Morgunblaðið - 07.09.1994, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.09.1994, Blaðsíða 2
2 C MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLA.ÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 7. SEPTEMBER 1994 C 3 EVROPUKEPPNI LANDSLIÐAI KNATTSPYRNU EVROPUKEPPNI LANDSLIÐAI KNATTSPYRNU Sanngjam Svíasigur íslenska liðið sterkt á pappírnum en stóð ekki undirvæntingum SVÍAR unnu sanngjarnan sigur á ísiendingum, 1:0, ífyrsta leik liðanna í undankeppni Evrópumóts 21 árs og yngri í knattspyrnu á Kaplakrikavelli í gærkvöldi. Það verður að segjast alveg eins og er að íslenska liðið — sem var sterkt á pappfrnum — stóð ekki undir þeim væntingum sem til þess voru gerðar og þrátt fyrir að frammistaða Svía væri alls ekki framúrskarandi voru þei' áberandi betri. i Skapti Hallgrimsson skrifar Það var fljótt ljóst að Svíar voru ákveðnari. Þeir létu knöttinn ganga ágætlega milli manna, héldu honum vel innan liðsins og meira bit var í sóknarleik þeirra en heima- manna. íslensku strákarnir virkuðu taugaóstyrkir og þrátt fyrir að vera einum fleiri á miðjusvæðinu náðu þeir aldrei tök- um á verkefninu. Miðjumennirnir náðu ekki nægilega vel saman, sendingar voru iðulega slæmar og þar af leiðandi gekk illa að byggja upp markvissar sóknir. Helgi Sigurðsson fékk eitt gott URSLIT Island - Svíþjóð 0:1 Kaplakrikavöllur, Evrópukeppni landsliða, leikmanna 21 árs og yngri, í knattspyrnu, þriðjudaginn 6. september 1994. Aðstæður: Rakur völlur og nokkuð háll, sól en strekkingsvindur. Mark Svía: Niklas Skoog (58.) Gult spjald: Johan Arnegrund (87.), Sví- þjóð, fyrir brot. Rautt spjald: Ekkert. Ahorfendur: Dómari: Knud Erik Fisker frá Danmörku. Dæmdi vel. ísland: Eggert Sigmundsson — Lárus Orri Sigurðsson, Óskar Hrafn Þorvaldsson, Pét- ur H. Marteinsson — Sturlaugur Haraldsson (Kári Steinn Reynisson 75.), Ottó Karl Ott- ósson, Eiður Smári Guðjohnsen (Auðun Helgason 63.), Kristinn Hafliðason, Tryggvi Guðmundsson — Guðmundur Benediktsson, Helgi Sigurðsson. Svíþjóð: Magnus Hedman — Johan Ame- grund, Teddy Lucic, Ola Nilsson, Sebastian Henriksson — Henrik Hansson, Joakim Persson, Matthias Johansson, Daniel Tjernström — Niklas Skoog, Matthias Jons- son. 4. deild Síðari undanúrslitaleikir: Magni-Ægir.........................1:3 Stefán Gunnarsson — Halldór Páll Kjartans- son, Dagbjartur Pálsson, Ármann Einars- son. •Ægir vann samanlagt 8:3. Leiknir - KS.......................0:2 - Baldur Benónýsson, Hafþór Kolbeins- son. • Leiknir vann samanlagt 4:3. Leiknir og Ægir flytjast upp í 3. deild en eiga eftir að mætast í úrslitaleik 4. deildar. Evrópukeppni landsliða Prag, 5. riðill: Tékkland - Malta...................6:1 Daniel Smejkai (6.), Lubos Kubik (33.), Horst Siegl 3 (35., 49., 81.), Patrik Berger (89.) - Kristian Laferla (75.) 10.226 BÞetta var fyrsti Evrópuleikur Tékklands, eftir að skiptingu Tékkóslóvakíu, og fyrsti leikur A-landsliða í undankeppni Evrópumótsins að þessu sinni. EM 21 árs og yngri Tékkland - Malta...................1:0 Rúmenía - Azerbaijan...............5:2 Úkraína - Litháen..................3:2 Slovakía - Frakkland...............0:3 Finnland - Skotland................1:0 Luxembourg- Hoiland................0:4 Ungveijaiand - Tyrkland............2:1 ■ Liðin eru með íslandi í riðli. Belgía - Armenína..................7:0 Tennis Opna bandaríska mótið. Átta manna úrslit kvenna: 2-Arantxa Sanchez Vicario (Spáni) vann 5- Kimiko Date (Japan) 6-3 6-0 8-Gabriela Sabatini (Argentinu) vann Gigi Fernandez (Bandarikj.) 