Morgunblaðið - 24.06.1994, Síða 3

Morgunblaðið - 24.06.1994, Síða 3
2 B FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1994 ÍÞRÓTTIR URSLIT HM í Bandarfkjunum Ítalía - Noregur...............1:0 New York í gærkvöldi. E-riðill: Pierluigi Casiraghi (35.) Gult, spjald: Stig Inge Bjömebye (33.) og Alf Inge Haaland (68.), báðir Noregi. Rautt spjald: Gianluca Pagliuca (21.) Dómari: Hellmut Krug (Þýskalandi) Ítalía: 1-Gianluca Pagliuca; 3-Antonio Ben- arrivo, 4-Alessandro Costacurta, 6-Franco Baresi (2-Luigi Apolloni 49.), 5-Paolo Mald- ini; 14-Nicola Berti, 11-Demetrio Albertini, 13-Dino Baggio, 20-Giuseppe Signori; 18- Pierluigi Casiraghi (19-Daniele Massaro 69.), 10-Roberto Baggio (12-Luca Marcheg- iani 22.). Noregur: 1-Erik Thorstvedt; 20-Henning Berg, 4-Rune Bratseth, 5-Stig Inge Björnebye, 18-Alf Inge Haaland; 22-Lars Bohinen, 7-Erik Mykland (Kjetil Rekdal 81.), 8-Oeyvind Leonhardsen, 6-Jostein Flo; 9-Jan Aage Fjörtoft, 21-Sigurd Rushfeldt (11-Jahn Ivar Jakobsen 46.). STAÐAN: ítalía 2 Noregur 2 Mexíkó 1 1:0 3 1:1 3 1:1 3 0:1 0 ....2:1 0 0 1 Bandaríkin - Kólumbía.......... Pasadena í fyrrinðtt. A-riðill: Andres Escobar (34. - sjálfsm.), Emie Stew- art (52.) — Adolfo Valencia (90.). 93.194. Dómari: Fabio Baldas, Ítalíu. Gult spjald: Alexi Lalas (49.) — Antony de Avila (24.) Bandaríkin: 1-Tony Meola; 17-Marcelo Balboa, 20-Paul Caligiuri, 21-Fernando Clavijo, 22-Alexi Lalas, 6-John Harkes, 5-Thomas Dooley, 9-Tab Ramos, 16-Mike Sorber, 11-Eric Wynalda (10-Roy Wegerle 61.), 8-Ernie Stewart (13-Cobi Jones 67.). Kólumbía: 1-Oscar Cordoba; 4-Luis Herr- era, 15-Luis Carlos Perea, 2-Andres Esco- bar, 20-Wilson Perez; 14-Leonel Alvarez, 5-Herman Gaviria, 10-Carlos Valderrama, 19-Fredy Rineon; 21-Faustino Asprilla (11- Adolfo Valencia 46.), 7-Antony de Avila (9-Ivan Valenciano 46). STAÐAN: Sviss..................2 Bandaríkin.............2 Rúmenía................2 1 1 1 Kólumbía..............2 0 0 5:2 4 0 3:2 4 1 4:5 3 2 2:5 0 í sjónvarpinu HM í DAG: Mexíkó - írland kl. 16.30, Brasilía - Kamerún kl. 20, og Svíþjóð - Rússland kl. 23.20. Fyrsti og síðasti ieikurinn verða sýndir í beinni útsendingu RÚV, en viðureign Brasilíu og Kamerún í dagskrárlok. Allir leikimir eru sýndir beint á Eurosport. KNATTSPYRNA / HM I KNATTSPYRNU Tíu Italir lögðu IMorðmenn Pagliuca markvörður rekinn út af eftir 20 mínútur. Dino Baggio skoraði með glaesilegum skalla seint í leiknum „VIÐ áttum skilið að sigra. Norðmenn virtust leika upp á að ná jafntefli og guldu fyrir það,“ sagði Arrigo Sacchi, þjálf- ari ítala, eftir að lið hans hafði unnið Norðmenn með einu marki gegn engu í E-riðli í gær. ítalir voru einum færri eftir að markverði þeirra, Gianluca Pagliuca, var vísað útaf á 21. mínútu. Dino Baggio gerði sig- urmarkið um miðjan síðari hálf- leik. Italir bytjuðu leikinn af miklum krafti og náðu að skapa sér nokk- ur færi í byrjun og virtust til alls líklegir. En svo kom áfallið — Gianluca Pagliuca markvörður var rekinn af leikvelli á 