Morgunblaðið - 25.08.1994, Page 4
4 C FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 27/8
Sjóimvarpið
9 00 RADIIAFFIll ^ Morgunsjón-
DAHRHCrm varp barnanna
Kynnir er Rannveig Jóhannsdóttir.
Kapteinn ísland. 3. þáttur Hinn
alþýðlegi ofviti, Fúsi Ánason, flýgur
um loftin blá. Höfundur texta og
mynda: Kjartan Arnórsson. Sögu-
maður: Kjartan Bjargmundsson. (Frá
1987) Hvar er Valli? Valli í Framtíð-
arlandinu. Þýðandi: Ingólfur B. Krist-
jánsson. Leikraddir: Pálmi Gestsson.
(12:13) Múmínálfarnir. Énn gerast
ævintýri í Múmíndalnum. Þýðandi:
Kristín Mantyla. Leikraddir: Sigrún
Edda Björnsdóttir og Kristján
Franklín Magnús. (10:26) Anna í
Grænuhlíð. Á fyrsta degi í nýjum
heimkynnum er margt að sjá. Þýð-
andi: Ýrr Bertelsdóttir. Leikraddir:
Aldís Baldvinsdóttir og Ólafur Guð-
mundsson. (3:50)
10.20 ►Hlé
,s 00 ÍÞRfiTTIR
► Mótorsport Endur-
sýndur þáttur frá
þriðjudegi
16.30 ►íþróttahornið Endursýndur þáttur
frá fimmtudegi.
17.00 ►fþróttaþátturinn í þættinum verð-
ur m.a. upphitun fyrir fyrir úrslita-
leikinn í meistarflokki karla í Mjólk-
urbikarkeppninni. Umsjón: Arnar
Bjömsson.
18.20 ►Táknmálsfréttir
18.30 ►Völundur (Widget) Bandarískur
teiknimyndaflokkur. Þýðandi: Ingólf-
ur Kristjánsson. Leikraddir: Hilmir
Snær Guðnason, Vigdís Gunnars-
dóttir og Þórhallur Gunnarsson.
(20:26)
18.55 ►Fréttaskeyti
19.00 ►Geimstöðin (Star Trek: Deep
Space Nine) Bandarískur ævintýra-
myndaflokkur sem gerist í niður-
níddri geimstöð í útjaðri vetrarbraut-
arinnar í upphafí 24. aldar. Aðalhlut-
verk: Avery Brooks, Rene Auberjon-
ois, Siddig El Fadil, Terry Farrell,
Cirroc Lofton, Colm Meaney, Armin
Shimerman og Nana Visitor. Þýð-
andi: Karl Jósafatsson. (9:20).
20.00 ►Fréttir
20.30 ►Veður
20.35 ►Lottó
20.40 ►Hasar á heimavelli (Grace under
Fire) Bandarískur gamanmynda-
flokkur um þriggja barna móður sem
stendur í ströngu eftir skilnað. Þýð-
andi: Ólöf Pétursdóttir. (1:22)
21.10 Vll|tf||V|l|| ►Páfinn skal
HllHmlnll deyja (The Pope
Must Die) Bresk bíómynd í léttum
dúr um sveitaprest sem óvænt er
valinn páfi. Aðalhlutverk: Robbie
Coltrane, Beveríy D’Angelo og Her-
bert Lom. Leikstjóri: Peter Richard-
son. Þýðandi: Ömólfur Árnason. OO
Maltin gefur ★★'A
22.50 ►Hún sagði nei (She Said No)
Bandarísk sjónvarpsmynd sem segir
frá baráttu konu við kerfið eftir
nauðgun. Aðahlutverk: Veronika
Hamel og Judd Hirsch. Leikstjóri:
John Patterson. Þýðandi: Jóhanna
Þráinsdóttir.
0.20 ►Útvarpsfréttir i dagskrárlok
STÖÐ tvö
9.00 ►Morgunstund
10.00 ►Denni dæmalausi
10.30 ►Baldur búálfur
10.55 ►Jarðarvinir
11.15 ►Simmi og Sammi
11.35 ►Eyjaklíkan (9:26)
12.00 ►Skólalíf í Ölpunum (11:12)
12.55 ►Gott á grillið (e)
13.25 ►Prakkarinn 2 (Probiem Chiid 2)
Lilli er sami prakkarinn og áður nema
hvað núna hefur hann stækkað,
styrkst og eignast skæðan keppi-
naut, Trixie. Aðalhlutverk: John Ritt-
er, Michael Oliver, Jack Warden og
Laraine Newman. Leikstjóri: Brian
Levant. 1991.Lokasýning.
14.50 uyi|#||yyn ► ópið (Shout)
HlinnVRU Jack er tónlistar-
kennari sem reynir að fá Jesse, eirð-
arlausan unglingsstrák á munaðar-
leysingjahæli, til að horfast í augu
við vandamál sín og fá útrás fyrir
tilfinningar sínar í tónlistarsköpun.
