Morgunblaðið - 02.07.1994, Síða 4
4 D LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ +
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 2. JÚLÍ 1994 D 5
AMSTERDAM
SUMRIN eru alltaf tími listahátíða
og í Amsterdam er nýlokið árlegri
Hollandshátíð. Menningarlífið
sumarbúningi aftur komið á venju-
legt ról og von á hljómsveitum frá
öllum heimshornum í Concertgebo-
uw tónlistarhúsið. Meðal annars
ástrólsku æskulýðshljómsveitinni,
Jerúsalem-sinfóníunni, fílharmón-
íunni frá Novosibirsk, finnsku
kammersveitinni og I Musici. Fyrir
þá sem gaman hafa að leikhúsi er
starfrækt enskumælandi leikhús í
The Stadhouderij Theatre Comp-
any í Amsterdam. Alla miðvikudaga
stígur þar á stokk grínisti og frá 7.-17. júlí verður
sýnd sápuóperan Superconquerant.
í Haag verður haldin hin árlega djasshátíð „North
Sea Jazz festival" 8.-10. júlí. Hún hefur unnið sér
fastan sess í menningarlífinu hér, djassáhugamenn
alls staðar að úr heiminum koma til að njóta þess
besta sem á boðstólum er í heimi djassins og tón-
leikar fara fram í mörgum sölum í einu í ráðstefnu-
LIONEL Hampton verður á Haag-háti'ðinni.
höllinni í Haag. Sannkölluð djassveisla. Allar stærstu
stjörnur djassins hafa troðið upp í Haag í gegnum
árin; Dizzy Gillespie, Miles Davis, Louis Armstrong
og Ella Fitzgerald. Þetta árið verður þar engin breyt-
ing á, fram koma stjörnur á borð við Gerry Mullig-
an, tríó Oscars Petersons, Natalie Cole, Herbie
Hancock, B.B. King og margar fleiri. Djasshátið
þessi er vel þess virði að skella sér á.
Seinna í sumar verður haldin hátíð af allt öðrum
toga í Utrecht í Mið-Hollandi, tónlistarhátíð með
eldri tónlist, „Holland festival oude muziek". Þar
verður nær eingöngu flutt barokk og endurreisnar-
tónlist og helst leikið á upprunarleg hljóðfæri sem
næst því sem tónverkin voru skrifuð og flutt á sínum
tíma. Píanósónötur Beethovens verða leiknar, flutt
verður valin tónlist eftir Orlandus Lassus, frönsk
barokktónlist og sitthvað fleira. Einnig verður lögð
áhersla á tónlist frá Kóreu, fjölradda tónlist frá Za-
ire og tónlist fyrir óbó og önnur hljóðfæri með tvö-
földu reyrblaði frá Armeníu og Indlandi. Margir af
þekktustu hljófæraleikurum og stjórnendum heims
koma fram: Ton Koopmans og hljómsveit hans „The
Amsterdam baroque orchestra", „Orkest van de
achttiende eeuw“ undir stjórn Gustavs Leonhardts,
„The Hillard ensamble" og „Conserto Köln“ eru
þeirra meðal. Hátíðin, sem fer fram 26. ágúst til 4
september, er hátt skrifuð og má mæla með henni.
Kristín Waage og Reynir Þór Finnbogason.
HELSINKI
LISTALÍFIÐ í Finnlandi tekur algjörum hamskiptum
á sumrin, þá fara bókstaflega allir út í sveit. Finnsk-
ir tónlistarmenn ásamt erlendum stjörnum spila
kammertónlist hálfnaktir í
Kuhmo. Verk eftir Picasso
eru til sýnis í sýningarsaln-
um Retretti á Punkaharju.
Samtals 1,3 milljónir manna
eru væntanlegar að taka
þátt í alls kyns menningar-
uppákomum víðs vegar um
landið. Það er stundum sagt
hálft í gamni að ekki sé til
svo lítið sveitarfélag í Finn-
landi að þar megi ekki efna
til listahátíðar með topp-
stjörnum að heiman og að
utan. Þar sem ekki eru
óperusýningar eru djasstón-
leikar, tango-keppni eða
þjóðdansar.
Á finnskum listahátíðum
koma í sumar fram um
18.000 innlendir söngvarar,
flytjendur tónlistar og aðrir
listamenn. Auk þeirra verða
um 4.000 erlendir gestir í
sviðsljósinu. Gefið er út á
ensku smárit um hátíðirnar,
„Finland festivals", og það
er hægt að nálgast auk miða
og nánari upplýsinga á samnefndri skrifstofu í Hels-
inki (sími 445686).
Fyrstu vikurnar í júlí verða menn að halda í aust-
ur frá höfuðborginni til að finna finnsku menning-
una. í smáborginni Savonlinna (Nyslott á sænsku)
verða óperusýningar í miðaldakastalanum Olavinl-
inna (Olofsborg) frá 6. til 30. júlí. Á efniskránni eru
Macbeth og Aida eftir Verdi og Töfraflautan eftir
Mozart. Þar að auki verður gesta-
leikur frá ríkisóperunni í Búdapest.
