Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 17. ÁGÚST 1994 C 3
KNATTSPYRNA
íslendingar unnu stórsigur á Eistum í knattspyrnulandsleik á Akureyri í gærkvöldi. Þorvaldur Örlygsson gerði þrennu ífyrri hálfleik
Góður sigur og
síst of stór
FJÖGURRA marka sigur i'lands-
leik í knattspyrnu þykir yfirleitt
mjög gott. Það var líka ágætt
hjá íslenska liðinu að vinna Eist-
lendinga 4:0 á Akureyrarvelli í
gærkvöldi, en tölurnar gefa að-
eins til kynna yfirburði. I raun
var nánast um einstefnu að
ræða, því mótstaðan var vægast
sagt lítil og þess vegna hefði
sigurinn getað orðið enn stærri.
En strákarnir létu sér nægja
þrennu Þorvaldar ífyrri hálfleik
og fyrsta mark Þórðar í A-lands-
leik, sem hann gerði skömmu
eftir hlé.
Ovenjulegt er að fara í landsleik
án þess að vita nokkuð um
mótheijana, en það var hlutskipti
■■■■■■ íslendinga í gær-
Steinþór kvöldi. Þeir vissu
Guðbjartsson Samt að Eistlendingar
skrifar hafa ekki verið að
gera stóra hluti og
varla líklegir til stórræða. Því var
dagsskipunin að sækja til sigurs, eins
og reyndar að er stefnt í heimaleikj-
um komandi Evrópukeppni, og stillti
Ásgeir landsliðsþjálfari upp þremur
mönnum á miðjunni og jafn mörgum
í fremstu víglínu. Leiksskipulagið
gekk upp og á stundum tóku varnar-
mennirnir virkan þátt í sókninni, en
þrátt fyrir gott spil oft á tíðum og
sendingar fyrir markið tókst ekki
nærri alltaf að setja punktinn yfir i-ið.
Leikskipulagið gekk upp
Greinilegt var að Eistlendingar
óttuðust Bjarka og Eyjólf og voru
þeir með „yfirfrakka“ á sér nær allan
fyrri hálfleik. Þeir svöruðu þessu
skynsamlega, ýmist rifu sig lausa og
tóku virkan þátt í spilinu, einkum
Bjarki, eða opnuðu svæði, sem Þor-
valdur var iðnastur við að nýta sér.
Þegar þetta gekk upp var Arnór einn-
ig mjög virkur á hægri kantinum og
var ekki á honum að sjá að meiðsl
torvelduðu honum verkið. Hins vegar
voru sóknirnar ekki eins markvissar
í seinni hálfleik, þó spilið upp kant-
ana væri oft gott, og undir lokin var
Ijóst að menn voru sáttir við það sem
orðið var.
íslendingar hafa oft leikið gegn
lakari liðum án þess að ná algerum
yfirburðum, en að þessu sinni sýndu
þeir hvar valdið var og gáfu aðeins
einu sinni höggstað á sér — skömmu
eftir fyrsta markið hleyptu þeir mót-
heijunum í gegn, en Birkir var réttur
maður á réttum stað í markinu og
varði vel. Annars reyndi lítið á Birki
og hann gerði engin mistök.
Ákveðnir og öruggir
Vörnin var örugg og var gleðilegt
að sjá hvað Guðni var yfirvegaður,
en hann hefur ekki leikið með landsl-
iðinu síðan gegn Lúxemborg í fyrra.
Sigursteinn gaf sér tíma til að fínna
samheija, en eftir að hann fann réttu
leiðina var hann ákveðinn, gaf ekk-
ert eftir og tók virkan þátt í sókn-
inni, þegar færi gafst til. Arnar stóð
sig vel í hægri bakvarðarstöðunni og
Kristján þurfti ekki að hafa neinar
áhyggjur.
