Morgunblaðið - 24.11.1994, Side 4
KNATTSPYRNA / MEISTARADEILD UEFA
JBarjpnMafoít*
iteuter
Sænskur fögnuour
JESPER Blomqvist, leikmaður IFK (ð bakinu) fagnar fyrsta marki liðsins, sem hann gerði. Gary Walsh, markvörður United, er tll
vinstri. Hann hefur staðið í markinu í tveimur síðustu Evrópuleikjum og fengið á sig sjö mörk; þrjú í gær og fjögur gegn Barcelona.
Davíð hlær að Golíat
IFK Gautaborg tryggði sér efsta
sætið í A-riðli Evrópukeppni
meistaraliða og er komið í átta liða
úrslit eftir 3:1 sigur gegn Manc-
hester United í Gautaborg í gær-
kvöldi. Barcelona tapaði 2:1 fyrir
Galatasaray í Istanbul og ljóst er
að annað stórliðanna situr eftir.
Barcelona er með stigi meira en
United og tekur á móti Gautaborg
í síðustu umferð en Tyrkimir sækja
United heim. Verði liðin jöfn að
stigum í öðru sæti fer Barcelona
áfram vegna innbyrðis leikjanna,
2:2 í Manchester og 4:0 fyrir heima-
menn á Spáni.
Jesper Blomqvist var hetja
Gautaborgarliðsins. Þessi tvítugi
strákur, sem hefur verið meiddur á
lærvöðva og var því ekki viss um
að spila, kom heimamönnum á
bragðið á 11. mínútu og átti víta-
spymu sem Pontu Kamark skoraði
úr 12 mínútum fyrir leikslok. Sam-
herjar hans stóðu líka fyrir sínu og
oft á tíðum yfirspiluðu þeir væng-
brotið lið United, en sjö leikmenn
Gautaborgar voru í bronsliði Svía á
HM. Öriítið hik kom á heimamenn
þegar Mark Hughes jafnaði um
miðjan seinni hálfleik en Magnus
Erlingmark skoraði tveimur mínút-
um síðar og þar með voru Svíamir
aftur komnir á ferðina. Ekki bætti
úr skák fyrir United að Paul Ince
fékk að sjá rauða spjaldið á 83.
mínútu.
IFK Gautaborg: Thomas Ravelii; Pontus
Kamark, Magnus Johansson,_ Joachim
Björklund, Mikael Nilsson, Mikael Martins-
son (Erik Wahlstedt 49.), Stefan Rehn,
Stefan Lindqvist, Jesper Blomqvist, Stefan
Pettersson (Thomas Andersson 79.), Magn-
us Erlingmark
Man. Utd.: Gary Walsh; David May (Gary
Neville 68.), Steve Bruce, Gary Pallister,
Dennis Irwin, Andrei Kanchelskis, Paul
Ince, Brian McClair, Simon Davies (Nicky
Butt 76.), Eric Cantona, Mark Hughes.
Barceiona missti taktinn
Romario skoraði fyrir Barcelona
á 15. mínútu og gestimir réðu ferð-
inni gegn Galatasaray en Tyrkimir
gáfust ekki upp og sóttu stíft undir
lok fyrri hálfleiks, sköpuðu sér góð
færi en tókst ekki að skora. Barce-
lona reyndi að draga úr hraðanum
eftir hlé, en vítaspyma gaf heima-
mönnum aukinn kraft og sigur-
marki Erdems var ákaft fagnað.
Galatasaray: Gintaras Stauche; Norman
Mapeza, Bulent Korkmaz, Sedat Balkanli,
Mert Korkmaz, Ergun Pembe, Arif Erdem,
Yusuf Tepekule (Tugay Kerimoglu, 46.),
Hakan Sukur, Suat Kaya, Hamza Hamza-
oglu (Okan Buruk, 59.).
Barcelona: Carlos Busquets; Albert Ferrer,
Josep Guardiola (Abelardo Femandez, 60.),
Ronald Koeman, Miguel Angel Nadal, Jose
Bakero (Aitor Beguiristain, 70.), Eusebio
Sacristan, Hristo Stoichkov, Guillermo
Amor, Romario, Sergi Batjuan.
Bayem á enn möguleika
Bayem Miinchen á enn mögu-
leika á að komast áfram ú B-riðli
þrátt fyrir að tapa 0:1 á heimavelli
fyrir PSG í gærkvöldi. Franska lið-
ið hefur sigrað í öllum leikjum sín-
um og er öruggt áfram en um hitt
lausa sætið beijast Bayem, Spartak
Moskva og Dynamo Kiev, en Spar-
tak vann Kiev 1:0 í Moskvu í gær.
Frakkamir voru betri í gær og
Bayarar áttu í rauninni ekki mögu-
leika. „Það var mjög erfitt og eigin-
lega vonlaust að skapa sér nokkur
færi gegn þeim því þeir em svo
leikreyndir og leika svo skipulega,"
sagði Trapattoni þjálfari Bayem
eftir leikinn.
