Morgunblaðið - 18.11.1994, Page 3
2 C MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 16. NÓVEMBER 1994 C 3
■H-
IÞROTTIR
IÞROTTIR
TENNIS
Martina Navratilova, besta tenniskona allra tíma, er hætt að keppa
Leitaalltaf
fullkomnunar
MARTINA Navratilova er hætt a ð keppa
ítennis eftir að hafa verið í hópi þeirra
bestu í 22 ár. Navratilova, sem er 38
ára gömul og goðsögn í lifanda lífi, hef-
ur gert meira fyrir kvennatennis en
nokkur önnur og hún hefur sigrað á fleiri
tennismótum en nokkurannartennis-
leikari. Nú ætlar hún að gefa sér góðan
tíma til að komast að þvi hvað hún ætl-
ar að gera það sem eftir er æfinnar.
Narvatilova lék síðasta leik sinn á þriðju-
daginn gegn Gabrielu Sabatini á móti
í Bandaríkjunum og tapaði 6-4 og 6-2. „Eg
hef lifað dásamlegu lífi og það er ekki síst
tennisíþróttinni að þakka og það er margs
að minnast frá ferlinum,“ sagði Navratilova
á blaðamannafundi eftir síðasta leikinn.
„Næst á dagskránni hjá mér er að njóta
lífsins í eitt ár og reyna að komast að því
hvað ég á að gera af mér þann tíma sem ég
á eftir ólifað. Eg sest örugglega ekki i helgan
stein. Ég byija á að fara í gott frí og síðan
sný ég mér trúlega að málum sem eru mér
hugleikin,“ sagði Navratilova en hún hefur
barist fyrir réttindum homma og lesbía, ávallt
verið mikil kvennréttindakona og hefur auk
þess mikinn áhuga á umhverfismálum.
Ef hún snýr sér að þessum hugðarefnum
sínum af sama krafti Og tennisíþróttinni er
ekki að efa að hún á eftir að setja mark sitt
á þau. Það er raunar allt of vægt til orða
tekið að segja að hún hafí sett mark sitt á
tennis. Þessi örvhenda baráttukona er ein
þeirra fáu íþróttamanna sem geta státað sig
af því að hafa bylt íþrótt sinni.
Bar af öðrum
„Hún reif kvennatennisinn upp og kom
honum á æðra pian. Hún bar af á öllum svið-
um íþróttarinnar og þess vegna urðu aðrar
stúlkur að leggja enn harðar að sér til að
hafa eitthvað að gera í hana. Þannig varð
kvennatennis að alvöruíþrótt," segir Jana
Novotna fyrrum landa hennar, en báðar eru
frá Tékkóslóvakíu en Navratilova flúði heima-
land sitt árið 1975 og settist að í Bandaríkjun-
um.
Navratilova var fyrst kvenna í tennis til
að undirbúa sig með því að stunda lyftingar.
Hún er þekkt fyrir hversu vel á sig kominn
hún hefur ætíð verið og vegna þess gat hún
breytt leiðinlegum tennis, þar sem keppendur
stóðu á endalínu og slóu á milli sín, í tennis
1 þar sem sótt var af kappi og áhersla lögð á
uppgjafir og móttöku. Keppnisskapið var á
réttum stað og hún er gríðarlega ákveðin.
Ákvað 8 ára að verða best
„Draumur minn var að verða besti tennis-
leikari í heimi. Ég hét því þegar ég var að-
eins átta ára gömul en ég bjóst aldrei við því
að þessi ákvörðun mín ætti eftir að verða að
veruleika. Ég leit á tennisinn sem gott tæki-
færi til að komast til annarra landa og sjá
heiminn og vonandi að sigra einhvem daginn
á Wimbledon,“ segir Navratilova sem sigraði
níu sinnum á Wimbledon og komst að auki
í í úrslit í sumar, þá 37 ára gömul.
Afrekalisti hennar er einstakur. Hún vann
til 167 titla í einliðaleik og í tvíliða- eða
tvenndarleik sigraði _hún 165 sinnum með
meðspilurum sínum. Atrján sinnum í röð sigr-
aði hún á hinum svokölluðu stórmótum og
alls vann hún 1.438 leiki í mótum. Bestum
árangri náði hún á níunda áratugnum þegar
j hún sigraði í 112 mótum og þar af 74 í röð.