21. mínútu fyrir að veija skot frá Öyvind Lönhardsen utan vítateigs með hendi, í einu sókn Norðmanna fram að þeim tíma. Sacchi, þjálfari, ákvað þá að taka Roberto Baggio út af fyrir vara- markvörðinn Luca Marchegiani og kom það mörgum á óvart að besti knattspymumaður heims væri tek- inn útaf. „Ég tók Baggio út vegna hans og liðsins. Það hefði verið of mikið álag fyrir hann að leika einum leik- manni færri því hann hefur átt við meiðsli að stríða og því ekki alveg í toppæfingu,“ sagði Sacchi. „Við erum ekki öruggir áfram þrátt fyrir þennan sigur. Við eigum í vandræð- um með liðið gegn Mexíkó því Pagl- Reuter Útaf! GIANLUCA Pagliuca, markvörður ít- ala, kemur af velli eftir að hafa feng- ið að sjá rauða spjaldið hjá dómara leiksins eftir aðeins 20 mínútur. Það er Luca Bucci, einn varamannanna, sem reynir að hugga markvörðurinn. iuca verður í leikbanni og eins og óvíst hvort Baresi geti leikið vegna hnémeiðsla og eins er spurning með Paolo Maldini," sagði þjálfarinn. Egil Olsen, þjálfari Norðmanna, var ekki ánægður með sína menn. „Ég varð fyrir miklum vonbrigðum með liðið. Við reyndum ekki nægi- lega mikið upp á eigin spýtur. It- alska liðið var mun betra en ég hef séð til þess áður. Við náðum aidrei almennilegum sóknum allan leik- inn,“ sagði Olsen. Aðspurður um brottvísun Pagliuca, sagði hann: „Við hefðum frekar viljað fá mark, en brottrekstur.“ Pagliuca, sem var sakaður um markið sem Irar gerðu í fyrsta leikn- um, er fyrsti markvörðurinn sem rekinn er af velli í úrslitakeppni HM síðan Beiginn Jean-Marie Pfaff fékk rauða spjaldið í ieik um þriðja sætið gegn Frökkum árið 1986. Italía og Noregur hafa bæði 3 stig eftir tvo leiki í E-riðli, en írland er með 3 stig eftir einn leik og Mexíkó ekkert stig, en þau leika einmitt í kvöld. Það verður að telj- ast góð frammistaða hjá Itölum, sem þrívegis hafa fagnað heimsmeistar- atitlinum, að ná að sigra einum færri eftir slæma útreið gegn írum í fyrsta leik. Þökk sé Dino Baggio, sem gerði fimmta mark sitt fyrir landsiiðið. Hann skoraði sigurmarkið á 69. mínútu með glæsilegum skalla eftir aukaspyrnu frá Guiseppe Sig- nori. Skagamenn —hittast í Ölveri í dag frá kl. 16:00 til 19:30 Dagskré: Trúbador leikur og syngur réttu lögin. Skemmtisögur. Barátturæða. Karaoke-einvígi. Innritun nýrra félaga, sala á ÍA-varningi. Steinn Helgason aðstoðarþjálfari ÍA ræðir um liðið. Söngæfing. Írland-Mexíkó á risaskjá frá 16:30 til 18:15. ÍA-myndband í gangi eftir HM-leik mörk og aftur mörk. Miðar á völlinn á staðnum o.m.fl. Skagamenn - gulir og glaðir Breiðablik — Þór á Kópavogsvelli í kvöld kl. 20.00 Blikaklúbburinn hittist á Mömmu Rósu kl. 18.00 VIÐAR-HF byggingaverktaki. 