Morgunblaðið - 25.08.1994, Síða 5

Morgunblaðið - 25.08.1994, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. ÁGÚST 1994 C 5 LAUGARDAGUR 27/8 MYNDBÖND Sæbjörn Valdimarsson AF EYRINIMI í ELDINN SPENNUMYND Allt fyrir ekkert (Money for No- thing) k k Leikstjóri Ramon Menendes. Handrit Menendez, Tom Musca og Carol Sobieski. Aðalleikendur John Cusack, Michael Madsen, Deba Mazar. Bandarísk. Holly- wood Pictures 1994. SAM mynd- bönd 1994. 95 mín. Öllum leyfð. Joey, (John Cusack) er at- vinnulaus hafn- arverkamaður sem heldur sig hafa himin hönd- um tekið er hann fínnur röska milljón dala á götunni. En máttarvöldin eru ekki svo rausn- arleg, jafnvel ekki í Guðseiginlandi. Löggan kemst á sporið, vinirnir höfuðsetja hann og gömlu kær- ustunni ekki treystandi. Svo hann hyggst komast langt til suðurs frá hinni vetrarköldu Fíladelfíu. Merkilegt nokk, en myndin er að mestum hluta byggð á sönnum atburðum, söguhetjan slapp meira að segja við fangelsi, sýknan byggð á stundarbrjálæði. Enda virðist Joey ekki eiga marga möguleika í stöð- unni, einsog pólitíkusarnir segja, eftir hann finnur fésjóðin væna (myndin á að gerast á öndverðum sjöunda áratugnum). Það er ekki tekið illa á fégræðginni, örvænting- unni og að lokum þeirri allsheijar ringulreið sem tekur völdin i lífí hins fátæka atvinnuleysingja er hann fínnur summuna og Cusack, sá prýðis leikari, túlkar óaðfínnan- lega ástand hins firrta manns, sem eygir skyndilega leið útúr baslinu, færi á að vinna stúlkuna sína aftur og gefst ekki upp fyrr en í fulla hnefana þótt öll sund lokist. Allt er athæfí hans hið heimskulegasta, samt hefur maður vissa samúð með Joey, þökk sé Cusack. Eins er dreg- in upp trúverðug mynd af fátækra- hverfinu í Suður-Philadelphiu, íbú- um og umhverfí. Engu að síður er þessi önnur mynd leikstjórans Men- endez mikil afturför frá hinni minn- isstæðu Stand and Deliever, enda fékk hún ekki að spreyta sig í kvik- myndahúsi hérlendis. Á samt sín augnablik. OGUÐLEGT GRINDADRÁP DRAMA Hvalimir koma (When the Whal- es Came) ir-k Leikstjóri Clive Rees. Handrit Michael Morpurgo. Aðalleikend- ur Helen Mirren, Paul Scofield, David Suchet, Barbara Jefford, Jeremy Kemp. Bresk. Golden Swan 1989. Sam myndbönd 1994. 96 mín. Öllum leyfð. Þessi viðvan- ingslega tilraun til gerðar um- hverfisvænnar siðferðisprédik- unar í kvik- myndaformi, hefur ekki upp á margt að bjóða annað en metnað - sem því miður einkennir æ sjaldnar myndverk frumsýnd á myndbandinu. Reyndar mun þessi óvenju gamla (5 ára) mynd hafa fengið takmarkaða dreifingu í kvik- myndahúsum í Bretlandi og Banda- ríkjunum á sínum tíma. Efnið er ábúðamikið. Á eyjunni Samson í Schilly-eyjaklasanum suð- vestur undan . Englandsströndum gerðust voveiflegir atburðir um miðja síðustu öld. Konur og börn flýðu en uppkominn