Morgunblaðið - 27.08.1994, Side 34

Morgunblaðið - 27.08.1994, Side 34
MORGUNBLAÐIÐ 34 LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1994 VAGNHÖFÐA 11, REYKJAVÍK, SÍMI 685090 Dansleikur í kvöld kl. 22-03 Frítt inn til ki. 24 Hljómsveitin Tónik leikur fyrir dansi Dúndrandi danssveifla með Danssveitinni _____Borðapantanir í síma 686220 j v ................ .........) ÆUMEINBAX „Porsche“ á meðal þvottavéla Kynning í dag frá kl. 10-16 Austurrískur sérfræðingur verður á staðnum til að svara fyrirspurnum. Margverðlaunuð þvottavél. Rafbraut Bolholti 4, sími 681440 I DAG Farsi ,/Oy sjá&ci, e/skanj JJún> teit/uxbL shipuiagstjppoifxutt l" BRIDS Ums]ðn Guömundur Páll Arnarson EFTIR að vestur opnar og austur svarar, gefur suður alla slemmudrauma upp á bátinn. En geim er ennþá sterklega inni í myndinni. Vestur gefur; allir á hættu. Suður 4 ÁDG1097 V ÁK8 ♦ Á9 ♦ 75 Vestur Norðtir Aœtar Suður 1 tígull Pass 1 hjarta ? Hvemig myndi lesandinn bregðast við með spili suð- urs? Það fyrsta sem manni dettur í hug er að gösiast beint í 4 spaða, enda makker varla líklegur til að taka virk- an þátt í sögnunum. En þessi fyrsta hugdetta er ekki góð. í fyrsta lagi er engin ástæða til að vaða í geim á móti eyðimörk og í annan stað - ef ekki er hægt að stilla sig um að segja geimið - sakar ekki að gefa mótheijanum tækifæri til að lýsa spÚunum betur! Á þessu stigi málsins er best að dobla: Norður ♦ 84 V G2 ♦ 7643 ♦ G643 Austur 4 6532 I V D10964 111111 ♦ KIO ♦ 82 Suður ♦ ÁDG1097 V ÁK8 ♦ Á9 ♦ 75 Vestur Norður Austur Suður 1 tíguil Pass 1 hjarta Dobl 2 lauf Pass Pass 4 spaðar Pass Pass Pass Þrír spaðar er nóg eftir doblið, en þessi suður er gráðugur. Vestur tekur tvo fyrstu slagina á ÁK í laufí og skiptir síðan yfir í tígul. Sagnhafí drepur á ásinn, spilar þrisvar hjarta og sting- ur í borði. Síðan spaða á ás! Að sjálfsögðu! Vestur var þrisvar með í hjarta og hefur í sögnum sagt frá 5-4 í tígli og laufi. Hann getur því ekki átt nema einn spaða, svo það er tilgangslaust að svína fyr- ir kónginn. Austur á fjórlit í trompi. Ef suður stekkur beint í flóra spaða hefur hann ekki sömu upplýsingar um spil mótheijanna. Vestur 4 K ▼ 753 ♦ DG852 4 ÁKDIO VELVAKANDI Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Hjálpsemi þökkuð KONA hringdi til Vel- vakanda og vildi koma þakklæti á framfæri til mannanna sem hjálpuðu henni fyrir nokkru í Borgartúni. Þannig var mál með vexti að konan var að reka erindi í Borg- artúninu og þegar hún kom aftur að bíl sínum var miði á rúðunni sem á stóð að það væri sprungið á hægra fram- dekki á bílnum. Þetta kom illa við hana þar sem hún hafði aidrei skipt um dekk á bíl og bað hún mann sem staddur var í grenndinni að hjálpa sér. Hann brást vel við og ætlaði að gera það, en þá komu þar að tveir menn og buðust til að aðstoða hana við dekkja- skiptin og var annar þeirra sá sem sett hafði miðann á rúðuna. Kann hún þessum mönnum bestu þakkir fyrir hjálpsemina. Tapað/fundið Slæða tapaðist RAUÐRÓSÓTT silkislæða tapaðist á bílastæðinu við Aðalstræti inn á Ingólfstorg sl. laugardag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 15497. Jasmin ertýnd HÚN HVARF frá Laugalæk fýrir tveim mánuðum. Hún er grábröndótt með smá gulum flekkjum