Flestir óperugestir nota einnig
tækifærið að skoða sumarsýning-
una í myndlistarmiðstöðinni Retretti
á Punkaharju-skaganum milli vatna
í fallegri finnskri náttúru. Þar er
merkileg sýning á verkum eftir Pic-
asso. Til hliðsjónar eru verk eftir
fjórtán finnska listamenn í anda
kúbismans. Verk Picassos eru feng-
in að láni frá Mosvku og Pétursborg
en einnig úr einkasafni Marinu Pic-
asso sonardóttur meistarans.
í hellinum undir Retretti hefur
hópur finnskra og erlendra lista-
manna byggt allmiklar „installasjón-
ir“. Þá nota listamennirnir rýmið sem slíkt, en einn-
ig hljóð og Ijós á mismunandi hátt.
Þeir sem áhuga hafa á nútímatónlist fara til Viitasa-
ari dagana 6. til 12. júlí. Þar verða m.a. flutt verk
eftir John Cage og finnska tónskáldið Kaija Saariaho.
Nýstárleg tölvutónlist verður einnig á dagskrá.
Þriðju vikuna í júlí halda djass- og þjóðlagavinir
vestur en kammertónlistarunnendur austur. A vest-
urströndinni, í borginni Pori (Björneborg) er djasshá-
tíð 16. til 24. júlí. Meðal listamanna má nefna Herbie
Hancock og Stephane Grappelli. í Kaustinen
(Kaustby) nálægt vesturströndinni verður haldin
þjóðlagatónlistarvika á sama tíma. Verður þar m.a.
flutt þjóðleg tónlist frá Grænhöfðaeyjum.
í smábænum Kuhmo nálægt landamærunum í
austri eru hins vegar kammertónlistardagar 17. til
30. júlí. Flutt verðurt.d. kammertónlist eftir Beethov-
en, verk samin í París 1920-40 og æskuverk eftir
Sibelius.
Þær uppákomur sem hér hafa verið nefndar eru
aðeins ögn af því sem býðst þessar vikur. Auk þeirra
eru margs konar minni listahátíðir, sumarleikhús
og áhugamannasýningar af ýmsum toga. Tangó
verður dansaður og tangótónlist sungin og spiluð
í Seinájoki dagana 4. til 10. júlí. Þá verða krýnd
tangókonungur og -drottning landsins. Dansinn,
sem upphaflega er frá Argentínu, er orðinn þjóðar-
einkenni Finna.
Miðaverð á viðburði sumarsins er afar mismun-
andi, sums staðar getur verið dýrt eða ógerningur
að ná í miða en annars staðar ókeypis aðgangur.
Fyrir erlenda ferðamenn er finnska menningar-
sumarið orðið mun ódýrara en á árunum áður.
Finnska markið hefur lækkað um þriðjung miðað
við erlenda gjaldmiðla undanfarin þrjú ár. Enda
hefur þátttaka útlendinga aukist verulega.
Lars Lundsten.
KAUPMANNAHÖFN
ÞAÐ er engin lognmolla yfir menningarlífinu hér í
Kaupmannahöfn þessar vikurnar. Nýlega er lokið
mikilli danshátíð, þeirri stærstu á Norðurlöndum,
þar sem fram komu hópar frá átján löndum. Um
þessa helgi stendur Hróarskelduhátíðin yfir, sem
er heljarmikil rokkhátíð. Ein af þekktustu gestunum
er Björk. Tónleikar og sumarleikhús setja svip sinn
á borgina í sumar.
Tívolí er ekki aðeins rekið undir merki leiktækj-
anna, heldur einnig undir merki tónlistarinnar, sem
skipar veglegan sess á dagskrá garðsins. Næstum
á hverju kvöldi eru tónleikar þar í tónleikasalnum
og þeir eru oft ókeypis, þegar um kammertónlist
er að ræða, meðan þekkt nöfn kosta sitt. Ódýrustu
miðarnir kosta um 50 krónur danskar og það sést
og heyrist ágætlega alls staðar í húsinu. Sjaldan
er uppselt, nema þegar stórstirni eiga í hlut og jafn-
vel þá er oft hægt að fá keypta miða
fyrir utan salinn á síðustu stundu. í
sumar er það ekki síst tónlist Ma-
hlers, sem setur svip á efnisskrána. í
svokölluðum Glersal í Tívolí er Eddi
Skoller með fimmtugs afmælisdag-
skrána sína. Hann er söngvari og spé-
fugl, eins og margir vita, og sýningin
hans hefur hlotið afbragðsdóma og
mikla aðsókn. Og á útisviðinu troða
alls konar hópar upp, bæði popp,
djass, rokk og þjóðlagatónlist, að
ógleymdum fimleikamönnum.
