Morgunblaðið - 25.11.1994, Blaðsíða 3
2 C FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 C 3
IÞROTTIR
IÞROTTIR
Mkm
FOLK
■ SENN líður að því að námskeið
hestamanna fari að hefjast. Fyrstu
námskeiðin verða að teljast all ný-
stárleg en þar ríður á-vaðið Ingi-
mar Sveinsson á Hvanneyri. Dag-
ana 25. til 27. nóvember verður
hann með námskeið í tamningaað-
ferð sem á ensku kallast Join-up
en Ingimar kýs að kalla „Af fijáls-
um vilja“. Segir Ingimar aðferðina
byggjast á hestasálfræði, aldrei að
þvinga hrossið með böndum eða
taumum né á annan hátt.
■ INGIMAR hefur notað þessa
aðferð um árabil við tamninga-
kennslu á Hvanneyri og að sögn
reynst mjög vel. Ein sagan segir
að tamningamaður í nágrenninu
Jón Ólafsson á Báreksstöðum
hafí fengið fola einn í tamningu svo
villtan að eftir viku stöðu í hest-
húsi hans hafi ekki einu sinni verið
hægt að kemba folanum og hugðist
Jón senda hann til föðurhúsanna.
■ EKKI taldi Ingimar ástæðu til
þess og fór fram á að Jón kæmi
með folann í sérstakt hringgerði
sem er staðsett á Hvanneyri.
Ekki var að sökum að spyija því
eftir þijár kennslustundir „Af
fijálsum vilja“ sagði Ingimar Jóni
að fara á bak. Sigurborg móðir
Jóns sem fylgdist með aðförunum
bað Ingimar í lengstu lög að láta
drenginn ekki fara á bak því hestur-
inn hafði hrekkjað hnakkinn all
svakalega í síðasta tímanum.
■ JÓN fór á bak og allt gekk eins
og S sögu og eftir það. í dag getur
Jón gengið að hestinum sem er nú
í hans eigu, úti í haga og strokið
og klappað að vild.
■ SÍÐARA námskeiðið verður
haldið í Reiðhöll Gustsmanna í
Kópavogi. Þar verður mönnum
kennt að beita hestum fyrir kerru
en kennari verður Þjóðveijinn Diet-
er Kolb sá hinn sami og ók kring-
um landið á hestavagni í sumar.
Námskeiðið hefst 2. desember og
lýkur 10. desember alls tuttugu og
fjórar stundir.
■ DIETER Kolb sem er tann-
læknir er meðal fremstu aksturs-
manna Þýskalands og beitir ein-
göngu íslenskum hestum fyrir
vagna sína, allt upp í fimm hesta
í senn. Hann er mikill áhugamaður
um kerruakstur og harðákveðinn í
að kenna íslendingum þessa list því
hann telur íslensku hestana ein-
hveija þá bestu í hlutverkið.
■ ÞÁTTTAKENDUR fástraxvið
skráningu í hendur kennslumynd-
band sem inniheldur undirstöðuat-
riði í kerruakstri. Með þessu móti
tryggir Dieter að nemendur komi
vel undirbúnir til leiks.
GETRAUNIR
HESTAR
EinbeKum
okkurnú að
framtíðinni
- segir nýkjörinn formaður Hesta-
mannafélagsins Fáks Sveinn Fjeldsted
FJÁRHAGSSTAÐA Hesta-
mannafélagsins Fáks hefurfar-
ið heldur batnandi siðustu árin.
Eftir því sem fram kom í reikn-
ingum félagsins á aðalfundi
nýlega kom fram að staðan sé
góð um þessar mundir. Að
sögn nýkjörins formanns
Sveins Fjeldsted eru raun-
skuldir félagsins rétt rúmar
átta milljónir.
Hæst komust skuldimar í rúmar
þijátíu milljónir fyrir einum
sex árum en með markvissum að-
gerðum hefur tekist að koma stöð-
unni í vel viðunandi horf. All nokkr-
ar breytingar vom gerðar á upp-
setningu reikninga félagsins að
þessu sinni auk þess sem reiknings-
árinu hefur verið breytt yfir í 1.
júlí til 30. júní. Sagði Sveinn að nú
í fyrsta skipti væri lóð félagsins að
Víðivöllum væri nú í fyrsta sinn
talin til eigna í reikningum, verð-
mæti henar er bókfært 7,9 milljón-
ir. Hesthús að Víðivöllum em metin
á 27 milljónir, hesthús við Bústaða-
veg á 11,5 milljónir, félagsheimilið
á 17 milljónir og vellir og mann-
virki þeim tilheyrandi á 87,6 millj-
ónir. Alls em eignir metnar á 151,7
milljónir króna.