niður á fætuma og var með bleika ól með nafninu sínu og símanúmeri. Hafí einhver orðið hennar var er hann vinsamlega beðinn að láta vita í síma 30252 eða 626924. HINRIK Gylfason, Arnar Kormákur Friðriksson og Kolbeinn Gauti Friðriksson söfnuðu 6.181 krónu, sem þau færðu Rauða krossinum til styrktar Rúanda. Víkveiji skrifar... Lánasjóður íslenzkra náms- manna er hættur að vera ölm- usugjafastofnun eftir að vextir voru settir á námslánin og reglum um endurgreiðslu breytt. Nú taka menn lán hjá lánasjóðnum eins og hverri annarri lánastofnun og sömu reglur gilda að mörgu leyti; settar eru tryggingar fyrir lánum o.s.frv. Menn skyldu því ætla að þeir, sem þurfa að skipta við lánasjóðinn, fengju því svipaða þjónustu og vænzt er hjá öðrum stofnunum, að þeir mæti a.m.k. ekki dónaskap. Kunningi Víkveija, sem er nýkom- inn heim frá framhaldsnámi, sagði þó aðra sögu. XXX Kunninginn lauk námi erlendis með láði og sendi lánasjóðn- um staðfestingu hins erlenda há- skóla upp á það, ásamt upplýsing- um um nýjan bankareikning, sem hann viidi fá seinustu útborgun námslánsins inn á. Skömmu síðar fékk hann símtal frá starfsmanni lánasjóðsins, sem vitnaði í bréf kunningjans, og sagði að ekki væri hægt að leggja inn á nýjan banka- reikning nema fá staðfestingu við- komandi banka á því að ekki mætti lengur leggja inn á gamla reikning- inn. Kunninginn var fljótur að kippa því í liðinn og hallaði sér svo bara aftur á bak og beið eftir peningun- um, sem hann vantaði sárlega, ný- kominn að utan og með þungan visareikning á herðum. xxx rjár vikur liðu án þess að lagt væri inn á reikninginn og lán- þeginn fór að ókyrrast, hringdi í lánasjóðinn og spurði hvenær hann mætti eiga von á útborguninni. Samtal við starfskraft LÍN var eitt- hvað á þessa lund: Starfskraftur: Þú færð útborgað þegar staðfesting á námsframvindu hefur borizt frá skóla. Lánþegi: Hún var send í pósti fyrir þremur vikum. Starfskraftur: Nei, hún hefur ekki komið. Lánþegi: Það var hringt í mig frá lánasjóðnum út af þessu bréfí, þannig að það hlýtur að hafa borizt ykkur. Starfskraftur: Við erum nú ekki vön að hringa svoleiðis símtöl. Nei, það kemur ekkert fram í tölvunni um að það hafi borizt. . Lánþegi: Það var haft samband vegna þess að ég bað um innlögn á nýjan bankareikning. Starfskraftur: Það er nú önnur deild. En ef þetta hefur komið er það komið í fæl. (Eftir Ieit í „fæln- um“): Nei, þetta hefur ekki borizt. Lánþegi: Þetta hefur borizt, það hefði ekki verið hringt í mig út af því sem stóð í bréfinu ef það hefði aldrei komið til ykkar. Starfskraftur (vélrænni röddu): Því miður, ég held að þetta hafi bara ekki komið. Lánþegi (æstur): Bréfið er bará týnt og þetta er eitthvert klúður hjá ykkur. J Starfskraftur (hinn rólegasti): Það gæti nú eins verið klúður hjá þér... xxx Námsmanninum fannst, rétti- lega að mati Víkveija, að það hefði hugsanlega verið affarasælla hefði starfskrafturinn sagt elsku- lega sem svo: Það gæti verið að þetta hefði nú bara týnzt hérna innanhúss hjá okkur. Við biðjum þig að afsaka það og sennilega væri bezt fyrir alla að þú sendir okkur nýtt afrit á faxinu. — En opinberar stofnanir gerá ekki mistök, eða hvað?

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.