Morgunblaðið - 29.07.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.07.1994, Blaðsíða 4
Gríðarleg spenna í nieistaraflokki karla Sigurpáll G. ■eidirmeð einu höggi Keppnisskapið sagði til sín SIGRÍÐUR Th. Mathiesen úr GR tryggði sér sigur í 1. flokki kvenna í gær með glæsilegri spilamennsku. Hún var fimm höggum á eftir fyrsta manni fyrir síðasta dag en sigraði síð- an með þremur höggum. mr Eg átti alls ekkert von á þessu. Ég byijaði hræðilega fyrsta daginn, fékk 9 á fyrstu braut og svo 10 á þeirri tíundu. í dag fékk ég svo 7 á tíundu braut og þá hleypti ég í mig hörku og eftir það gekk þetta vel,“ sagði Sigríður sem var að keppa á sínu öðru landsmóti, var á Hellu 1991 en man ekki hvernig það gekk. „Það er frábært að koma hingað, það er svo skemmtileg stemmning yfír svona móti,“ sagði hún og var vel fagnað af stelpunum í GR og raunar fleiri klúbbum enda Sigríður mjög vinsæl og andinn ein- staklega góður í þessum flokki. Kristín Elsa Erlendsdóttir úr GA varð í öðru sæti, en hún er yngsti keppandinn á mótinu, aðeins 11 ára gömui. Hún á greinilega framtíðina fyrir sér stúlkan. Morgunblaðið/Bjöm Gíslason Guðný Óskarsdóttir Yfirburðir Gudnýjar Guðný Óskarsdóttir úr GA sigr- aði með miklum yfirburðum í 2. flokki kvenna, lék á 369 högg- um, 18 höggum færra en Lilja Karlsdóttir úr Keili sem varð í öðru sæti. „Ég hafði satt að segja nokkr- ar áhyggjur fyrir síðasta daginn þó svo ég hefði 11 högga forystu. í þessum flokki getur allt gerst, en ég byrjaði mjög vel, lék fyrsta dag- inn á 86 höggum og var þá strax komin með gott forskot sem mér tókst síðan að halda," sagði Guðný, en þess má geta að hún var sú eina í flokknum sem lék hring á undir 90 höggum. ALDREI hefur keppni í meistaraflokki karla verið eins jöfn og spennandi og nú. Fyrir síðasta dag eiga tíu kylfingar möguleika á að tryggja sér titilinn og Ijóst er að nýtt nafn verður letrað á verðlaunabikarinn og verður það 26. nafnið sem þar fer á, en þetta er í 53. sinn sem landsmót er haldið. Sigurpáll Geir Sveinsson úr GA hefur enn forystu, lék frekar illa í gær, og er á 217 höggum eftir þijá hringi. Skúli Unnar Næstir koma Birgir Sveinsson Leifur Hafþórsson skrifar frá af Akranesi og Akureyn Björgvin Sigur- bergsson úr Keili, báðir á 218 högg- um. Þessir þrír og sjö aðrir eiga mikla möguleika á titlinum því að- eins munar fimm höggum á efsta manni og þeim sem er í tíunda sæti. „Þetta bjargaðist fyrir horn. Ég var fínn á seinni níu, lék þær á 34 höggum. Eftir góða byijun lenti ég í tjörninni á fjórðu, þrípúttaði fimmtu og sjöttu og fékk líka skolla á sjöundu. Lenti svo í skurðinum á áttundu en fékk góðan skolla. Svo gekk þetta fínt það sem eftir var. Það er mjög sterkt að koma inn á 34 á seinni níu og það gefur mér sjálfstraust fyrir síðasta daginn, sem verður örugglega mjög spenn- andi,“ sagði Sigurpáll Geir í gær. „Síðasti dagurinn leggst vel í mig, þetta verður dúndurljör enda allt í hnút og getur varla verið skemmtilegra," sagði Birgir Leifur í gær, en hann lék manna best, kom inn á 70 höggum, einu undir pari. Björgvin setti niður glæsilegt pútt fyrir fugli á síðustu holunni, alveg eins og hann gerði daginn áður þannig að hann kann vel við sig þar sem áhorfendurnir eru. „Ég hef verið að gera mistök alla dag- ana en samt komið inn á þessu skori þannig að ég vona að mér