í garðinum á bak við Kunstindustri-
museet í Bredgade býður
Grönnegárds-leikhúsið að vanda upp
á útileiksýningar. Leikhúsið hefur sér-
hæft sig í uppsetningu 18. aldar leik-
rita. Fyrst kom Holberg í löngum bun-
um, en nú eru það verk erlendra sam-
tímamanna hans. Að þessu sinni er
það leikritið Brúðkaup Fígarós eftir
Frakkann Beumarchais, sem Mozart
gerði samnefnda óperu sína eftir.
Sýningar hefjast kl. 19.30, en garður-
inn opnar kl. 17.30, því gestir geta
haft með sér matarkörfu og snætt.
Þó veðrið sé kannski hlýtt þegar sýn-
ingin hefst er vissara að gera eins og innfæddir
og hafa með sér teppi og vera í góðum skóm, því
jörðin verður svöl þegar kvöldar. Miðarnir kosta frá
100 dönskum krónum og þá er hægt að kaupa á
staðnum, eða í miðasöluturninum við Norðurport-
brautarstöðina.
Á Grábræðratorgi í miðborginni verður sýndur
söngleikur byggður á sögum H.C. Andersens um
Menning
og listir
í ýmsum
bnrgum
í HELLI á Punkaharju-skaga er
þetta verk Cochrans.
INNSETNINGU Ishiis íhellinum
fylgir hljóðverk eftir Ten Zan.
KAMMERT’ONLEIK-
AR í Tívolisalnum.
MÁLAÐ við höfnina í höfuðborg Dana.
Svínahirðinn og Prinsessuna á bauninni. Sýningar
hefjast 16. júlí og standa fram til 7. ágúst. Á þriðjud.,
miðvikud. og föstud. er leikið kl. 11 og 13, en á
fimmtud., laugard. og sunnud. kl. 15 og 19. Aðgang-
ur er ókeypis. í Kongens Have rétt hjá Kóngsins
nýja torgi er bæði brúðleikhús og venjulegt leikhús
flesta daga. Aðgangur er ókeypis og sýningarnar
eru sannkölluð fjölskylduskemmtun.
Ef veðrið er hvorki til Tivolíferða né útileikhúss-
ferða þá er hægt að horfa á danskar myndir í bíói
kvikmyndasafnsins, Filmmuseet, úti á Kristjáns-
höfn. Fram til 29. júlí verða sýndar þar myndir
mánud.-fimmtud. kl. 11, 13 og 15, bæði kvikmynd-
ir, stuttar myndir og myndbönd. Mest áhersla er
lögð á myndir Bille Augusts. Aðgangur er ókeypis
og flestar myndirnar eru með enskum textum. í
litlum bíóum eins og Vester
Vov Vov á Vesturbrú, í
Posthusteatret og Husets
Biograf í miðbænum og í
Park Bio á Austurbrú eru
iðulega sýndar úrvals-
myndir, bæði eldri og yngri.
Það er ódýrara í þessi bíó
en önnur. Þarna eru líka
kaffihús og andrúmsloftið
skemmtilegt. Bíódag-
skrárnar er að finna í dag-
blöðunum. Þeir sem kjósa
óvenjulega bíóferð leggja
leið sína á Nansensgötu
23-33 á Norðurbrú frá og með 16. júlí. Þar hefur
verið komið fyrir bílhræjum, sem standa fyrir fram-
an stóran bíóskerm. Gestir fá sér sæti í bílunum,
svo betra er að vera nokkrir saman. Þaðan er svo
útsýni á risastórt tjald. Starfsfólk gengur um og
selur veitingar.
Af tónleikum má nefna sunnudagsmorguntón-
leika á Thorvaldsenssafninu. Á sunnudögum í júlí
verða líka síðdegistónleikar á Bymuseet, sem er
bæjarsafn Kaupmannahafnar. Aðgangur er ókeypis
að öllum þessum safnatónleikum. Fram til 10. júlí
stendur yfir jazzhátíð, sem haldin er á mörgum
veitingahúsum og klúbbum borgarinnar. Upplýs-
ingar um einstaka tónleika eru í dagblöðunum.
Á Statens Museum for kunst stendur yfir sýning
á verkum dönsku gullaldarmálaranna, en það er
tímabil í dönskum listum, sem tekur til fyrri hluta
síðustu aldar. Á Louisiana er sýning á ástralskri
frumbyggjalist fram í júlí og þýsk Ijósmyndasýning,
þar sem sýndar eru myndir, teknar af ýmsum þekkt-
um myndlistarmönnum. Fyrir þá sem vilja sjá verk
danskra núlifandi listamanna má benda á að tölu-
vert er orðið af galleríum neðst í Bredgade.
