Morgunblaðið - 14.08.1994, Page 4
4 C SUNNUDAGUR 14. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
-i
Kraftmeiri og endur-
bættur Ladu Sport
LADA SPORT á sér orðið nokkuð langa sögu á íslenskum
bílamarkaði og lengst af eða í meira en áratug hefur hann
verið lítið sem ekkert breyttur en fyrst kom hann til lands-
ins í febrúar árið 1978. Minni háttar breytingar hafa þó
verið gerðar og nú er hann kominn með stærri vél, 1,7
lítra sem er 84 hestöfl, farangursrými er stærra og ýmis-
legt annað smálegt hefur breyst. Byggingin er þó að öllu
leyti hin sama, Lada Sport er áfram fjögurra manna,
tveggja hurða bíll með sítengdu aldrifi og háu og lágu
drifi, sem sagt ósköp venjulegur jeppi. Hann er þó í sér-
flokki meðal jeppa hvað varðar verðið því hann kostar 878
þúsund krónur sem er talsvert mörgum hundruðum þús-
unda lægra en þeir jeppar sem næst komast. Lada Sport
er reyndar líka nokkuð sér á parti hvað varðar ýmsan
aðbúnað ökumanns og farþega þar sem ekki er verið að
reyna að bjóða of mikil þægindi sem hleypa myndu verð-
inu upp. En við skoðum kosti hans og galla hér á eftir.
Útlit Lada Sport er enn í litla lipurð að komast í aftursætið
^ meginatriðum það sama og þar sem Sportinn er bara tveggja
verið hefur frá upphafi en
helstu breytingamar eru á
aturendanum á luktum og
afturhleranum sem nær orð-
S3 ið lengra niður. En bíllinn
er áfram stuttur og fremur
kubbslegur en með örlítið
ávölum hornum. Rúður em
stórar, luktir sömuleiðis
stórar og g óðar og stuðarar
mjög fínlegir. Bíllinn kemur
á 16 þumlunga felgum og
segja má að Lada Sport hafí allt-
af verið furðu verklegur á velli
og sæmilega traustvekjandi þótt
stuttur sé. Bíllinn er hins vegar
ekki byggður á grind og er vakin
sérstök athygli á því af hálfu
seljanda að rétt er að hafa það í
huga t.d. ef draga þarf annan bíl
að hann sé þá ekki þyngri en
Sportinn sem vegur rúm 1.100
kg.
Smábreytingar að innan
Að innan má einnig greina
breytingar á sjálfri innréttingunni
og nú eru sætin komin með ull-
aráklæði í stað gamla plastsins
sem er mikil bót. Ekki er þó beint
hægt að hrópa húrra fyrir öku-
mannssætinu. Þar situr ökumað-
ur of lágt og getur ekki komið
sér nógu þægilega fyrir við stýrið
en ástæðan er meðal annars sú
að mælaborðið er heldur hærra
en verið hefur. Þetta er megin-
galli á bílnum. Rými er þó ágæt-
lega þokkalegt og í aftursætum
geta tveir farþegar haft það
sæmilegu gott en það kostar dá-
hurða en nú renna framsætin
aðeins fram þegar bakinu er hall-
að til að komast í aftursæti. Aft-
urhlerinn er stór og mikill og
aðeins opnanlegur innan frá, með
handfangi sem reyndar er stað-
sett nokkuð undarlega, á innri
hliðinni við aftursætið, rétt aftan
við bílstjórasætið og þarf dálítið
hugmyndafiug eða leit til að finna
það. En það verður kannski að
hafa eitthvað til að koma mönn-
um á óvart í Lada Sport. En hler-
inn er stór og góður og umgang-
ur um farangursrýmið auðveld-
ari, það orðið dálítið stærra og
yfir þvi er hlíf sem var ekki áður.
Stærri vél
Vélin er helsta endurbótin í
Lada Sport að þessu sinni. Hún
er orðin heldur stærri, 1690
rúmsentimetrar og 84 hestöfl en
er áfram fjögurra strokka. Þetta
er ágætlega rösk vél og mun
drýgri en sú eldri þótt tölurnar
sýni ekki stórkostlega stækkun.
Viðbragðið verður aldrei til að slá
nein met enda tekur heila 21 sek-
úndu að ná 100 km hraða úr
kyrrstöðu og hámarkshraðinn er
uppgefmn 132 km á klst. Lada
Sport er heldur ekki ætlað að
taka þátt í kappakstri eins og
vart þarf að taka fram.
Lada Sport er búinn fímm gíra
handskiptingu og háu og lágu
drifi og síðan er hægt að velja
hvort drif er læst eða ekki.
Búnaður millikassans hefur nokk-
uð verið endurbættur og tekist
Morgunblaðið/jt
HELSTA útlitsbreytingin er á afturhleranum og luktunum
en að öðru leyti er byggingarlagið nánast hið sama.
