Morgunblaðið - 18.11.1994, Qupperneq 1
SAMEINING ÍSÍ OG Óí: MÖRG UÓN Á VEGINUM, SEGIR FORMAÐUR Óí / C3
Atvinnumenn
keppa ífyrsta
sinn á íslandi
MIKIL tennishátíð verður í Tennishöllinni í Kópa-
vogi í kvöld og hefst dagskráin kl. 20.30 með
æfingum byrjenda. Síðan verður keppt í einliða-
og tvíliðaleik og á meðal keppenda verða þijár
atvinnukonur í greininni frá Bratislava í Slóvakíu.
Tvær þeirra, Nora Kovarcikova og Simona Ned-
orostova, æfðu í höllinni í gær og voru mjög ánægð-
ar með aðstöðuna, sögðu hana reyndar vera eins
og best verður á kosið, en Katarina Studenikova,
sem er við 80. sætið á heimslistanum og keppti
m.a. við Steffi Graf á Wimbledonmótinu og Mary
Pirce á Opna bandaríska mótinu, var ekki komin.
Nora hefur verið atvinnukona í nær 10 ár og
er talin vera ein af 150 bestu tenniskonum heims
en Simona er í hópi 200 bestu stúlknanna. Þær
sögðu við Morgunblaðið að tennis væri vinsælasta
einstaklingsíþróttin í heimalandi sínu og mjög erf-
itt væri að komast í allra fremstu röð en voru
sammála um að mjög gott væri að vera í kringum
100. sætið á heimslistanum og það væri fyrsta
markmið.
Stöllurnar æfðu með landsliðskonunni Stefaníu
Stefánsdóttur í gær og sögðu hana mikið efni, en
Bozidar Skaramuea, landsliðsþjálfari, sagði við
sama tækifæri að með tiikomu tennishallarinnar
væri aðstaðan allt önnur en áður og ástæða væri
til að ætla að miklar framfarir yrðu í íþróttinni hér
á landi á skömmum tíma. Að því væri markvisst
unnið og sagði hann hátíðina lið í uppbyggingunni
en þetta er í fyrsta sinn sem atvinnumenn í íþrótt-
inni keppa á Islandi.
Morgunblaðið/Ingibjörg
Tilbúnar í slaginn
MIKIÐ verður um að vera í Tennishöllinni í
kvöld og verða þrjár atvinnukonur frá Slóv-
akíu á meðal keppenda. Á myndinni eru Sim-
ona Nedorostova til vinstri og Nora Kovarc-
Ikova eftir æfingu í gær. Bozidar Skaramu-
ea, landsliðsþjálfari Islands, erá milli þeirra.
JKftngpnnÞIfiítÍ^
1994
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER
BLAD
Herbert fór hamförum
er ÍR sigraði Keflavík
Stefán
Stefánsson
skrifar
HEIMAVÖLLURINN ætlar að
reynast ÍR-ingum drjúgur ívet-
ur og þeir hafa ekki tapað leik
í Seljaskóla. í gærkvöldi vann
liðið Kef Ivíkinga 93:89 í æsi-
spennandi og hröðum leik í
úrvalsdeildinni. Munaði mestu
um frábæran leik Herberts
Arnarsonar í vörn og sókn.
Lenear Burns og Davíð Grissom
gerðu nærri öll stig Suðumesja-
manna fyrstu sjö mínúturnar en þá
meiddist Davíð og
varð að fara útaf. ÍR
breytti í stífa „maður
á mann“ vörn og
tókst á nokkrum
mínútum að snúa leiknum sér í hag
og ná tíu stiga forskoti. Keflvíkingar
náðu að brjóta vörn ÍR á bak aftur
og komast inní leikinn á ný.
í síðari hálfleik skiptust liðin á að
hafa yfirhöndina en fljótlega fór bar-
átta fyrri hálfleiks að taka sinn toll
þegar leikmenn týndust útaf með 5
villur eða fengu sína ijórðu. Ekki
slaknaði samt á baráttunni og þegar
mínúta voru til leiksloka hafði ÍR
hafði einu stigi betur, 89:88. Herbert
nýtti tvö vítaskot en hinum megin
fékk Jón Kr. tvö vítaskot. Hann hitti
úr fyrra skotinu en reyndi ekki að
hitta í því síðara til að freista þess
að ná boltanum og jafna 91:91 en
það gekk ekki eftir. John Rhodes
hafði möguleika á að innsigla sigur
ÍR með tveimur vítaskotum en hvor-
ugt rataði ofan í. Keflvíkingar misstu
boltann í næstu sókn og brotið var
á Herberti sem innsiglaði sigurinn
með tveimur stigum úr vítum.
„Þetta var erfítt og Keflvíkingar
veittu okkur góða keppni. Liðið á
hrós skilið fyrir sigurinn og áhorf-
endumir voru frábærir," sagði Her-
bert. John Rhodes var mjög sterkur
undir körfunni og sýndi stórkostlega
baráttu þegar hann kastaði sér á
hvern bolta, tróð og varði skot. Eirík-
ur Önundarson stjómaði sóknar-
leiknum oft af snilld og Halldór Krist-
mannsson hitti vel.
Lið Keflavíkur var jafnara fyrir
utan Jón Kr., sem dreif liðið áfram
að vanda. Liðið missti mikið þegar
Davíð fór útaf því ÍR-ingar áttu erf-
itt með að halda honum og Lenear
Burns niðri í einu. „Við höldum
dampi og gerum okkur grein fyrir
því að við erum ekki með sama lið og
í fyrra. Það tekur tíma að byggja
upp,“ sagði Jón Kr. eftir leikinn.
Réðu lítið við Herbert
Morgunblaðið/Þorkell
HERBERT Arnarson, besti maður vallarins í leik ÍR og Keflavíkur, leitar lelöa fram-
hjá Keflvíkingunum Jóni Kr. og Birgi Guðfinnssyni og það tókst honum oft.
KORFUKNATTLEIKUR
Kvennalands-
liðið fer á EM
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í tennis fer til Lissa-
bon í Portúgal á mánudag til að taka þátt í riðla-
keppni Evrópumótsins. Þetta er í fyrsta sinn sem
íslenskt kvennalandslið í tennis tekur þátt í Evrópu-
keppninni, en það er í riðli með Portúgal, Liechten-
stein og Möltu. í íslenska liðinu eru Stefanía Stef-
ánsdóttir, Hrafnhildur Hannesdóttir og Katrín
Atladóttir en landsliðsþjálfari er Bozidar Skaramu-
ea. Stúlkurnar töpuðu stórt gegn Liechtenstein á
Smáþjóðaleikunum á Möltu í fyrra en þjálfarinn
sagði við Morgunblaðið að vonast væri til að ná
að minnsta kosti einum sigri í Portúgal og senni-
lega væri það raunhæfast gegn Liechtenstein.
KORFUBOLTI
Meistararnir í Hólminn
DREGIÐ hefur verið í 16-liða úrslit bikarkeppni
Körfuknattleikssambands íslands:
Njarðvík - Dalvík / Þór-b eða Tindastóll-b,
Tindastóll - KFÍ, ÍA - ÍR, Snæfell - Keflavík, Þór
Akureyri - KR, Valur - Breiðablik / HK, Haukar
- IH / Reynir Sandgerði og Grindavík - Skallagrím-
ur. Leikirnir eiga að fara fram 23. - 25. nóvember.
TENNIS