Upplýsingar um einstaka atburði eru í dagblöðun-
um. Flest stóru blöðin gefa út sérblað um atburði
komandi viku á föstudögum. Ókeypis bæklingur,
Copenhagen this Week, liggur víða frammi á hótel-
um og er ómissandi fyrir þá sem ætla að taka
menningarlífið af krafti. Pósthúsin eru farin að selja
miða á ýmsa menningaratburði, auk þess sem
miðar á margt fást í miðasöluturninum við Nörrep-
ort.
Sigrún Davíðsdóttir.
LOS ANGELES
ÞAÐ ER ekki ofsögum sagt að fólk í suðurhluta
Kaliforníu skríði á milli brunna að svala þorsta sín-
um, því hér ríkir svæsin hitabylgja með 40 gráðum
eða þar um bil. Mestu samúðina fá
þá knattspyrnumennirnir er taka
þátt í heimsmeistarakeppninni. Hit-
inn hefur farið upp í 50 gráður niðri
á sjálfum vellinum. Úrslitaleikurinn
fer fram hér í Los Angeles 17. júlí
á Rose Bowl og má búast við að
einhver íslendingurinn eigi miða á
þann leik.
En fyrir þá sem flokka knatt-
spyrnu ekki undir menningu er af
nógu að taka í Los Angeles. Fyrst
ber að nefna Hollywood Bowl sum-
arhátíðina með mismunandi menn-
ingaratburði nær daglega undir ber-
um himni og er algengt að fólk
mæti snemma á staðinn búið mat-
arkörfum með rauðvíni og ostum.
Ekki er hægt að telja allt upp sem
þar verður boðið upp á í júlí en af
því helsta má nefna ítalska píanist-
ann Maria Tipa, ameríska sópraninn
June Anderson, kántrísöngvarann
Garth Brooks og Gipsy Kings. Að auki mun hinn
heimsþekkti stjórnandi Iván Fischer leiða fram á
sviðið Budapest Festival Orchestra og Ute Lemper
hefur sett saman brot úr sígildum kabarettum.
Af leikritum má nefna „Minor Demons“ eftir
Hugh Grahams, sem nú er verið að sýna við góðar
undirtektir í Alliance Repertory Theatre í Burbank.
Og 21. júlí-14. ágúst er árleg hátíð með frægustu
leikritum Los Angeles í Woodburg University í Bur-
bank. Þann 16. júlí hefst í Santa Barbara Museum
of Art sýningin „Printed Pop“ sem heiðrar popp-
myndlistarhreyfinguna. Þar verða sýnd verk Roberts
Indiana, Roys Lichtenstein og Andys Warhol meðal
annarra.
Fyrir þá sem átta sig ekki á nafninu Santa Bar-
bara, má geta þess að þetta er nafn á sérlega falleg-
um bæ, sem ekki er í nema ein og hálfs tíma akstri
norður af Los Angeles. Þar búa margir listamenn og
í miðbænum er mikið líf og mörg gallerí til að gleðja
augað.
Ef við höldum aftur suðureftir og komum okkur
fyrir í miðbæ Los Angeies, nánar tiltekið á Dodge
vellinum, þann 16. júlí, þá tekst okkur að berja aug-
um risanna þrjá í óperuheiminum (fyrir utan Krist-
ján, að sjálfsögðu); Pavarotti, Carreras og Dom-
ingo. Fílharmoníuhljómsveit Los Angeles mun reyna
að halda í við kappana með undirleik.
í Los Angeles var nýlega opnaður stór klúbbur,
sem hefur notið mikilla vinsælda. Heitir hann House
-of Blues og er á Sunset breiðgötunni í hjarta Holly-
wood. Þar er ávallt boðið upp á mikla fjölbreytni í
tónlistarvali, sem sjá má á þeim nöfnum er troða
upp í júlí eins og Yousson N’Douri Toni Childs,
Brodsky Kvartettinn, Chuck Berry, The Band og
Jimmy Vaughan.
Fyrir djassarana, sem hafa verið hálf hundsaðir
í þessum pistli, ber að skýra frá að djasspíanó ris-
inn Kenny Barron og tríó verða með þrenna tónleika
í The Jass Bakery, 28.-30. júlí.
Ekki er hægt að yfirgefa Los Angeles, án þess
að nefna suma af þeim poppurum er munu gleðja
okkur í júlíhitanum. Fyrstan skal nefna guðföður
soul-tónlistarinnar, James Brown, sem tryllir enn
og nú í Greek Theatre 9. júlí. Og fyrst við erum að
tala um brjálað fólk, þá mun Nina Hagen blanda
saman þýskum og enskum blótsyrðum ÍThe Palace
16. júlí. Rollins Band verða hér 30. júlí og David
Byrne, þann 6. The Aute-
urs spila svo á Whiskey a
GoGo.
