Morgunblaðið - 04.06.1994, Side 4

Morgunblaðið - 04.06.1994, Side 4
4 C LAUGARDAGUR 4. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ -h & Jóhannes Kjarval: Litaspjald, sumar (1963). úr eigu Kjarvaisstaða Kjarval og Ásmundur í Listasatninu á Akureyri NÁTTÚRA - NÁTTÚRA í DAG, laugardag-inn 4. júní, verður opnuð í Listasafninu á Akureyri merkileg sýning. Sýn- ingin nefnist Náttúra - náttúra og þar er teflt saman í öllum sölum safnsins verkum tveggja merkustu meistara íslenskrar myndlistar, Jóhannesar Kjarvals og Asmundar Sveinssonar. Þetta er frumsýning þessarar samsetn- ingar málverka Kjarvals og höggmynda Ásmundar. Sýningin verður síðar send til Prag og Edinborgar, en ekki er fyrirhug- að að hún verði sett upp á ný hérlendis. Að sögn Haraldar Inga Haralds- sonar, forstöðumanns Lista- safnsins á Akureyri, er hér trúlega um að ræða einhvern merkilegasta viðburð í íslenskri myndlist sem borið hefur fyrir augu á Norður- landi. Sýningin er samvinnuverkefni Listasafns Reykjavíkur, Kjarvals- staða og Listasafnsins á Akureyri. Hugmyndina sagði Haraldur Ingi að Gunnar Kvaran, forstöðumaður Kjarvalsstaða, hefði fengið fyrir nokkru. Þetta væri framsækin hug- mynd, að tefla saman á einn stað verkum þessara tveggja meistara. Þeir færu ólíkar leiðir í list sinni en útgangspunkturinn væri ótrúlega sambærilegur, sýn þeirra á íslenskri náttúru. Nægði þar að taka dæmi af ýmsum tröllslegum konumyndum Ásmundar og samanburði þeirra við íslensk fjöll. Farandsýning frumsýnd Haraldur Ingi sagði að þessi merka samsýning verka Ásmundar og Kjarvals kæmi við á Akureyri á leið út í heim, þar sem hún yrði sett upp í Prag og síðar í Edinborg, en ekki væru uppi hugmyndir um að sýna hana frekar hérlendis en hér á Akureyri. „Á þessari sýningu sést greinilega ný og fersk meðferð á vali á verkum þessara snillinga. Gunnar Kvaran hefur valið verkin og val hans er slíkt að það gefur nýja sýn,-alveg nýtt sjónarhom á list höfundanna. En að tefla saman einmitt Kjarval og Ásmundi er ef til vill stórkostlegasta hugmyndin - og þegar að er gætt er undarlegt að það skuli ekki hafa verið reynt áður.“ Ásmundur Sveinsson: Tröllkona (1948). Sýning fyrir alla íslendinga Sýningin Náttúra - náttúra und- irstrikar fremur en fyrri sýningar Listasafnsins á Akureyri að_ þetta safn er forvitnilegt fyrir alla íslend- inga svo og erlenda ferðamenn. Haraldur Ingi á enda von á að sýn- ingin verði afar vel sótt. „Aðsókn að sýningum hefur verið mjög góð en þessi merkilega sýning hlýtur að draga til sín mun fleiri en aðrar sem hér hafa verið. Menningarmála- nefnd Reykjavíkurborgar og margt annað aðkomufólk verður við opnun sýningarinnar og auk þess kemur Úr eigu Ásmundarsafns geysilegur fjöldi gesta hvaðanæva aðaf landinu til Akureyrar um miðj- an mánuðinn, meðal annars vegna hátíðarhalda stúdenta Menntaskól- ans auk fjölda ferðafólks innlends og erlends. Og það er ljóst að eng- inn verður svikinn af að sjá þessa nýju samsettu sýningu verka Kjarv- als og Ásmundar.“ Sýningin Náttúra - náttúra verð- ur opnuð klukkan 16.00 í dag. Lista- safnið á Akureyri er opið alla daga nema mánudaga klukkan 14.00- 18.00. Sýningin stendur til 28. júní næstkomandi. -Sverrir Páll FORLEIKUR AÐ LISTASUMRI Forleikur að listasumri er yfir- skrift tónleika sem haldnir verða í Safnaðarheimili Akureyrar- kirkju annað kvöld, fimmtudags- kvöldið 2. júní kl. 20.30. Þetta eru síðustu tónleikar Tónlistarfélags Akureyrar á starfsárinu. Á tónleikunum leikur Daníel Þor- steinsson á píanó verk eftir Bach, Brahms og Schubert. Daníel Þor- steinsson hóf tónlistamám í Nes- kaupstað og hélt því áfram í Reykja- vík og síðan í Amsterdam en hann útskrifaðist úr Sweelinck tónlistar- háskólanum þaðan árið 