag Fasteignasala Morgunblaðið/Benedikt Sigurðsson Nýtt verzlunar og skrifstofuhúsnæði á Egilsstöðum. Á neðstu hæðinni eru verzlanir og á efri hæðunum eru skrifstofur. Þetta hús gengur í daglegu tali á Egilsstöðum undir nafninu “Kleinan" sbr. “Kringlan“ í Reykjavík og er um 2.000 fermetrar. Skammt frá “Kleinunni" er annað stórhýsi að rísa. Þar er að verki Guðjón Sveinsson verktaki. FASTEIGNA- 06 FIRMASALA AUSTURSTRÆTI 18. 101 REYKJAVÍK Haukur Geir Garðarsson, viðskfr. Óii Antonsson, sölumaður. Guðmundur Valdimarsson, sölumaður. Gunnar Jóhann Birgisson, hdl. Sigurbjörn Magnússon, hdl. Sími 62 24 24 Opið laugardag kl. 11-14 Einbýlis-, rað- og parhús Kópavogur — 2 ib. Einb. á tveimur hæðum 184 fm ásamt 25 fm innb. bílsk. Á jarðh. er sér 2ja herb. fb. Góð staðsatn. Fallegt útsýni. Verð 12,8 mlllj. Hafnarfjörður Gott raðh. á tveimur hæðum m. innb. bílsk. samt. 183 fm. Auk þess 25 fm milliloft. Fallegar innr. Skipti mögul. á ódýrari elgn. Verð 11,9 millj. Garðabær - Flatlr Vorum að fé f einkásölu sár- stakl. gott og vel staös. elnb. á einni hæð ésamt tvöf. bitsk. sam- tals t85 fm. Sólskáli. S-gar6ur. Verð 13,8 millj. 4ra—6 herb. Vesturbær — lán Mjög falleg mikið endurn. 4ra herb. íb. á 1. hæð í góðu fjórb. M.a. nýl. eld- hinnr., parket/flísar og gler. Áhv. 3,3 millj. Byggsj. Verð -8,3 millj. Týsgata Skemmtil. 4ra herb. íb. á 3. hæð (efstu) í steyptu fjórb. Geymsluloft. Endurn. baðherb. Laus fljótl. Verð 6,2 millj. Sörlaskjól — bílskúr / Mikið endurn. risíb. í þríb. Stofa, borð- stofa og 2 svefnh. 32 fm bílskúr. Áhv. 3,3 millj. byggsj. Verð 6,6 millj. Noröurmýri — Njálsgata Góð 4ra herb. íb. á 1. hæð. Parket. Stofa, borðstofa, 2 herb. Verð 6,6 m. Fossvogur - raðhús Mjög gott pallaraöhús með bílsk. fyrir framan. 4-5 svefnh. Fallegt útsýni. Góð ræktuð lóð. Laust strax. Reynilundur — Gbæ Mjög gott 165 fm einb. á einni hæð auk 57 fm bílsk., stofa, borðstofa, 3-4 svefnh. Nýtt þak. Góð hornlóö. Lækjartún — Mos. — laust 140 fm fallegt einb. á einni hæð auk tvöf. bílsk. Parket og flísar. Nýjar innr. Nýtt þak. 1000 fm eignarlóö. Laus. Áhv. 2,3 millj. húsbr. Verð 12,9 millj. Mosfellsbær I einkasölu 130 fm einb. á einni hæö ásamt 50 fm bílsk. á jaöarlóð. Hentar útivistar- og hestafólki. Verð 10,9 millj. Fagrihjalli. Parhús á tveimur hæðum 194 fm. Fokh. Verð 7,7 millj. Bakkasmári. Parhús á einni hæð 173 fm. Fokh./ t.u.t. Verð 8,4 millj. Garðhús. Raðh. á tveimur hæðum 175 fm. Verð 7,9 millj. Leirutangi — Mos. Falleg björt 103 fm 3ja-4ra herb. efri sórhæð. Parket á holi og stofu. Vönduð eikarinnr. í eldh. Sér suöurgarður. Áhv. 2,1 millj. Verð 8,7 millj. Langholtsvegur — bflsk. Mjög góö 92 fm hæö auk 40 fm bílsk. Góðar innr. Endurn. baðherb. Parket. Áhv. 4,6 millj. Verð 8,8 millj. Rekagrandi Glæsil. 