Morgunblaðið - 06.10.1994, Side 12

Morgunblaðið - 06.10.1994, Side 12
12 C FIMMTUÐAGUR 6. OKTÓBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Morticia í The Addams Family. ANJELICA HUSTON Tamara í Enemies, A Love Story. Huston og Robert Graham. Skapheit dama Lily í The Grifters. Ráðfærir sig við föður sinn við tökur á Prizzis Honor. Maerose í Prizzi Honor. Huston segir að meðaumkvun hennar með galiagripum þessa heims hafi gengið í erfðir frá föður hennar og afa, leikaranum Walter Huston. „Þeir voru engir fyrirmynd- ardrengir,“ segir hún til að útskýra hvers vegna hún sem leikkona lað- ast að skapgerðargöllum. „Innst inni vitum við öll hvað við er átt - þegar maður hefur verið auðmýkt- ur, þegar maður sviptir hulunni af hræðilegu leyndarmáli, gleymir sparisvipnum og opnar flóðgáttirn- ar. Það er þetta hrufótta sem vekur áhuga.“ Tækifæri til að fyrirgefa Sem kannski er eins gott. Kvik- myndum er stundum lagið að blanda saman draumi og veruleika og Huston lauk nýverið við tökur á kvikmynd með Jack Nicholson sem ber nafnið The Crossing Guard. Sagan er skrifuð af Sean Penn, sem jafnframt leikstýrir, og greinir frá konu sem reynir að ná áttum eftir að drukkinn ökumaður banar dóttur hennar, en litlu má muna að maður hennar, sem Jack Nicholson leikur, verði sorginni og hefndarþorstanum að bráð. „Þessi kona hefur mátt þola meira en einn missi,“ segir Huston og bætir við: „hlutverkið gaf mér tækifæri til þess að sýna fyrirgefningu," segir hún og vænt- anlega á við fleira en starfsfram- ann. Samband hennar við Jack Nic- holson varði með hléum í 17 ár og svo virtist sem Anjelica léti kven- semi hans ekki slá sig of mikið út af laginu. En Nicholson fór hins vegar yfir strikið þegar hann eign- aðist barn með annarri konu. „Sú hugmynd að leika á móti Jack vakti áhuga minn vegna þess sem við höfum gengið í gegnum, og vegna þarfar fyrir að sætta mig við fortíð- ina.“ Gáttaður á útkomunni Hugmyndin vakti einnig áhuga Seans Penns þótt hann hafi í fyrstu verið á báðum áttum, einkum vegna hræðslu við Gróu á Leiti. „En ég reyndi að sjá myndina fyrir mér eftir 20 ár, þegar slúðrið væri gleymt og grafið,“ segir Penn. Huston lætur ekki mikið uppi um útkomuna. „Þetta virtist ganga upp,“ segir hún blátt áfram en Penn tekur stærra upp í sig: „Ég ætla ekki að ganga svo iangt að fara að ráða í hversu mikið af fortíð þeirra skilaði sér í myndinni en ég er gáttaður á því sem þau höfðu fram að færa.“ Þörf Anjelicu fyrir að sættast við fortíðina er ekki sprottin af engu. Aðeins eru tíu ár síðan hún náði frægð og frama og á þeim tíma sem Prizzis Honor kom út átti hún fullt í fangi með að hrista af sér frægan föður og illræmdan eiginmann. En eftir lát föður síns 1987 og skilnað- inn við Nicholson náði Anjelica loks að rífa sig lausa. Fyrir tveimur árum gekk hún síðan í hjónaband með myndhöggvaranum Robert Graham. „Ég ætlaði aldrei að gefa mig einum manni og vildi alltaf halda einhvetju eftir,“ segir hún. En Graham hefur heilbrigða sjálfs- mynd. „Það er ekki auðvelt að ógna honum,“ segir Anjelica og hjóna- bandið hefur komið henni skemmti- lega á óvart. „Áður fyrr var ég mikið úti á lífinu en ég sakna