332 vikur á toppnum
Navratilova þarf ekki að hafa íjárhagslegar
áhyggjur því hún hefur fengið tæpan 1,5
milljarð króna í verðlaunafé á ferlinum. En
: lífið er ekki alltaf dans á rósum og fyrir því
fékk hún að finna þegar hún ákvað að gera
það opinbert að hún væri lesbía. Hún var
Reuter
Ferlinum lokið
MARTINA Navratilova velfar til
áhorfenda eftir síðasta leikinn.
Henni var vel fagnað enda
fremsta tenniskona sem uppi
hefur verið. Á myndinni til
vinstri er hún í síðasta leik sín-
um, gegn Gabrielu Sabatíni í
Madison Squere Garden.
Mörg Ijón á veginum
fræg, hún var rík og hún var góð
í tennis. Þess vegna var hún mikið
í sviðsljósinu og Bandaríkjamenn
voru ekki umburðarlyndir gagnvart
henni þrátt fyrir að hún væri nær
ósigrandi frá árinu 1982 til ágúst-
mánaðar 1987. Hún var I efsta
sæti styrkleikalistans í 332 vikur,
nokkuð sem enginn hefur leikið
eftir.
Leikir Navratilovu og Chris
Evert voru margir og flestir
skemmtilegir en þær stöllur léku
oft til úrslita á mótum. Þessu hefur
verið líkt við Ali/Frazer í hnefaleik-
unum, Bird og Magic í NBA, Nick-
laus og Palmer í golfinu og Borg
og McEnroe í karlatennisnum. Þær
mættust 80 sinnum á tennisvellin-
um, 59 sinnum í úrslitaleik og þar
af 14 sinnum í risamótunum. Und-
anúrslitaleikur þeirra á Wimbledon
árið 1988 er enn þann dag í dag
talinn einn besti tennisleikur sem
fram hefur farið.
Áhorfendur lengi vel erfiðir
Áhorfendur voru nær undantekn-
ingarlaust á bandi Chris Evert og
Navratilova átti í mikilli baráttu
við þá og hún sagði eitt sinn að
það hefði trúlega verið einn af sín-
um stærstu sigrum þegar henni
tókst loks að fá áhorfendur til að
meta sig. „Ég held að þetta tíma-
bil sé það erfiðasta og skemmtileg-
asta á mínum ferli. Við Evert esp-
uðum hvor aðra upp og lékum oft-
ast mjög vel,“ segir Navratilova.
En hún þurfti ekki að kvarta undan
áhorfendum á þriðjudaginn þegar
hún kvaddi í Madison Squere Gard-
en, þá sýndu áhorfendur að þeir
kunna að meta hana. „Ég hef aldr-
ei fundið fyrir eins miklum stuðn-
ingi frá áhorfendum," sagði Navr-
atilova hálf klökk.
Navratilova
mikil fyrirmynd
„Þegar ég byijaði í tennis horfði
ég mikið á Navratilovu. Hún gat
gert allt. Hún var alltaf í góðu
formi, uppgjafimar voru frábærar
og móttakan ekki síðri. Það er ótrú-
legt að henni skildi takast að vera
á meðal þeirra fímm bestu allan
þennan tíma,“ sagði Gabriela Sa-
batini eftir leikinn á þriðjudaginn.
Steffi Graf er efst á styrkleika-
listanum, þar sem Navratilova var
svo oft. „Hún gerði mjög mikið
fyrir tennisinn. Hún lék alltaf af
öllum kröftum og með hjartanu og
hún hafði mikil áhrif á mig,“ sagði
Graf.
Navratilova segist ánægð að
geta hætt á eigin forsendum, ekki
vegna þess að líkaminn hafí sagt
stopp. Þegar hún var beðinn að
lýsa eigin goðsögn var hún hrein-
skilin sem endranær: „Það að vera
atvinnumaður út í gegn. Ég hef
alltaf gefið mig alla í hvern leik
og reynt að gera mitt besta, sama
hvort ég var inná vellinum eða utan
hans.
