Morgunblaðið - 13.10.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 13.10.1994, Blaðsíða 1
AÐSENDAR GREINAR PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 13. OKTÓBER 1994 _BLApfí Alþýðuflokkurinn og umræður um ESB þegar farnir að kynna róttækar hug- myndir sínar. Evrópusambandið á eftir að taka á sig aðra mynd, áður en að því kemur að Islendingar tengjast því nánar en með EES- samningnum, verði tekin ákvörðun um það. Vegna þess kunna skýrslur Háskólans að hafa meira sagnfræði- legt gildi en raunhæft, þegar upp verður staðið. Aldamótaákvörðun? FORYSTUMENN Alþýðuflokks- ins leitast við að breyta umræðum um samskipti íslands við Evrópu- sambandið (ESB) í árásir á Sjálf- stæðisflokkinn og málsvara hans í utanríkismálum. Er það Alþýðu- flokksmönnum sérstakt fagnaðar- efni, að þeim virðist ESB-málið geta stuðlað að bresti „í samstöðu með Davíð [Oddssyni] innan Sjálfstæðis- flokksins og er það vel“ eins og for- maður stjórnar Alþýðuflokksins orð- ar það af alkunnri smekkvísi sinni. Ætla mætti, að Alþýðuflokkurinn hefði nóg með sjálfan sig um þessar mundir og teldi sig ekki þurfa að hafa sérstakar áhyggjur af stefnu- mótun sjálfstæðismanna. Það er þó líklega einmitt vegna þess, að flokk- urinn er að sligast undan eigin vand- ræðum, sem hann reynir að gera Sjálfstæðisflokkinn að blóraböggli. Blórabögglapólitík forystu Alþýðu- flokksins er alkunn og farin að ganga út í öfgar í fleiru en einu tilliti. Til að glöggva sig á þessu vil ég benda lesendum Morgunblaðsins á grein eftir Guðmund Oddsson, bæj- arfulltrúa og formann flokksstjórnar Alþýðuflokksins, sem birtist í próf- kjörskálfi blaðsins 7. október. Þar sendir Guðmundur okkur Davíð Oddssyni forsætisráðherra tóninn og ræðst raunar með offorsi á forsætis- ráðherra. (Varla ber lesendum að líta á greinina sem framlag Alþýðu- flokksins til prófkjörs okkar sjálf- stæðismanna hér í Reykjavík?) Einnig má minna á ræðu Sig- hvats Björgvinssonar, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, í umræðunum um • stefnuræðu forsætisráðherra á Al- þingi 4. október. Þar vitnaði hann til orða forystumanna í íslensku atvinnulífi og Bjama Benediktssonar í viðleitni sinni til að gera lítið úr okkur, sem höfum einkum komið fram í umræðum um ESB fyrir Sjálfstæðis- flokkinn. Söguskoðun ráðherrans stenst ekki gagnrýni, enda fellur hann í þá gryfju að bera saman ósambæri- leg mál. Hvernig er síðan með nokkmm rökum unnt að saka Sjálfstæðis- flokkinn eða forystu- menn hans um að vilja halda íslandi utan við samrunaþróun Evrópu? Ásakanir um það efni má helst túlka sem misheppnaða tilraun til að komast hjá því að ræða kjarna málsins: Er hagsmunum íslands bet- ur bórgið innan eða utan Evrópu- sambandsins? Við þurfum fyrst að svara þessari spurningu hér heima, áður en við leitum svars við henni í Brussel. Einskær blekking er að líta á aðildarviðræður við ESB eins og heimsókn í kjólabúð, þar sem unnt sé að ganga á brott, ef stærð- ir henta ekki. Sömu augum ber að líta yfírlýsingar, um að ísland geti samið um aðild að ESB fyrir 1996. Samningur Norðmanna í umræðum um skýrslu utanrík- isráðherra á Alþingi 17. mars síðast- liðinn komst ráðherrann, Jón Bald- vin Hannibalsson, formaður Alþýðu- flokksins, þannig að orði, þegar hann ræddi niðurstöður í samningum Björn Bjarnason EFTA-ríkjanna fjög- urra við ESB: „Niður- stöður þessarar lotu aðildarviðræðna gefa nýjar forsendur til að meta kosti og galla