Góð fjárhagsstaða
Vegna breytinga á reikningsár-
inu ná reikningarnir einungis yfir
átta mánaðatímabil og voru rekstr-
artekjur 33,7 milljónir og rekstrar-
hagnaður 2,2 milljónir. Taldi Sveinn
fjárhagsstöðu félagsins mjög góða
þannig að nú gætu fáksmenn ein-
beitt sér að fullu að framtíðarverk-
efnum r stað þess að eyða kröftun-
um í fortíðarvanda. Upplýsti Sveinn
meðal annars að skipuð hefði verið
svokölluð framtíðamefnd sem hefði
það hlutverk að skoða framtíðar-
skipulag á félagssvæði Fáks og
gera tillögur að framtíðarstefnu-
mótun fyrir félagið. Taldi Sveinn
betri kost að nýta svæðið betur en
gert hefði verið heldur en að byija
á nýjum hesthúsahverfum fjarri
hinni góðu aðstöðu sem byggð hef-
ur verið upp á Víðivöllum. Brýnasta
verkefnið um þessar mundir sagði
hann þó vera að tryggja íþrótta-
deild Fáks reksturinn á Reiðhöllinni
í Víðfdal sem íþrótta og tómstund-
aráð hefði rekið síðan höllin komst
í eigu eða umsjá Reykjavíkurborg-
ar.
íþróttahús hestamanna
„Reiðhöllin er íþróttahús hesta-
manna og ég tel hlutverk hennar
best tryggt með því að hestamenn
sjálfir sjái um rekstur hennar. Við-
ræður eru í gangi og hefur verið
vel tekið í málaleitan fáksmanna
af hálfu borgaryfirvalda" sagði
Sveinn.
Rekstur hestahúsanna hefur
gengið vel að sögn Sveins en veru-
lega var hagrætt í rekstri þeirra
fyrir tveimur árum og yrði hann
óbreyttur. í fyrra var 92% nýting
á húsunum sem þykir mjög gott.
Af öðrum verkefnum sagði hann
að Landsmót 2002 á Víðivöllum
væri á stefnuskrá fáksmanna.
„Ætli sé þó ekki best að byija á
fjórðungsmóti en við erum tilbúnir
í að taka næsta fjórðungsmót á
Suðurlandi en það eru auðvitað
félögin í fjórðungnum sem ákveða
hvar það verður haldið. Nauðsyn-
legt er að fara að ákveða hver fær
það svo hægt sé að hefja undirbún-
ingsvinnu. Það má segja að það
sé mikill hugur í fáksmönnum enda
staðan góð og bjart framundan
sagði nýkjörinn formaður félags-
ins.
Sveinn tekur við af Viðari Hall-
dórssyni sem gegnt hefur for-
mannsstöðunni í fimm ár. Auk
Sveins eru nú í stjórn Bragi Ás-
geirsson, Þórður Ólafsson, Hjörtur
Bergstað, Guðbjörg Egilsdóttir. Jan
Jansen og Gréta Oddsdóttir koma
ný inn í stað Viðars og Jóhönnu
Arngrímsdóttur og sitja í vara-
stjórn.
ENGLAND Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl.
Nr. Leikur 1 ' X 2 t X 2
1 Arsenal - Man. Utd. 1 6 3 1 X 2
2 Liverpool - Tottenham 10 0 0 1 X
3 Leeds - Nott. Forest 8 2 0 1 X
4 Blackburn -QPR 10 0 0 1
5 Newcastle - Ipswich 10 0 0 1
6 Chelsea - Everton 10 0 0 1 X 2
7 Norwich - Leicester 10 0 0 1
8 Man. City - Wimbledon 8 2 0 1 X
9 West Ham - Coventry 7 2 1 1
10 Cr. Palace - Southampton 9 1 0 X
11 Reading - Tranmere 0 8 2 X
12 Charlton - Middlesbro 1 3 6 X
13 Watford - Stoke 9 1 0 X 2
ÍTALÍA Spá sænskra fjölmiðla Spá Morgunbl.