Þorvaldur var geysilega skemmti-
legur á miðjunni, snöggur að átta sig
á hlutunum og öryggið uppmálað í
teignum. Hlynur og Olafur voru fastir
fyrir og komust mótheijarnir ekki
framhjá þeim, en þeir voru af og til
of ákafir í sókninni og sendingamar
hefðu stundum mátt vera betri.
Framlínumennimir Arnór, Eyjólf-
ur og Bjarki vora mjög öflugir í fyrri
hálfleik. Þeir sköpuðu mikla hættu
og gátu nánast gert það sem þeir
vildu.
Allir varamennirnir fengu tækifæri
og þó þeir væru stutt inn á komust
þeir allir strax í snertingu við leik-
inn. Með öðram orðum, þá komu leik-
menn til leiks að þessu sinni staðráðn-
ir í að sigra og samhentum og sam-
stilltum tókst þeim ætlunarverkið.
Hinu má ekki gleyma að mótstaðan
var lítið, en hver landsleikur telur og
þetta var góð æfing fyrir komandi
átök. Hins vegar segir frammistaðan
fátt um það sem koma skal af fyrr-
greindum ástæðum. Því er hvorki
REYKJAVIKURMARAÞON
Reykjavíkurmara-
þonið á sunnudag
ELLEFTA Reykjavíkurmaraþon-
ið verður haldið á sunnudaginn
og hefst kl. 11 árdegis í Lækjar-
götu. Búist er við svipuðum
fjölda keppenda og ífyrra en
þó má búast við fleiri keppend-
um í skemmtiskokki.
Hlauparar geta valið um fjórar
vegalengdir, maraþonhlaup
(42,2 km), hálfmaraþon, 10 km og
3ja km skemmtiskokk. Skemmti-
skokkið og 10 km er öllum opið en
ti! að keppa í hálfmaraþoni verða
menn að vera orðnir 16 ára og 18
ára til að hlaupa maraþonið. Boðið
er uppá þriggja manna sveitakeppni
í öllum vegalengdum nema maraþon-
inu.
Síðasti skráningardagur er á
föstudaginn og er fólk hvatt til að
skrá sig tímanlega til að komast hjá
biðröðum síðasta daginn eins og
gerst hefur undanfarin ár. Keppend-
ur fá afhent keppnisgögn í bíla-
geymslu Ráðhússins daginn fyrir
hlaupið, á laugardaginn milli kl. 11
og 17.
Sama dag milli klukkan 14 og 18
verður pastaveisla í stóra tjaldi sem
reist verður á bílastæði Alþingis og
þar er gott að koma, því pasta er
gott daginn fyrir erfítt hlaup.
Að sögn forráðamanna hlaupsins
er búist við svipuðum fjölda erlendra
hlaupara og undanfarin ár. Meðal
þeirra sem munu blanda sér í topp-
sætin eru eflaust Bretinn Hugh Jo-
nes sem sigraði í fyrra og Toby
Tanser mun freista þess að ná titlin-
um af honum.
Kim Marie Goff frá Bandaríkjun-
um verður að teljast líklegust til
afreka í kvennaflokki en hún hefur
hlaupið á 2:42.43 klukkustundum í
sumar. Þess má til gamans geta að
hún á ættir sínar að rekja til Is-
lands. Martha Ernstsdóttir ætlar að
hlaupa hálft maraþon og ætti hún
að eiga góða möguleika á að bæta
brautarmetið þar því hún er í mik-
illi æfingu þessa dagana.
ástæða til háloftagangs né draumóra,
en sigur er sigur og hann er alltaf
af hinu góða.
1:0!
iA 18. mínútu leiksins
'náðu íslendingar
boltanum af Eistlendingum.
Arnór Guðjohnsen gaf frá hægri
þvert yfír til vinstri þar sem
Eyjólfur Sverrisson fékk bolt-
ann. Hann gaf strax fyrir mark-
ið þar sem Þorvaldur Örlygs-
son var á auðum sjó og skoraði
af stuttu færi.