Ég hef alltaf leitað fullkomnunar
í öllu sem ég geri og það hafa
margir ekki kunnað að meta, en
ég helda að skemmtilegasta minn-
ingin sem ég tek með mér á „eftir-
laun“ sé að ég hef vakið áhuga
íjölda fólks á tennis. Fólki sem
hefur ekki einu sinni leikið tennis.
Það er nefnilega furðulegt hvað
hægt er að gera ef maður getur
hitt tennisbolta þokkalega.“
Glæsileg
kvedjugjöf
MÓTSHALDARAR f New York
gáfu Martinu Navratilovu
glæsilegt Harley Davidson
mótórhjól eftir síðasta leikinn
og eins og sjá má vildu margir
festa þann atburð á filmu.
GETRAUNIR
JÚLÍUS Hafstein, formaður
Ólympíunefndar íslands, lýsir
„mikilli undrun og efasemdum" á
ummælum Eggerts Magnússonar,
formanns KSI, í þá veru, í frétt
Morgunblaðsins í gær, að formaður
laganefndar alþjóða ólympíunefnd-
arinnar (IOC) telji enga vankanta á
sameiningu íþróttasambands íslands
og Ólympíunefndar íslands. „Vegna
þess, að það eru miklir vankantar á
slíkri sameiningu. Ef þeir væru ekki
til staðar þá hefðu menn, ef þeir
hefðu á annað borð áhuga á Jiví að
sameina íþróttasamband og Ólymp-
íunefnd - hvort sem það er hér eða
annars staðar - gert það bara á ein-
um eftirmiðdegi, því engin vandamál
væru á borðinu," sagði Júlíus við
Morgunblaðið í gær.
Ágreiningur
Formaður íslensku ólympíunefnd-
arinnar segir ágreining um vissa
hluti varðandi sameiningu, „fyrst og
fremst vegna ólympíusáttmálans, en
hann er alfarið í höndum alþjóða
ólympíunefndarinnar. Eftir honum
verður sérhver ólympíunefnd í ver-
öldinni að starfa, hefur skuldbundið
sig til þess og þess vegna er hún
viðurkennd á hveijum stað sem full-
trúi alþjóða ólympíunefndarinnar í
viðkomandi landi. Eggert vitnar til
Danmerkur og Noregs, og um það
er það að segja að í Noregi hafa
þessir aðilar ekki sameinast. Umræð-
ur um það milli íþróttasambandsins
norska og ólympíunefndar landsins
hófust 1988 og þeir væru löngu bún-
ir að sameinast ef þessi vandamál
væru ekki til staðar. Þeir hafa sett
sér það markmið að sameinast 1996,
svo ef þeir sameinast þá - og ég
segi ef, vegna þess að um það eru
miklar efasemdir innan norsku
ólympíunefndarinnar - þá hefur sú
sameining tekið átta ár. Og það eitt
eru nægileg rök fyrir því að menn
geti ekki sagt að það séu engir van-
kantar á slíkri sameiningu,“ sagði
Júlíus.
„Ég verð að segja að ég tel það
mjög ólíklegt að óreyndu að þessar
yfirlýsingar, sem Eggert segir frá,
séu frá ábyrgum aðilum hjá alþjóða
ólympíunefndinni.“
„Eggert segir frá því að þetta sé
að gerast meðal annars í Sviss, ítal-
íu og Þýskalandi. Ég er búinn að
vita það í nokkur ár að Svisslending-
ar hafa verið að ræða þetta, um ítal-
íu er það aftur á móti að segja að
ekkert íþróttasamband er til á Italíu,
svo ég kem af fjöllum að þar eigi
að sameina eitthvað sem ekki er til.
Ég er kunnugur forystumönnum ít-
ölsku ólympíunefndarinnar, forseti
hennar, sem er lang áhrifamesti
íþróttaleiðtoginn á Ítalíu, er jafn-
framt framkvæmdastjóri Evrópu-
sambands ólympíunefnda [Mario
Pescante] og CÓNI, ólympíunefnd
Ítalíu, er í forsvari fyrir öll íþrótta-
- áðuren Ólympíunefnd og íþróttasam-
bandið geta sameinast, ef það gerist
þá, segir Júlíus Hafstein, formaðurÓÍ
mál ítala sem heildar-
samtök, svo þar er ekki
um sameiningu að ræða.