6-2 7-5 • f fyrradag sigraði Andre Agassi, Banda- ríkjunum, landa sinn Michael Chang 6-1 6- 7 6-3 3-6 6-1 og komst þar með í átta manna úrslit. Svíinn Stefan Edberg er einn- ig úr leik; Jonas Björkman sigraði þennan fræga landa sinn 6-4 6-4 6-0. færi í fyrri hálfleiknum, eftir lag- lega sókn upp vinstri kantinn, en rann til og skot hans var auðveld- lega varið. Skömmu síðar bjargaði Pétur Marteinsson rétt framan við marklínu íslands, og var það hættu- legasta færi hálfleiksins. Svíar voru mun sókndjarfari í fyrri hálfleikn- um, þrátt fyrir að leika gegn sterk- um vindi. „Við áttum alltaf möguleika að spila í fætur miðjumanna okkar, en þeir gerðu þau mistök að fara of mikið fram í stað þess að koma til baka og taka á móti boltanum. Þegar tókst að spila rétt náðum við að skapa eitthvað, en það var bara allt of sjaldan," sagði Gústaf Björnsson, þjálfari. „Svíarnir léku nákvæmlega eins og við bjuggumst við, en miðjumennirnir okkar voru of framarlega í fyrri hálfleiknum til að geta fengið boltann. Við töluð- um um það í leikhléinu að það lið sem yrði þolinmóðara myndi vinna — og það voru þeir,“ sagði Gústaf, sem bætti við að íslensku strákarn- ir hefðu borið aðeins of miklu virð- ingu fyrir mótheijunum, þegar út í báráttuna var komið. Og tók und- ir orð blaðamanns að sendingar hefðu allt of oft verið slæmar. „Það er auðvitað sér kapítuli út af fyrir sig. Þær voru oft hræðilegar." Gústaf sagði sænska liðið ekki hafa verið eins gott og hann bjóst við, hann hefði séð það gegn Dönum nýlega og þá hefði það leikið mun betu.r. Rétt er að Svíar voru ekki að gera neinar rósir, og það eina sem kom á óvart var að íslenska liðið skyldi ekki leika betur. í liðinu eru margir góðir leikmenn sem hafa burði til að gera miklu betur, en liðsheildin var ekki eins sterk og einstaklingarnir gefa tilefni til. Sigurmark Svía gerði Niklas Skoog á 58. mín. með föstu skoti utan vítateigs, sem Eggert Sig- mundsson, markvörður — besti maður íslenska liðsins — verður ekki sakaður um. Svíar sóttu mun meira framan af hálfleiknum, en eftir að Lárus Orri Sigurðsson kom fram á miðj- una gjörbreyttist leikur íslenska liðsins um tíma — sem leiðir hug- ann að því að líklega hafa miðju- mennirnir hreinlega ekki verið nægilega sterkir. Það dugði ekki að hafa eingöngu létta og lipra menn á miðsvæðinu. Lárus Orri var maðurinn á bak við þijár bestu sóknir liðsins eftir að hann kom framar. Besta færið kom eftir góða fyrirgjöf hans frá hægri á Guðmund Benediktsson, sem sendi laglega með hælnum á Tryggva Guðmunds- son. Hann var í ákjósanlegu færi í miðjum en skaut hátt yfir. Þar fór besta færi íslands forgörðum. Und- ir lokin var Helgi svo reyndar í góðu færi, eftir sendingu Lárusar Orra, en þrátt fyrir glæsileg tilþrif hitti hann knöttinn ekki nægilega vel og ekkert varð úr. Eggert markvörður var besti maður íslands, sem fyrr segir. Mjög öruggur í öllum