2m J%íslendingar
■Vi
náðu
’gagnsókn á 39. mín-
útu. Bjarki Gunnlaugsson gaf
fyrir markið frá vinstri og Þor-
valdur Örlygsson átti ekki í
vandræðum með að skora.
3B^%Enn snéru íslending-
■ %#ar vöm í sókn á 43.
mínútu. Bjarki Gunnlaugsson
gaf á Eyjólf Sverrisson, sem
stakk inn á Þorvaldur Örlygs-
son frá vinstri og hann skaut
knettinum milli fóta markvarð-
arins.
4H^\Risto Kallaste ætlaði
■ ^#að gefa aftur á mark-
vörð Eistlendinga á 54. mínútu,
en markvörðurinn missti boltann
frá sér, Þórður Guðjónsson var
snöggur að átta sig, náði hon-
um, lék á markvörðinn og skor-
aði af öryggi í autt markið.
Morgunblaðið/Bjöm Gislason
Þórður Guðjónsson í þann mund að skora fjórða mark íslands og sitt fyrsta mark í A-landsleik.
Ásgeir tiKölulega sáttur
Asgeir Elíasson, landsliðsþjálfari
íslands, var ánægður með
sigurinn. „Eg er tiltölulega
sáttur við sigurinn og leikinn, eink-
um í fyrri hálfleik. Við nýttum sum
færin ágætlega, en misstum boltann
stundum klaufalega frá okkur og
þá vegna þess að við flýttum okkur
of mikið, tókum of mikla áhættu.
Sóknarleikurinn var oft ágætur, en
okkur tókst ekki alltaf að klára
dæmið.“
Gagnsóknirnar vora hættulegar
og sagði Ásgeir það ánægjulegt með
KNATTSPYRNA / MJOLKURBIKARKEPPNIN
Undanúrslit í bikarkeppni KSÍ fara fram í kvöld kl. 18.00
Þjálfaramir spá baráttu
framhaldið í huga. „Ég á von á því
að sterkari lið sæki meira gegn okk-
ur og þá eigum við meiri möguleika
á að snúa vörn í sókn. Því var
ánægjulegt að sjá hvernig okkur
tókst að vinna boltann og nýta
möguleikana sem þá gáfust. Hins
vegar var vörnin svolítið óstöðug til
að bytja með og við vorum heppnir
að fá ekki á okkur mark í fyrri hálf-
leik, en þetta lagaðist fljótt.“
UNDANÚRSLIT bikarkeppni KSI fara fram í kvöld og hefjast kl.
18. Þá mætast Stjarnan og Grindavík í Garðabænum og KR og
Þór leika í Frostaskjólinu. I viðtölum við þjálfara liðanna kemur
fram að þeir búast við miklum baráttuleikjum.
Grindavík og Stjarnan hafa ekki
fyrr náð eins langt í bikar-
keppninni, en staða liðanna er
með ólíkum hætti. Stjaman er í fall-
sæti í 1. deild, en Grindavík er efst
í 2. deild.
Spennandi fyrir Stjömuna
Stjarnan er í fallsæti í 1. deild,
en Sigurlás Þorleifsson, þjáifari, seg-
ir að mikið sé í húfi og sigur geti
skipt sköpum. „Það yrði mikil lífs-
reynsla fyrir strákana að komast í
úrslitaleikinn auk þess sem það rifi
okkur upp og þá kæmum við til með
að sjá fram á bjartari tíma.“
Sigurlás sagðist stilla upp sterk-
asta liði. „Fjórir til fimm menn hafa
verið fjarverandi í hveijum leik, leik-
menn, sem áttu að bera liðið uppi
og styrkja okkur í baráttunni. En
þrátt fyrir áföll eigum við jafna
möguleika og ég hef trú á liðinu.
Við höfum alla burði til að sigra.