í Þýskalandi aftur á
móti er til íþróttasam-
band og ólympíunefnd
en íþróttasambandið í
Þýskalandi starfar fyrst
og fremst inná við, gagn-
vart hinum ýmsu íþrótta-
aðilum í fylkjum Þýska-
lands. Ólympíunefndin
aftur á móti starfar með
sérsamböndunum út á
við, í erlendum samskipt-
um og vegna stærstu
íþróttamóta heims, þar
með talið öllum ólymp-
ískum málum. Þessi
sjónarmið hjá Eggert eiga því ekki
alveg við rök að styðjast og það kem-
ur mér jafnframt á óvart að hann
segist hafa lagt fram - ég get ekki
túlkað það öðruvísi - þær tillögur
sem þeir voru búnir að semja í milli-
þinganefnd ÍSÍ, og vitnar til þess að
þar hafi þessi ónefndi fulltrúi IOC,
sagt að væru ekki vankantar á þess-
um lögum."
Carrard: hálfgert rugl
Umrædd gögn segist Júlíus hafa
sent, „þýdd af löggiltum dómtúlki,
til IOC og þar fóru yfir þau lögfræð-
ingar IOC ásamt Carrard, aðalfram-
kvæmdastjóra alþjóða ólympíunefnd-
arinnar, sem er lögfræðingur mennt-
aður bæði i Sviss og Bandaríkjunum,
og hann hefur skrifað mér bréf -
sem ég hef lagt fram í ólympíu-
nefnd, og meðal annars sagt Eggert
Magnússyni frá - þar sem hann seg-
ir það sitt álit að þessi skipan mála
sé hálfgert rugl og komi í raun ekki
til greina, og við eigum á hættu að
ef þetta verði samþykkt með þeim
hætti sem þama er verið að vitna
til, gætum við átt á hættu að verða
sett út úr ólympíuhreyfingunni og
þar með ekki taka þátt í Ólympíuleik-
um eða öðm starfí alþjóða ólympíu-
nefndarinnar og ekki njóta styrkja
né fyrirgreiðslu ólympíusamhjálpar-
innar.“
Hveijir eru helstu vankantamir
við sameiningu, samkvæmt þínum
plöggum frá fulltrúum alþjóða
ólympíunefndarinnar?
„Aðal vankantamir eru í raun
þeir, að ef til sameiningar kemur,
verða fulltrúar í ólympíunefnd, og
þá sérstaklega sérsamböndin, að
hafa meirihluta á öllum stigum mála,
þegar til kosninga og ákvarðanatöku
er komið. Þetta er að minnsta kosti
túlkun IOC hingað til, en ég skal
ekkert fullyrða um það hvort alþjóða
Júlíus Hafstein
ENGLAND Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl.
Nr. Leikur 1 X 2 1 X 2
1 Nottingham For. - Chelsea 10 0 0 1
2 Southampton - Arsenal 0 7 3 1 X 2
3 Manch. Utd. - C. Palace 10 0 0 1
4 Ipswich - Blackburn 1 0 9 2
5 Wimbledon - Newcastle 0 0 10 X 2
6 OPR - Leeds Utd. 3 5 2 1 X 2
7 Tottenham - Aston Villa 10 0 0 1
8 Sheff. Wed. - West Ham 10 0 0 1
9 Coventry - Norwich 6 4 0 1 X
10 Tranmere - Chartton 10 0 0 1
11 Southend - Reading 2 8 0 1 X
12 Luton - Portsmouth 8 1 1 1
13 WBA - Oldham 4 6 0 1 X
ÍTALÍA Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl.