aðildar." Þar átti utan- ríkisráðherra ekki síst við sjávarútvegssamn- ing Norðmanna, sem honum þótti til marks um góðan árangur Norðmanna,. Þegar orð ráðherr- ans voru túlkuð á þann veg, að hann teldi samning Norðmanna fyrirmynd fyrir okkur, stóð ég upp í þinginu og sagðist líta þannig á, að utanríkis- ráðherra hefði verið að hrósa samn- ingnum með norska hagsmuni í huga, annað ætti við varðandi ís- lenska hagsmuni. Taldi stjórnarand- staðan, að með þessu væri ég að forða utanríkisráðherra frá þeim vandræðum að standa einn og ein- angraður í þessu stórmáli á Alþingi. I Ijósi þessa þarf ekki að koma neinum á óvart, að því sé haldið fram af mér og öðrum sjálfstæðismönn- um, að hættulegt sé að láta í veðri vaka, að samningur Norðmanna sé sniðinn að kröfum okkar. Því fer fjarri og æ fleiri hallast raunar að því, að sjávarútvegssamningur Norðmanna sé næsta rýr, þegar til kastanna kemur. Skýrslur Háskólans Sagt hefur verið frá skýrslum stofnana Háskóla íslands um ýmsa þætti í samskiptum íslands og Evr- Árásir forystumanna Alþýðuflokksins á sjálf- stæðismenn vegna að- ildar að ESB eru mark- lausar, segir Björn Bjarnason. Hann minnir á, að hagsmunir íslands kreijist ekki ákvörðunar um ESB- aðild á haustdögum 1994, líklega sé nær að tala um aldamóta- ákvörðun. ópusambandsins. Á einföldu fjöl- miðlamáli er látið í veðri vaka, að skýrslurnar sýni fleiri kosti við aðild en galla. Öllum Háskólaskýrslunum hefur enn ekki verið skilað. Þegar málið verður metið í heild, koma þessar skýrslur að notum. Of mikil einföldun felst í því að telja kosti og galla. Einn galli getur verið svo mikill og alvarlegur, að hann ýti öll- um kostunum til hliðar. Ályktanir formanns stjórnar Alþýðuflokksins á grundvelli skýrslna Háskólans eru markleysa. Hefur hann lesið skjölin? Breytingar eru boðaðar á ESB. Forystumenn í aðildarríkjunum eru Henning Christophersen, danskur varaforseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði nýlega við Stöð 2 á leið til fundar við íslenska athafnamenn í kynnisferð í Brussel, að ísland gæti vænst þess að verða aðili að ESB árið 2003. Hann taldi jafn- framt, að eðlilegt væri að búast við fjögurra ára aðdraganda að því að samningar tækjust og kæmust til framkvæmda. Samkvæmt því yrði það aldamóta- ákvörðun hjá okkur íslendingum að kveða upp úr um það, hvort við ættum að stíga frekari skref til sam- starfs við ESB. Sjálfstæðisflokkur- inn hefur síður en svo lagst gegn því, að menn velti því fyrir sér, hvort skynsamlegt sé að taka slíka ákvörð- un. Hún byggist auðvitað á öðrum forsendum en gilda haustið 1994. Minnumst þess, að 1989 vildu hlut- laus ríki í EFTA alls ekki aðild að ESB. Þetta gjörbreyttist við hrun Sovétríkjanna. Hvar sem borið er niður blasir hið sama við: Vegna hagsmuna Islands getur ekki verið brýnasta viðfangs- efni íslenskra stjómmála að ákveða það nú, hvort sækja eigi um aðild að ESB eða ekki. Það er eitthvað annað, sem vakir fyrir Alþýðu- flokknum. Formaður stjórnar hans spurði í fyrirsögn í Morgunblaðinu: Er umsókn að ESB kosningabragð Jóns Baldvins? Það skyldi nú aldrei vera? Höfundur er 3. þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík og býður sig fram í prófkjöri þar 28. og 29. október. ÉG HEFI gilda ástæðu til að hvetja sjálfstæðismenn til að kjósa Guðmund Hall- varðsson í öruggt sæti á framboðslista Sjálf- í stæðisflokksins. Ég er búinn að þekkja mann- ínn lengi sem góðan