Hins vegar ber þess að geta að
Grindavík hefur gengið allt í haginn,
liðið hefur deildina og allt annað er
bónus og gaman. Þetta er hörkulið,
góður mannskapur og leikmenninir
spila fullir sjálfstrausts, en við ætlum
okkur áfram.“
Lúkas bjartsýnn
Grindvíkingar hafa verið sigursæl-
ir að undanförnu og sagði Lúkas
Kostic, þjálfari, að árangur liðanna
í sumar gæti haft tnikið að segja.
„Ég á von á að þetta verði mikill
baráttuleikur og hörð viðureign, en
það hefur sitt að segja að Stjarnan
er aðeins með einn sigur í 1. deild
auk bikarsigranna, en við erum mun
vanari sigram en töpum, níu sigrar
í 2. deild og svo árangurinn í bikarn-
um. Með þetta í huga hef ég trú á
að við förum áfram.“
Grindvíkingar verða án tveggja
lykilmanna. Sigurður Sigursteinsson
er í banni og Björn Skúlason fót-
brotnaði fyrir skömmu. „Þetta veikir
okkur óneitanlega, því þeir hafa ver-
ið lykilmenn og staðið sig mjög vel,“
sagði Lúkas. „En við höfum verið
án lykilmanna í sumar, vitum að
hveiju við göngum, höldum áfram
að spila okkar leik og ég er bjart-
sýnn.“
Verður hörkuslagur
KR og Þór mætast í Frostaskjóli.
Munurinn á liðunum í deildinni er
sex stig en það segir í rauninni ekk-
ert um bikarkeppnina því þar er það
aðeins einn leikur sem telur, ekki
leikir sumarsins. En má spyija Sig-
urð Lárusson þjálfara Þórs um úrslit
leiksins?
„Já, já þú mátt spyija en ég gef
ekkert upp um það núna,“ sagði Sig-
urður í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Annars leggst leikurinn mjög
vel í mig. Ég get stillt upp því liði
sem ég vil, sém þýðir að allir eru
heilir og því á ég von á miklum bar-
áttuleik. Ég á von á fjölmenni á
vellinum og það verði sannkölluð
bikarstemmning."
Aðspurður sagðist Sigurður hafa
trú á því að það lið sem sigraði í
þessum leik yrði bikarmeistari.
„Annars er ekkert hægt að segja
um það, því í bikarleik getur allt
gerst.“
Þórsarar hittust klukkan 17.30 í
gær og fylgdust með landsleiknum
á Akureyrarvelli. „Síðan verðum við
saman fram til klukkan ellefu og
förum síðan suður um hádegi á
morgun [í dag]. Það verður engin
æfing hjá okkur í kvöld en við ætlum
að vera í Hamri í kvöld og gerum
eitthvað skemmtilegt þar,“ sagði
Sigurður.
Ekkert annað en sigur
Guðjón Þórðarson, þjálfari KR-
inga, fór með liðið sitt á skjálfta-
svæðið í Hveragerði í gærkvöldi.
Liðið gisti í nótt á Hótel Örk og
kemur þaðan beint í leikinn í kvöld.
Þjálfarinn sagðist ætla að stappa
stálinu í leikmenn fyrir átökin. „Von-
andi fáum við góðan skjálfta til að
hrista aðeins upp í strákunum. Ég
veit að Þórsarar koma alveg dýrvit-
lausir í þennan leik og því verðum
við að ná upp þeirri baráttu sem til
þarf. Það er ekki hægt að leika sér
í bikarleik, því við fáum ekkert ann-
að tækifæri. Leikmenn eiga að finna
fyrir pressu og spennu fyrir alla leiki.
Við ætlum okkur sigur í þessum leik
hvað sem það kostar," sagði þjálfar-
inn.
Fjórða þrennan
Þorvaldur Örlygsson sem skor-
aði þrennu gegn Eistlending-
um á Akureyri í gærkvöldi er
fjórði ieikmaðurinn til að skora
þrjú mörk í landsleik.
■ Ríkharður Jónsson gerði
fjögur mörk fyrir ísland gegn
Svíum í 4:3 sigri á Melavellin-
um 1961.
