Morgunblaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.12.1994, Blaðsíða 4
4 B FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ 1 071 Borgaráð samþykkir að I í/1 1 leggja til um 20.000 fer- metra lóð á þeim stað sem ráðið hafði samþykkt þremur árum fyrr. Óli Jóhann vinnur ásamt fulltrúum beggja safna að samn- ingu forsagnar, sem gefin er út á vegum byggingarnefndar í októ- ber 1971. 1 Q79 Arkitektarnir Manfreð ÍU t u Vilhjálmsson ogÞorvald- ur S. Þorvaldsson eru ráðnir til að teikna bókhlöðuna, jafnframt því sem aðrir hönnuðir eru ráðnir til samvinnu við þá. Harry Faulkn- er-Brown, arkitekt frá Newcastle í Bretlandi, er ráðinn sem ráðu- nautúr byggingarnefndar, að til- lögu Tveterás og Carters. 1 Q H Q Kostnaðar- og fram- 1 <J I 0 kvæmdaáætlun gerð, sem miðast við að byggingin verði tek- in í notkun 1977. Vonir bundnar við að framkvæmdir geti hafist á þjóðhátíðarári 1974, en samnings- gerð við Reykjavíkurborg um lóð- ina á Birkimel dregst á langinn og aðrar tafir verða. Teikningar að Þjóðarbók- hlöðu samþykktar. 1Q 7 0 Vilhjálmur Hjálmarsson, v I 0 menntamálaráðherra, tekur fyrstu skóflustunguna á Birkimelslóðinni og byijað er að grafa fyrir Þjóðarbókhlöðu. Sökklar og botnplata eru steypt en síðan stöðvast framkvæmdir og þær liggja niðri allt árið 1979. 1 QOA Kjallari hússins steyptur. i v 0 U Ríkisstjórn Gunnars Thor- oddsens kemst til valda í febrúar og heitir í stjórnarsáttmála sínum stuðningi við byggingu bókhlöð- unnar. 1 QQ1 Að tillögu Ingvars Gísla- li/01 sonar, menntamálaráð- herra, eru allar fjórar hæðir húss- ins steyptar upp í einni lotu að mestu. Vigdís Finnbogadóttir, for- seti Islands, leggur hornstein að Þjóðarbókhlöðu 23. september sem er 740. ártíð Snórra Sturlu- sonar. Næsta ár var lokið við upp- steypu hússins og þakgrind smíð- uð. 1 Q Q Q Lokið við þaksmíði. Vinna 1 v 0 0 við einangrun og álskildi sem keyptir eru frá Japan til að klæða með húsið, hefst. Fram- kvæmdir leggjast síðan niður og ekkert er gert árið 1984. IQQf Framkvæmdir hefjast við UÖU hluta af hita- og loftræsi- kerfi og ílögn í gólf á fjórum hæðum, einangrun í kjallara o.fl. Sverrir Hermannsson verður í október menntamálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms Hermanns- sonar í október og segist ætla að leggja embætti sitt að veði, takist ekki að „svipta upp“ Þjóðabók- hlöðunni á næstu árum. ÞJÓÐARBÓKH LAÐAN Ólafur G. Einarsson menntamálaráðherra hefur beitt sér einarðlega í þágu Þjóðarbókhlöðu „Göngum inn í nvja tíma“ EGAR rætt er við arkitekt Þjóðar- bókhlöðu, fram- kvæmdastjóra bygg- ingarnefndar, fyrrver- andi landsbókavörð og núverandi og aðra þá sem barist hafa ötullega fyrir að húsið yrði reist kemur fram það sam- dóma álit, að Ólafur G. Einarsson, mennta- málaráðherra, eigi mestu þakkir skildar af þeim ráðherrum sem komið hafa að fram- kvæmdasögu Þjóðar- bókhlöðu. Ólafur hafi ekki aðeins staðið fylli- lega við þau loforð sem hann gaf þegar hann settist í ráðherrastól, heldur einnig varist hvers konar til- raunum til niðurskurðar á tekjustofni byggingarinnar með oddi og egg — og haft sigur. Ólafur kveðst ekki vilja leggja dóm á ástæður þess að forverum hans í starfi voru mislagaðar hendur þegar Þjóðarbókhlaða átti í hlut, enda séu skýringar á löngum byggingartíma vart einhlítar. „Því miður er það svo, að fjárfrek framkvæmd sem þessi telst ekki til mestu nauðsynjamála að dómi sumra og situr á hakanum fyrir vikið. Seinagangurinn var öllum til vansa að mínu mati og ekki var léngur stætt á því að ýta málinu á undan sér. Ég býst við að ýmsum forverum mínum hafi dottið hið sama í hug en ekki komið því fram. Spurn- ingin snerist bæði um pólítískan vilja og forgangsröð. Minn pólítíski vilji stóð til þessa verks, er þýddi jafn- framt að ég setti Þjóðarbókhlöðuna á oddinn í röðun framkvæmda þótt að taka hafi þurft ýmsar sársauka- fullar ákvarðanir í ráðuneytinu vegna þessa. Ég lagði áherslu á framkvæmdir við Þjóð- arbókhlöðu vegná þess að mér þótti byggingar- sagan orðin nægilega löng og þótti auk þess einstaklega slæmt að sú ágæta hugmynd, sem Sverrir Hermannsson fékk og