Nr. Leikur 1 X 2 1 X 2
1 Lazio - Roma 6 4 0 1 X 2
2 Fiorentina - Sampdoria 7 3 0 1 X
3 Foggia - Napolí 8 2 0 1 X 2
4 Genúa - Cremonese 10 0 0 1
5 Padova - Juventus 0 2 8 X 2
6 Reggiana - Cagliari 2 8 0 1 X
7 Brescia - Bari 2 7 1 X
8 Ancona - Lucchese 7 3 0 1
9 Atalanta - Verona 8 2 0 1
10 Venezia - Udinese 3 5 2 X
11 Cesena - Perugia 10 0 0 1
12 Palermo - Vicenza 2 8 0 X
13 Pescara - Salernitan 5 4 1 1 X
Arsenal - Man. Utd.
Sjónvarpsleikur RUV á morgun verður viðureign Arse-
nal og Manchester United á Highbury. Leikmenn Un-
ited eru í sárum eftir tapið gegn IFK í Gautaborg,
möguleikarnir nánast engir á að komast áfram í Evr-
ópukeppninni og áherslan því lögð á deildina. United er
í efsta sæti deildarinnar en Arsenal í 11. sæti.
Bjart framundan
Morgunblaðið/Valdimar
SVEINIM Fjeldsted nýkjörinn formaður Fáks lengst tll hægri sem hér sést á spjalli tvo ágæta fáksmenn þá
Arngrím Ingimundarson og Snorra B. Ingason, telur að bjart sé framundan hjá Fákl.
Lazio - Roma
Stórleikurinn á Ítalíu á sunnudag verður nágrannaslag-
ur Rómarliðanna Lazio og AS Roma, og verður hann
í beinni útsendingu á Stöð 2. Lazio hefur leikið mjög
vel undanfarið, sigraði Trabzonspor í fyrri viðureign-
inni í UEFA-keppninni á útivelli í vikunni og er í öðru
sæti ítölsku deildarinnar. Roma er í fimmta sæti.
Kunn heiðursverð-
launahross felld
AFREKSHROSS áttunda áratug-
arins eru nú hvert af öðru að týna
tölunni. Sá kunni stóðhestur
Ófeigur 818 frá Hvanneyri var
felldur nýlega 26 vetra. Með hon-
um er genginn einn af frægari
stóðhestum landsins þótt væri
hann nokkuð umdeildur og sýnd-
ist sitt hverjum um ágæti hans.
Ofeigur var fæddur Sigurborgu
Jónsdóttur sem þá bjó á Hvann-
eyri, undan Hrafni 583 frá Árnanesi
og Skeifu 2799 frá Kirkjubæ. Eftir
landsmótið 1974 keypti Hrossarækt-
arsamband Vesturlands hestinn og
átti hann alla tíð. 1986 hlaut hann
heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á
landsmóti. Ófeigur þótti gefa viljug
og gangrúm hross en skapgerðin gat
brugðið til beggja átta. Sjálfur var
hann fallega byggður gæðingur í
fremstu röð.
Þá voru Sauðárkrókshryssurnar
Hrafnkatla og Hrafnhetta einnig felld-
ar en að sögn Sveins Guðmundssonar
á Sauðárkróki voru þær hættar að
halda en að öðru leyti í prýðilegu ásig-
komulagi miðað aldur. Hrafnkatla sem
var 28 vetra var undan Andvara frá
Varmahlíð en Hrafnhetta sem var 26
vetra var undan Eyfirðingi frá Akur-
eyri en báðar voru þær dætur Síðu
frá Sauðárkróki. Undan þeim eru
komnir margir stóðhestar og eru þar
kunnastir Kjarval sonur Hrafnhettu
og Otur sonur Hrafnkötlu. Hrafnkatla
átti sextán afkvæmi og þar af níu
kynbótahross sem hlotið hafa 1. verð-
laun. Þorkell Bjarnason hrossaræktar-
ráðunautur sem fylgst hefur vel með
systrunum frá upphafi og hefur dæmt
öll þeirra afkvæmi sagði ekki vafa að
þær systur væru í allra fremstu röð
og gilti einu hvort þar væri um rætt
getu og myndarskap þeirra sjálfra,
afkvæma þeirra, fijósemi og endingu.