■Teitur Þórðarson gerði
þrennu í 6:0 sigri gegn Færey-
ingum á Laugardalsvelli 1975.
■Arnór Guðjohnsen gerði
Qögur mörk í 5:1 sigri gegn
Tyrkjum á Laugardalsvelli
1991.
Gottað
vita
ekkert
um lidið
- sagði Arnór
Guðjohnsen sem
stóð sig vel
„Ég held það hafí verið gott að
við vissum ekkert um þetta lið. Við
komum því af krafti til leiks og létum
ekkert koma okkur á óvart,“ sagði
Arnór Guðjohnsen, sem lék vel í
gærkvöldi. Hann lék allan tímann,
en þar sem hann hefur átt við meiðsli
að stríða í nára undanfarið, var ekki
búist við að hann gæti verið með
allan leikinn. Arnór sagðist hins veg-
ar ekki hafa fundið fyrir meiðslunum
að neinu ráði.
„Við þreifuðum aðeins fyrir okkur
fyrstu fímm mínúturnar en tókum
leikinn svo í okkar hendur. Það er
oft að lið detta niður á sama plan
og andstæðingurinn, þegar verið er
að leikið við slakari lið en það gerð-
ist ekki núna og er ánægjulegt,“
sagði Arnór. „Þetta var ekki eins
frískt hjá okkur í seinni hálfleiknum,
enda menn þá farnir að þreytast og
farið að skipta nokkrum mönnum inn
á. Þegar svo er riðlast leikur liðs
alltaf.“
ísland - Eistland 4:0
Akureyrarvöllur, æfíngalandsleikur f knatt-
spyrnu, þnðjudaginn 16. ágúst 1994.
Aðstæður: Mjög góðar.
Mörk islands: Þorvaldur Örlygsson (18.,
39., 43i), Þórður Guðjónsson (54.).
Gult spjald: Urmas Kaljend (36.) og Marek
Lemsalu (39.) báðir fyrir brot.
Rautt spjald: Enginn.
Dómari: Rune Petersen frá Noregi átti náð-
ugt kvöld.
Línuverðir: Ólafur Ragnarsson og Kristinn
Jakobsson.
Áhorfendur: 1.470 greiddu aðgangseyri.
Ísland: Birkir Kristinsson (FViðrik FViðriks-
son 75.) - Arnar Grétarsson (Ólafur Krist-
jánsson 75.), Guðni Bergsson, Kristján Jóns-
son (Ólafur Adolfsson 60.), Sigursteinn Gísla-
son - Hlynur Stefánsson, Þorvaldur Örlygs-
son (Haraldur Ingólfsson 70.), Ólafur Þórðar-
son - Amór Guðjohnsen, Eyjólfur Sverrisson
(Þórður Guðjónsson 46.), Bjarki Gunnlaugs-
son.
Eistland: Toomas Tohver - Urmas Kaljend,
Marek Lemsalu, Risto Kallaste, Viktor Al-
onen - Martin Reim, Mati Pari (Urmas Kirs
46.), Tarmo Limmumae, Dzintar Klavan -
Toomas Krom (Gert Olesk 46.), Marku Krist-
al (Tarmo Saks 46.).
Leikurinn í tölum: ÍSL - EIS
Homspyrnur................. 7-4
Markskot................... 15 - 4
Aukaspymur................. 10 - 13
Rangstaða................... 3 - 0
ÍSLAND - SVÍÞJÓÐ
Á LAUGARDALSVELLI 7. SEPTEMBER
Ravelli
eða
Eyjólfur?
HVOR HEFUR BETUR?
ÍÞF&mR
FOLK
■ ÞORVALDUR Örlygsson fékk
að eiga knöttinn, sem leikið var með
í gærkvöldi, í tilefni þess að hann
gerði þijú mörk. Allir leikmenn ís-
lenska liðsins árituðu boltann fyrir
hann.