þess alls ekki nú. Ég er alveg sátt við að vera heima, elda, horfa á mynd- bönd og vera hjá honum,“ segir hún að lokum. „ÉG HELD að maður eigi bara að hlýða kalli hjartans." Þessi játning virðist ekki koma heim og saman við yfirbragð Anjelicu Huston, sem ekki lítur út fyrir að láta stjórnast af tilfinningunum eingöngu. Anj- elica er heldur engin diva, töfrar hennar eru lágstemmdir en hún vekur athygli hvar sem hún fer. I eigin persónu líkist hún í engu tál- kvendinu sem hún leikur gjarnan, er þess í stað stelpuleg, sem bæði heillar og kemur á óvart. Huston er ennfremur ákaflega kurteis. Má bjóða þér kaffi? Er þér sama þótt ég reyki? Þegar hún talar eru setn- ingarnar stuttar og hnitmiðaðar, bornar fram skýrri röddu og bera góðu uppeldi skýrt vitni. Anjelica, er dóttir Johns Huston og ballerínunnar Enricu Soma, sem lést í bílslysi þegar Anjelica var 17 ára. Hún ólst fyrst upp á írlandi og bjó síðar í Lundúnum. Þótt hún gefi helstu tískudrósum Hollywood ekkert eftir líkist hún þó engri nema sjálfri sér. Hún er hin fullkomna dama. Dama sem gjarnan lætur ástríðurnar hlaupa með sig í gönur. „Anjelica er ítölsk, vertu viss,“ seg- ir vinkona hennar til margra ára. „Hún er Anna Magnani. Hún rýkur upp á augabragði." En ekki er þar með sagt að hún sé erfið viðureign- ar og í Hollywood þar sem fólki lætur erfiðlega að tala vel hvert um annað nýtur Huston einungis vel- vilja. Innri sannleikur Ritstjórinn og rithöfundurinn Joan Juliet Buck, æskuvinkona Anjelicu, segir: „Anjelica hefur yfir- borðsglæsileika, en hún hefur líka þennan hæga eld innra með sér. Hún fer eftir sínum innri sannleik en ekki eftir því sem umhverfið segir henni.“ Kannski það skýri góða dómgreind hennar við val á hlutverkum. Til dæmis sem hin undirförla Maerose Prizzi í Prizz- i’s Honor, sem hún fékk óskarinn , hin slægvitra Lily Dillon í The Grifters, eða hin kaldhæðna Tamara í Enemies, A Love Story, en hún hlaut tilnefningu fyrir bæði síðasttöldu hlutverkin. Hún spannar allan skalann, frá því að vera ósigr- andi til hin öryggislausa. Eina stundina ber maður óttablandna virðingu fyrir henni, þá næstu skammast maður sín fyrir hennar hönd. Leikkonan Carol Kane, sem átt hefur vingott við Anjelicu frá því þær voru 19 ára, og lék mömmu hennar í Addams Family Values segir: „Þegar Anjelica er að leika er eins og hún hafi engan skráp.“ Takmark hennar er líka að kom- ast að innsta kjarna hverrar per- sónu. „Mér finnst skapgerðin hvað mest heillandi í fari fólks,“ segir leikkonan sem nú er 43 ára og á þeim tímapunkti þegar jafnan fer að halla undan fæti hjá leikkonum Hollywood. Þrátt fyrir það eða kannski þess vegna rignir tilboðum yfir Huston sem ekki hikar við að hafna hlutverkum sem aðrar leik- konur hafa fengið útnefningar fyr- ir. „Hún er aldurslaus," segir Joan Buck, „hún á engan sinn líka og hefur því eigið umráðasvæði“. Þótt vera kunni að Julia Roberts sé ör- uggari hestur að veðja á þegar hala á inn peninga fékk Anjelica 2 milljónir Bandaríkjadala fyrir að leika dásamlega kaldhæðna Mortic- iu í Addams Family Values og er því í hópi hæstlaunuðu leikkvenna Hollywood.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.