Morgunblaðið - 14.08.1994, Page 2

Morgunblaðið - 14.08.1994, Page 2
2 C SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1994 MORGUNBLAÐIÐ Buick Riviera með bogadregnar línur. SÖMU bogaformin er allsráðandi inni í bílnuni Glæsilegur Buick Riviera BÍLAIÐNAÐUR í Bandaríkjun- um er blómlegur um þessar mundir og stærri bílaframleið- endur þar í landi sýna methagn- að. Sjaldan hafa fleiri nýir bílar litið dagsins ljós þar vestra eins og síðustu misseri og nýlega var kynnt ný útfærsla af tveggja dyra amerískri glæsikerru, Buick Riviera. Bíllinn er með svokallaðri „cab-forward“ hönn- un sem er allsráðandi í stærri bílum. Framrúðan hallar meira en áður og hjól eru höfð sem næst endum bílsins en með þessu næst meira farþegarými en ella. Riviera er stórglæsilegur bíll að utan sem innan og í Bandaríkj- unum kostar grunngerðin tæpar tvær milljónir ÍSK. Buick Riviera er ekki nýr af nálinni og hefur verið framleiddur allt frá 1963. Bíllinn er allur mjög bogadreginn og varla flata málm- pjötlu á honum að finna. Bíllinn Meðal staðalbúnaðar má nefna vökva- og veltistýri, rafstýrða glugga, sæti og hurðarlása og skriðstilli. ■ hvernig þungi ökumanna dreifist í sætinu og þau eru gerð úr leðri. Aftursætin eru þægileg og nægi- lega rúmgóð fyrir tvo fullorðna. Bíllinn er fram- hjóladrifinn búinn nýjustu gerð af V-6 vél Buick með for- þjöppu sem skilar 225 hestöflum. Hann er með fjögurra þrepa sjálfskiptingu. er laus við allt prjál eins og króm og það er aðeins að finna í grillinu, við hliðargluggana og í kringum afturlugtirnar. Að innan er allt því sem næst nýtt nema hvað hönnuð- ir hafa haldið í bogadregna innrétt- inguna sem nær út á hurðir bíls- ins. Á hinn bóginn er mælaborðið einfaldara af gerð og mun prjál- lausara en í fyrirrennurunum. Sæt- in voru hönnuð að undangengnum viðamiklum rannsóknum á því Á ISLAMPi LgJX Packard 180 árgerð 1941 PACKARD var á fyrri hluta aldarinnar einn af glæsilegustu og dýrustu bílum heims og eru þeir í dag glæsilegir minnisvarðar um gullaldarár bandarískrar bílafram- leiðslu. Voru þeir ósjaldan notaðir af þjóðhöfðingjum, m.a. af ríkis- stjóra íslands og forsetum til fjölda ára. í dag fínnast sárafáir Packard- bílar á íslandi og sá sem litið verð- ur á í þessari grein er sá eini sem minnir á þann opinbera bíl sem hæst bar í glæsileik, en það var Packard Sveins Bjömssonar ríkis- stjóra frá árinu 1942. Árið 1899 hófu bræðurnir James og William Packard framleiðslu á bílum í Ohio-fylki í Bandaríkjun- um. Nokkru síðar var fyrirtækið flutt til Detroit og nefnt Packard Motor Car Company. Árið 1912 var Packard orðið eitt framsækn- asta bílafyrirtæki Bandaríkjanna, en það ár kom fyrsta sex strokka vél fyrirtækisins á markaðinn. Þremur árum síðar sló svo Pack- ard-fyrirtækið út V-8 vélina frá Cadillac með V-12 vél og var um leið komið í fremstu röð bílafram- leiðenda. Á þessum árum ein- kenndist framleiðslan af lúxusbíl- um fyrir auðmenn og þjóðhöfð- ingja. Þegar heimskreppan mikla skall á árið 1929 dró úr sölu slíkra bíla og árið 1935 neyddist Packard til að framleiða sex strokka meðal- stóra bíla af gerðunum 110 og 120. Samhliða voru framleiddir stærri bílar af gerðunum 160 og 180 og voru þeir knúnir átta og jafnvel tólf strokka vélum. Á árun- um eftir síðari heimsstyijöld fór veldi Packard hægt og rólega hnignandi og árið 1958 var fram- leiðslu