4% Skandia Lifandi samkeppni, lægri iðgjöld. UTGAFA Handbók um HM Gefin hefur verið út handbók um heimsmeistarakeppnina í knatt- spyrnu 1994, HM 94 HANDBÓKIN eftir Arnar Björnsson íþróttafrétta- mann. Bókin, sem er 160 blaðsíður, er í handhægu broti og í henni eru m.a. umsagnir um öll liðin með liðs- myndum, umsagnir um alla leik- menn og myndir af þeim helstu, töflur, úrslit leikja í forkeppni og framganga í fyrri mótum, töflur til að færa inn úrslit allra leikja _og tímaröð sjónvarpsleikja hjá RUV auk þess sem stiklað er á stóru um sögu heimsmeistarakeppninnar. Hver bók er tölusett og gildir sem happdcættismiði. Dregið verður fimmtudaginn 30. júní og er ferð fyrir tvo á leik í HM 94 í vinning. Útgefandi er Reykholt, en dreif- ingu annast Lífstill ’94. „FótboKinn" Út er komið fyrsta tölublað Fót- boltans, nýs tímarits um knatt- spyrnu. Ritstjóri er Sigurður Már Jónsson en útgefandi Friðrik Frið- riksson. Fótboltinn er sérrit um knatt- spyrnu og er ætlunin að tímaritið komi út 8 - 10 sinnum á ári. I blað- inu er skrifað um knattspyrnu frá öllum sjónarhornum. í þessu fyrsta töiublaði er umfjöllun _um efnileg- asta knattspyrnumann Islands í dag og_ ítarleg úttekt á þjálfunarmálum á íslandi með viðtölum við alla þjálf- ara 1. deildar karla. I blaðinu er auk þess 16 síðna blaðauki um heims- meistarakeppnina í knattspyrnu. ít- arleg úttekt er á gervigrasvöllum landsins með tölulegum upplýsing- um auk þess sem tíu manna dóm- nefnd gefur þeim öllum einkunn. Fyrsta tölublað Fótboltans er 48 síður og kostar 399 krónur. ídag Knattspyrna NM stúlka 16 ára og yngri: Ólafsfjörður: ísland - Finnland...........kl. 13.00 Holland - Noregur...........kl. 15.00 Svíþjóð - Danmörk...........kl. 17.00 1. deild karla: Keflavík: ÍBK - Fram...........kl. 20 KR-völlur: KR - ÍA.............kl. 20 Kópavogur: Breiðabl. - Þór.....kl. 20 Vestmannaeyjar: ÍBV - FH.......kl. 20 2. deild karla: Akureyri: KA - Leiftur.........kl. 20 3. deild: Dalvík: Dalvík - Tindastóll....kl. 20 Ásvellir: Haukar - Skallagr....kl. 20 Sandgerði: Reynir - Fjölnir....kl. 20 Isatjörður: BÍ-Völsungur.......kl. 20 Egilsstaðir: Höttur-Víðir......kl. 20 4. deild: Varmárvöllur: UMFA - Ökkli ...kl. 20 Gróttuv.: Grótta - Smástund....kl. 20 Leiknisvöllur: Leiknir-Ægir....kl. 20 Njarðvík: UMFN-Hamar.......kl. 20 Grenivík: Magni - KS.......kl. 20 Fáskrúðsfj.: KBS-Huginn....kl. 20 Sund Aldursflokkamót íslands hefst á Akranesi í kvöld kl. 17. 350 keppend- ur eru skráðir til leiks og eru skrán- ingar alls 1.600 talsins og hafa aldrei verið fleiri. 16 sundfélög senda kepp- endur, þau eru: Ármann, HSK, HSÞ, ÍBV, ÍS, KR, SH, SFS, UÍA, UMFT, UMSB, UMSK, UMSS, Vestrr, ÍA og Ægir. Siglingar f dag kl. 13. hefst siglingamót, sem haldið er í tilefni af lýðveldisafmæl- inu. Siglt verður frá Reykjavík til Vestmannaeyja. Ræst verður fyrir utan hafnarmynni Reykjavíkurhafnar kl. 13 og fá skúturnar 24 klukku- stundir til að ljúka keppninni. Hug- myndin er sú að mót þetta verði ár- legt og að um verði að ræða alþjóð- lega keppni, þar sem erlendir kepp- endur mæti leiks í framtíðinni. Frjálsíþróttir Kappamót öldunga í fijáisíþróttum verður á Laugardalsvelli í dag og hefst kl. 18. Keppt verður í hlaupum og stökkum karla og kvenna. MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 24. JÚNÍ 1994 B 3 