takist að leika síðasta hringinn bet- ur,“ sagði Björgvin og var ánægður með hversu margir kylfingar væru í baráttunni á toppnum. Margir léku mjög vel í gær. Birg- ir Leifur á einu undir, þrír léku á pari, Þorkell Snorri Sigurðarson úr GR, Sveinn Sigurbergsson úr GK og Siguijón Arnarsson úr GR. Sig- uijón lék mjög vel undir lokin, var 3 yfir eftir tólf holur en kom inn á parinu. Kristinn G. Bjarnason, sem var í öðru sæti fyrir daginn í gær, lék illa og kom inn á 77 höggum. Morgunblaðið/Björn Gíslason SIGURPÁLL Geir Sveinsson úr GA lék frekar illa í gær en hefur enn forystu og er á 217 höggum eftir þrjá hringi. Morgunblaðið/Björn Gíslason Sigurður Hreinsson Sigurður héltút Sigurður Hreinsson frá Húsavík sigraði í 2. flokki karla, lék á 317 höggum og hélt forskotinu sem hann náði með góðum hring á þriðja degi og jók það raunar um eitt högg. Annar varð Hinrik Gunnar Hinriksson úr GR, lék á 325 og þriðji félagi hans úr GR, Ingvar Ágústsson, sem lék á 332 höggum. Karen lék vel ogermeðfimm högga forystu ÍSLANDSMEISTARI kvenna síðustu fimm árin er komin í góða aðstöðu fyrir síðasta keppnisdag í meistaraflokki kvenna. Hún lék á 73 höggum í gær, tveimur yfir pari, og hefur fimm högg á næstu stúlkur. Karen lék sinn besta hring í gær og jók forskot sitt um fjögur högg og segja margir að þar með hafí hún tryggt sér sjötta íslands- meistaratitil sinn, hún sé of góður kylfingur til að láta fimm högg af hendi á átján holum. Ekki búið „Nei, nei, þetta er langt frá því að vera búið. Það er einn hringur eftir og það getur allt gerst. Stelp- urnar sýndu á síðustu holunni í dag að það er allt hægt,“ sagði Karen og vitnaði til þess að Ólöf María fékk fugl og Ragnhildur par eins og Karen. „Ég er sátt við þennan hring og það er ánægjulegt að fínna að maður getur spilað vel. Það var líka gaman að sjá að það voru áhorfendur sem fylgdu okkur eftir og vonandi koma þeir með okkur á morgun því við sýndum að við getum líka spilað golf,“ sagði Karen. Það er mikið rétt hjá henni og síðasti riðillinn hjá stúlkunum lék síðustu holuna mjög vel og glæsilega. Ragnhildur og Ólöf María eru fimm höggum á eftir og eru báðar staðráðnar í að gera sitt besta í dag þannig að Karen þurfi að hafa fyrir hlutunum. ÍHémR FOLK ■ ÞORKELL Snorri Sigurðar- son úr GR sló draumahöggið á landsmótinu í gær. Á sjöttu braut, sem er 196 metrar, dró upp þijú járn og setti beint í. Þetta er í ann- að sinn sem þessi 16 ára strákur fer holu í höggi. í fyrra notaði hann trékylfu númer þijú til að fara holu í höggi á 17. braut á heimavelli sín- um, Grafarholtiriu. ■ ÍSLANDSMEISTARINN Þor- steinn Hallgrímsson lék illa í gær enda hefur hann verið meiddur og getur varla leikið og er hann að hugsa um að leika ekki síðasta hring- inn. Þrátt fyrir hátt skor í gær gerði hann ýmislegt fallegt. Hann lenti til dæmis í tijám eftir annað höggið á 15. braut og það eina sem hann gat gert var að slá örvhent með púttern- um úr þeirri ófærð. Það tókst bæri- lega og hann fékk auðvelt par. ■ ÞORSTEINN var ekki eins heppinn á fjórðu braut. Þar lenti boltinn í tjörninni og reyndi hann að slá upp úr henni. Það tókst ekki og hann tók víti og lék holuna, sem er par þrír, á sex höggum. Morgunblaðið/Bjöm Gíslason Sigríður Th. Mathiesen GOLF / LANDSMOTIÐ A AKUREYRI ;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.