aðgerðum sínum, greip vel inn í og varði nokkrum sinnum vel. Lárus Orri var einnig mjög góður, bæði meðan hann var í vörninni og eftir að hann var færð- ur framar. Aðrir léku undir getu, sumir nokkuð langt. Morgunblaðið/Árni Sæberg HELGI Sigurðsson með knöttinn í leiknum, en tveir Svíar sækja að honum. E.t.v. táknræn mynd; þó Svíarnir væru t.d. með einum færra á miðsvæðinu voru þeir ákveðnari og höfðu tök á miðjunni. „Leikurinn verður erfiður fyrir Svía“ -segir Bo Johansson, ■fyrrum landsliðsþjálfari Islands BO Johansson, fyrrum lands- liðsþjálfari íslands spáir því að leikurinn í kvöld verði Svíum erfiður. Þeir séu vissulega með gott lið, en íslendingar séu það líka. Eg hef trú á að Svíar verði með boltann mestan hluta leiksins, en þeir verða að passa sig mjög vel á skyndisóknum Islendinga. I hrein- skilni sagt held ég þetta verði mjög erfiður leikur fyrir Svía, því ég veit að íslenska liðið er mjög gott hér á heimavelli. Þetta verður því spennandi leikur, og ég vona að hann verði skemmtilegur fyrir áhorfendur, sagði Bo Johansson í samtali við Morgunblaðið. Eftir frábært gengi á HM gæti aðal vandamál Svía fyrir þennan leik verið að ná upp réttri einbeit- ingu; Heldurðu að þeim takist það? „Ég tel, einsog þú, að það sé mjög erfitt, en held að Tommy Svensson og Tord Grip séu tveir þeir bestu til að mótívera menn. Það er alls ekki auðvelt að hafa þessa hluti í lagi, og í því felst möguleiki fyrir ísland, en þetta at- riði er alls ekki eini möguleikinn. Lið Islands er gott og í því eru margir góðir leikmenn. í knatt- spymu veit maður aldrei hvað ger- ist, og þess vegna held ég að ísland eigi góða möguleika." Ef þú værir enn þjálfari Islands, hvernig myndirðu láta liðið spila gegn Svíunum; hvað myndirðu segja strákunum fyrir leik gegn sænska liðinu eins og það er í dag? „Auðvitað er öest að hafa bolt- ann. Ef tækifæri gefst til þess er það vitaskuld besta leiðin og stjórna leiknum þannig. Þá reynir maður það, en ég reikna ekki með að leik- urinn þróist þannig. Hlutfallið gæti orðið 60% á móti 40% Svíum í hag, en það þýðir ekki að úrslitin verði endilega í samræmi við það. Við lékum við Dani fyrir nokkrum árum og mig minnir að mig hefðum bolt- ann jafn mikið þeir og höfum feng- ið betri marktækifæri en þeir. Leik- urinn var reyndar markalaus en nokkrum mánuðum síðar urðu Dan- ir Evrópumeistarar. Þess vegna eiga Islendingar auðvitað mögu- leika gegn Svíum, jafnvel þó þeir hafi orðið númer þrjú í heimsmeist- arakeppninni.“ Myndirðu segja leikmönnum þín- um að bíða aftarlega á vellinum, láta Svíana koma og beita síðan skyndisóknum? Er það eina leiðin? „Ég held það sé ekki eina leiðin, nei. Ef íslendingar fá að hafa bolt- ann eitthvað að ráði — og ég held Ásgeir vilji að það helst — fá þeir fleiri möguleika en ella á að skapa marktækifæri. Ef þeir eiga hins vegar ekki möguleika á að vera mikið með boltann verða þeir að bakka, og bíða eftir skyndisóknun- um. Og ef svo fer verður það í Iagi; það hentar íslendingunum ágæt- lega.