þessara merkilegu bíla hætt. Árið 1932 flutti Helgi Lárusson frá Kirkjubæjarklaustri inn fyrsta Packard-bílinn frá Bretlandi. Um var að ræða notaðan bíl af árgerð 1928 sem seldur var íslenska rík- inu. Skömmu síðar tryggði Helgi sér einkaumboð fyrir Packard á íslandi í samvinnu við Berg bróður sinn. Hófu þeir innflutning á Pack- ard-bílum, bæði notuðum og nýjum. Nýstofnað embætti ríkisstjóra ís- lands festi kaup á nýjum Packard 180 árið 1942 og fylgdi hann Sveini Björnssyni áfram í forsetaembættið árið 1944. Geymdur lengi á KorpúlfsstöAum Austur á Selfossi er í dag að finna Packard 180 af árgerð 1941. Var hann fluttur inn notaður frá Banda- ríkjunum árið 1946 af Geir Páls- syni, sem þá var búsettur í Gijóta- þorpinu í Reykjavík. Fékk bíllinn skrásetningarnúmerið R-2100 sem hann bar allt fram til ársins 1963 er honum var lagt. Ekki fer mörgum sögum af þessum bíl á þeim tæp- lega 20 árum sem hann var í dag- legri notkun, nema hvað að hann var aldrei notaður sem atvinnubíll. Garðar Briem lögfræðingur eignað- ist bílinn árið 1971 eftir að hafa séð hann í skúr við Elliðavatn, en þar hafði bíllinn verið geymdur síð- an 1963. Ætlaði Garðar sér að vernda bílinn og nota við hátíðleg tækifæri. Tíðar vélarbilanir gerðu það hins vegar að verkum að lítið varð úr notkun og fór svo að bílnum var komið fyrir í geymslu á Korp- úlfsstöðum þar sem hann dapraðist Morgunblaðið/Ámi Sæberg PACKARD árgerð 1941 í eigu Emils Guðjónssonar. Bíllinn er af Sedan Touring-gerð, er átta manna, yfir fimm metrar á lengd og vegur á þriðja tonn. INNRÉTTING bílsins er hin vandaðasta. Bíl- sljórarýmið, sem aðskilið er frá farþegarým- inu með gleri, er klætt með leðri og viði. §11 Wm: tíh 1 wm 'M ÞEGAR skyggnst er í vélarsalinn blasir við stór átta strokka línuvél, 356 kúbika, sem afkastar 160 hestöflum. nokkuð. Fyrir fimm árum festi Emil Guðjónsson á Selfossi kaup á bílnum og hefur síðan unnið að endurbótum á honum. Að mörgu er að hyggja þegar slíkur eðalvagn er endurbyggður. Bíllinn, sem er af Sedan Touring-gerð, er átta manna, yfir fímm metrar á lengd og vegur á þriðja tonn. Innrétting bílsins er hin vandaðasta. Bílstjóra- rýmið, sem aðskilið er frá farþega- rýminu með gleri, er klætt með leðri og viði. Aftur í eru vistarverur allar hinar glæsilegustu. Sæti, toppur og hliðarspjöld eru klædd með fínasta plussi og allir gluggalistar eru úr viði. Aukastólar eru tveir og er þeim smellt upp að þilinu er aðskil- ur farþegana frá bílstjóranum. Þeg- ar skyggnst er í vélarsalinn blasir við stór átta strokka línuvél, 356 kúbika, sem afkastar 160 hestöfl- um. Hjá nágrönnum okkar og frænd- um Norðmönnum og Svíum er enn að finna eðalvagna sem þennan í eigu þjóðhöfðingja og eru þeir jafn- an notaðir þegar tigna gesti ber að garði. Er ólíkt virðulegra að sjá slíka vagna við hátíðleg tækifæri, en nýja bíla, jafnvel þó af dýrustu gerðum séu. Örn Sigurðsson MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1994 C 3 SIGURVEGARI Auto, motor und sport, BMW 740i. Besti bíll í heimi? ÞÝSKA bilablaðið Auto, motor und sport framkvæmdi í júlíhefti sínu gagngera skoðun á þremur þýskum eðalbifreiðum, Mercedes- Benz S 420, BMW 740i og hinum nýja ál-Audi A8 4,2. Blaðið komst að þeirri niðurstöðu að BMW væri besti bíllinn af þremur góðum. Breska bílablaðið Car gerði sams- konar könnun í júlíhefti sínu og bætti auk