Morgunblaðið - 12.08.1994, Síða 1
BLAÐ ALLRA LAIMDSMAIMIMA
|Ui0r6ituí«laí»lí>
C
1994
FÖSTUDAGUR 12. ÁGÚST
BLAÐ
um ]
FRJALSIÞROTTIR
Bozhanova féll
á lyfjaprófi
Búlgarska stúlkan Sofia Bozhanova varð fyrst
til að falla á lyfjaprófi á Evrópumeistaramót-
inu sem nú stendur yfir í Helsinki í Finnlandi.
Bozhanova, sem er 26 ára, varð í fjórða sæti í
þrístökki kvenna á mánudaginn — stökk 14,58 m
og var aðeins 10 sm frá bronsverðlaununum. Eft-
ir keppnina var tekið af henni blóðsýni sem reynd-
ist jákvætt og var það tilkynnt í gær. Hún hafði
tekið inn amfetamínlyfíð mesocarb, sem er örv-
andi og bannlista Alþjóðu Ólympíunefndarinnar.
Búlgarska stúlkan, sem var heimsmeistari unglinga
í langstökki árið 1985 og vann bronsverðlaun á
EM innanhúss í París fyrr á þessu ári, á yfir höfði
sér fjögurra ára keppnisbann.
KNATTSPYRNA
Þórður hefur gerf
ÞÓRÐUR Guðjónsson, landsliðsmaður f knattspyrnu, stóð sig mjög
vel í æfingaleikjum með Bochum á undirbúningstimabilinu undan-
farnar fjórar vikurog gerði 19 mörkí 14 leikjum. Þýska úrvals-
deildin hefst um aðra helgi og þá mætir liðið meisturum Bayern
Munchen á útivelli, en á sunnudag hefst alvaran með fyrstu um-
ferð bikarkeppninnar. Fyrirkomulagið er eins og það var í bikar-
keppni KSÍ i sumar, efri lið leika gegn liðum úr neðri deildum á
útivelli og sækir Bochum Rot Weiss Essen heim, en síðan kemur
Þórður í landsleikinn gegn Eistlandi, sem verður á Akureyri á
þriðjudag.
Þórður sagði við Morgunblaðið í
gærkvöldi að álagið hefði verið
mikið á undirbúningstímabilinu og
því hefði aðallega verið leikið gegn
lakari liðum í Þýskalandi og svo lið-
um frá Austurríki og Túnis. Liðið
hefði tvisvar farið í æfingabúðir og
tekið hefði verið þátt í einu móti,
þar sem Bochum hefði unnið Duis-
burg 3:0 í úrslitaleik. „Þetta hefur
verið erfítt og það verður að segjast
eins og er að varla er hægt að æfa
og spila í 35 stiga hita og sól eins
og verið hefur að undanförnu," sagði
Þórður.
Bochum sigraði í 1. deild s.l. vor
og vann sér þar með sæti í úrvals-
deildinni. Þórður sagði að um 19.000
manns hefðu verið að meðaltali á
heimaleikjunum á síðasta tímabili
og stefndi í að fleiri yrðu í vetur,
en um 6.000 ársmiðar hafa selst,
sem er meira en áður. „í fyrra var
álagið mikið á okkur og þess krafist
að við tryggðum okkur sæti I úrvals-
deildinni, en nú eru engar kröfur.
Allir sætta sig við að við höldum
sætinu og allt þar fyrir ofan yrði
talið mjög gott, en þjálfarinn er að
gæla við að koma á óvart. Hins veg-
ar er óraunhæft að tala um titil, en
við reynum að standa okkur.“
Allir leikmenn Bochum fengu
tækifæri í æfíngaleikjunum og sagði
Þórður að hann væri langt því frá
að vera öruggur með stöðu í liðinu
þrátt fyrir gott gengi, því samkeppn-
in hefði aukist eftir að Bandaríkja-
maðurinn Eric Wynalda var keyptur
til félagsins. „Það er ekkert öruggt
í þessu og viðbúið að samkeppnin
verði sérstaklega mikil til að byija
með, en ég geri samt ráð fyrir að
vera í hópnum,“ sagði miðheijinn.
Þórður Guðjónsson (í miðjunnl) hefur verið drjúgur vlð að skora
í æfingaleikjum Bochum að undanförnu, en alvaran byrjar á
sunnudaginn, þá mætir Bochum meisturum Bayern Miinchen á
Ólympíuleikvanginum í Munchen.