Lada Sport
i hnotskurn
Véls 1.690 rúmsentimetrar,
fjórir strokkar, 84 hestöfl.
Sítengt aidrif - hátt og lágt drif
- driflæsing.
Fimm gíra handskipting.
Hámarkshraði 132 km/klst.
Hröðun úr kyrrstöðu í 100 km
tekur21 sekúndu.
Lengd: 3,72 m.
Breidd: 1,68 m.
Hæö undir lægsta punkt:
22 cm.
Felgustærð: 16 þumlungar.
Þyngd: 1.160 kg.
Burðargeta 439 kg.
Hámarksþungi aftanívagns má
vera 1.490 kg.
Bensíneyðsla í bæjarakstri 14,1
1 og 10,8 á jöfnum 90 km hraða.
Stærð bensíntanks: 45
iítrar.
Staðgreiðsluverð kr.:
878.000.
Umboð: Bifreiðar og landbún-
aðarvélar, Reykjavík.
SÆTIN eru ekki nógu þægileg þrátt fyrir ull-
aráklæðið - ökumaður situr of lágt við stýrið.
hefur að draga svo til alveg úr
titringi sem oft kom fram þegar
tekið var af stað. Gírskiptingin
er sæmilega lipur en ekkert meira
en það og nokkurn tíma þarf til
að venjast henni eins og raunar
allri meðhöndlun bílsins.
Ekki verður sagt að Lada Sport
grípi ökumanninn fyrir lipurð eða
liðlegheit. Hann er í raun allt að
því dálítill traktor, frekar stirður
í allri meðhöndlun og nokkuð
hávær hvinur er frá gírverkinu
ekið er á langkeyrslu. Stýr-
r orðið léttara eins og um-
boðið segir í upplýsingum sín-
og víst er það rétt en
létt er það samt
ekki.
FARANGURSRÝMI er orðið heldur aðgengi-
legra með stærri hlera.
fáanlegur með
kraftmeiri vél.
Veróió
Fjöórun
Hóvær
Þunguri
stýri
Best væri með öðrum orðum að
fá bílinn með vökvastýri og myndi
það auka iipurð hans til muna.
Fyrir það þyrfti að greiða um 150
þúsund krónur en með léttistýrinu
sem fáanlegt er frá Frakklandi
og boðið hefur verið myndi verðið
hækka um 50 þúsund krónur
og má hiklaust ráðleggja
mönnum að kosta því til.
Á heimavelli á fjallvegum
í bæjarakstri er Lada
Sport ekki iipur sem
snúningabíll og bensin-
eyðslan þar er talin
rúmir 14 lítrar á
Hann er þó
stuttur og vandalaust að
leggja en hliðarspeglar
mættu þó vera dálítið stærri,
þeir eru eiginlega tíkarlega litlir.
Það er hins vegar á malarvegi
og jeppavegum sem Lada Sport
er helst á heimavelli. Þar nýtur
sín ágætlega mjúk gormafjöðrun-
in sem tekur vei við hvers konar
ójöfnu yfirborði. Bílnum hættir
þó til að rása örlítið ef þvotta-
brettin gerast of löng en venju-
iega er hann ágætlega rásfastur.
En á slíkum vegum fínnur öku-
maður ekki að hann vanti þetta
eða hitt í þægindum eða jafnvel
prjáli sem dýrari bílar hafa nóg
af. Lada Sportinn nær því ágæt-
lega tilgangi sínum ef menn
kaupa hann einkum til ferðalaga
á fjallvegum og til að vera örugg-
ir um að komast ferða sinna í
ófærð á ágætlega fótvissum al-
drifsbíl. í þjóðvegaakstri, á jöfum
90 km hraða, er hann sagður
eyða nærri 11 lítrum á hundraðið.
Gott verð
Verðið á Lada Sport er kr. 878
þúsund miðað við staðgreiðslu.
Ljóst er að jeppar gerast varla
ódýrari. Jafnljóst er að fyrir þetta
verð fá menn ekki allt sem hugur-
inn girnist og verða að láta sig
hafa eitt og annað sem menn
myndu gjarnan kjósa að væri
öðruvísi. Mikið væri til dæmis
fengið með vökvastýri. En eins
og áður segir þjónar Lada Sport
best tilgangi sínum á grófum
vegum enda skýrir það að nokkru
vinsældir hans víða um land
gegnum árin og munu nú vera
til nokkuð á þriðja þúsund Lada
Sport í umferð. Vilji menn ódýran
aldrifsbíl til að komast öruggir
ferða sinna og til að fara á fjöll
þá er Lada Sport einn af örfáum
kostum. ■
Jóhannes Tómasson