dreng, mannasætti, ráðagóðan og heilan í starfí sínu fyrir stétt sína og aldrað fólk. Auk þess er það Sjálf- stæðisflokknum nauð- synlegt að haga svo lið- skipan sinni á þingi, að þar komi saman fólk úr sem flestum stéttum þjóðfélagsins. Maður leyfir sér að vona, að sú hugsun sé ekki dauð í flokknum. Guðmundur Hallvarðsson hefur ekki látið mikið yfir sér í fjölmiðlum á starfsferli sínum, — og skal starfs- ferill hans rakinn hér stuttlega, ef það kynni að verða einhverjum ábending þess, að þeir skila sjaldan mestu verkunum, sem lengst- ar halda ræðurnar og gaspra mest í fjölmiðl- um. Guðmundur stund- aði framanaf sjó- mennsku og var orðinn stýrimaður á vitaskip- inu Árvakri 1965. Árið 1972 gerðist hann starfsmaður Sjó- mannafélags Reykja- víkur og jafnframt gjaldkeri stjórnar fé- lagsins. Árið 1976 var hann kosinn varaformaður Sjó- mannasambandsins og 1978 varð hann formaður Sjómannafélags Reykjavíkur. I sama mund var hann kosinn í verkalýðsráð Sjálfstæðis- Guðmundur Hallvarðs- son er eini fulltrúi laun- þegahreyfingarinnar í þingmannahópi flokks- ins í Reykjavík, segir Ásgeir Jakobsson, góður framgangur hans í prófkjörinu treystir vígstöðu Sjálfstæðis- flokksins flokksins og hefur verið formaður þess frá 1989. Það tóku fljótt að hlaðast á Guð- mund nefndastörfin og var hann ýmist skipaður eða valinn af félögum sínum til að sitja í nefndum sem unnu m.a. að samningu umfangs- mikilla lagafrumvarpa um atvinnu- réttindi sjómanna, aðbúnað og ör- yggi til sjós, og endurskoðun á sjó- manna- og siglingalögum. Árið 1991 var Guðmundur kosinn á þing fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þar hefur hann með frumvörpum og þingsályktunum beitt sér mjög fyrir stétt sína, en barist jafnframt fyrir hagsmunum launþega almennt, svo sem með tillögum um tífeyrisréttindi hjóna og um afnám tvísköttunar á lífeyrisgreiðslum, sem er óneitanlega mikilsvert mál öllu launafólki. Guðmundur hefur einnig setið mörg ár í hafnarnefnd Reykjavíkur, varð varaformaður hennar 1982 og formaður 1986, og þykir þar hafa reynzt hinn bezti maður. Þá er enn að nefna merkilegan þátt í starfsferli Guðmundar. Á sjö- unda áratugnum #varð hann ungur sjómaðurinn einn af frumheijum að því að reisa sumarheimili fyrir börn efnalítiíla foreldra að Hrauni í Grímsnesi, en jafnframt að því að leggja drög að byggingu sumarhúsa fyrir sjómannastéttina. Rekstri barnaheimilisins hefur nú verið hætt, en í Hraunborgum er risin upp ein glæsilegasta sumarhúsabyggð landsins með sundlaug og annarri aðstöðu í félagsmiðstöð sjómanna. Málefni aldraðra hafa alla tíð ver- ið Guðmundi hugleikin og til að geta helgað sig þeim, hefur hann sagt af sér formennsku í Sjómannafélag- inu og í hafnarnefnd Reykjavíkur. Hann hyggst nú, ásamt þing- mennskunni, einbeita sér að öldrun- armálunum og uppbyggingarstarfi Hrafnistu-heimilanna og hefur tekið við formennsku Sjómannadagsráðs í Reykjavík og Hafnarfirði af Pétri Sigurðssyni. Að lokum leyfi ég mér að endur- taka nauðsyn þess að Sjálfstæðis- flokkurinn haldi hinni gömlu venju að hafa menn úr öllum stéttum í þingliði sínu. Guðmundur Hallvarðs- son er eini fulltrúi launþegahreyfing- arinnar í þingmannahópi flokksins í Reykjavík. Góður framgangur hans í prófkjörinu treystir vígstöðu flokksins í komandi kosningum. Höfundur er rithöfundur. Hann lætur sér hægt, en stendur fyrir sínu — o g vel það Ásgeir Jakobsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.