Aðalhlutverk: John Travolta, James
Walters og Heather Graham. Leik-
stjóri: Jeffrey Hornaday. 1991. Loka-
sýning.
16.15 ►Kona slátrarans (The Butcher’s
Wife) Gamanmynd um slátrarann
Leo Lemke sem fer í veiðiferð og
kemur til baka með undarlegan
furðufisk, skyggna eiginkonu sem
kallast Marina. Aðalhlutverk: Demi
Moore, Jeff Daniels, George Dzundza
og Frances McDormand. Leikstjóri:
Terry Hughes. 1991. Lokasýning.
17.55 ►Evrópski vinsældalistinn
18.45 ►Sjónvarpsmarkaðurinn
19.19 ►19:19
20.00 ►Falin myndavél (Candid Camera)
(26:26)
20.30 |fU||IUVUn ► Þrjú á flótta
HllRlTlIRU (Three Fugitives)
Harðsvíraður bankaræningi sem ætl-
ar að bæta ráð sitt dregst inn í mis-
lukkaðasta bankarán allra tíma og
neyðist til að leggja á flótta með lág-
vöxnum rugludalli sem er honum
vart samboðinn. Það verður til að
flækja málið enn frekar að með þeim
á flóttanum er sex ára dóttir skuss-
ans. í aðalhlutverkum eru Nick Nolte,
Martin Short og James Earl Jones.
Maltin gefur ★ ★1/2 1989.
22.05 ►Drakúla (Bram Stoker’s Dracula)
Francis Ford Coppola tekur sögu
Brams Stoker um Drakúla upp á sína
arma og gerir henni góð skil. Við
fylgjumst með greifanum frá
Transylvaníu sem sest að í Lundún-
um á nítjándu öldinni. Um aldir hef-
ur hann dvalið einn í kastala sínum
en kemst nú loks í nána snertingu
við mannkynið. Með aðalhlutverk
fara Gary Oldman, Winona Ryder,
Anthony Hopkins, Keanu Reeves og
Tom Waits. Óskarsverðlaun fyrir
m.a. förðun og búninga. Maltin gefur
★ ★ ★ 'h. 1992. Stranglega bönnuð
börnum.
0.10^Rauðu skórnir (The Red Shoe
Diaries) Erótískur stuttmyndaflokk-
ur. Bannaður börnum. (13:24)
0.40 ►Brostnar vonir (Heaven Tonight)
Johnny Dysart er útbrunnin popp-
stjama sem hefur brennandi áhuga
á að koma fram á ný og slá í gegn.
Þegar draumar hans hrynja svo á
einu kvöldi áttar hann sig á því að
sonur hans er upprennandi popp-
stjama. Aðalhlutverk: John Waters,
Guy Pearce og Sean Scully. Leik-
stjóri: Pino Amen.ta. 1990.
2.15 ►Krómdátar (Crome Soldiers) Fyrr-
verandi Víetnamhermaður er myrtur
á hroðalegan hátt í smábæ einum
og fimm félagar hans úr stríðinu eru
staðráðnir í að koma fram hefndum.
Aðalhlutverk: Gary Busey og Ray
Sharkey. Leikstjóri: Thomas J.
Wright. 1992. Stranglega bönnuð
börnum.
3.45 ►Dagskrárlok
Ástsjúkur - Drakúla leitar að elskunni sinni í Bretlandi.
Drakúla greifi á
stjái í Lundúnum
Drakúla var
ástsjúkur og
leitaði sinnar
heittelskuðu
sem hann áleit
vera endur-
holdgaða í
Bretlandi
STÖÐ 2 kl. 22.05 Allir þekkja sög-
una um Drakúla en fæstir kannast
þó við höfund hennar, Bram Stok-
er. Drakúla var hættulegur en heill-
andi. Öldum saman bjó hann einn
í kastala sínum í Transylvaníu en
loks náðu eðlishvatir hans yfirhönd-
inni. Hann hélt til mannabyggða
og settist að í Lundúnum. Drakúla
var ástsjúkur og leitaði sinnar heitt-
elskuðu sem hann áleit vera endur-
holdgaða á Bretlandi. En hann
þyrsti í blóð og var fordæmdur
hvar sem hann kom. Myndin hlaut
Óskarsverðlaun fyrir förðun, hljóð-
vinnslu og búningahönnun. í aðal-
hlutverkum eru Gary Oldman, Win-
ona Ryder, Anthony Hopkins, Ke-
anu Reeves og Richard E. Grant.
Síðasti flóttinn
Dawson kemst
fljótlega að því
að yfirmenn
leyniþjón-
ustunnar vilja
þagga málið
niður
RÁS 1 kl. 16.35 í dag kl. 16.35
verður flutt í heild hádegisleikrit
útvarpsleikhússsins liðna viku,
sakamálaleikritið Síðasti flóttinn
eftir R.D. Wingfield. Dawson lögre-
gluforingi er kallaður til að rann-
saka morðmál. Hann kemst fljót-
lega að því að yfirmenn leyniþjón-
ustunnar vilja þagga málið niður
vegna tengsla morðingjans við at-
burði í heimsstyijöldinni síðari sem
þeir vilja ekki að komist í hámæli.