1993. Daníel hefur víða komið fram á tónleikum og mun hann í sumar leika ásamt Sigurði Halldórssyni sellóleikara á tónleikum í St. Martin in the Fields-kirkjunni í Lundúnum. ÞETTA er einn af þessum blák öldu vordögum, svo kyrrlátur að vatnið sefur þótt landið hvolfi sér oní það. Leiðin liggur eftir veginum til Krísuvíkur, þar sem fjöllin standa ljósbrún, rauðbrún og dökkbrún eins og uppgefin þrá eftir gróðri hafi gert þau öll eins. Á undirlendinu blaktir ekki einu sinni grágulur lubbi jarðar. Samt er ekki ljótt, bara kyrrt og bjart og ég finn að þetta er góður dagur tit að heimsækja málara, sem maður heldur mikið upp á. Hann býr í safírbláu húsi í eyði- mörkinni og hefur safírblá augu, sem eru íhugul og djúp, hams- laus og skær, hoppandi frá einum sjónarhóli yfir á annan eins og allir hólarnir í Krísuvík hafi verið búnir til svo þau mættu skoða tilveruna frá ýmsum hliðum. Yfir blámanum svífur svo hvítur, þykkur lubbinn, í andlitinu skrítilegt skegg eins og rammi um djúpa, hrjúfa raustina, sem hefur sig til flugs inn í aðrar víðáttur og sækir þangað litadýrð- ina sem endurómar i verkum hans. Ogjþvílík litadýrð! Alls ólik Krísuvík. A sýningunni sem verður opnuð í Hafnarborg í dag eru myndir Sveins hlaðnar litum, svo miklum að gleði manns verður stjórnlaus við að horfa á þær. Finnst nánast eins og heimurinn eigi sér einhveija von og þjáningar mannkynsins hafi verið á misskilningi byggðar. „Mig hefur alltaf langað til að gera svona myndir," segir Sveinn, þar sem við horfum á ótrúlega Ijöl- breytnina í litrófinu, sem hefur ekk- ert leiðarminni, enga vegvísa, ekk- ert. Hvað er þetta? „Litir,“ svarar Sveinn og kímir. Já, ég sé það. En af hveiju eru myndirnar? „Litum,“ segir listamaðurinn og hlær í skeggið. Hyaðan eru þeir? „_Úr Krísuvík.“ Úps. Hæpið, hugsa ég og rifja hratt upp í huganum blámann og grámann og svo endalaust brúnt. Sekk niður í það muskulitróf um stund og velti því fyrir mér hvort Sveinn sé orðinn litblindur eða gal- inn eða eitthvað. Heyri rödd í fjar- lægð, rödd sem talar um skyldleika listar. Röddin nálgast og ég heyri að Sveinn segir: „Eg vil ekki að list- ir fjalli um samfélagslegan veru- leika. Listin á að koma á óvart, svo fólk staldri við.“ Myndirnar hafa margar hveijar nöfn sem vísa í tónlist: Hveraorgel, Hveraómar, svo koma Langir tónar og Stuttir tónar. „Ég mála mikið við tónlist,“ segir Sveinn, eins og það útskýri hvers vegna hann hefur kúvent í listsköpun sinni og fyllt myndflötinn af allri þessari gleði. Mér finnst eins og ég hafi aldrei séð Svein, eða myndir hans áður og spyr hvort hann hlusti þá ein- göngu á tjútt-tónlist. „Nei, aðallega óperutónlist.“ Það var og. Eg verð að viðurkenn- að að það er rökrétt, því líklega endurspeglar engin tegund tónlistar tilfinningalegt litróf eins rækilega og óperutónlistin. Og það er eins og Sveinn vinni með þennan innri efnivið og hans sérstæðu fígúrur hafa þurft að víkja. „Mér fannst ég búinn að vera of lengi í þessum fígúrum. Árið 1984 byijaði ég að mála abstrakt, en fannst ég ekki enn búinn með fígúr- una, svo ég hélt áfram með hana. Árið 1991 kom þetta svo yfír mig, eins og hland úr fötu.“ Nú kannast ég við hann. „Það var eins og sagt væri við mig: Þú átt bara að vera í litun- um ... Ég staldraði við og sá í hendi mér að svona væri ekki hægt að halda áfram. Ég yrði að hætta með fantasíuna og vinna með litina. En það hefur tekið mig þrjú ár að venja mig á þá. Ég hef oft lent í lífs- háska, meira að segja þrisvar sinn- um á sjó, en ég held að þetta sé mesti háski sem ég hef lent í. Ég hef oft heyrt um málara, sem lenda í háska við að kúvenda, misst vitið Litið inn hjámyndlista af sjntugsatma i

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.