Það var líbéríski leikmaðurinn
Weah sem gerði eina mark leiksins.
Glæsimark sem Oliver Kahn átti
ekki möguleika á að veija. Weah
kom inná sem varamaður á 64.
mínútu og skapði oft mikinn usla í
vöm þýskra með hraða sínum og
tækni.
Bayern: Oliver Kahn, Lothar Matthaus,
Thomas Helmer, Marcus Babbel, Jorginho,
Markus Schupp (Dietmar Hamann, 63.)
Mehmet Scholl, Christian Nerlinger, Dieter
Frey, Jean-Pierre Papin (Alexander Zickler,
69), Alain Sutter.
PSG: Bernard Lama, Alain Roche, Jose
Cobos, Oumar Dieng, Patrick Colleter,
Francis Llacer, Daniel Bravo (Paul Le Gu-
en, 58.), Jean-Philippe Sechet, Vincent
Guerin, Pascal Nouma, David Ginola (Ge-
orge Weah, 64.)
Skuggi yfir AC Milan
Ajax tryggði sér sæti í 8-liða
úrslit með því að vinna Evrópu-
meistarana í AC Milan 0:2 í Trieste
á Ítalíu. Hollenska liðið fékk óska-
byijun er fínnski miðheijinn Jari
Litmanen kom Ajax í 0:1 strax á
2. mín. Fyrirliði ítölsku meistaranna
Franco Baresi gerði síðan sjálfs-
mark á 65. minútu og var það tákn-
rænt fyrir lánleysi Mílanóliðsins að
undanfömu og eins það að mark
sem liðið gerði í fyrri hálfleik var
dæmt af vegna þess að dómarinn
taldi að markvörður Ajax hafi verið
hindraður ólöglega. Ajax lék sókn-
arknattspymu frá fyrstu mínútu og
átti mun meira í leiknum, sérstak-
lega í síðari hálfleik.
AC Milan, sem vann Evrópu-
meistaratitilinn í fimmta sinn á síð-
asta keppnistímabili, verður að
vinna síðasta leikinn í riðlinum gegn
Austria í Salzburg 7. desember til
að komast áfram. Ajax hefur þegar
unnið D-riðil, Salzburg er í öðm
sæti með 5 stig eftir 3:1 sigur á
AEK í Aþenu í gærkvöldi og AC
Milan er í þriðja sæti með 3 stig.
Ef lið verða jöfn að stigum eftir
riðlakeppnina gildir samanlagður
árangur úr innbyrðis leikjum þeirra.
AC Milan: Sebaatiano Rossi, Christian
Panucci, Paolo Maldini, Demetrio Albertini,
Alessandro Costacurta, Franco Baresi, Ro-
berto Donadoni (Giovanni Stroppa 75.),
Marcel Deasailly, Marco Simone, Zvonimir
Boban (Gianluigi Lentini 57.), Daniele
Massaro.
Ajax: Edwin van der Sar, Michael Reizi-
ger, Danny Blind, Frank Rijkaard, Frank
de Boer, Clarence Seedorf, Finidi George,
Edgar Davids (Marc Overmars 80.), Ronald
de Boer, Jari Litmanen, Peter van Vossen
(Nwankwo Kanu 35.).
RALL
Átján ára bið Breta eftirsigri íkonunglega rallinu lokið
Auriol heimsmeistari
Colin McRae batt enda á 18 ára
bið Breta eftir sigri í Konung-
lega breska rallinu — síðasta ralli
ársins — sem lauk í gær. Hann var
með forystu alla fjóra dagana og
endaði rúmlega þremur mínútum á
undan Finnanum Juha Kankkunen,
sem varð annar. Frakkinn Didier
Auriol varð heimsmeistari, en Spán-
veijinn Carlos Sainz féll úr keppni
á síðasta degi.
Lokadagur keppninnar var
dramatískur. Carlos Sainz var ann-
ar fyrir daginn í gær og var sá eini
sem gat ógnað sigri Auriols í heild-
arstigakeppninni. En Sainz varð að
hætta keppni á annarri sérleið í gær
eftir að hafa keyrt á trédrumb sem
var á veginum. „Við sáum ekkert
á veginum er við keyrðum þama
um. Ef einhver hefur sett trédrumb-
ana þama er það hneyksli," sagði
sigurvegarinn McRae. „Carlos var
mjög undrandi er hann sá tvo tré-
drumba á veginum.
Ég er viss um að þeir voru settir
þama sérstaklega til að hindra
hann. Þetta var slæmur endir á
annars ströngu og góðu keppnis-
tímabili," sagði Dave Richards, yfir-
maður Subaruliðsins.
Eftir þetta atvik var ljóst að
Auriol tók heimsmeistaratitilinn til
Frakklands í fyrsta sinn. Hann byij-
aði þó illa í Konunglega rallinu —
velti bifreið sinni á fyrsta keppnis-
degi og var þá í 94. sæti. En hann
hélt áfram og vann sig hægt og
sígandi upp og endaði í sjötta sæti.
