Morgunblaðið - 01.06.1994, Blaðsíða 4
4 C
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 1. JÚNÍ 1994
Margir sendu inn myndir í
samkeppni vegna Alþjóða
tanngæsludagsins
TANNLÆKNAFÉLAG íslands vill koma á framfæri þakk-
læti til allra þeirra barna sem tóku þátt í teiknimyndasam-
keppni vegna Alþjóða tanngæsludagsins 7. apríl sl. Bárust
yfir eitt þúsund teikningar til félagsins, sem sýndi áhuga
barna á því hve mikilvægt er að hugsa vel um tennurnar.'
Pennavinir
Hún Erla María er að leita
sér að pennavinum sem eiga
að vera á aldrinum 10-12 ára.
Hún er 11 ára. Áhugamálin
eru hlaup, fótbolti, skíði og
skautar.
Heimilisfangið er:
Erla María Kristmundsdóttir,
Hlíðarhjalla 46,
200 Kópavogur
Vissuð þið, krakkar, að
hárið á höfði ykkar vex
í 2-6 ár og veryulega
detta 70-100 hár af á
hverjum degi. Augnhár-
in endast hinsvegar bara
í 10 vikur.
Þetta kemur fram í bók-
inni Um líkama þinn, sem
er í bókaflokknum Skrýtið
og skemmtilegt.
Dómnefnd valdi myndir sem
þóttu bestar og fór verð-
launaafhending fram í Borgar-
kringlunni á Tanngæsludag-
inn, sem var 7. apríl síðastlið-
inn. Komu börn víðs vegar að
af landinu til að taka á móti
verðlaunum.
Sá leiði misskilningur kom
upp, að öll börn sem þátt tóku
í keppninni myndu fá áletraða
boli en það stóð aldrei til og
vill Tannlæknafélag íslands
biðjast velvirðingar á þeirri
missögn.
7. apríl var alþjóðlegur
tanngæsludagur og unnu
tannlæknafélög um allan heim
að því að hvetja fólk til að
bæta tannheilsuna því tenn-
urnar eiga að endast alla ævi
- heilsunnar og útlitsins
vegna.
VINA-
LEIKUR
Munið að senda myndir
í vinaleikinn, segið okkur
hvað besti vinurinn heitir
og hvað þið gerið saman.
Ef þið eigið ekki mynd
af ykkur vinunum, teiknið
þá bara mynd. Sá sem er
dreginn út í vinaleik fær
sumarleikföng send heim.
Vissuð þið,
krakkar?
Þegar fólk er ástfangið fær-
ir það hvort öðru gjarnan
eitthvað fallegt. En það eru
fleiri en mennirnir sem eru
gjafmildir í tilhugalífinu,
dýrin sum hver eru dugleg
við þetta líka.
Svokölluð garðfluga í Ástr-
alíu kemur með ber og
blóm til sinnar heittelskuðu,
fluga nokkur færir sinni frú
gjöf í silfurvef en það er kirt-
ill sem flugan hefur sem fram-
leiðir vefinn og síðan er það
mörgæsin sem kemur með
stein handa sinni útvöldu.
yujmimmm
>p
fóÓSA LlTLA 'A &SÚ
HÚN kALLA &
KATTFJZÍ&Í. K/SO
ÞVKlR. /UI7ÖG 6AAAAN
AÐ CATA JZÓSU PRA6A
SIG 'AFRAM ÍHTWM
\M0N! SEM HÚN A /