4- + Reuter Dýrmætt mark Baggios DINO Baggio gerði sigurmarkið gegn Noregi { gær og fagnar hér að vonum þessu dýr- mæta marki sínu. Það er vinstri bakvörðurinn Paolo Maldini sem samfagnar Baggio. Bandaríkjamenn sigruðu Kólumbíu: „Mesti sigur okkar“ BANDARÍKiAMENN komu heldur betur á óvart með því að leggja Kólumbíumenn að velli, 2:1, og vinna þar með sinn fyrsta sigur í HM frá því að þeir unnu eftirminni- legan sigur, 1:0, yfir Englendingum í heimsmeistarakeppninni í Brasilíu 1950. „Þetta er okkar mesti sigur — miklu betri en gegn Englendingum, því að hann kom og fór svo fljótt. Sigurinn gegn Kólumbíu á eftir að hafa langvarandi áhrif og hjálpa okkur til með nýju atvinnumanna- deildina," sagði Alan Rothenberg, forseti knattspyrnusambands Bandaríkjanna og undirbúnings- nefndar HM. Sigurinn hefur vakið mikla athygli í Bandaríkjunum og er bandaríska liðið nær öruggt með að komast í 16-liða ■■■■^^H úrslit. Það reiknuðu fáir Frá með sigri Bandaríkja- Gunnari manna, því að margir — Valgeirssym i ejns 0g knattspyrnusnill- Bandarikjunum jngUrjnn peje> voru búnir að spá Kólumbíu góðu gengi og heims- meistaratitli. Það bendir allt til að Kól- umbíumenn komist ekki áfram og missa leikmenn liðsins þar með af 13 millj. fsl. kr., sem þeir áttu að fá á mann fyrir að komast áfram. Þá var búið að heita á þá 29 millj. ísl. kr., ef þeir yrðu heims- meistarar. Kólumbíumenn höfðu ekki heppnina með sér, því að þeir urðu fyrir því áfalli að skora sjálfsmark — Andres Escobar. Ernie Stewart bætti síðan við marki fyr- ir Bandarikjamenn. „Þegar við vorum búnir að skora tvö mörk gáfust leik- mennn Kólumbíu upp. Það var allur vind- ur úr þeim,“ sagði Roy Wegerle, sóknar- leikmaður Bandaríkjanna. Reuter í sjöunda himni FÖGNUÐUR Bandaríkjamanna var mikill eftir að sigurinn gegn Kólumbíu var í höfn. Hér eru markvörðurinn Meola og tveir félagar hans með banda- ríska fánann. Maturana, þjálfari Kólumbíu, sagðist enga skýringu hafa á hvað sínir menn hafi verið andlausir gegn Rúmeníu og Bandaríkjunum. „Það er eins og leikmenn mínir hafi ekki þolað pressuna sem var á þeim og ekki verið tilbúnir í slaginn. „Það er synd að reglurnar séu þannig, að þær leyfa aðeins þrjár breytingar. Ef þær hefðu ekki verið þannig, hefði ég skipt öllum ellefu leikmönnunum út.“ faémR FOI_K ■ CARLOS Alberto Parreira, þjálfari Brasilíu, varar við of mik- illi bjartsýni í leiknum gegn Kamer- ún í kvöld. „Við verðum að vera varkárir. Kamerún er með mjög hættulegt lið, mun hættulegra en Svíþjóð og Rússland. Þó við höfum byijað vel í fyrsta leik erum við aðeins komnir einn sjöunda hluta leiðarinnar að markmiðinu — heimsmeistaratitlinum sem við unn- um síðast 1970,“ sagði Parreira. ■ KAMERÚN var spútniklið HM á Ítalíu 1990 og vann þá m.a. Argentínu 1:0 og Kolumbíu 2:1 á leiðinni í undanúrslit. „Við vitum að brasilíska liðið er skipað ellefu frábærum knattspyrnumönnum sem spila vel saman og eru taldir með eitt af sigurstranglegustu lið- unum í keppninni. En ég held að við eigum