■ SVO skemmtilega vill til að báð-
ir markaskorarar íslands era fyrrum
leikmenn KA og þekkja því til á
Akureyrarvelli. Þorvaldur er uppal-
inn hjá félaginu og Þórður Guðjóns-
son lék einnig með því um tíma,
þegar Guðjón faðir hans var þjálf-
ari þar.
■ MARK Þórðar var hans fyrsta
í A-landsleik. „Ég ætlaði að láta
Þorvald fá boltann þannig að hann
næði fjórða markinu, en hann lét
hann vera þannig að ég renndi hon-
um bara í tóma markið," sagði Þórð-
ur, sem skoraði fjórða markið auð-
veldlega í seinni hálfleik.
■ BJARKJ Gunnlaugsson var í
byijunarliði íslands í fyrsta skipti.
Arnar bróðir hans er meiddur,
Bjarki tók stöðu hans á vinstri kant-
inum og lék mjög vel.
■ EYJÓLFUR Sverrisson fór
útaf í leikhléi. Hann hefur verið með
magakveisu siðan um helgina; fékk
í magann eftir að hafa borðað í Izm-
ir, þar sem hann lék með Besiktas
í tyrknesku 1. deildinni.
■ JAKOB Björnsson, bæjarstjóri
á Akureyri, var heiðursgestur á
leiknum í gærkvöldi og heilsaði upp
á leikmenn ásamt Eggert Magnús-
syni, formanni KSI.
Leiðrétting
Einkunnagjöfín úr leik Vals og FVam féli
niður í blaðinu í gær. Hjá Val áttu eftirtald-
ir leikmenn að fá eitt M: Davtð Garðarsson,
Kristján Halldórsson, Guðni Bergsson, Stein-
ar Adolfsson, Atli Helgason og Agúst Gylfa-
son. Framararnir Steinar Guðgeirsson og
Gauti Laxdal áttu einnig að fá M.
Vegna rangra upplýsinga af leik Fjölnis
og Hattar á föstudaginn var sagt rangt frá
hveijir hefðu skor^ð mörk Fjölnis. Hið rétta
er að Steinar Ingimundarson gerði öll þijú
mörkin.
Nafn eins úr unglingalandsliðshópnum á
skíðum féll niður i myndatexta í gær. Björg-
vin Björgvinsson liggur fremstur á myndinni
sem var á bls. 48.
Tvær villur slæddust í frásögn á bls. 49
af meistaramóti unglinga ! fijálsíþróttum.
Tómas G. Gunanrsson var sagður hafa stokk-
ið 4,35 metra f stangarstökki er hann bætti
íslandsmetið. Hið rétta er að Tómas stökk
4,31 metra. Þá var sagt að Bjami Þór
Traustason hefði orðið sigursæll i styttri
vegalengdum í hlaupi og sigrað m.a. í 100
metra hlaupi. Það er ekki rétt, en hann var
engu að síður sigursæll.
A baksiðu íþróttablaðsins vixluðust
myndatextar i umfjöllun um NM i hesta-
iþróttum. Efri myndin er af Einari Öder á
Háfeta en sú neðri af Hinriki Bragasyni á
Eitli.
URSLIT
Frjálsíþróttir
íslandsmót fatlaðra
Haldið í Mosfellsbæ helgina 6. - 7. ágúst.