Og ef einhver er enn
að fárast yfir því að knatt-
spyrna skuli hafa verið
nefnd í menningarpistli,
þá má benda þeim hinum
sama á það að bregða sér
til Kaliforníu og sjá Brasil-
íumenn að verki á vellin-
um. List? Spyrjið bara
Pavarotti!
Jón Bjarni Guðmundsson,
Þuríður Guðmundsdóttlr.
MADRID
I REINA Sofía safninu
hér í Madríd stendur nú
yfir sýning á verkum þýska
listamannsins Gerhards
Richter. Hann erfjölhæfur
mjög. Á sýningunni má sjá
málverk, Ijósmyndir og höggmyndir og svokölluð
Ijósmyndamálverk, það er Ijósmyndir sem hann
hefur málað ofan í og breytt. Richterfæddist í Dresd-
en 1932, en þetta er fyrsta einkasýning hans á
Spáni. Reina Sofía safnið hefur líka uppá myndir
eftir Dalí, Picasso og Miró að bjóða.
La Malquerida heitir frægt leikrit eftir nóbelsverð-
launahafann Benavente. Nú hefur dansarinn Luisillo
gert ballet úr því. „Þar sem orðin enda, tekur dans-
inn við,“ segir hann stoltur. Flamenkóbragur er á
verkinu. Aðaldansarar eru Lola Zambrano og Emilio
Hernández, bæði ung og tiltölulega óþekkt. Verkið
er sýnt í Teatro Albéniz, frá 1. og 10. júlí.
í Barcelona er nýhafin tónlistarhátíð sem stendur
út ágúst. Aðalefni hennar er ímynd þjóða, tengsl
þeirra við menningararf sinn eða firring frá honum.
Af listasýningum í þessari höfuðborg
Katalóníu má nefna Tadao Ando í
Centre Montcada og Amazon-sýn-
ingu í vísindasafninu.
En nóg um kúltúr. Hér er komið
sumar. í Madríd ráða útibarir lögum
og lofum og sá sem ef til vill er mest
í tísku um þessar mundir heitir Bage
Lus, og er í María de Molina götu.
Þangað fara stjörnurnar til að sýna
sig, og þangað geta ferðalangarfarið
til að sjá þær. í júlí hætta Spánverjar
að fara í háttinn, fá sérkannski blund
í morgunsárið, og svo annan í eftir-
miðdaginn. Þeir hætta líka að vinna,
að mestu leyti. Þeir fara á útibari.
Ragnar Bragason.
AUSDRUBILA frá gríska leikhús-
inu á tónlistarhátíð í Barcelona.
setja upp samsýningar eða stilla upp sínum þekkt-
ustu verkum fyrir ferðamenn. Og vissulega er þá
gott að bregða sér inn í einhver af musterum mynd-
listarinnar í þessari borg, ganga um loftkælda salina
og skoða hvað boðið er uppá.
Fyrir utan þau lykilverk sem ætíð eru til sýnis,
hanga nokkrar merkilegar sýningar uppi í sumar. í
Metrópólitan safninu gefur að líta verk endurreisnar-
málarans Petrus Christus, samsýning á bandarísk-
um impressjónisma hefur vakið þó nokkuð umtal
og þar er einnig sýnd myndröð ástralska málarans
Sidney Nolans um rómantíska útlagann Ned Kelley.
Þær myndir má tvímælalaust telja með því merkileg-
asta sem ástralskir listamenn hafa afrekað. Þessar
sýningar standa út júlí.
í ICP, Alþjóðlegu Ijósmyndamiðstöðinni, við 94.
stræti, gefur að líta sýningu á mörgum bestu Ijós-
myndum franska meistarans Henri Cartier-Bresson.
Sýningin er haldin í tilefni af 86 ára afmæli Ijósmynd-
arans, og með hverri mynd er umfjöllun þekktra
listamanna eða fræðinga. Þetta er sýning sem eng-
inn ætti að vera svikinn af að skoða. Skammt þar
frá, í Guggenheim, eru sýnd meistaraverk síðustu
fimm áratuga úr
eigu safnsins.
Whitney safnið,
sem sinnir ein-
ungis bandarískri
list og er iðulega
með athyglisverð-
ar sýningar, er
meðal annars
með samsýningu
á verkum Josef
Stella og í Nútí-
malistasafninu,
MoMA, má vekja
athygli á þremur
sýningum: Verk-
um sem Rocke-
fellerhjónin Peggy
og David hafa gefið MoMA, en sú sýning kallast
„Frá Manet til Picasso", sýningu á grafíkverkum
hinnar öldnu en sívinnandi Louise Bourgeois; og
Ijósmyndum Lee Friedlanders, myndröð sem hann
kallar „Stafir frá fólkinu".