Með helstu hlutverk fara: Sigurður
Karlsson, Steindór Hjörleifsson og
Róbert Arnfinnsson. Þýðinguna
gerði Ásthildur Egilsson og leik-
stjóri er Jón Sigurbjörnsson. Leik-
ritið var áður á dagskrá árið 1980.
YMSAR
STÖÐVAR
OMEGA
7.00 Morris Cerullo, fræðsluefni 7.30
Kenneth Copeland, fræðsluefni 8.00
Gospel tónlist 16.00 Kenneth Cope-
land E 16.30 Orð á síðdegi 16.45
Dagskrárkynning 17.00 Hallo Norden
17.30 Kynningar 17.45 Orð á síðdegi
E 18.00 Studio 7 tónlistarþáttur
18.30 700 club fréttaþáttur 19.00
Gospel tónlist 20.30 Praise the Lord
23.30 Gospel tónlist.
SKY MOVIES PLUS
5.00 Dagskrárkynning 7.00 The Girl
from Petrovka G 1974, Goldie Hawn
9.00 Crooks and Coronets G 1969,
Telly Savalas 11.00 Kingdom of the
Spiders T 1977 13.00 A Waltons
Thanksgiving Reunion F 1994, Rich-
ard Thomas 15.00 City Boy F 1992,
Christian Campbell 17.00 Prehysterial
1993 19.00 Death Becomes Her G
1992, Bruce Willis 21.00 Out for
Justice T 1991, Steven Seagal 22.35
Camal Crimes E 0.15 Beyond the
Poseidon Adventure T 1979, Michael
Caine 2.05 The American Samurai O
1991, David Bradley
SKY OIXIE
5.00 Rin Tin Tin 5.30 Abbott and
Costello 6.00 Fun Factory 10.00 The
DJ Kat Show 10.30 The Mighty
Morphin Power Rangers 11.00 WWF
12.00 Paradise Beach 12.30 Hey Dad
13.00 Robin of Sherwood 14.00 Lost
in Space 15.00 Wonder Woman 16.00
Parker Lewis Can’t Lose 16.30 WWF
Superstars 17.30 The Mighty Morph-
in Power Rangers 18.00 Kung Fu
19.00 Unsolved Mysteries 20.00 Cops
120.30 Cops II 21.00 Crime Intemat-
ional 21.30 The Movie Show 22.00
Matlock 23.00 Mickey Spillane’s Mike
Hammer 24.00 Night Life 1.00 Dag-
skrárlok
EUROSPORT
6.30 Pallaleikfimi 7.00 Siglingar-
fréttaskýringaþáttur 8.00 Rally Raid
9.00 Glima 10.00 Hnefaleikar 11.00
Formula One, bein útsending: Belgian
Grand Prix 12.00 Knattspyma 14.00
Superbike 15.00 Formula 3000 1994
16.00 Formula One 17.30 Brimbret-
takeppni, World Tour 18.00 Golf
20.00 Formula One 21.00 Hnefaleik-
ar 23.00 Alþjóðlegar akstursíþrótta-
fréttir 24.00 Dagskrárlok
A = ástarsaga B = bamamynd D = dul-
ræn E = erótfk F = dramatík G = gam-
anmynd H = hrollvekja L = sakamála-
mynd M = söngvamynd O = ofbeldis-
mynd S = stríðsmynd T = spennumynd
U = unglingamynd V = vísindaskáld-
skapur W = vestri Æ = ævintýri.
Hasar á heimavelli þegar
kona lætur karl sinn róa
Sjálfstætt líf er
hins vegar
heldur enginn
dans á rósum
og kallar það
oft á hinar
ýmsu
tilfæringar í
einkalífi og
starfi
SJÓNVARPIÐ kl. 20.40
Grace Kelly (alveg óskyld
furstafrúnni) er þriggja barna
móðir sem komist hefur að því
að karlinn er ekki alveg sá
draumaprins sem hann sýndist
í glýjunni upp við altarið, og
þar sem hann er fyrir löngu
farinn að láta hana sjá um
krakkana ákveður hún að vera
ekkert að íþyngja honum leng-
ur með sér og þeim. Sjálfstætt
líf er hins vegar heldur enginn
dans á rósum og kallar það oft
á hinar ýmsu tilfæringar í
einkalífi og starfi. Stærsti
vandinn er þó sá að ekki verð-
ur lengur þverfótað fyrir ráð-
gjöfum sem allt vita betur en
þessi Ijóska sem hefði kannski
betur haldið sig í hjónabandinu.
Grace þarf því oft að bjarga
sér frá sjálfskipuðum bjarg-
vættum og það kemur sér því
vel fyrir hana að hafa munninn
fyrir neðan nefið og húmorinn
í lagi.
Nýskílin - Sjálfskipaðir bjargvætt-
ir gera Grace lífið leitt.