60 m hlaup pilta
(flokkur 11)
1. Ástráður Proppé, Gný............11,66
2. Haukur Þorsteinsson, Gný........12,49
3. Rúnar Magnússon, Gný.............12,99
(flokkur 10)
1. HalldórBjarni Pálmason, Gáska...10,60
2. Hafþór Snorrason, Suðra..........11,35
Sverrir Sigurðsson, Viljanum.......11,37
60 m hlaup stúlkna
(flokkur 11)
1. Erla Björk Sigmundsdóttir, Gný...13,98
2. Soffia Rósa Jensdóttir, Ösp......14,96
3. Guðlaug Jónatansdóttir, Gný......16,05
(flokkur 10)
1. Anna Ragnarsdóttir, Eik..........11,68
2. Gerður Jónsdóttir, Gáska.........12,55
3. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Suðra ...12,9
100 m lilaup
1. Geir Sverrisson, Ármanni.........11,63
2. HaukurGunnarsson, Ármanni.........13,7
3. Guðmundur Andrés Sveinsson, Þjóti.,16,9
100 m lilaup
(flokkur 9)
1. Stefán Thorarensen, Akri.........13,2
2. Aðalsteinn F'riðjónsson, Eik....14,04
3. Þórir Gunnarsson, Ösp...........14,14
(flokkur 10)
1. Sigurður Áxelsson, Ösp..........15,33
2. Björgvin Kristbergsson, Ösp......17,1
3. Hjörtur Grétarsson, Þjóti.......17,94
100 m hlaup
1. Hafdís Steinarsdóttir, Suðra....16,68
2. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp......17,27
3. Steinunn Indriðadóttir, Suðra....18,2
200 m hlaup
(flokkur 9)
1. Hafdis Steinarsdóttir, Suðra....37,12
2. Steinunn Indriðadóttir, Suðra...41,82
200 m hlaup
(flokkur 9,10,11)
1. Stefán Thorarensep, Akri........26,37
2. Guðjón Á. Ingvarsson, Ösp........28,88
3. Indriði Haukssson, Viljanum.......30,3
200 m hlaup
1. Geir Sverrisson, Ármanni........23,18
2. Haukur Gunnarsson, Ármanni.......28,04
400 m hlaup
(flokkur 9)
1. Stefán Thorarensen, Akri......1:00,80
2. Indriði Hauksson, Viljanum.....1:07,80
3. Jón E. Guðvarðarson, Ösp.......1:09,40
400 m hlaup
(flokkur 4,5,6)
1. Geir Sverrisson, Ármanni..........52,5
2. Haukur Gunnarsson, Ármanni.....1;02,62
Kúluvarp - kúla 7,26 kg
(flokkur 9)
1. GunnarÞ. Gunnarsson, Suðra........7,9
2. Indriði Hauksson, Viljanum........7,43
3. Magnús Korntop, ÍFR...............7,27
(flokkur 10)
1. Björgvin Kristbergsson, Ösp......6,68
2. Sverrir Sigurðsson, Viljanum......5,36
3. Árni Jónsson, Þjóti...............5,29
(flokkur 11)
1. Haukur Þorsteinsson, Gný.........3,92
2. Rúnar Magnússon, Gný..............3,22
3. Ástráður Proppé, Gný..............3,02
Kúluvarp - kúla 5,5 kg
(flokkur 5)
1. Skúli Þórðarson Þjóti............7,72
2. Guðmundur Andrés Sveinsson, Þjóti..7,72
3. Benedikt Ingvarsson, Suðra........7,52
Kúluvarp - kúla 4 kg
(flokkur 9)
1. Hafdís Steinarsdóttir, Suðra......6,16
2. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp.........5,9
3. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Suðra ...4,71
(flokkur 10)
1. Kristín Þ. Albertsdóttir, Suðra...3,98
2. Erla Björk Sigmundsdóttir, Gný....2,62
3. Guðlaug Jónatansdóttir, Gný.....2,37
Kringlukast - kringla 2 kg
(flokkur 9)
1. Magnús Korntop ÍFR..................19
Spjótkast - spjót 800 gr
(flokkur 9)