þess Jaguar XJ 12 við, og þar var Audi A8 útnefndur besti bíll í heimi. Bílamir sem hér um ræðir eru allir með 8 strokka vélum en Audi sker sig úr að því leyti að hann er með sítengdu fjórhjóladrifí. Hest- aflafjöldinn er mestur í Audi, 300 við 6.000 snúninga á mínútu, 286 í BMW við 5.800 snúninga á mínútu og 279 í Mercedes-Benz við 5.700 snúninga á mínútu. Audi A8 er með fjögurra þrepa sjálfskiptingu og fjórhjóladrifi en bæði BMW og Mercedes eru aftur- hjóladrifnir, BMW með fimm þrepa sjálfskiptingu og Mercedes-Benz fjögurra þrepa. Tæknileg bylting Grípum niður í umsögn Car. „Kæri menn sig um raunverulegt forskot, tæknilega byltingu, þá verða þeir að líta á sigurvegarann, Audi A8. Audi A8 er ekki mikið frábrugðinn litla bróður sínum, A6, í útlitshönnun, þótt hann sé mun nútímalegri og heilsteyptari en keppinautamir (Mercedes-Benz og BMW). RAK lestina, Mercedes-Benz S420. skotið er fólgið í efnislegum eigind- um hönnunarinnar, álblöndunni. Markmiðið að baki þessari fag- mennsku er að draga úr þyngd bíls- ins. Markmiðinu er náð því Audi A8 er umtalsvert léttari en keppinaut- arnir. Þó er hann ekki eins léttur og við hefði mátt búast og skýrist það af aldrifsbúnaði bílsins sem um leið er mun betri lausn varðandi ör- uggt veggrip en keppninautarnir bjóða upp á. Með fjórhjóladrifinu öðlast Audi einnig frábæran stöðugleika sem bíllinn nýtir sér með nákvæmum og ömggum stýrisbúnaði. A8 er einnig fljótastur af bílunum sem bomir vom saman. Hin afar þýða og kraftmikla V8 vél Audis er hljóðlátari en V8 vél BMW,“ segir í Car. Tímaritið er einnig á því að Audi A8 sé fallegast- ur bílanna í samanburðinum en BMW hafí vinninginn í þægilegum sætum. Hins vegar hafi Audi í einu risa- stökki stungið af þijá stórkostleg- ustu bíla sem framleiddir hafi verið. A8 sé besti bíll í heimi. ■ En Sigurvegari Car, Audi A8. QXD BMW sjónarmun á undan 1 Vagngrind Ökutæki Audi Rými 16 Farangursrými 14 Umgengni 15 Útbúnaður 18 Gæði 18 Samtals (hámark 100 stig) 81 2 Akstursþægindi Ökutæki Audi Fjöðrun 14 Sæti 17 Loftræsting 18 Mælaborð 18 Hljóðeinangrun 18 Samtals(hámarklOOstig) 85 BMW 18 14 16 19 19 86 BMW 19 20 19 19 19 96 M.Bens 20 16 18 18 20 92 M.Bens 19 19 20 19 20 97 Ökutæki Audi BMW M.Bens Þýðleiki 19 18 19 Afköst 20 18 17 Aflflutningur 19 17 18 Hröðun 18 17 16 Fjaðurmagn 20 20 20 Samtals (hámark 100 stig) 96 90 90 Ökutæki Audi BMW M.Bens Hegðun í beygjum 19 18 15 Vindviðnám 18 18 20 Stjórnun/meðfærileiki 17 20 17 Viðnám hjóla 20 15 16 Hemlar 19 18 16 Samtals (hámark 100 stig) 93 89 84 1 5 Oryggisbúnaður og umhverfi f Ökutæki Audi BMW M.Bens Endurvinnanleg efni 18 18 16 Útblástur og eyðsla 17 17 15 Vind- og vegahljóð 20 19 18 Öryggisatriði að innan 18 18 18 Öryggisatriði að utan 19 19 20 Samtals (hámark 100 stig) 92 91 87 ■ 6 Hagkvæmni WMEMM Ökutæki Audi BMW M.Bens Verð 18 18 15 Endursala 13 15 15 Viðhaldskostnaður 15 15 13 Viðgerðir/ábyrgð 14 13 13 Eldsneytiskostnaður 18 18 18 Samtals (hámark 100 stig) 78 79 74 I SAMTALS Ökutæki Audi BMW M.Bens Samtals (hámark 600 stig) 525 531 524 Úr umferðarlögum Ljósanotkun. 