“ Þú þekkir íslensku leikmennina vel. Eru Svíarnir að þínu mati með betri leikmenn í öllum stöðum? „Ég hef séð alla íslensku leik- mennina, en veit auðvitað ekki hvernig byijunarliðið verður. En, já - kannski er hægt að segja það eftir frammistöðu þeirra á HM að Svíar eigi að vera með betri menn í öllum stöðum. Þeir urðu númer þrjú og stóðu sig mjög vel, en ég held þó að sumir íslendingarnir geti komið sænska liðinu mjög á óvart og sums staðar á vellinum er ég á því að leikmenn íslands séu betri.“ Eru það einhverjir sérstakir sem þú ert með í huga? „Já — Jolli [Eyjólfur] er mjög góður og verður þeim áreiðanlega mjög erfiður. Hann hefur öðlast mikla reynslu. Ef Arnór verður í réttu skapi og finnur sig vel verður hann mjög hættulegur, og ef Siggi Jóns og hinir miðjumennirnir leika eins og þeir geta — baráttuandinn verður í lagi — held ég að Svíar verði í erfiðleiknum með að stjórna miðsvæðinu." / hverju felst helsti styrkleiki Svíanna að þínu mati? Hvað verður erfiðast fyrir íslendingana að ráða við? „Styrkurinn felst fyrst og fremst í skipulaginu. Það er mikill agi í liðinu og allir hlutir vel skipulagðir. Þeir geta alltaf spilað eins og þeir vilja, en taka verður fram að ís- lenska liðið er líka vel skipulagt á sinn hátt. Svíarnir eru mjög agaðir í vörninni, þó þeir sækji mikið er alltaf í lagi með vörnina, hún er alltaf vel skipulögð. Helstu vanda- málin fyrir íslendingina verða „í loftinu" fyrir framan íslenska mark- ið. Ef Kennet Anderson og Martin Dahlin spila verða þeir íslendingum mjög erfiðir; þeir eru mjög sterkir „í lpftinu" — ég er ekki viss um að íslendingar geti ráðið við það. Eins gæti orðið erfitt að ráða við Martin Dahlin vegna þess hve hann er ofboðslega fljótur.“ Þegar Johansson var að síðustu beðinn að spá um úrslit leiksins, sagði hann: „Svíar geta unnið 2:1 en leikurinn gæti alveg eins farið 1:1. Og ég yrði svo sem ekkert mjög hissa þó ísland sigraði 1:0. En ég er viss um að margir aðrir yrðu mjög hissa!“ Erum ekki of sigurvissir - segir HM-stjarnan Tomas Brolin um EM- leikinn í kvöld TOMAS Brolin, leikmaður með Parma á Ítalíu, sagði við Morgun- blaðið að leikurinn í kvöld yrði erfið- ur. „íslendingar eru með gott lið og við komum ekki til leiks of sigur- vissir. Það er ekkert lið í Evrópu auðvelt hvorki fyrir okkur né aðra og hvað þá á útivelli," sagði Brolin. Brolin sagðist einu sinni hafa komið til íslands áður, en það var árið 1988 er hann lék með U-21 árs liði Svía í Vestmannaeyjum. Fljótlega eftir það - gerðist hann leikmaður á Ítalíu. „Ég er búinn að leika á Ítalíu í fimm ár og lík- ar vel,“ sagði hann. „Við erum ailir staðráðnir í að gera okkar besta. Islendingar eru þekktir fyr- ir mikla baráttu og við eigum von á því að þeir sýni hana í þessum leik. Öll lið vilja vinna Svíþjóð. Flestir búast við ör- uggum sigri okkar, en við erum jarð- bundnir og gerum okkur grein fyrir mik- ilvægi fyrsta leiksins í EM riðlinum. Við stefnum að sjálfsögðu að því að tryggja okkur sæti í úrslitakeppninni í Englandi eftir tvö ár og til þess þurfum við að byrja vel.“ Brolin sagðist ekki þekkja mikið til íslenskrar knattspyrnu. „Ég veit jú að tveir íslenskir leikmenn hafa staðið sig vel með Örebro í sænsku deildinni. Ég hef ekki séð íslenska landsliðið spila, en við munum skoða íslenska liðið í leik á myndbandi í kvöld [í gærkvöldi]. Svens- son þjálfari veit allt um íslenska liðið — maður kemur ekki að tómum kofanum hjá honum.