Þeim sem vilja fara í leikhús má benda á leikrit
Edwards Albees, Three Tall Women, í
Promenade leikhúsinu, en það vann Pulitz-
er verðlaunin í ár. Vel er látið af systrunum
Rosensweig, eftir Wasserstein, í Barry-
more leikhúsinu, og þá er haldið áfram að
ausa lofi og verðlaunum yfir Engla í Amer-
íku eftir Tony Kushner. Aðrir hafa áhuga á
söngleikjum og þar er mikið látið með
Passion við tónlist Stephen Sondheim,
sem vann Tony verðlaunin í ár. Carousel,
eftir Rodgers og Hammerstein, nýtur mik-
illar hylli, og sama má segja um rokkóper-
una Tommy eftir hljómsveitina The Who.
Af klassískri tónlist má síðan nefna að New
York Fílharmónían, undir stjórn Kurt Mas-
ur, leikur verk eftir Beethoven í Carnegie
Hall dagana 20., 21., 27. og 30. júlí.
Seinnipart dags, þegar svala golu leggur
af hafi, er gaman að leggja leið sína í Centr-
al Park. Þar geta óperuunnendur fundið
eitthvað við sitt hæfi í sumar, því New
York Grand Opera er að hefja sjö ára dag-
skrá á Sumarsviði garðsins, þar sem ætl-
unin er að flytja allar 28 óperur Verdis.
Sýningar eru á miðvikudögum í júlí og hefjast klukk-
an 19.30. Óperurnar sem sýndar verða eru, og í
þessari röð: „Oberto, Conte di San Bonifacio", „Un
Giorno di Regno", „Nabucco” og „Lombardi”. Að-
gangur er ókeypis. Aðra daga í sumar er síðan
boðið upp á tónleika listamanna víðsvegar að úr
heiminum á Sumar-
ALICANTE eftir Henri Cartier-Bresson.
sviðinu.
Einar Falur
Ingólfsson.
ágúst, en sýnir Carmen til 23. júlí í svið-
setningu Jose-Luis Gornez og tónstjórn
Serge Baudo. Ballettinn La Bayadere
verður þar líka til 17. júlí undir stjórn
John Lanchbery.
Tónlistaviðburður ársins í Chatelet
leikhúsinu er án nokkurs vafa uppfærsla
Niflungarhrings Wagners sem hófst í lok
júní með sýningum á Rínargullinu og
Valkyrjunum. Síðasta sýningin verður á
morgun, 3. júlí, en síðan verða þær tekn-
ar upp aftur í október og nóvember.
Jeffrey Tate sér um tónstjórn og Pierre
Strosser um sviðsetningu.
Þó að flest myndlistagallerí loki í
ágúst leggur Pompidousafnið áherslu
á að hafa góðar sýningar yfir sumar-
mánuðina. Aðalsýning safnsins á
fimmtu hæðinni gefur yfirlit verka þýska
myndlistarmannsins Joseph Beuys og
stendur til 3. október. Beuys, sem lést
1986, var margslunginn og afkastamik-
ill listamaður. Maðurinn með hattinn,
eins og margir kölluðu hann,
hafði mikil áhrif á íslenska lista-
menn á sjöunda og áttunda ára-
tugnum sem og víða annars
staðar. Á sýningunni eru meðal
margs annars 70 rýmisverk og
þar á meðal Efnahagsgildi, Enda-
lok 20 aldarinnar og Fitustóllinn.
í stóra salnum sem blasir við
þegar gengið er inn í Pompidou-
safnið er til 5. september sýning
á verkum ítalska arkitektsins og
hönnuðarins Ettore Sottsass. í
norðursalnum er sýningin Arc-
higram til 29. ágúst, en hún
sprettur frá nokkrum enskum
arkitektum sem hafa starfað sam-
an síðan 1960 og urðu þekktir
fyrir teóríur sínar í tengslum við neysluþjóðfélagið
á sjöunda áratugnum. í suður galleríinu sýnirsænski
listamaðurinn Erik Dietman nýleg verk til 29. ágúst.
Titlarnir á verkum hans hafa alltaf skipt miklu máli
og hefur hann þess vegna nefnt sýninguna: Án tit-
ils. Ekki eitt orð. Þögn.
í Jeu de Paume er nýbyrjað að sýna síðustu verk
amerísku listakonunnar Joan Mitchell, en hún lést
í lok ársins 1992. Mitchell settist að í París árið
1959 og vann aðallega í Vétheuil sem er skammt
frá þeim stað þar sem Claude Monet hafði vinnu-
stofu, enda hafa vatnaliljurnar hans haft mikil áhrif
á verk hennar.
Þeir sem hafa hugrekki til að standa í biðröð og
eru ekki búnir að fá nóg af impressjónismanum
geta séð sýninguna um uppruna stefnunnar í Grand
Palais til 8. ágúst. Elstu verkin eru frá 1859 og
mörg hafa sjaldan sést áður. Sýningin mun síðan
fara til New York. Örskammt frá, á Champs de
Mars-vellinum við Eiffel turninn, eru 15 „monumen-
tal skúlptúrar” eftir franska listamanninn Bernard
Venet sem býr og starfar ýmist í París eða New York.