Nr. Leikur 1 X 2 1 X 2
1 Parma - Foggia 10 0 0 1
2 Sampdoria - Torino 10 0 0 1
3 Napoli - Fiorentina 3 7 0 1 X
4 Cagliari - Genoa 9 1 0 1
5 Bari - Cremonese 10 0 0 1
6 Brescia - Roma 0 0 10 2
7 Lazio - Padova 10 0 0 1 X 2
8 Juventus - Reggiana 10 0 0 1
9 Bologna - Spal 0 10 0 1 X 2
10 Ravenna - Leffe 6 4 0 1
11 Ospitaleto - Modena 1 9 0 1 X
12 Spezia - Prato 0 8 2 X 2
13 Carrarese - Massese 6 4 0 1 X
Parma - Foggia og Ipswich - Blackbum
BÁÐAR sjónvarpsstöðvarnar verða með beinar útsendíngar frá knattspyrnuleikjum í Evrópu um
helgina. Á morgun verður RÚV með leik Ipswich og Blackburn í ensku úrvalsdeildinni og á sunnu-
dag verður leíkur Parma og Foggia sem Stöð 2 býður upp á. Blackburn er í þriðja sætinu í Englandl,
á eftir Newcastle og Manchester Unlted, en Ipswich hefur gengið illa í vetur og er í þriðja neðsta
sæti. Parma er hins vegar efst á Ítalíu en Foggia í sjötta sæti.
ólympíunefndin breytir
sáttmálanum í framtíð-
inni, þannig að aðrar
leiðir verði færar.“
Yrði ekki hægt að
koma því við hér?
„Það er ekki boðið
upp á það í þeim tillög-
um sem Eggert
Magnússon vitnar til og
þar af leiðandi er ekki
hægt að fara þessa leið.
Og ég vil benda á að á
íþróttaþingi síðastliðnu
var þessum tillögum vís-
að frá þinginu, án um-
ræðu, með öllum
greiddum atkvæðum.
Þess vegna er ég mjög
undrandi á þessum yfirlýsingum og
mun óska eftir því við Eggert, því
það er ákveðið að við hittumst á
morgun [í dag], að hann leggi fram
þau gögn sem hann sýndi í
Lausanne."
Ert þú sjálfur hlynntur sameiningu
Iþróttasambands og Olympíunefndar
Islands, eða hefurðu kannski ekki
áhuga á henni?
„Ég hef sagt það að ég muni ekki
setja fætuma fyrir sameiningu ef
þessum skilyrðum er fullnægt; að
sérsambönd sem hafa ólympískar
íþróttagreinar, hafi meirihluta at-
kvæði á íþróttaþingum, í viðkomandi
framkvæmdastjóm og þar sem
ákvarðanir verði teknar um íþrótta-
mál - því allt blandast þetta saman
þegar upp er staðið. Menn geta ekki
búið til stjórn sem á að vera tvískipt,
þrískipt eða fjórskipt og það eigi
bara sumir að tala í sumum málum,
sumir að taka ákvarðanir í sumum
málum og svo framvegis. Það er
ekki sameining, það er sundmn.“
Ólíklegt
En miðað við umræðuna sem hér
hefur farið fram, sýnist þér það
ógemingur að þetta náist - að sér-
sambönd ólympíuíþrótta nái þessum
meirihluta?
„Já, á þessu stigi málsins verð ég
að segja að það er ólíklegt."
Vegna hvers?
„Vegna þess að fulltrúar íþrótta-
sambandsins í heildina séð, þá á ég
við héraðssambönd, íþróttabandalög
og ungmennafélögin, vilja ekki láta
af hendi meirihlutaákvæðið á íþrótta-
þingum, og það er út af fyrir sig vel
skiljanlegt. Þess vegna verða menn
að byija á réttum enda. Menn hlaupa
ekki út um víðan völl og segja, sam-
einumst, sameinumst, án þess að
vita hvemig þeir ætla að gera það.“
Á hvaða enda vilt þú byrja?
