Morgunblaðið - 29.07.1994, Qupperneq 1
f
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ
GOLF: LANDSMÓTiÐ Á AKUREYRI / C4
+“
Jltarinutliiifrife
f994
FOSTUDAGUR 29. JULI
BLAÐ
hém
FOLK
lán-
lausir
LÁNIÐ lék ekki við leikmenn
Breiðabliks í gærkvöldi fremur
en endranær. Þeir voru mun
meira með boltann en Keflvík-
ingar en munurinn lá í því að
þeir nýttu færin sín en Blikarn-
irekki. Sigurinn ígærkvöldi
hlýtur að vera sæt hefnd Kefl-
víkinga fyrir tapið gegn Breiða-
blik í bikarnum.
Breiðablik hóf leikinn með stans-
lausri sókn og það var því al-
gerlega gegn gangi leiksins þegar
Keflvíkingar tóku
forystuna. Blikar
létu markið ekki slá
sig út af laginu og
jöfnuðu verðskuldað
eftir vítaspyrnu sem fékkst eftir
mikið einstaklingsframtak Tékkans
Lazorik, sem var besti maður vallar-
Sigtryggur
Sigtryggsson
skrifar
Pétur Pétursson þjálfari ÍBK
hlýtur að hafa talað vel yfir sínum
mönnum í hálfleik, því þeir komu
mun ákveðnari til leiks í síðari hálf-
leik. Engu að síður voru Blikarnir
meira með boltann allt þar til Kefl-
víkingar skoruðu sitt annað mark
nokkuð óvænt. Eftir það reyndu
Blikamir stíft að jafna en við það
opnaðist vörn þeirra oft illa. Kefl-
víkingar beittu skyndisóknum og
tókst að bæta þriðja markinu við
áður en yfir lauk.
Pétur Pétursson var að vonum
ánægður að leik loknum og sagði
að dagskipunin hefði verið að vinna
leikinn hvað sem það kostaði. „Við
lékum vel gegn Blikunum í bikam-
um en töpuðum samt og því kom
ekkert annað en sigur til greina í
kvöld. Við vomm mjög slakir í fyrri
hálfleik en sóttum okkur í þeim síð-
ari,“ sagði Pétur, sem hefur náð
mjög eftirtektarverðum árangri
með liðið eftir hann tók við af Ian
Ross.
Ingi Björn Albertsson þjálfari
Blikanna hlýtur að vera áhyggju-
fullur. Lið vinna ekki leiki nema
gera mörk, það veit enginn betur
en markakóngur allra tíma, Ingi
Bjöm.
17 leikmenn gerðu 1
Blikar
8 mörk í 12. umferð 1. deildar og staða efstu liða óbreytt
Igor Knec tekur
við HK í Kópavogi
Tékkinn Igor Knec verður þjálfari
nýliða HK i 1. deild karla í
handknattleik, en endanlega var
gengið frá því í gær og kemur hann
til landsins 5. ágúst. Með honum
kemur rétthenta skyttan Jan Wecek,
sem er tveggja metra maður. Knec
þjálfaði Kyndil í Færeyjum í þijú
ár og var jafn lengi með Tatar í
Kúvæt auk þess sem hann hefur
þjálfað tékkneska U-21s árs lands-
liðið.
Þá hefur Oliver Pálmason skipt úr
Selfossi og gengið til liðs við nýlið-
ana sem og hornamaðurinn Hjálmar
Vilhjálmsson frá ÍR.
Morgunblaðið/Sverrir
Ragnar Margelrsson, ÍBK, var eini leikmaður umferðarinnar, sem gerði tvö mörk í gærkvöldi. Hér
hefur Guðmundur Hrelðarsson, markvörður Breiðabliks, betur í baráttu við Ragnar og Marco Tan-
asic, sem er lengst til vinstri. Nánar um leikina abls. C2 og C3.
■ ÞÓRDÍS Geirsdóttir úr Keili
lenti í tjörninni á fjórðu braut á
landsmótinu í golfi í gær. Hún
skellti sér ofan í hana og sló glæsi-
lega upp úr henni en rétt missti
púttið fyrir pari.