Leikhúsin í París loka flest yfir sumarið og fer
þá starfsfólk gjarnan út á land að taka þátt í ýmsum
hátíðum og uppákomum. Á leiklistarhátíðinni í
Avignon frá 8. júlí til 2. ágúst verða á boðstólnum
verk eins og Andromaque og Alceste eftir Euripide
og Stríðs-stykki og Bingo eftir Edward Bond og
margt fleira. Lambert Wilson verður með Duttlunga
Maríönnu eftir Musset í Ramatuelle ásamt fleiri
störnum frá París sem setja upp verk sín þar frá
1 .-3. ágúst. Ljósmyndahátíðin í Arles heldur upp á
25 ára afmæli sitt í sumar og verða mjög fjölbreytt-
ar sýningar á dagskrá eins og venjulega frá 7. júlí
til 15. ágúst. Kvikmyndahátíðir verða í La Rochelle
(30. júní-10. júh") og Grenoble frá 5.-9. júlí. í Nútíma-
listasafninu í Grenoble er einnig verið að sýna verk
Úkraníubúans llya Kabakov til 17. júlí, en hann sýn-
SKULPTUR Bernards Venet
Champs de Mars garðinum
condensed
tomato
SYNING um Sottsass er
á jarðhæð Pompidou-
hússins.
SÚPUDÓS Warhols.
NEW YORK
ÞEGAR rakur og lamandi sumarhit-
inn leggst yfir borgina, þá leggjast
margir sýningarsalir í dvala og söfnin
PARIS
I JÚLÍ og ágúst fær-
ist menningin að
hluta til út fyrir stofn-
anir og alls konar
uppákomur eiga sér
stað á torgum og í
görðum út um alla
borg. í Villette
garðinum í norð-
austur hluta borgar-
innar er nýhafin djasshátíð með úrvals tónlistar-
mönnum, sem stendur til 9. júlí, en þar er einnig
staðsettur nýi djassklúbburinn Hot Brass sem er
með þeim betri og nýtur sívaxandi vinsælda. Kvik-
myndaunnendur geta frá og með 16. júlí séð í garð-
inum úrval góðra kvikmynda undir berum himni og
hefjast þær öll kvöldin kl. 22. Fyrsta kvöldið verður
helgað minningu ítalska leikstjórans Fellinis en sýn-
ingar standa til 15. ágúst. Footsbarn farandsleikhús-
ið sem hefur vakið athygli fyrir afbragðsgóðar og
frumlegar sýningar verður í Villette-garðinum með
Rómeó og Júlíu á ensku frá 15. júlí til 9. ágúst.
Þeir sem vilja sjá hina frægu elskendur frá Veronu
í annarri útgáfu geta skroppið í Opéra Comique,
5.-7. og 9. júlí og séð uppfærslu Nicolas Joel í tón-
stjórn Michel Plasson. Öpéra Bastille er lokuð í
Töfraflautu Mozarts undir
stjórn William Christie í
sviðsetningu Robert Cars-
en frá miðjum mánuðinum
en hátíðin stendur til 30.
júlí. Djasshátíðir verða
víða, til dæmis í Juan-les-
Pjns (18.-28. júlí), Man-
osque (18.-27. júlQ og í
Nissa frá 8.-17. júlí, þar
sem hægt verður að
hlusta á úrvals tónlistar-
fólk, Ray Charles, Jean-
Luc Ponty, Barney Wilen,
Marcus Miller, Cesaria
Evora, Milton Nasci-
mento, Steve Coleman,
Björk Guðmundsdóttir og
marga fleiri. Þeir sem vilja
frekar fara á danssýningar
er bent á borgirnar Ma-
rignan (16.-25. júlí) og Aix
þar sem nútímadans verð-
ur á boðstólum frá 14.-24. júlí. í Bordeaux er mjög
mikið af góðum sýningarsölum og er eitt besta
byggingarlistagallerí í Frakklandi staðsett þar, Arc
en Reve, en þar er nú verið að sýna verk eftir franska
arkitektinn Dominique Perrault (til 16. okt), en hann
er þekktastur fyrir hönnun nýja bókasafnsins, La
Bibliotheque de France, sem er að rísa í Bercy
hverfinu og áætlað er að opni árið 1995.
Laufey Helgadóttir
STOKKHÓLMUR
EINS og kunnugt er liggur Stokkhólmur fjarska fal-
lega og vatnið setur mikinn svip á borgina. Svo
mikinn að borgin heldur árlega svokallaða Vatnahá-
tíð, sem er listahátíð og stendur síðari hluta sum-_
ars. Á dagskránni gætir margra grasa og atriðin-
eru haldin víða um borgina. Mjög víða um Svíþjóð
eru haldnar tónlistarhátíðir, sem gefa sveitasælunni
sérstakan svip.