„Ég vil byija á því að skilgreina
íþróttahreyfinguna, skoða með hvaða
hætti íþróttasambandið er byggt upp
og um leið auðvitað ólympíunefndin
- sem er auðveldara mál, vegna
þess að það liggur eiginlega á borð-
inu. Skilgreina verkefnin milli ólymp-
íunefndarinnar annars vegar og
íþróttasambandsins hins vegar og
svo íþróttasambandsins annars veg-
ar og Ungmennafélags íslands hins
vegar. Hvort sem mönnum líkar það
betur eða verr er Ungmennafélag
Islands staðreynd, að mörgu leyti
tengdari starfsemi héraðssambanda
og íþróttabandalaga en til dæmis
íþróttasambandið, vegna þessa að
Úngmennafélagið er grasrótarhreyf-
ing; hreyfing sem gerir vissulega
svipaða hluti og Ólympíunefndin, það
er að segja undirbýr keppni og mót-
íþróttasambandið gerir það aftur á
móti ekki.“
Júlíus sagði að sameiningarmál
þyrfti að skoða í heild, menn þyrftu
að gefa sér tíma, en „rasa ekki um
ráð fram og koma með fullyrðingar
sem geta ekki staðist. Þessar fullyrð-
ingar Eggerts stangast fullkomlega
á við það sem ég hef skriflegt frá
alþjóðá ólympíunefndinni.“
Júlíus sagði alþjóða ólympíunefnd-
ina reyndar vera að endurskoða
ólympíusáttmálann, „og það er út
af fyrir sig mjög gott mál. Þetta kom
fram á aðalfundi Evrópusambands-
ins nýverið í Lausanne, þetta mun
eitthvað verða til umræðu í Atlanta
í desember næstkomandi en ég á
ekki von á að endurskoðunin líti
dagsins ljós endanlega fyrr en á
miðju næsta ári, í fyrsta lagi, á stór-
um fundi sem IOC efnir til í Búda-
pest, í júní eða júlí.“
Nefndin ekki til
Milliþinganefnd ÍSÍ, sem vitnað
er til í fréttinni í gær, „og sagt að
formaður knattspyrnusambandsins
leiði, er ekki til lengur,“ segir Júlíus.
„Hún lagði fram sín gögn á síðasta
íþróttaþingi, sem voru meðal annars
þessar sameiningarhugmyndir, en
þeim var vísað frá og þar með lauk
milliþinganefndin störfum sínum. Nú
á að fara af stað nefnd, sem er skip-
uð átta fulltrúum, fjórum frá íþrótta-
sambandinu og fjórum frá Ólympíu-
nefnd og Eggert á að kalla hana
saman til fyrsta fundar, en nefndin
á eftir að skipta með sér verkum,
svo það hefur ekkert verið ákveðið
með hvaða hætti sú nefnd kemur til
með að starfa. En milliþinganefnd
ÍSÍ er ekki lengur til.“
Eggert segir ennfremur í frétt
blaðsins í gær að ánægjulegt hafi
verið að fá staðfest að stærri þjóðir
telji skynsamlegt að sameina íþrótta-
samband og Ólympíunefnd. „Það
hefur enginn hafnað því að það gæti
verið skynsamlegt að sameinast en
það þarf að vera undir þeim for-
merkjum að það sé hægt. Og þegar
við tölum um tvær skrifstofur hlýtur
það að koma inn í þá umræðu sem
framundan er hjá þessari átta manna
nefnd íþróttaforystunnar, að skoða
annars vegar skrifstofuhald Ólymp-
íunefndarinnar og skrifstofuhald
Iþróttasambandsins hins vegar, og
finna út hvað starfsfólkið sé að gera,
að skilgreina verkefnið og starfið.
Ólympíunefndin er með skrifstofu
upp á átta fermetra meðan íþrótta-
sambandið er með skrifstofu upp á
150 fermetra," sagði Júlíus Hafstein.
„Starfsaðstaða Ólympíunefndar-
innar er algjörlega óviðunandi. Við
höfum beðið ÍSÍ um meira skrifstofu-
rými í hálft ár en engin viðunandi
svör fengið. Óí er að undirbúa mörg
stór verkefni, meðal annars fram-
kvæmd smáþjóðaleika 1997 með yfir
eitt þúsund keppendum erlendis frá
og til að skipuleggja slíka keppni
þarf góða aðstöðu.“
Júlíust kveðst hafa kosið aÁ for-
maður KSÍ hefði skýrt nefndarmönn
um í samstarfsnefnd Óí og ÍSÍ frá
athugunum sínum áður en hann
kynnti þær í fjölmiðli, „en það er
auðvitað hans mál. Það er aftur á
móti eftirtektarvert að heimildar-
maður Eggerts er ekki nafngreindur
í viðtalinu við hann. Samaranch, for-
seti alþjóða ólympíunefndarinnar,
hefur boðið mér að koma í heimsókn
til Lausanne ásamt forseta Evrópu-
sambands ólympíunefnda, doktor
Rogge, þar sem meðal annars þessi
mál verða rædd. í þessu sambandi
verða allir að gera sér grein fyrir
því að síðasta orðið er hjá alþjóða
ólympíunefndinni, hún verður að
samþykkja allar breytingar sem
ólympíuþjóðirnar vilja gera, það eru
okkar lög og reglur sem við verðum
að starfa eftir. Það er því alveg ljóst
að það verða mörg ljón á veginum,
áður en eitthvað gerist, ef þá eitt-
hvað breytist," sagði Júlíus Hafstein.