Þetta væru einstakar happahryssur.
Þá upplýsti Þorkell að nýlega hafi
þeir Laugvetningar fellt heiðursverð-
launhryssuna Sjöfn frá Laugarvatni
en hún var 25 vetra undan Skotta frá
Hesti og Slaufu frá Laugarvatni. Und-
an henni eru meðal annars hryssurnar
Glíma, Þrúður og Lofn og stóðhestur-
inn Börkur.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Mikill gæðingur
ÓFEIGUR 818 frá Hvanneyri þótti sjálfur mlkill gæðingur og gaf einn-
ig af sér mlkinn fjölda góðra hrossa. Reynir Aðalsteinsson situr
hestinn og er myndln tekln þegar hann hlaut heiðursverðlaun 1986.
FOLX
■ MAGNI Blöndal Pétursson hef-
ur verið ráðinn þjálfari Hauka sem
leika í 3. deild fslandsmótsins í knatt-
spyrnu. Magni þjálfaði og lék með
Selfyssingum í 2. deild síðasta tíma-
bil.
■ STEFÁN Jóhannsson úr Ár-
manni var kjörinn formaður félags
fijálsíþróttaþjálfara á aðalfundi
F.F.Þ. fyrir skömmu. Aðrir í stjórn
eru; Helgi Þór Helgason úr ÍR,
Gunnar Páll Jóakimsson úr ÍR,
Rakel Gylfadóttir úr FH og Hlynur
Guðmundsson úr Aftureldingu.
■ GABRIEL Batistuta gerði tvö
mörk fyrir Fiorentina í 5:2 sigri
gegn Napólí um síðustu helgi. Þar
með hefur argentíski landsliðsmað-
urinn skorað í öllum 10 umferðunum,
sem búnar eru í ítölsku deildinni á
tímabilinu, en það er metjöfnun.
Ezio Pascutti gerði slíkt hið sama
fyrir Bologna í byijun tímabilsins
1962 til 1963, en Batistuta er kom-
inn með 12 mörk í 10 leikjum.
URSLIT
NBA-úrslit Boston - Charlotte 98:91
113:108
100:87
117:94
77:89
110:105
113:111
113:111
113:103
118:106
Sacramento - New Jersey 98:103
í kvöld Körfuknattleikur Bikarkeppni karla: 20.00
18.00
20.00
1. deild kvenna: 20.00
Handknattleikur Bikarkeppni karla 20.00
20.00
Bikarkeppni kvenna: 18.15
Sund Bikarkeppni 1. deildar í sundi hefst í Sundhöll Reykjavíkur í kvöld 20.00. Keppt verður í 800 metra skriðsundi karla og kvenna. Keppninni verður síðan framhaldið á laugardag og sunnudag. Sex lið eru í 1. deild; Ægir A og Ægir B, Keflavík, ÍA, SH og UMSK. Ægir hefur verið bikarmeistari tvö síðustu árin.
HANDKNATTLEIKUR / KVENNALANDSLIÐIÐ
Markmiðið að byggja upp
landslið framtíðarinnar
- segir Kristján Flalldórsson sem valdi 10 nýliða til æfinga 1yrir EM landsliða
KRISTJÁN Halldórsson, lands-
liðsþjálfari kvenna í handknatt-
leik, hefur valið 23 leikmenn til
æfinga og undirbúnings lands-
liðsins fyrir Evrópukeppni
iandsliða sem hefst eftir rúmt
ár. Tíu nýliðar eru í landsliðs-
hópnum og segist Kristján vera
að byggja upp fyrir framtíðina.
Kristján undirstrikaði það með
vali sínu á öllum þessum ungu
stúlkum að hann hugsar til framtíð-
ar — ætlar að byggja um nýtt
kvennalið. „Markmiðið er að byggja
upp sterkt landslið sem við getum
látið lifa í nokkur ár. Ég tel að há-
marks árangur landsliðsins verði
eftir tvö ár. Það er ljóst að stúlkurn-
ar verða að leggja meira á sig en
áður bæði varðandi æfingar og
keppni. Höfuðverkurinn hjá kvenna-
iandsliðinu undanfarin ár hefur verið
markvarslan og sóknarleikurinn. Ég
mun leggja áherslu á að bæta þessa
tvo þætti sérstaklega og mun Einar
Þorvarðarson aðstoða mig við mark-
manns þjálfunina,“ sagði Kristján.