32. gr. VIÐ akstur vélknúins ökutækis skulu lögboðin ljós eða önnur viðurkennd ökuljós jafnan vera tendruð. Við akstur í myrkri eða ljósaskiptum eða þeg- ar birta er ófullnægj- andi vegna veðurs skulu lögboðin ljós vera tendruð til þess að ökumaður sjái nægilega vel fram á veginn og aðrir vegfarendur sjái ökutækið. Nota skal háan Ijósgeisla þegar sjónsvið ökumanns nægir annars ekki til að aka örugglega miðað við aðstæður. Háan ljósgeisla má eigi nota: Þegar ekið er um nægilega vel lýstan veg. Þegar ekið er á móti öðru öku- tæki, þannig að valdið geti öku- manni þess glýju. Þegar ekið er svo skammt á eftir öðru ökutæki að valdið geti ökumanni þess óþægindum. Nota skal lágan ljósgeisla þegar ekki er skylt eða heimilt að nota háan ljósgeisla. í þoku, þéttri úr- komu eða skafrenningi má nota þokuljós í stað eða ásamt lágum ljósgeisla. Hjálparljós má eigi nota til annars en þau eru ætluð. Eigi má nota annan ljósabúnað eða glit- merki en boðið er eða heimilað í lögum þessum eða reglum settum samkvæmt þeim. Ökuhraðl. 38. gr. Okuhraði hópbifreiðar sem er meira en 3.500 kg að leyfðri heild- arþyngd má aldrei vera meiri en 90 km á klst. Ökuhraði annarra bifreiða sem eru meira en 3.500 kg að leyfðri heildarþyngd má aldrei vera meiri en 80 km á klst. Ökuhraði bifreiðar með eftirvagn eða skráð tengitæki má aldrei vera meiri en 70 km á klst. Öku- hraði bifreiðar með annað tengi- tæki má aldrei vera meiri en 50 km á klst. Nýjum Polo spáð harðri samke VOLKWAGEN hyggst setja nýj- an Polo á markað í október og sérfræðingar telja hann meiri kjarakaup en fyrirrennara hans. Þessi minnsti bíll Volkswagens mun hins vegar mæta harðri sam- keppni frá töluverðu úrvali af öðrum smábílum, sem eru um 30% þeirra bíla sem seldir eru í Evrópu. Keppi- nautar eins og Ford Fiesta, Ópel Corsa, Renault Clio og Fiat Punto hafa þegar unnið sig í áliti. VW hætti að framleiða gamla Polo í apríl, 19 árum eftir að fram- leiðslan hófst, og á þeim tíma seld- ust 3.8 milljónir bíla af þeirri gerð. Nýi bíllinn hefur fengið góða dóma í Auto Motor und Sport og fleiri þýzkum bifreiðatímaritum. Verðið er 18,295 mörk eða 11,620 dollarar, lítið eitt hærra en á gömlu gerðinni. Vökvastýrl og ABS Polo er fjögurra dyra, með vökva- stýri, ABS-hemlum, loftkælingu og sams konar öryggisbúnaði og Golf, sem hann líkist í útliti. „Þar sem VW hefur farið halloka í samkeppni við Opel, Renault og Fiat er kominn tími til að gefa kost á litlum Golf,“ sagði bílatímaritið MOT. spá því að muni hagnast vel á Polo vegna nið urskurðar á fram- leiðslukostnaði. aðallega framleiddur á Spáni og verður því ekki dýr í framleiðslu,“ sagði einn sérfræðingurinn. „Grind- in er ekki ósvipuð og í Seat Ibiza og það mun hafa nokkurn sparnað í för með sér.“ VW hótaði að flytja framleiðslu sína úr landi, ef þýzkir starfsmenn fyrirtækisins samþykktu ekki að smíði Polos yrði ekki dýrari en á Spáni. Niðurskurður umdeilds fram- leiðslustjóra VW, Jose Ignacio Lopez di Arriortua, er einnig farinn að skila árangri að sögn sérfræð- inga. Framleiðsla á nýja bílnum er haf- in i aðalverksmiðju Volkwagens í Wolfsburg í Þýzkalandi og í Pampl- Nýr Polo á markað í október. ona á Spáni. í fyrstu er ætlunin að framleiða 300 bfla á dag í Þýzka- landi og 900 í Pamplona. VW segir að mikil eftispurn sé eftir nýja bílnum og hægt verði að auka > framleiðsluna í Wolfsburg í 500 bíla á dag ef með þurfí. Sérfræðingar telja að seldir verði 300,000 bílar af nýju gerðinni á ári, rúmlega 50% fleiri en af gömlu gerðinni, og að hlutdeildin á smá- bílamarkaðnum í Evrópu verði um 10%. ■

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.