“ - Verða ekki mikil viðbrigði að spila hér á íslandi í köldu veðri miðað viðhitamoll- una á HM í Bandaríkjunum? „Veðrið skiptir okkur engu máli þegar inná völlinn er komið. Við höfum kynnst ýmsu í gegnum árin og spilum okkar leik. Það er ekkert betra að spila I of miklum hita eins og var í Bandaríkjun- um. Ég kann mun betur við þessa ís- lensku veðráttu, sem er ekkert ósvipuð því sem við eigum að venjast heima í Svíþjóð.“ Ravelli spilar Thomas Ravelli, markvörður, meiddist í leik með IFK Gautaborg í sænsku deild- inni um helgina, en sagðist, I samtali við Morgunblaðið, engu að síður spila í kvöld. Hann fékk högg á öxl snemma í leik gegn Helsingborg og fór af velli í hálfleik er staðan var 5:2, en IFK vann 6:3. Hann æfði ekkert að ráði fyrr en I gær, en sagðist vera í góðu standi og yrði á milli stanganna í kvöld. Erfiðasti heimaleikur íslendinga í keppninni - segirÁsgeir Elíasson, landsliðsþjálfari um viðureignina við Svía ISLAND byrjar að þessu sinni í Evrópukeppni landsliða í knatt- spyrnu með þvf að taka á móti bronsliði Svíþjóðar frá heims- meistarakeppninni í Bandaríkjunum í sumar og hefst leikurinn klukkan 20 á Laugardalsvelli fkvöld. Ásgeir Elíasson, landsliðs- þjáifari, sagði við Morgunblaðið ígærkvöldi að allirteldu Svi'a sigurstranglegri, sem þeir óneitanlega væru. Þess vegna væri helsta álagið fólgið í þvf að vera að byrja í nýrri keppni, því markmiðið væri að gera betur en síðast, þegar liðið náði 50% árangri, sem er það besta í sögu landsliðsins. Til að ná markmið- inu yrði helst að sigra í öllum heimaleikjunum og þessi væri sá erfiðasti, en með samstilltu átaki allra, leikmanna og áhorfenda, væri möguleiki fyrir hendi. Asgeir tilkynnti byijunarliðið eftir æfingu í gær, daginn fyrir leik eins og hann hefur alltaf gert. „Ég tel það vera betra fyrir leikmennina, en ég verð ek.ki tilbú- inn með varamennina fyrr en skömmu fyrir leik. Hins vegar vor- um við sammála um að 18 menn væru í liðinu og tveir verða ekki á bekknum.“ Svíar hafa kortlagt þetta lið og sagðist Ásgeir ekki getað séð að hann kæmi þeim á óvart. „Það er smávegis nýtt í aukaspyrnum og hornum, sem þeir hafa ekki séð hjá okkur áður, en að öðru leyti hafa þeir skoðað síðustu Ieiki okkar og ég á von á að þeir viti hvað við erum að reyna að gera.“ Hefðbundið hjá Svíum Ásgeir sagði að vissulega gætu Svíar sofnað á verðinum eftir vel- gengnina á HM. „Það styrkir okkur ekki en veikir þá og það hjálpar okkur ef þeir eru öruggir og halda að þeir þurfi ekki að hafa fyrir hlut- unum. Það eru mestar lýkur á að þeir sigri og það er erfitt fyrir þá að fara í leikinn án þess að vera nokkuð öruggir með sig, en þess ber að geta að Svíar eru þjóða lík- legastir til að ná réttri einbeitingu í svona leik.“ Svíar hafa beitt 4-4-2 leikaðferð- inni með góðum árangri undanfarin ár og sagðist Ásgeir ekki gera ráð fyrir að þeir breyttu út af vananum, þó hann teldi að ein uppstilling væri betri en aðrar gegn íslenska liðinu. „Ég er ekki viss um að það sé betra fyrir þá að breyta ein- hveiju í leikstíl sínum, því þeir hafa spilað svona lengi og gert það vel.