Konungshöllin er meðal annars notuð undir dag-
skrá Vatnahátíðarinnar, bæði salir hennar og kirkj-
an. Þann 5. júlí syngur sænski heimstenórinn Gösta
Winbergh þar, ásamt Önnu Eklund-Tarantino sópr-
ansöngkonu, aríur úr óperum Mozarts, Verdis og
Puccinis undir stjórn Mats Liljenfors. Píanóleikarinn
Staffan Scheja, einn
SVIÐ hallarleikhússins
á Drottningholm.
AF SÝNINGU Dietmans í Pompidou-miðstöðinni.
ir um þessar mundir í Gallerí Önnur hæð í Reykjavík.
Helstu tónlistarhátíðirnar verða í borgum eins og
Saint-Chartier (14.-17. júlí) þar sem hægt verður
að hlusta á Trio Oller Yvert, lýruspil og sérstaka
rödd bretanska söngvarans Vann-Fanch Kemener.
Beaune (1.-30. júlO þar sem barokk tónlist verður
í heiðurssæti, La Chaise-Dieu (24. ágúst-4. sept.)
þar sem hátíðin verður helguð George Cziffra og
Orange þar sem Nabucco eftir Verdi og Tosca eft-
ir Puccini verða sýndar í hinu forna hringleikahúsi.
Aix-en Province er fyrir löngu orðin þekkt fyrir góð-
ar tónlistarhátíðir og verður þar hægt að hlusta á
af þekktari tónlistar-
mönnum Svía, leikur
ásamt Young Uck
Kim fiðluleikara tón-
list eftir Franck, Ra-
vel og Stravinskí 7.
júlí. Leikkonan Stina
Ekblad flytur Ijóð 13.
júlí og kammerhljóm-
sveit flytur tónlist
eftir Wolf, Sten-
hammar og Brahms.
Doris Soffel heldur
Ijóðatónleika við
undirleik Jan Eyrons
19. júlí, syngur lög eftir Rossini, Massenet og Saint
-Saéns og það er enginn efi á því að tónleikar þess-
ara tveggja ágætu tónlistarmanna verða eftirminni-
legir. Tónleikaröðin í höllinni stendur út allan ágúst.
Mest ber á kammertónlist frá ýmsum tímum. Með-
al annars leika Potsdammer kammerhljómsveitin
tónlist eftir Friðrik mikla, Bach og Mozart 1. ágúst.
í Svíþjóð er gömul og gegn óperettuhefð og þeirri
tónlistartegund er gerð skil á útiskemmtun allan júlí
í garði Hallwylska palatset við Hamngatan í Stokk-
hólmi. Þetta er dagskrá, sem gengur undir nafninu
Operettfest, þar sem flutt eru Vínarlög og valdir
kaflar úr óperettum og söngleikjum. í Storkyrkan
eru kammertónleikar á hverju þriðjudagskvöldi fram
í fyrstu vikuna í ágúst. Á miðvikudögum er önnur
tónleikaröð, þar sem aðaláherslan er lögð á orgel-
tónverk og á fimmtudögum er dagskrá um sögu
kirkunnar, sem heitir Raddir í hvelfingunni.
Á Dramaten, sænska þjóðleikhúsinu, eru sýning-
ar allt sumarið og það víða um borgina. í júlí er
sýnt leikrit Graham Greenes, Á ferðalagi með
frænku, á Stóra sviði hússins. í ágúst verður sýnt
leikritið Johan Padan uppgötvar Ameríku eftir Dario
Fo í Leikhústjaldinu, sem hluti af Vatnahátíðinni. 4
ágúst verða einnig margar aðrar sýningar hússins.
Meðal annars er verið að sýna Vintersaga, Vetraræf-
intýri Shakespeares, í rómaðri og hálofaðri upp-
færslu Ingmar Bergmans, sem finnst hann vera
orðinn of gamall til að gera kvikmyndir, en er mjög
framtakssamur í leikhúsinu. í einu aðalhlutverkanna
er Pernille August, sænska leikkonan sem einnig
hefur getið sér gott orð sem kvikmyndaleikkona,
meðal annars í myndum bónda síns, danska leik-
stjórans Bille Augusts. Skansinn er tívolí Stokk-
hólmsbúa og einnig þar eru ýmsir tónleikar af létt-
ara taginu, en einnig leikhús.
Af hátíðum úti um landsins breiðu byggð má
minna á tónlistarhátíðina á Gotlandi í júlí, þar sem
fara saman ótrúlega góðir kraftar eins og söngkon-
an Barbara Hendricks og píanóleikarinn Staffan
Scheja, fallegar kirkjur sem tónleikasalir og svo feg-
urð eyjarinnar.
S.D.
SAMANTEKT: ÞÓRUNN ÞÓRSDÓTTIR
+