möguleika gegn Brasil- íumönnum og við eigum eftir að verða þeim erfiðir," sagði franski þjálfari Kamerúna, Henri Michel. ■ RICARDO Rocha leikur ekki með Brasilíu í kvöld vegna meiðsla sem hann hlaut í leiknum gegn Rússum. Inn í byrjunarliðið fyrir hann kemur Marcio Santos. ■ GRÍSKIR knattspyrnuáhuga- menn sem fylgdust með beinni út- sendingu í Grikklandi og á Kýpur frá leik Grikkja og Argentínu á þriðjudagskvöld voru ekki ánægðir með frammistöðu gríska sjónvarps- ins. Þó svo að leikurinn hafi ekki verið skemmtilegur á að horfa fyrir Grikki, sem töpuðu 4:0, vildu þeir fá að sjá leikinn, en 28 sinnum var skellt inn auglýsingum á meðan á leiknum stóð. ■ ÍBÚAR í smábænum Pimento í Brasiliu urðu æfir þegar raf- magnið fór af bænum hálftíma fyr- ir leik Brasilíumanna og Rússa. Þegar ljóst var að þeir myndu ekki fá tækifæri til að Frá Gunnari horfa á sjónvarps- Valgeirssyni í tæki sín, geystust Bandaríkjunum allir íbúarnir að húsi bæjarstjórans og rústuðu því. Það- an var haldið að húsi rafveitunnar og þijár bifreiðar fyrirtækisins skemmdar. Ein kona lét lífið, þegar hún reyndi að forðast reiða bæj- arbúa — ók bifreið sinni á ljósa- staur. ■ 3.000 aðgöngumiðar á leik Brasilíu og Kamerúns komu óvænt á markaðinn í gær. Þeir komu frá Kamerún, þar sem þeir seldust ekki. Kamerúns menn hafa átt í erfiðleikum með að fá vegabréfsáritun til Banda- ríkjanna. ■ JOSEPH Bell, markvörður Kamerún, sagði við bandaríska fréttamenn sem mættu á æfingu hjá Kamerúnmönnum, að það væri óvíst hvort þeir myndu mæta til leiks gegn Brasilíu. „Við höfum ekki fengið greiðslur sem okkur ber í tvo mánuði og erum við óhressir með það. Það var búið að lofa okk- ur greiðslum síðastliðinn sunnudag, en ekkert varð úr því,“ sagði Bell. ■ LEIKMENN Kamerún hafa lengi átt í launadeilum við forráða- menn knattspyrnusambandsins landsins — og um tíma leit allt út fyrir að Kamerún yrði ekki með í HM. STULKUR U-16 NM hefst á Olafsfírði í dag orðurlandamótið í knattspyrnu stúlkna 16 ára ogyngri hefst í dag. Opnunarleikur keppninnar verður á Olafs- firði í dag kl. 13.00, en þá leika ísland og Finnland. Strax á eftir kl. 15.00 leika Holland og Noregur og síðan Svíþjóð og Danmörk kl. 17.00. Á morgun verður leikið á Sauðárkróki, á sunnudag á Húsavík, Dalvík á þriðjudag og loks lýkur mótinu á Akur- eyri á miðvikudag. + íslenska liðið er skipað eftirtöldum stúlkum: Aðalheiður Bjarnadóttir (Haukum), Anna Lovísa Þórsdóttir (KR), Anna Smáradóttir (lA), Ásdís Oddsdóttir (Haukum), Áslaug Ákadóttir (ÍA), Brynja Pétursdóttir (ÍA), Erla Edvardsdóttir (Aftureldingu), Eva Björk Ægisdóttir (Haukum), Gréta Rún Árnadóttir (Haukum), Guðrún Sigur- steinsdóttir (ÍA), Harpa Sigurbjörnsdóttir (Aftureldingu), Hildur Ólafs- dóttir (Breiðabliki), Ingibjörg Olafsdóttir (ÍBA), Jóhanna lndriðadóttir (KR), Sigríður Marinósdóttir (Stjörnunni), Sigurbjörg Júlíusdóttir (Breiða- bliki). Þjálfari liðsins er Logi Ólafsson. ÍÞRÓTTIR TENNIS / WIMBLEDON Reuter Martina Navratilova, sigursælasta