„Mig hefur lengi dreymt um heims-
meistaratitilinn og ég hef beðið
lengi eftir þessum happadegi,11
sagði Auriol er titillinn var í höfn.
McRae, sem ekur Subara, varð
fyrstur Breta til að vinna Konung-
lega rallið síðan Roger Clark gerði
það 1976. „Sigurinn var nokkuð
öraggur og án baráttu. Við héldum
forystunni nokkuð létt í gegnum
alla keppnina," sagði sigurvegar-
inn.
■ HILMAR Þórlindsson, stór-
skyttan í KR-liðinu, meiddist í fyrri
hálfleik gegn HK og er að öllum
líkindum ristarbrotinn. Hann var
meiddur á rist í haust og þau meiðsli
tóku sig upp í gær. Hann kom illa
niður á vinstri fótinn og segist hafa
heyrt smell. Hilmar verður frá hand-
knattleik í nokkrar vikur.
■ EINAR og Kristján Sveinssyn-
ir, dómarar í leik KR og HK,
dæmdu KR-ingum sjö vítaköst á
fyrsta stundarfjórðungi leiksins en
nokkuð var um klaufaleg brot við
línuna. HK-ingar fengu sitt fyrsta
vítakast stuttu síðar.
■ DAGUR Sigurðsson leikstjóm-
andi Vals lék ekki með liði sínu í
gær, en hann var dæmdur í leikbann
af aganefnd HSÍ á dögunum.
■ FROSTI Guðlaugsson horna-
maður úr Val kom ekkert inn á í
leiknum, en hann hefur verið meidd-
ur og Þorbjörn sagðist hafa viljað
gefa honum frí í gærkvöldi.
■ ÞRÍR markverðir voru á skýrslu
hjá Sljömunni og komu þeir allir
inná. Markverðimir áttu hins vegar
erfíðan dag því sóknirnar vora lang-
ar og menn því oft komnir á hælana
loksins þegar skot kom að marki.
■ HANS Guðmundsson fékk
blómvönd fyrir leikinn gegn IR í
gær en hann var að leika sinn 300.
leik með meistaraflokki FH.
■ MAGNÚS Ámason markvörður
FH-inga lék ekki með liði sínu í gær
vegna meiðsla á hendi.
■ EINAR Þorvarðarson befur
haft góð áhrif sem liðsstjómandi
Hauka. Hann hefur stjórnað liðinu
af bekknum í síðustu þremur leikj-
um, tveimur í Evrópukeppni og
einum deildarleik, og Haukar hafa
fagnað sigri i þeim öllum.
■ PÁLL Ólafsson hjá Haukum
fékk högg á augabrún snemma í
seinni hálfleik og var utan vallar i
tvær mínútur meðan búið var um
sárið en kom síðan inn á fullri ferð
og skoraði nær samstundis.
■ FYRIR leik Aftureldingar og
KA var leikið lag með Willie Nel-
son. Var það í fyrsta skiptið sem
það er gert í vetur að Varmá. Fylgdi
laginu kveðja til Alfreð Gíslasonar
frá Guðmundi Guðmundssyni,
þjálfara Aftureldingar. Þetta var
greinilega gert í framhaldi af þeim
ummælum Alfreðs í Morgunblaðinu
í gær að hann hefði heyrt að leik-
menn Aftureldingar hiti upp „með
Willie Nelson músík, sem hlýtur að
fara svona vel í þá!“ KA-maðurinn
veit greinilega að Guðmundur fyrr-
um félagi hans úr landsliðinu er
mikill Willie Nelson aðdáandi, og
ummælin skot af léttara taginu til
hans...
■ ÞEGAR hálf mínúta var til leiks-
loka að Varmá í gærkvöldi og sigur
KA gulltryggður stóð Sigmar
Þröstur á höndum í marki KA á
meðan hans menn léku síðustu
sókninnar. Og það sem meira var
hann tók nokkur dansspor á meðan
hann stóð á höndum.
■ ÞAÐ hefur sett ljótan blett í vet-
ur á hinn fjölmenna og hressa stuðn-
ingsmanna hóp sem fylgir Aftureld-
ingu hvað mörg böm í hópnum hrópa
sóðalegar yfirlýsingar inn á leikvöllin
til dómara og andstæðinganna. Leik-
urinn í gærkvöldi var engin undan-
tekning, því miður.
■ VIKTOR B. Viktorsson, leik-
maður Aftureldingar átti 27 ára
afmæli í gær. Fyrir leikinn sungu
stuðningsmenn AJftureldingar fyrir
hann, „Hann á afmæli í dag“, eins
og títt er gert er fyrir afmælisböm.
Undir leiklok í gærkvöldi þegar KA
sigurinn var að komast í höfn tóku
áhangendur norðanmanna að syngja
í sigurvímunni til heiðurs afmælis-
baminu við blendna ánægju Viktors.