Ikvöld
..20
Handknattleikur
1. deild karla
Akureyri: KA - FH......
Sund
Bikarkeppni 2. deildar
Mótið hefst í kvöld kl. 20 f Sundhöll
Reykjavíkur, heldur áfram á morgun
kl. 14 og sunnudag kl. 11.
Blak
1. deild karia
Hagaskóli: IS - Þróttur Nesk. ...18.30
1. deild kvenna
Hagaskóli: IS - Þróttur Nesk.20
KNATTSPYRNA
Leikmenn-
imir eiga
hrós skilið
- segirÁsgeir Elías-
son landsliðsþjálfari
ÁSGEIR Elíasson, landsliðsþjálfari
í knattspyrnu, hafði samband við
Morgunblaðið vegna ummæla sem
eftir honum voru höfð í blaðinu í
gær og vildi koma því á framfæri
að ekki væri rétt að hann væri ein-
göngu óánægður með leikinn eins
og skilja mætti. „Þvert á móti eiga
leikmennimir hrós skilið fyrir vinnu
sína í leiknum," sagði hann. „Þeir
tóku sig vel saman og spiluðu að
mestu leyti eins og fyrir þá var lagt
en það dugði ekki meira en raun
ber vitni. Ég er aldrei ánægður með
að tapa leik en strákarnir lögðu sig
alla fram og meira er ekki hægt
að biðja um.“
FELAGSLIF
Haustfundur
KR-klúbbsins
Haustfundur KR-klúbbsins verður í
félagsheimili KR við Frostaskjól í
kvöld og hefst kl. 20.30. Félagsmenn
eru hvattir til að mæta, en að lokinni
formlegri dagskrá, sem Guðmundur
Pétursson stjórnar, verður tekið upp
léttara hjal.
Vináttuhlaup FH
í Hafnarfirði
FH efnir til götuhlaups í Hafnarfírði
á morgun í samvinnu við Vini Hafnar-
fjarðar. Hlaupið fer fram við Suðurbæ-
jarlaugina og hefst klukkan 14 en
skráning klukkan 13. Keppt verður á
vegalengdum frá 600 metrum upp í 5
kílómetra eftir aldursflokkum. Allir
keppendur fá verðlaunaskjöl og fyrstu
í hveijum flokki verðlaunapeninga. Þá
fá allir þátttakendur frítt { sund að
hlaupi loknu og loks verða þeir gerðir
að vinum Hafnarfjarðar. Upplýsingar
veita Sigurður (651114), Þórarinn
(653347) og Ragna (52899).
íslandsmótið í blaki
ABM deild karlci:
Fostudagur 18. nov.,
Hagaskóli kl. 18.30 ÍS-Þróttur N
Laugordagur 19. nóv.
Oigranes kl. 15.30 HK-Þróttur N
Hagaskóli kl. 14.00 Þróttur R.-KA
ABM deild kvenna:
Föstudaaur 18. nóv.,
Hagaskoli kl. 20.00 ÍS-Þróttur N
Laugardagur 19. nóv.
Digranes kl. 15.30 HK-Þróttur N
Víkinkl. 16.00 Vikingur -KA
Þjálfaramenntun KSÍ
B-stig KSÍ verður haldið helgina
18.-20. nóvember nk.
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu KSÍ í síma 814444.
Góð þjálfun - betri knattspyrna
Fræðslunefnd KSÍ