tenniskona allra tima, keppir á Wimble- don-mótinu í síðasta sinn. Hún sigraði í gær og er komin áfram í þriðju umferð. Edberg og Cour- ier báðir úr leik SVÍINN Stefan Edberg og Bandaríkjamaðurinn Jim Courier eru úr leik á Wimbledonmótinu ftennis eins og stóru þýsku stjörnurn- ar Steffi Graf og Michael Stich. Svíinn tapaði mjög óvænt fyrir lítt þekktum Dana, Kenneth Carlsen, í 2. umferð í gær 6:7,6:7, 6:2,6:4,6:4., en Frakkinn Guy Forget vann Courier 3:6,6:3,3:6, 6:3, 6:4. Edberg, sem er 28 ára og hefur þrisvar sjnnum unnið Wimble- donmótið, var þriðji á styrkleikalista mótsins og þvi áttu fáir von á því að Carlsen myndi vinna hann. En það sannaðist enn einu sinni að allt getur gerst í íþróttum. Kenneth Carlsen er 21 árs, örv- hentur og er númer 113 á styrk- leikalista alþjóða tennissambands- ins. Hann komst í 3. umferð keppn- innar í fyrra, áður en þá var sleginn út af Cedric Pioline frá Frakklandi. Besti árangur hans á tennisvellinum hingað til var að komst í 8-manna úrslit á opnu móti í Kaupmanna- höfn fyrr á þessu ári. Edberg var að vonum svekktur með að tapa fyrir Dananum. „Hann lék einfaldlega mjög vel örugglega. Ég gerði mér vonir um góðan árangur hér því það hefur gengið vel hjá mér síðustu tíu dag. En það er ekki nóg að spila vel á æfingum það verður líka að gera það í keppn- inni. Uppgjafirnar gengu ekki eins og til var ætlast og eins var netspil- ið ekki gott. Það særir mig að vera úr leik því það er mjög gaman að spila á þessu móti. En ég hef þá trú að ég geti sigrað aftur, kannski einu sinni enn,“ sagði Edberg. „Ég spilaði mjög yfirvegað og hafði engu að tapa. Þetta er stærsti sigurinn á ferlinum," sagði Carlsen. Courier átti erfitt með að sætta sig við tapið, en viðurkenndi ósigur- inn. „Hann lék vel og átti skilið að sigra. Svo einfalt er það. Ég er allt- af í hættu, þegar ég mæti góðum leikmanni á grasi — grasið er hættulegt.“ Hann bætti við að næsta skref væri að pakka saman og fara heim, slappa af í tvær vik- ur, taka upp þráðinn á ný og vera jákvæður. „Ég sagði honum [Guy] að ef fyrir mér ætti að liggja að tapa sætti ég mig við að tapa fyrir honum. Hann hefur átt í erfiðleikum vegna meiðsla og er góður strákur." ÚRSLIT Tennis Wimbledon mótið Keppni gærdagsins. Röð á styrkleikalista mótsins i sviga. Einliðaleikur karla, 2. umferð: Kenneth Carlsen (Danmörku) sigraði 3- Stefan Edberg (Svíþjóð) 6-7 (6-8) 6-7 (6-8) 6- 2 6-4 6-4 4-Goran Ivanisevic (Króatíu) sigraði Alex- ander Mronz (Þýskalandi) 6-2 7-6 (7-4) 6-1 Guy Forget (Frakklandi) sigraði 5-Jim Co- urier (Bandarikj.) 3-6 6-3 3-6 6-3 6-4 7- Boris Becker (Þýskalandi) sigraði Arne Thomas (Þýskalandi) 7-6 (8-6) 6-2 6-4 8- Sergi Bruguera (Spáni) sigraði Patrick Rafter (Ástralíu) 7-6 (7-4) 3-6 4-6 7-5 13-11 9- Andrei Medvedev (Úkraínu) sigraði Slava Dosedel (Tékklandi) 3-6 7-5 6-1 6-4 Markus Zoecke (Þýskalandi) sigraði 11- Petr Korda (Tékklandi) 4-6 6-7 (5-7) 6-3 6-2 6-4 15-Yevgeny Kafelnikov (Rússlandi) sigraði Karsten Braasch (Þýskalandi) 6-1 6-1 6-3 Javier Frana (Argentínu) sigraði Brad Gil- bert (Bandaríkj.) 