karlpeningur týndi allur tölunnni í sjávarháska. Nú víkur sögunni til ársins 1914 og eyjunnar Bryher, hvar Samson dormar við sjónarrönd. Tveir krakk- ar eignast að vin aldraðan einsetu- mann (Paul Scofíeld) sem segir þeim leyndardóma nágrannaeyj- unnar. Þangað rak hvali á land og í stað þess að bjarga þeim af strand- staðnum rann drápsæði á íbúana sem linntu ekki látum fyrr en þeir höfðu skorið alla grindina. Hlutu bölvun fyrir. Nú gerast sömu at- burðir á Bryher, hvalir verða land- fastir en að þessu sinni tekst börn- unum og einsetumanninum að stöðva blóðbaðið. Metnaðurinn einn saman bjargar ekki þessum mistökum frá því að falla í gleymsku og dá. Efnisþráður- inn er harla ólíklegur, framvindan lúshæg og persónur allar ósköp pasturslitlar. Og efnið sjálft, skelf- ing grindadráps, er ankannaleg, flestum sæmilega upplýstum mönn- um ætti að vera ljóst að langt frammá þessa öld var grindadráp og hvalreki sannkölluð Guðsgjöf og bjargaði ófáum mannslífunum við BÍÓMYNDBÖND Sæbjöm Valdimarsson DÓMSDAGSNÓTT (Judgement Night) k+'h Ein af þessum notalegu átaka- myndum í B-flokki sem líða svo hratt og áreynslulaust fyrir sig að maður veit ekki af sér fyrr en þær eru búnar. Einskisvirði en afbragðs tímaþjófur. Og langflestir fara ekki fram á meira framan við mynd- bandstækið. harðbýlar strendur Norður Atlans- hafsins. Það eina sem stendur upp- úr er fegurð úteyjanna, annað fellur um sjálft sig í Hvalirnir koma, jafn- vel leikur góðleikaranna Pauls Schofields og Helenar Mirren. ÁSTIN ER LIT- BLIND SPENNUMYND Litur ástarinnar (The Colour of Love) kVi Leiksljóri og handritshöfundur Anthony Drazan. Tónlist Taj Mahal. Aðalleikendur Michael Rappaport, N’Bushe Wright, DeShonn Castle, Ron Johnson. Bandarísk. Triumph 1992. Skífan 1994. 98 mín. Bönnuð yngri en 12 ára. Baksvið þess- arar myndar, sem á það sam- merkt með myndunum sem teknar eru til umfjöllunnar þessa viku, að hafa ekki hlotið dreifingu í kvik- myndahúsum hérlendis, gerist í Detroit. Söguhetjurnar unglingar af ólíkum kynþáttum. Zack (Mich- ael Rappaport) er hvítur, besti vinur hans, Dee (De Shunn Castle), hins- vegar þeldökkur. Svo er einnig um stúlkuna sem Zack verður ástfangin af og vandræðin byija. Forvitnilegt efni sem m.a. hefur vakið athygli kvikmyndagerðar- mannsins góðkunna, Olivers Stone, sem er einn af bakhjörlum myndar- innar. En því miður er útkoman fjarri því að vera nokkurt tímamóta- verk heldur klisjukennd ofbeldis- og átakamynd unglinga I stórborg- argettói þar sem engum er eirt, hver svo sem liturinn er. Joe Pesci í JFK. Burton ásamt Peter O’Toole í Becket. Hár og fegurð Manndémsvígsla með aðstoð vlftu Frá vinstri: Olivier í Hamlet, Ford í Presumed Innocent, Connery í Rls- ing Sun, Pacino í Scarface, Costner í The Bodyguard og Gibson í Hamlet. til