FRJALSIÞROTTIR / EM I HELSINKI
19 mörk í 14 leikjum
Gylfi Birgisson leikur með Fylkl
í 2. deild í vetur.
Fylkir
fær liðs-
styrk
„Markmiðið aðfara
upp,“ sagði Gunnar
Baldursson, for-
maður Fylkis
FYLKIR, sem leikur í 2. deild
íslandsmótsins í handknattleik,
hefur fengið fimm sterka leik-
menn til liðs við sig fyrir átökin
f vetur. Gunnar Baldursson, for-
maður handknattleiksdeildar
félagsins, segir að stefnan sé
tekin á 1. deildina og með þess-
um liðsstyrk væri vissulega
meiri líkur til þess að það mark-
mið næðist.
Pétur, Vésteinn og Jón Amar
keppaáEMídag
ÞRÍR íslenskir keppendur
verða í sviðsljósinu á Evrópu-
meistaramótinu í frjálsíþrótt-
um í Helsinki dag; Pétur Guð-
mundsson keppir í kúluvarpi,
Vésteinn Hafsteinsson í
kringlukasti og Jón Arnar
Magnússon ftugþraut.
ráinn Hafsteinsson, landsliðs-
þjálfari, sagðist gera sér vonir
um að Pétur og Vésteinn kæmust
báðir í 12 manna úrslit, en undan-
keppnin fer fram í dag og úrslitin í
kúluvarpinu á morgun og síðan í
kringlukastinu á sunnudag. „Það
má mikið klikka til að þeir ná ekki
inn í úrslit. Pétur þarf að kasta 19,50
metra til að tryggja sig í kúluvarp-
inu og Vésteinn 61 metra í kringl-
unni. Þeir hafa báðir verið að kasta
lengra í sumar. Jón Arnar er að
keppa í sínu fyrsta stórmóti og því
kannski ekki við miklu að búast.
En hann gæti alveg eins komist á
topp tíu því hann er nú léttari en
oft áður. Hann er með sextánda
besta árangurinn af þeim 28 kepp-
endum sem taka þátt,“ sagði Vé-
steinn.
Mestar vonir eru bundnar við Pét-
ur Guðmundsson sem á fímmta besta
árangurinn í Evrópu í kúluvarpi.
„Keppnin leggst vel í mig. Ég er í
góðri æfíngu og ég hef undirbúið
mig vel í Svíþjóð að undanfómu. Ég
vil ekki vera með neinar yfirlýsingar.
Það er dagsformið sem ræður, en
fyrsta markmiðið er að komast í úr-
slit,“ sagði Pétur sem kom til Hels-
inki í gær ásamt Vésteini eftir
tveggja vikna æfingabúðir í Svíþjóð.
Vésteinn er í fyrri hópnum í
kringlukastinu og byrjar keppni kl.
06.30 að íslenskum tíma. Jón Arnar
byijar á sama tíma í tugþrautar-
keppninni, en henni lýkur ekki fyrr
en annað kvöld. Pétur byrjar keppni
kl. 13.50 að íslenskum tíma. Kepp-
endum er raðað í tvær grúbbur í
kúluvarpinu og munu þær keppa
samtímis.
Martha Ernstsdóttir keppir í
10.000 metra hlaupi á sunnudag.
Hún á 16. besta tímann af 27 skráð-
um keppendum.
Leikmennirnir sem hafa ákveðið
að skipta yfir í Fylki eru; Gylfi
Birgisson, sem lék áður með IBV
og Stjörnunni og síðast með norska
liðinu Bodö/Glimt, Sebastian Alex-
andersson, markvörður úr ÍR, Pétur
Petersen, hornamaður úr FH og
bosnískur leikmaður sem lék með
HK í fyrra og Magnús Baldvinsson
úr KR. Þjálfari Fylkis er Haukur
Ottesen
„Það er engin launung að mark-
miðið er að vera komnir með liðið
okkar í 1. deild þegar íþróttahúsið
verður tilbúið hér í Árbæ á næsta
ári,“ sagði Gunnar Baldursson, for-
maður handknattleiksdeildar Fylkis.
Helgi aftur í Víking
Hornamaðurinn Helgi Bragson,
sem lék með ÍBV sl. vetur, hefur
ákveðið að leika með Víkingum í
vetur. Helgi var hjá Víkingi áður en
hann fór til ÍBV.