106 fm endaíb. á tvelmur hæðum. Parket. Fllsar. Flfsl. bað- herb. Glæsilegt útsýni. Bilskýli. Ahv. 2,5 miHj. Verð 9.4 mlltj. Hvassaleiti — bílskúr Mjög góð 81 fm íb. á 3. hæð auk 21 fm bílsk. Til afh. strax. Áhv. 2,5 millj. húsbr. Verð 7,7 millj. Asparfell — laus Góð 5 herb. 132 fm íb. á tveimur hæð- um I lyftuh. 4 rúmg. svefnherb. Tvennar svalir. Þvherb. i ib. Inng. af svölum. Áhv. 3,5 millj. Verð 8,5 millj. Flúðasel — húsnlán Mjög góð og rúmg. 4ra herb. íb. á tveim- ur hæðum 92 fm á 3. hæð í nýklæddu húsi. Áhv. 3,4 millj. veðd. Verð 6,9 m. Garðabær. 4ra herb. útsýnlsíb. í fjölb. Tilb. u. trév. Verð 7,9 millj. 3ja herb. Öldugrandi — bflskúr Mjög falleg 3ja herb. íb. á 2. hæö i nýju 5-ib. húsi. Bflskúr. Áhv. 3,1 mlllj. Byggsj. Verö 8,5 millj. Dúfnahólar — laus Vorum að fá í sölu 70 fm snyrtil. íb. á 2. hæð í litlu fjölb. Bílskplata. Glæsil. útsýni. Lyklar á skrifst. V. 5,6 m. Laugarnesið Góð 3ja herb. íb. á 4. hæö (ofstu) í fjölb. S-svalir. Hús og þak nýyfirfarið. Verð 6,5 millj. Bárugrartdi - 5,1 m. lán Stórglæsii. 3ja-4ra herb. ib. á 2. hæð í nýl. fjórb. Stæði f bílskýtl. Vandaðar innr. Parkat/flisar. Ahv. 5,1 mlllj. byggjs. til 40 éra. Verð 9,3 millj. Neshagi Góð 3ja herb. fb. í litiö niðurgr. kj. i fjórb. Sérinng., -rafm., -hiti. Áhv. 1,2 millj. byggsj. Verð 5,3 millj. Reykás — húsnlán Vorum að fá i sölu mjög góða 3ja herb. íb. á 1. hæð í fjölb. Áhv. 3,0 millj. veðd. Verð 6,9 millj. Sogavegur— húsnlán Vorum að fá í sölu mjög góða 65 fm íb. á jarðh. Ágætis innr. Áhv. 3,5 millj. veðd. Verð 6 millj. Ránargata Góð 74 fm íb. á 2. hæö. Mikið endurn. eign. Parket. Áhv. 2,4 millj. veðd. Verð 6,2 millj. Laugarnesvegur — laus Mjög góð 73 fm íb. Parket. Suöursv. Lyklar á skrifst. Ahv. 2,5 millj. veðd. Verð 6,5 millj. 2ja herb Miðbær - uppgerð Falleg 2ja herb. íb. á 2. hæð í steinh. Ib. er nýuppg. m.a. ný eldhinnr., parket á gólfum. Laus strax. Mjög hagst. verð: 3,5 milij. Garðabær Falleg 2ja herb. ib. á jarðh. i endaraðh. Allt sér. Sérupphitað bllastæði. Áhv. 3,2 millj. langtlán. Verð 5,8 millj. Eyjabakki - góð lán Falteg 65 fm íb. á 1. hæð. Gegrt- heilt parket. Nýl. endurn. hús og sameign. Áhv. 3,4 millj. veðd. Verð 6,9 mlllj. Vallarás — húsnlán Góð 2ja herb. ib. á 2. hæð í lyttuh. Parket. Ahv. 3,9 millj. veðd. V. 5,6 m. Vesturbær — gott verð Mjög góð endurn. 50 fm Ib. á 2. hæð [ 6-býli. Marbau-parket. Nýtt rafm. og gler. Áhv. 1,5 millj. veðd. Verð 4,2 millj. Atvinnuhúsnæði Krókháls Til sölu 430 fm á jarðhæð Innr. sem skrifsthúsnæði og lager m. innkeyrslu- dyrum. Laust. Stapahraun Til sölu 216 fm. 48 fm milliloft. Góð aðkoma. Þrennar innkdyr. Laust. Eiðistorg Til sölu 2 saml. bil i verslmiðstöð samt. 90 fm. Laust.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.