að bera til að fylgja í fótspor hinna fyrr- nefndu í Presumed Innocent og lestina rek- ur Kevin Costner í The Bodyguard. STJÖRNUR með ömur- lega eða hlægilega hár- greiðslu geta truflað áhorfandann, dregið úr trúverðugleika myndar eða beinlínis virkað letjandi á kvik- myndahúsagesti, segir í grein í nýjasta hefti Movieline. Háværasta óðinn til ósmekkvísinnar má skrifa á reikning Joe Pesci, ógleymanlegum í kvikmyndinni JFK, með appelsínugula stálull á höfðinu i hárkollu stað. Ekki má heldur gleyma manndómsvígslunni sem sumir leikarar telja sig þurfa að gangast undir þegar vissum áfanga er náð. Og gengur út á það að viðkomandi telur sig hafa fótað sig það örugg- lega á frægðarbrautinni að óhætt sé að segja smekkvísinni tímabundið stríð á hendur. Sir Laur- ence Olivier reið fyrstur á vaðið í kvikmyndinni Hamlet en engu er líkara en að hann hafi flækt toppinn á sér í viftu og látið þar við sitja. Og virðist hafa gert stíl- bragðið ódauðlegt fyrir vikið. Richard Burton fylgdi fast á eftir í Beck- et og í humáttina kom Donald Sutherland í Klute. Áður en leið á löngu léði A1 Pacino greiðslunni kúbanskan blæ í Scarface, Harrison Ford hafði næga dirfsku UTVARP JAZZ í REYKJAVIK Rós I klukkan 15.00. Kynning ó olriium RÚREK djasshóliðarinnar, sem hnldin veriur dagnna 4.-10. september nk. Svipmynd fró hóliiinni órii 1991. RÁS 1 FM 92,4/93,5 6.45 Veðurfregnir. 6.50 Bæn. Snemma á laugar- dagsmorgni. Þulur velur og kynnir tónlist. 7.30 Veðurfregnir. Snemma á laugardagsmorgni heldur áfram. 8.55 Fréttir á ensku. 9.03 Lönd og leiðir. Þáttur um ferðalög og áfangastaði. Um- sjón: Bjarni Sigtryggsson. 10.03 Með morgunkaffinu. 10.45 Veðurfregnir. 11.00 í vikulokin. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson. 12.00 Útvarpsdagbókin og dag- skrá laugardagsins. 12.45 Veðurfregnir og auglýsing- ar. 13.00 Fréttaauki á laugardegi. 14.00 Stjórnleysingi, stýrikerfi og sýndarheimar. Fléttuþáttur um þróun tölvutækni i samtíð og framtið. Umsjón: Halldór Carls- son. 15.00 Kynning á atriðum RÚREK djasshátiðarinnar, sem haldin verður dagana 4.-10. september nk. 16.05 Tónlist. 16.30 Veðurfregnir. 16.35 Hádegisleikrit liðinnar viku, Siðasti flóttinn efti/ R.D. Wingfield. Þýðandi: Ásthiidur Egilson. Leikstjóri: Jón Sigur- bjömsson. Leikendur: Sigurður Karlsson, Steindór Hjörleifsson, Róbert Arnfinnsson, Baldvin Halldórsson, Helga Þ. Stephen- sen, Sigurður Skúlason, Guðjón Ingi Sigurðsson, Ólafur Orn Thoroddsen, Guðmundur Páls- son, Ævar R. Kvaran, Daníel Williamsson, Jón Hjartarson og Valdemar Helgason. 18.00 Djassþáttur. Umsjón: Jón Múli Arnason. (Einnig útvarpað á þriðjudagskvöld kl. 23.15.). 18.48 Dánarfregnir og auglýsing- ar. 19.30 Auglýsingar og veðurfregn- ir. 19.35 Óperuspjall. Idomeneo eftir Mozart Umsjón: Ingveldur G. Ólafsdóttir. 