■ AKUREYRINGAR hafa gjarn-
an talað um að veðrið væri hvergi
betra á landinu, en í gær var furðu-
legt veður. Kylfingarnir höfðu orð
á að á meðan þeir væru að und-
irbúa högg snérist vindurinn frá
suðri til norðurs og síðan til vest-
urs, allt á hálfri mínútu.
■ ÓLÖF María Jónsdóttir úr
Keili var nærri því að fara holu í
höggi í gær. Upphafshöggið á síð-
ustu brautinni lenti fyrir framan
flötina, boltinn skoppaði inn á og
krækti í stöngina en vildi ekki nið-
ur. Hún fékk auðveldan fugl.
■ MARGIR framvarðarsveinar
eru á Jaðarsvelli til að fylgjast með
hvert menn slá. Þrátt fyrir að gríð-
arlega mörg högg hafi verið slegin
„hefur aðeins einum tekist að ná
okkur,“ sagði einn framvarðar-
sveinanna.
■ HINRIK GUNNAR Hiimars-
son úr GR var í baráttunni í 2.
flokki. Hann átti afmæli í gær,
varð 36 ára, og sagði áður en hann
lagði í síðasta hring, að þetta væri
falleg tala, hann ætlaði að leika
fyrri níu á 36 og þær síðari líka!
■ ANDREA Asgrímsdóttir úr
GA hefur leikið jafnast allra, hún
er í áttunda sæti í meistaraflokki
kvenna og hefur leikið alla þijá
hringina á 86 höggum.
■ RÓSA M. Sigursteinsdóttir í
GÓS fékk fugl í orðsins fyllstu
merkingu á 3. braut síðasta daginn,
þegar hún sló í önd, sem var á
vappi á brautinni. Var það eini fugl-
in hennar á mótinu — en öndin, sem
vankaðist við höggið, náði sér að
fullu að sögn viðstaddra.
0B 4 Eftir langa hornspyrnu á 14. mínútu sendi Ragnar Steinars-
■ I son boltann til nafna síns Ragnars Margeirssonar sem
skoraði örugglega.
1B «fl Lazorik pijónaði sig í gegnum vörn ÍBK á 28. mínútu og
B ■ féll við. Vítaspyrna var dæmd umsvifalaust og skoraði
Kristófer Sigurgeirsson mjög örugglega úr spyrnunni.
1B Keflvíkingar fengu aukaspyrnu á 56. mínútu. Boltinn var
■ ■ægefinn snöggt til Tanasic sem komst upp að endamörkum
vinstra megin og gaf fyrir á Óla Þór Magnússon, sem sneiddi hann
laglega t netið.
1B ^jKeflvíkingar tóku stutt horn á 82. mínútu, Óli Þór Magnús-
■ %9son gaf góða sendingu á fjærstöng þar sem Georg Birgis-
son var fyrir. Hann skallaði kröftuglega að markinu og Ragnar Mar-
geirsson kom þar á fieygiferð og hamraði boltann í netið.
HANDKNATTLEIKUR
KORFUBOLTI
Bandaríkjamaður
til Keflvíkinga
Keflvíkingar hafa gengið frá ráðningu á banda-
ríska miðhetjanum Lenear Burns og kemur
hann til landsins á þriðjudag. Burns, sem er 24
ára, 198 sm hár og 105 kg, hefur leikið með há-
skólaliði LSU, en á meðal samheija hans þar undan-
farin ár má nefna Shaquille O’Neil, Stanley Roberts
og Chris Jackson. Hann var helsti frákastari liðs
síns s.l. vetur og skoraði.10 stig að meðaltali í leik.
Magnús Guðfinnsson, sem er kominn heim úr
háskólanámi í Bandaríkjunum, hefur skipt úr Kefla-
vík í Val, en að sögn Guðmundar Kristinssonar,
formanns körfuknattleiksdeildar Ungmenna- og
íþróttafélagsins í Keflavík, er gert ráð fyrir að Birg-
ir, bróðir hans, gangi aftur til liðs við Keflvíkinga
eftir að hafa leikið með Þór á Akureyri á síðasta
keppnistímabili.