Það vakti athygli að í 23 manna
landsliðshópi Kristjáns er engin
stúlka úr Fram, sem er þó í einu
af toppsætum deildarinnar. Ástæð-
una sagði Kristján „að þær sem
bera uppi leik Framliðsins eru ein-
faldlega orðnar of gamlar fýrir
landsliðið."
Landsliðshópurinn kemur í fyrsta
sinn saman 14. desember og mun
æfa fram að jólum. Milli jóla og
nýárs verður æfingaferð til Noregs
þar sem æft verður tvisvar á dag í
5 daga auk þess sem keppt verður
við norsk 1. og 2. deildar lið. Lands-
liðið kemur síðan saman eftir Is-
Iandsmótið, 29. mars og verður æft
til 1. maí. Þá verður gert hlé til 25.
maí og þá aftur komið saman og
JUDO
Nýliðarnir og þjálfarinn
Morgunblaðið/Sverrir
KRISTJÁN Halldórsson, landsliðsþjálfari, með nýliðunum í landsliðinu. Frá vinstri: Björk Tómasdótt-
ir, Selfossi, Björk Ægisdóttir, FH, Brynja Steinsen, KR, Helga Torfadóttir, Víkingi, Sóley Halldórs-
dóttir, Stjörnunni og Thelma Arnadóttlr, FH. Helga og Björk Tómasdóttir eru yngstar í liðinu, 17 ára.
jafnvel æfingaferð erlendis.
20. - 28. ágúst verða æf-
ingabúðir hér heima og frá
september til desember
verða æfingahelgar með
jöfnu millibili. Fyrstu leikir
íslands í Evrópukeppninni
verða við Rússa í lok janúar
1996. Leikirnir við Svía
verða í byijun mars og loks
við Sviss, Holland eða Ítalíu
í apríl 1996.
Nýlega hefur verið gengið
frá ráðningu á þjálfurum
yngri kvennalandsliðanna
og eru þeir allir ráðnir til
tveggja ára. Judit Estergal,
þjálfari ÍBV, verður með
U-18 ára liðið og Aðalsteinn
Jónsson með U-16 ára liðið.
Opna skandinavíska meist-
aramótið í Laugardalshöll
Opna skandinavíska meistaramótið í júdó
verður haldið í Laugardalshöll á morgun,
laugardag, og hefst kl. 10 árdegis en úrslitaglím-
urnar hefjast kl. 16. Mót þetta hefur verið mjög
sterkt undanfarin ár og hafa íslendingar oft náð
góðum sætum á því og nægir þar að nefna Bjama
Friðriksson.
Ekki er búist við að mótið verði eins sterkt í
ár enda er kostnaður keppenda við að koma hing-
AFLRAUNIR
að til lands mikill og þeir geta tekið þátt í tveim-
ur til þremur mótum í Evrópu fyrir sömu upp-
hæð. Þó verður nokkuð erlenda keppendur og
allir bestu júdómenn íslands.verða meðal kepp-
enda þannig að mikið verður um að vera í Höll-
inni á laugardaginn. Glímurnar verða rúmlega
eitt hundrað, 100 í undankeppninni og um 20
úrslitaglímur.
Landsliðshópurínn
(Nöfn, lið og fjöldi landsleikja í sviga).