21.10 Kíkt út um kýraugað. Ástir i stríði. Um ástir íslenskra kvenna og hermanna á hernáms- árunum. Umsjón: Viðar Egg- ertsson. Lesarar: Anna Sigríður Einarsdóttir og Kristján Frank- lín Magnús. (Áður á dagskrá í apríl 1991.). 22.27 Orð kvöldsins. 22.30 Veðurfréttir. 22.35 „Sori í bráðinu", smásaga eftir Halldór Stefánsson Guð- mundur Magnússon les. 23.10 Tónlist. 0.10 Dustað af dansskónum. Létt lög í dagskrárlok. 1.00 Næturútvarp á samtengdum rásum til morguns. Friltir ó RÁS I og RÁS 2 kl. 7, 8, 9, 10, 12.20, 16, 19, 22 og 24. RÁS 2 FM 90,1/99,9 8.05 Vinsældalisti götunnar. Ólaf- ur Páll Gunnarsson. 8.30 Endur- tekið: Dótaskúffan frá mánudegi og Ef væri ég söngvari frá miðviku- degi. 9.03 Laugardagslif. Umsjón: Hrafnhildur Halldórsdóttir. 12.45 Helgarútgáfan. Skúli Helgason. 16.05 Heimsendir. Margrét Kristín Blöndal og Sigurjón Kjartansson. 17.00 Með grátt í vöngum. Gestur Einar Jónasson. 19.30 Veðurfrétt- ir. 19.32 Vinsældalisti götunnar. Umsjón: Ólafur Páll Gunnarsson. 20.30 í poppheimi. Halldór Ingi Andrésson. 22.10 Blágresið blíða. Magnús R. Einarsson. 23.00 Næt- urvakt. Guðni Már Henningsson. NJETURÚTVARPID 1.30 Veðurfregnir. Næturvakt. 2.00Fréttir. 2.05 Næturlög. 4.30 Veðurfréttir. 4.40 Næturlög halda áfram. 5.00 Fréttir. 5.05 Stund með Savanna tríóinu. 6.00 Fréttir, veður færð og flugsamgöngur. 6.03 Ég man þá tið. Hermann Ragnar Stefánsson. (Veðurfregnir kl. 6.45 og 7.30). Morguntónar. ADALSTÖDIN 90,9 / 103,2 9.00 Albert Ágústsson. !3.00Gurrí og Górillan. 16.00 Björn Markús. 19.00 Tónlistardeildin. 21.00 Næt- urvaktin. Óskalög og kveðjur. Umsjón: Jóhannes Ágúst. BYLGJAN FM 98,9 7.00 Morguntónar. 9.00 Morgunút- varp með Eiriki Jónssyni. 12.10 Ljómandi laugardagur. Pálmi Guð- mundsson og Sigurður Hlöðvers- son. 16.00 íslenski listinn. Umsjón: Jón Axel Ólafsson. 19.00 Gullmol- ar. 20.00 Laugardagskvöld á Bylgjunni. 23.00 Hafþór Freyr Sig- mundsson. Hressileg tónlist. 3.00 Næturvaktin. Frittir kl. 10, 12, 15, 17 og 19.30. BYLGJAN, ÍSAFIRÐI FM 97,9 9.00 Samtengt Bylgjunni FM 98,9. 20.00 Tveir tæpir. Víðir Arnarson og Rúnar Rafnsson. 23.00 Gunnar Atli með næturvakt. Síminn í hljóð- stofu 93-5211. 2.00 Samtengt Bylgjunni FM 98.9. BROSID FM 96,7 Ókynnt tónlist allan sólnrhringinn. FM 957 FM 95,7 9.00 Haraldur Gíslason. 11.00 Sportpakkinn. Vaigeir Vilhjálms- son. 13.00 Agnar Örn, Ragnar Már og Björn Þór. 17.00 American top 40. Shadow Stevens. 21.00 Ásgeir Kolbeinsson. 23.00 Ragnar Páll Ólafsson. 3.00 Nætui-vaktin. TOP-BYLGJAN FM 100,9 7.00 Sjá dagskrá Bylgjunnar FM 98,9. 10.00 Svæðisútvai-p TOP- Bylgjan. 11.00 Samtengt Bylgj- unni FM 98,9. X-IÐ FM 97,7 7.00 Þossi. 10.00 Baldur Bragason. 14.00 Árni Þór. 18.00 Party Zone. 22.00 X-næturvaktin 02.00 Þossi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.