“ Mótheijar Svía í HM fengu að finna fyrir styrk Anderssons _og Dahlins í fremstu röð og sagði Ás- geir að áhersla yrði lögð á að vera ‘á varðbergi gagnvart þeim. „Við verðum fyrst og fremst að reyna að koma í veg fyrir krossana og því kemur til með að mæða mikið á vængmönnunum, miðjumönnun- um og bakvörðunum.“ Ásgeir sagði alveg ljóst að þetta yrði erfiður leikur í 90 mínútur, en skipulagið yrði hefðbundið. „Við byijum af fullum krafti, veijumst þegar við þurfum og sækjum þegar við þurfum og reynum að pressa þá framarlega þegar tækifæri gefst. Aðalmálið fyrir okkur er að vera við sjálfir. Þetta er erfiðasti heimaleikur okkar í keppninni og sá sem líklegast er að við töpum, en þó við séum aldrei ánægðir með að tapa og viljum alltaf sigra skipt- ir öllu að strákarnir standi sig vel og geri sitt besta. Ég held að allir sætti sig við það.“ Þáttur áhorfenda mikilvægur Ásgeir sagði að þáttur áhorfenda væri mjög mikilvægur og nefndi þrennt í því sambandi. „Áhorfendur geta spilað stórt hlutverk með því að standa með Reynum að gera Svíunum Irfið leitl - segir Guðni Bergsson, fyrirliði íslenska liðsins GUÐNI Bergsson, fyrirliði ís- lenska landsliðsins í knatt- spyrnu, segir að þó Svíar séu með eitt besta lið í heimi verði farið í Evrópuleikinn með sama hugarfari og aðra leiki, að sigra. íslenska liðið þurfi fyrst og fremst að hugsa um eigin leik og stefnan sé að gera vel, hvort sem er í vörn eða sókn. Guðni sagði að í raun væri þetta eins og hver annar leikur. „Við stillum upp eins og venjulega og síðan verðum við að taka því sem að höndum ber. Við vitum af Ánders- son og Dahlin frammi og höfum fuilan hug á að halda þeim niðri. Við gerum það best með því að vera fastir fyrir og vel vakandi, en við þurfum ekki að gera sérstakar ráð- stafanir vegna fyrrnefndra manna. Vissulega er ógn af þeim í loftinu og við verðum að stöðva þá þar, en það kemur í ljós hvernig við förum að _því.“ í stórmótum hefur yfirleitt verið á brattann að sækja hjá íslandi og sagði Guðni að álagið væri því oft Forsalan lofar gódu Tæplega átta þúsund miðar höfðu selst í forsölu í gær. Eggert Majgnússon, for- maður Knattspyrnusambands Islands, sagði í gærkvöldi að ákveðið hefði verið að bæta við tveimur sölustöðum, á bílastæðunum í Kringlunni og við Ikea í Holtagörðum, í tengslum við sérstakar strætisvagnaferðir þaðan á leikinn og til baka. „Lögreglan kemur til með að stjórna um- ferðinni í Laugardal og beina fólki á bíla- stæði,“ sagði Eggert. „Hins vegar lofar forsal- an mjög góðu og það stefnir í sérlega góðan stuðning, jafnvel aðsóknarmet á landsleik, sem er rúmlega 15.000 manns. Þess vegna tel ég ástæðu til að ítreka að fólk kaupi miða í forsölu og mæti tímanlega til að forðast óþarfa bið utan vallar.“ Þess má geta að spáð er ágætis knatt- spyrnuveðri, svipuðu og var í gærkvöldi. T Þjálfari: Varamenn: (5 af 7) Ásgeir Elíasson Kristján Finnbogason Izudin Daði Dervic Ólafur Þórðarson ÓlafurAdolfsson Bjarki Gunnlaugsson Haraldur Ingólfsson Arnar Grétarsson Sigursteinn; Gíslason Martin Dahlin Birkir Kristinsson Þjálfari: Varamenn: (5 af 7) Tommy Svensson Lars Eriksson Pontus Kámark Mikael Nilsson Jesper Blomquist Magnus Erlingmark Stefan Rehn Henrik Larsson Tomas Brolin Hákoní Mild Roland Nilsson Joachim