6-3 4-6 6-1 6-2 Richard Fromberg (Ástralíu) sigraði Alex Corretja (Spáni) 6-2 7-6 (8-6) 7-5 Amos Mansdorf (ísrael) sigraði Kenny Thorne (Bandaríkj.) 7-6 (7-1) 6-3 6-7 (1-7) 6-1 Jakob Hlasek (Sviss) sigraði Wally Masur (Ástralíu) 6-1 6-4 7-6 (7-3) Jordi Burillo (Spáni) sigraði Andrei 01- hovskiy (Rússlandi) 6-0 6-1 6-3 Daniel Vacek (Tékklandi) sigraði Mark Woodforde (Ástralíu) 6-3 7-6 (7-2) 6-4 Alexander Volkov (Rússlandi) sigraði Brett Steven (Nýja-Sjálandi) 4-6 6-4 3-6 7-5 6-3 Bryan Shelton (Bandarikj.) sigraði Karim Alami (Marokkó) 6-3 7-5 1-6 6-7 (7-9) 6-2 Jean-Philipp Fleurian (Frakklandi) sigraði Christian Saceanu (Þýskalandi) 7-5 6-3 6-4 David Prinosil (Þýskalandi) sigraði Jacco Eltingh (Hollandi) 3-6 6-2 6-3 6-4 Jeremy Bates (Bretlandi) sigraði Joern Renzenbrink (Þýskalandi) 6-2 7-6 (7-3) 6-4 Christian Bergström (Svíþjóð) sigraði Greg Rusedski (Kanada) 6-4 6-4 5-7 7-6 (7-5) Einliðaleikur kvenna, 2. umferð: 2-Arantxa Sanchez Vicario (Spáni) sigraði Mariu Jose Gaidano (Argentínu) 6-2 6-1 4- Martina Navratilova (Bandaríkj.) sigraði Sandra Cecchini (Ítalíu) 6-2 6-0 5- Jana Novotna (Tékklandi) sigraði Wiltrud Probst (Þýskalandi) 6-2 6-1 10- Gabriela Sabatini (Argentínu) sigraði Jenny Byme (Ástralíu) 6-2 6-3 11- Mary Joe Fernandez (Bandaríkj.) sigraði Brenda Schultz (Hollandi) 6-4 6-4 13-Zina Garrison-Jackson (Bandaríkj.) sigr- aði Mercedes Paz (Argentínu) 7-5 6-0 Yayuk Basuki (Indónesíu) sigraði 16- Magdalena Maleeva (Búlgaríu) 5-7 7-6 (7-3) 6-4 17-Helena Sukova (Tékklandi) sigraði Patricia Tarabini (Argentínu) 6-4 6-2 Mana Endo (Japan) sigraði Jolene Wat- anabe (Bándaríkj.) 6-3 6-4 Nancy Feber (Belgíu) sigraði Marianne Werdel (Bandarikj.) 6-4 6-4 Kristie Boogert (Hollandi) sigraði Alexia Dechaume-Balleret (Frakklandi) 6-3 7-5 Linda Harvey-Wild (Bandaríkj.) sigraði Meike Babel (Þýskalandi) 6-2 2-6 6-2 Ann Grossman (Bandarí.kj.) sigraði Nicole Arendt (Bandaríkj.) 6-4 3-6 6-4 Dominique Monami (Belgíu) sigraði Elena Brioukhovets (Úkraínu) 6-1 4-6 6-2 Silke Frankl (Þýskalandi) sigraði Sandra Cacic (Bandaríkj.) 2-6 6-1 6-3 Laura Golarsa (Ítalíe) sigraði Fang Li (China) 6-3 6-0 Naoko Sawamatsu (Japan) sigraði Radka Bobkova (Tékklandi) 6-1 6-3 r I 1 $0 r lröpi D E I L m Tæknival WMMWW90MM6MM KR - IA Skeifan 17, sfmi 681665 TÆKNIVAL ER AÐAL STYRKTARAÐILI ÞESSA LEIKS á kR-velli v/ Frostaskjól föstudaginn 24 júní kl. 20.00 FORSALA AÐGÖNGUMIÐA HJÁ SHELL, AKRANESI. Dómari: Egill Már Markússon. Línuverðir: Ari Þórðarson og Einar Sigurðsson. KR KLUBBURINN Fyrir leikinn er opið hús í félagsheimilinu þar sem boðið er upp á pasta og pizzu hlaðborð fyrir alla fjölskylduna á vægu verði. Kl. 18.30 verður 200 númeruðum sætum deilt út til félaga í KR-klúbbnum. Ath. Matur borinn fram kl. 18.00. Nýtt námskeið í knattspyrnuskólanum hefst 27. júní. Skráning stendur yfir í síma 27181. adidas llll FORMPRENT

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.