Morgunblaðið - 17.08.1994, Blaðsíða 4
Norðurlandamótið í hestaíþróttum í Finnlandi
Gestgjafarnir stóðust prófið
ÞEIR voru margir sem efuðust
um að Norðurlandamót í Finn-
landi væri eitthvað sem gengi
upp og yrði til að auka veg
mótanna. Eftirvel heppnað
mót í flesta staði þarf enginn
að efast og ekki vafi að þessi
ákvörðun hef ur verið gæfu-
spor fyrir íslandshesta-
mennskuna á Norðurlöndum.
Valdimar
Kristinsson
skrifar
Það má kannski segja að ekki
séu margar stoðir undir ís-
landshestamennskunni í Finnlandi
en þessar fáu eru
hinsvegar sterkar.
Framkvæmd móts-
ins í Ypája gekk
prýðilega, dagskrá-
in skipulögð af skynsemi og alla
dagana gengu hlutirnir samkvæmt
henni nema hvað þegar gera varð
hlé á fjórgangi unglinga þegar
gerði slíka rigningu að allt fór á
flot. Ekki var lagt mikið í umgjörð
mótsins og oft hafa mótssvæði
erlendis verið glæsilegri en þarna
var. Eigi að síður dugði þetta allt
vel og gott betur. Það er kannski
táknrænt eftir mikið kvennamót í
Finnlandi að við framkvæmd móts-
ins störfuðu að lang stærstum
hluta konur og stóðu þær sig eins
og fámennur hópur karlanna með
miklum ágætum. Veðrið hélst gott
meðan á mótinu stóð þótt nokkrar
dembur eða hitaskúrir bleyttu
rækilega í._Hlýtt var allan tímann
og fór vel um mótsgesti og kepp-
endur. Hinsvegar hefði veitingasal-
an mátt vera afkastameiri og betri.
Völlurinn stóð prýðilega fyrir
sínu þótt ekki liti vel út í upphafi.
Aðstaða fyrir keppnishrossinn var
með því besta sem gerist á slíkum
mótum í risastórum hesthúsum
Hestaskólans í Ypájá.
Að halda mót sem þetta í fjar-
lægu landi þar sem félagið er
skammt á veg komið í vexti og
þróun er mikil áhætta en að sama
Fimm íslendingar í úrslitum í
tölti frá vinstri sigurvegarinn
Sveinn á Fleyg, Sigurbjörn á
Brjáni, ia hin sænska á Týru,
Einar og Háfeti, Gylfi og Héöinn
og Jón og Mökkur. Þótt hestur
Guðmars Þórs, Ottó frá Vind-
ási, sem sést hér til hægri,
væri erfiður náði hann góðum
árangri, fyrstur í tölti og annar
í fjórgangi.
skapi getur verið mikilvægt til að
stuðla að vexti íslandshestamenns-
kunnar að taka áhættu á þessum
vettvangi. Miklir hagsmunir eru
fólgnir í að útbreiðsla íslenska
hestsins haldi áfram og það geng-
ur ekki til lengdar að sigla einung-
is á örugg mið. Finnar stóðu vel
fyrir sínu og líklega geta allir ver-
ið sammála um að þeir hafi staðist
prófið með prýði.
■ RÉTT fyrir úrslitin í tölti ungl-
inga kom fram kæra frá Dönum
þar sem óskað var eftir að hestur
Davíðs, Kórall frá Ásmundarstöð-
um færi í lyfjapróf. Fullyrtu Danirn-
ir að klárinn hafi verið dæmdur
óhæfur til þátttöku í keppni af dýra-
læknum í Danmörku. Urðu nokkrar
tafir af þessum sökum meðan málið
var tekið fyrir.
■ EKKI var gert ráð fyrir lyfja-
prófum á mótinu og því ljöst að erf-
itt og kostnaðarsamt yrði að koma
slíku á með svo skömmum fyrirvara.
Tillaga frá fulltrúa knapanna í yfir-
dómnefndinni Sigurbirni Bárðar-
syni þess efnis að eigandinn Her-
bert Olason yrði spurður um málið
undir eið, var samþykkt og málið
látið niður falla og Davíð fékk að
vera með.
■ FORMAÐUR H.Í.S Jón Albert
Sigurbjörnsson var kærður fýrir
að standa ekkki rétt að ræsingu í
250 metra skeiði. Þar voru frændur
vorir Danir einnig að verki. Töldu
þeir að Jón hafi hyglað að Hinrik
Bragsyni á Eitli. Við rannsókn
málsins kom í ljós að ekki hafði
verið alveg rétt að málum staðið og
voru skipaðir tveir dómarar til að
fylgjast með að ræsingin færi rétt
fram hjá Jóni í tþeim tveimur sprett-
um sem eftir voru.
■ ÁSTÆÐUR kærunnar má lík-
lega rekja til þess að hesturinn var
með áberandi hósta í úrslitum fyrr
um daginn en ekkert bar á slíku í
töltúrslitunum.
■ SAGT var frá endasleppri þátt-
töku dönsku stúlkunnar Caroline
Rewers á hestinum Yngri frá
Reykjavík í fimmgangi þegar hest-
urinn stökk út úr brautinni. Ekki tók
betra við í töltkeppninni því á ná-
kvæmalega sama stað stökk sá litfö-
rótti út úr brautinni og gerði þar
út um allar vonir til verðlauna.
■ FJÖGUR hestamót eru eftir á
keppnistímabili hestamanna. Þráinn
í Grenivík og nágrenni verður með
sitt mót um næstu helgi og Dreyri
á Akranesi verður með opna ís-
landsbankamótið að Æðarodda
sem er íþróttamót. Trausti í Laug-
ardal og Grímsnesi frestaði sínu
móti vegna heyanna og verður þess
í stað með mótið um næstu helgi.
■ SÍÐASTA mótið verður Loka-
sprettur Harðar sem verður hald-
inn síðustu helgina í ágúst á Varm-
árbökkum í Mosfellsbæ og keppt
verður í tölti og skeiði.
GOLF
Þorkell
Snorri er í
þriðji sæti
Þorkell Snorri Sigurðsson kylf-
ingur úr GR, sem aðeins er
16 ára gamall, tekur þátt í Doug
Sanders golfmótinu í Aberdeen í
Skotlandi sem hófst í gær. Þor-
kell Snorri lék holurnar 36 í gær
á 142 höggum og er í 3. til 4.
sæti. Fyrri hringinn lék hann á
74 höggum en þann síðari á 68
höggum. Síðari hringinn lék hann
einstaklega glæsilega því þrátt
fyrir að völlurinn sé þröngur skóg-
arvöllur lék strákurirm 17 brautir
snurðulaust, eða á regulation, sem
þýðir að hann hitti ekki eina flöt
á þeim tiltekna höggafjölda sem
miðað er við þegar par brautar
er fundið út.
BYKO-MOTIÐ
Veröur haldiö á Kiðjabergsvelli,
Grímsnesi, sunudaginn 21. ágúst.
Vegleg verölaun,- bæöi meö og án
forgjafar, auka annara verðlauna.
Skráning í síma 41000 og á mótsstaö.
Komið og spilið á hinum nýja og
glæsilega Kiöjabergsvelli. Allir
kylfingar velkomnir
BYKO
rV jO MEgTARASAMBAND
HUSASMIÐA