Bjðrklund Stefan SchwartZ' Kennet Anderson Klas Ingesoh Thomas Ravelli okkur allan tímann, hvað sem taut- ar og raular, og snúast aldrei gegn liðinu. í öðru lagi með því að reyna að draga örlítið niður í Svíunum, sem skiptir kannski ekki megin máli, því þeir eru vanir að sigra á útivelli fyrir fullu húsi, 50 til 60 þúsund manns. í þriðja lagi geta áhorfendur haft áhrif á það að við fáum dæmd vafaatriði okkur í hag eins og liðin fá á heimavöllum, þeg- ar við leikum úti — stuðla að því að Svíarnir fái sömu meðhöndlun og við fáum á útivelli.“ Hann sagði að yfirleitt létu áhorf- endur hérna ekki í sér heyra nema þegar vel gengi, en mikilvægt v-æri að þeir væru með allan tímann. „Áhorfendur vilja ekki að boltinn rúlli Ijórum til fimm sinnum á milli öftustu varnarmanna og láta oft óánægju sína í ljós, þegar það ger- ist. Hins vegar væri gott ef strák- arnir fengju frið til þess að vera með boltann án þess að fólk heimti beinar sóknaraðgerðir. Stór hluti af þessu er að sýna þolinmæði því ég á ekki von á að Svíarnir pressi mjög framarlega, en þeir gætu orð- ið óþolinmóðir og komið framar, ef við höldum boltanum. Þá yrði auð- veldara fyrir okkur að beita bein- skeyttari sóknaraðgerðum og að því er stefnt.“ minna. „Við höfum alltaf verið í þessu hlutverki og höfum því allt að vinna. Hins vegar er ekki okkar stefna að liggja í nauðvörn, heldur reynum við að byggja upp eftir bestu getu, koma miðjunni inn í spilið og þjarma að þeim. Samt verður að hafa í huga að erfitt er að plana fyrirfram og leggja upp fastmótaða hluti, því totboltinn er óútreiknan- legur. Svíar eru fullir sjálfstrausts og gera ráð fyrir sigri, en við reynum að gera þeim lífið eins leitt og við mögulega getum, því við stefnum líka að sigri.“ Líklegt byrjunarlið Svía Arnór Guðjohnsen Úrslitin undir okk- ur komin ARNÓR Guðjohnsen er með reyndari knattspyrnumönn- um landsins og segir að ekkert sé ómögulegt. „Svíar eru mjög skipulagðir og við verðum að reyna að rugla þetta skipulag, en það get- um við gert með því að ná toppieik." Arnór sagði að svonefndar stjörnur í sænska liðinu væru það ekki þar, því liðið byggðist á sterkri liðsheild. „Ef liðið nær ekki vel saman njóta einstaklingarnir sín ekki, en Svíarnir hafa leikið lengi saman og vinna sem ein heild. Við verð- um að reyna að nýta sóknirnar, fá boltann fyrir framan mark þeirra á svipaðan hátt og við gerðum gegn Eistlandi fyrir norðan. Eins verðum við að va- rast skyndisóknir þeirra og við vitum hvað Andersson er sterkur i loftinu.“ Ekki hefur farið framhjá nein- um að Svíar urðu í þriðja sæti í heimsmeistarakeppninni í Bandaríkjunum fyrr í sumar og sagði Arnór að þess vegna væri gott að mæta þeim núna. „Ég þekki það af eigin reynslu að það er alltaf erfítt að koma mönnum af stað eftir mikla velgengni. Þó Svíar séu 100% atvinnumenn og vanmeti ekki mótherjana er þetta ekki stærsti leikurinn í þeirra augum og við verðum að hafa það hugfast. Við verðum að spila okkar leik en ekki hegða okkur eftir því sem þeir gera. Við verð- um að vera gífurlega frekir í öll- um návigum og gefa hvergi eft- ir. Með öðrum orðum eru úrstitin undir okkur sjálfum komin.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.