Markverðir:
Hjördís Guðmundsdóttir, Víkingi........(19)
Helga Torfadóttir, Víkingi ........(nýliði)
Vigdís Sigurðardóttir, ÍBV.........(nýliði)
Laufey Jörgensen, ÍBV .............(nýliði)
Fanney Rúnarsdóttir, Stjörnunni........(15)
Sóley Halldórsdóttir, Stjörnunni...(nýliði)
Vigdís Finnsdóttir, KR...................(4)
Aðrir leikmenn:
Inga F. Tryggvadóttir, Stjörnunni..(nýliði)
Thelma Árnadóttir, FH..............(nýliði)
Anna Steinsen, KR................ (nýliði)
Svava Sigurðardóttir, Víkingi..........(20)
Laufey Sigvaldadóttir; Stjörnunni......(21)
Halla María Helgadóttir, Víkingi.......(30)
AuðurÁ. Hermannsdóttir, Virum Danm. ..(21)
Hulda Bjarnadóttir, Virum Danmörku.....(11)
Andra Atladóttir, ÍBV..................(30)
Brynja Steinsen, KR................(nýliði)
Heiða Erlingsdóttir, Víkingi ..........(30)
Herdís Sigurbergsdóttir, Stjörnunni....(24)
Björk Tómasdóttir, Selfossi........(nýliði)
Björk Ægisdóttir, FH...............(nýliði)
Inga Lára Þórisdóttir, Refstad Noregi .(62)
Guðný Gunnsteinsdóttir, Stjörnunni.....(65)
Kraftajötnar í Höllinni
ÞAÐ VERÐUR handagangur í
öskjunni í Laugardalshöll á
sunnudaginn, þegar nokkrir af
sterkustu mönnum jarðarinnar
takast á í aflraunamóti. Sterk-
asti maður heims, Magnús Ver
Magnússon, er skipuleggjandi
mótsins og verður keppt í sjö
greinum.
Ný keppnisgrein, morðbolti, verð-
ur í lok keppninnar, en í þeirri
grein takast tveir keppendur á með
mannhæðarháan bolta á milli sín.
Markmiðið er að velta boltanum yfir
marklínu hins. „Þessi grein mun
vera ein sú erfiðasta og reynir mikið
á kraft og úthald. Þá er önnur grein-
ar sem mun taka hressilega í. Kepp-
endur eiga meðal annars að bera
Hyundai-sendibíl nokkurn spotta og
draga Massey Ferguson dráttarvél
á höndunum. Keppendurnir eru mjög
jafnir og ómögulegt að spá fyrir um
úrslit," sagði Magnús í samtali við
Morgunblaðið.
Andrés Guðmundsson verður eini
íslenski keppandinn en hann vann
m.a. titilinn herra Herkúles í Finn-
landi í sumar auk þess að ná í titla
á Hálandaleikum í Skotlandi. Hann
mætir mörgum hraustum köppum.
Manfred Höeberl frá Austurríki, sem
í dag telst næststerkasti maður
heims og hefur stærstu upphand-
leggi heims mætir til leiks. Hollend-
ingurinn stóri Ted Van der Perre,
sem er 2,15 metrav á hæð og varð
sterkasti maður heims fyrir tveimur
árum, mætir einnig. Forbes Cowan,
sterkasti maður Bretlands í fyrra
og fjórfaldur Skotlandsmeistari
keppir líka. Þá keppa Waine Price
frá Suður-Afríku og Illka Kinnunen,
sterkasti maður Finnlands. „Mótið
verður mjög erfítt. Mér hefur tekist
að leggja alla þessa kappa að velli
í öðrum mótum, nema Stóra-Ted.
Ég ætla að bæta honum á kippuna
um helgina og vinna mótið,“ sagði
Andrés glaðhlakkalega um eigin
möguleika í aflraunamótinu.
Hann mun keppa við hina hraustu
kappa í drumbalyftu, axlalyftu,
tveimur hleðslugreinum auk áður-
nefndra greina. Mótið hefst kl. 15
með því að keppendur aka inn í Laug-
ardalshöll á mótorhjólum. Þá verður
sýningaratriði með vaxtarræktar-
mönnum í hléi og þolfimiatriði.
FELAGSLIF
Adalfundur Kjalar
Aðalfundur hjá Golfklúbbnum Kili
verður haldinn í Hlégarði á morg-
un, laugardag og hefst kl. 14.00.
Árshátíð um kvöldið á sama stað.
íslandsmótið í blaki
ABM deild karla:
Föstudagur 25. nóv.
Hagnskóli kl. 20:00 Þrótlur R.-Þróttur N.
laugardagur 26. nóv.
Asgarðurkl. 15.30 Stjarnan-HK
KA-húsið kl. 16.00 KA-IS
ABM deiltl kvenna:
Föstudagur 25. nóv.
Víkin kl. 21.30 Víkingur-Þróttur N
lauqardagur 26. nóv. .
KA
ugardogui
i-núsið kl.
17.30 KA-IS