1. Gunnar Þór Gunnarsson, Suðra....25,8
2. Jón E. Guðvarðarson, Ösp....:...25,1
3. Magnús Korntop ÍFR.............19,25
Boltakast
(flokkur 10)
1. Halldór Bj. Pálmason, Gáska....39,46
2. ÓlafurÞór Ólafsson, Suðra......13,86
3. Smári Ársælsson, Suðra..........6,84
(flokkur 11)
1. Halldór Sæmundsson, Gáska......16,75
2. Jón Róbert Róbertsson, Gáska...13,79
3. Elías Bergmannsson, Gáska.......9,02
Boltakast
1. SoffíaR. Jensdóttir, Ösp.......24,13
2. Sóley Traustadóttir, Gáska.....22,72
3. Gerður Jónsdóttir, Gáska.......22,59
Langstökk
(flokkur 9)
1. Aðalsteinn Friðjónsson, Eik.....4,88
2. Þórir Gunnarsson, Ösp...........4,54
3. Indriði Hauksson, Viljanum......4,48
(flokkur 10)
1. Hrafn Logason, Ösp..............3,57
2. Björgvin Kristbergsson, Ösp......3,28
3. Árni Jónsson, Þjóti.............3,23
(flokkur 11)
1. Smári Ársælsson, Suðra..........1,89
2. ÓlafurÞ. Ólafsson, Suðra.........1,89
3. HaukurÞorsteinsson, Gný..........1,82
Langstökk kvenna
(flokkur 9)
1. Bára B. Erlingsdóttir, Ösp.......3,53
2. Hafdís Steinarsdóttir, Suðra......3,3
3. Steinunn Indriðadóttir, Suðra....3,06
(flokkur 10)
1. Anna Ragnarsdóttir, Eik..........2,93
2. Gerður Jónsdóttir, Gáska.........2,59
3. Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Suðra ...2,52
(flokkur 11)
1. Erla Björk Sigmundsdóttir, Gný...1,58
2. Guðlaug Jónatansdóttir, Gný......1,22
Langstökk karla
(flokkur 5)
1. Haukur Gunnarsson, Ármanni.......4,67
2. Benedikt Ingvarsson, Suðra.......3,68
3. Guðmundur Andrés Sveinsson, Þjóti..2,87
Hástökk karla
1. Indriði Hauksson, Viljanum.......1,39
2. Þórir Gunnarsson, Ösp............1,36
3. Aðalsteinn Friðjónsson, Eik......1,33
Hástökk kvenna
1. Hafdis Steinarsdóttir, Suðra.....1,15
2. BáraB. Erlingsdóttir, Ösp........1,05
Knattspyrna
3. deild:
Reynir - Völsungur..................2:3
Amar Óskarsson, Pámar Guðmundsson -
Ásmundur Amarson, Róbert Skarphéðins-
son, Baldur Viðarsson.
Haukar - Fjölnir....................2:1
Brynjar Gestsson, Hallgrímur Guðmundsson
- Þorvaidur Logason.
Höttur - Skallagr...................1:0
Eysteinn Hauksson
Tindastóll - Víðir..................2:1
Helgi M. Þórðarson, Stefán Pétursson - Guð-
mundur V. Sigurðsson, Sigurður V. Árnason.
Vináttuleikur U-16 ára kvenna
Ísland - FC Richmond................2:0
Áslaug Ákadóttir, Anna Lovísa Þórisdóttir.
■FC Richmond er félagslið frá Bandaríkj-
unum.
Ikvöld
Knattspyrna
Bikarkeppni KSÍ - undanúrslit: kl.
KR-völlur: KR - Þór............18
Stjörnuv.: Stjaman - Grindavík.18
1. deild kvenna:
Egilsstaðir: Höttur - Haukar ....18.30
3. deild karla:
Dalvík: Dalvík-BÍ..........,18.30
4. deild D:
VopnaQörður: Einheiji - KBS...18.30
Djúpivogur: Neisti - Sindri.18.30
Undanúrslit í Mjólkurbikarnum
KR - ÞÓR
KR-völlur v/Frostaskjól miðvikudaginn 17. ágúst kl. 18.oo
KR-klúbburinn hittist kl. 17 í félagsheimilinu.
ATH. KR-klúbbsskírteini gilda ekki á leikinn.
adidas VIKING
llll
FORMPRENT
%jls
...að sjálfsögðu