hrinti í fram- kvæmd með sérstaka eignarskattsaukanum, skyldi hafa verið nánast eyðilögð strax með ásælni ríkisins," segir Ólafur. „Ríkisstjórnin setti fram það markmið meðal annarra að ljúka við Þjóðarbókhlöðu á til- settum tíma þegar hún tók við stjórnartaumunum. Eg vildi ekki una frekari niðurskurði eða töf- um og er mjög ánægður með að tek- ist hafi að standa við efndir núver- andi ríkisstjórnar varðandi Þjóðar- bókhlöðu. Við stöndum meira að segja við þá dagsetningu sem við settum okkur, jafnvel þótt orðið hafi að ganga á fé endurbótasjóðsins næsta ár, en ég lít svo á að verið sé að skila nokkru af því sem áður var tekið. Samstaða náðist um málið, sem er einkar ánægjulegt á seinustu aðhalds- og niðurskurðartímum, því mönnum hefur dottið í hug á tímabil- inu að skerða þennan sjóð sem hefði þýtt enn frekari frestun á fram- kvæmdum. Ég hef staðið gegn því, þótt ég hafi þar af leiðandi þurft að skera niður á öðrum og afar við- kvæmum sviðum. Ríkisstjórnin hefur sett fleiri markmið en hefur af ýms- um ástæðum ekki getað staðið við þau öll. Þetta hefur auðvitað verið erfitt, því að við höfum ekki náð því meginmarkmiði okkar að ná niður Ijárlagahallanum á kjörtímabilinu og það er þess vegna sem sótt hefur verið á þennan lið sem lýtur að Þjóð- arbókhlöðu. Hann er stór, eða upp á um 350 milljónir króna á ári að meðaltali, og þegar verið er að kroppa hér og þar, hefur tekjustofn- inn verið freisting bæði fyrir fjár- málaráðuneytið og embættismenn í menntamálaráðuneyti sem hafa þann starfa að ná endum saman innan tiltekins ljárlagaramma." Víðtæk áhrif Ólafur segir að þegar litið sé yfir farinn veg núverandi ríkisstjórnar geti hann viðurkennt að fram- kvæmdir við Þjóðarbókhlöðu standi upp úr hvað menntamálaráðuneytið varðar, þótt af mörgu fleiru sé að taka. Meðal annars fléttist tilurð safnsins saman yið nýja löggjöf um Rannsóknarráð íslands, er sameinar Vísindaráð íslands og gamla rann- sóknarráðið, en tilraunir til slíks höfðu áður runnið út í sandinn. Með sameiningunni taki rannsóknarum- hverfi hérlendis stakkaskiptum og færist inn í virkara skipulag en áður var. Fjármunir hafi einnig í ríkara mæli en áður runnið til rannsókna og vísinda þrátt fyrir erfitt árferði. Endurskoðun skólalöggjafarinnar í heild sé ennfremur það viðfangsefni, sem telja megi stærst og tímafrekast á kjörtímabilinu, en það mál sé ekki í höfn þótt vonir séu bundnar við að svo verði hið fyrsta. Enn sem komið er rísi vel heppnaður lokaáfangi Þjóð- arbókhlöðu því hæst. „Mönnum þykir kannski að þarna hafi metnaðarmál verið sett á oddinn í þeim eina tilgangi að ljúka því. Svo er ekki, heldur hef ég litið á það sem forgangsmál að ljúka Þjóðarbókhlöð- unni því að hún skiptir gífurlegu máli fyrir svo marga. Tilkoma safn- ins umbyltir aðstöðu Háskóla ís- lands, vísinda- og rannsóknarstarf- semi í landinu og högum þeirra sem Ólafur G. Einarsson GYLFIÞ. Gíslason, fyrrver- andi menntamálaráðherra er helsti hugmyndasmiður að sameiningu Landsbókasafns og Háskólabókasafns og bygg- þurfa með einum eða öðrum hætti að nýta sér þá víðfeðmu þekkingu sem Landsbókasafn íslands- Háskólasafn varðveitir. Safnið er öllu þjóðfélaginu til hagsbóta. Við göngum inn í alveg nýjan tíma með þeirri gjörbreyttu aðstöðu sem verður við að flytja söfnin úr 3-4.000 fer- metrum í um 13.000 fermetra rými, auk þeirrar miklu tækni sem tekin verður í notkun í húsinu, en ekki var aðstaða fyrir í fyrri húsakynnum safnanna. Þessi víðtæku áhrif á þætti, sem við verðum að .leggja meiri rækt við í framtíðinni en gert hefur verið til þessa, eru grundvöllur þeirrar áherslu sem ég hef lagt á framkvæmdirnar. “ Verk og hönnun til fyrirmyndar Ólafur hefur fylgst með fram- kvæmdum á kjörtímabilinu og skoð- að afraksturinn reglulega. Fyrir nokkrum dögum gekk hann að nýju um bygginguna sem nálgaðist þá óðum endanlega mynd. „Eg er afar hrifinn og tel auðsýnt að ákaflega vel hafi verið að verki staðið. Oll Sverrir Hermannsson segir lífsspursmál að eiga ríkulega búna bókhlöðu „Heilinn í þjóðfélagi okkar“ 1 Q Q í? Lokið við verkþætti fyrri 11/ Q U ára. Alþingi samþykkir um vorið lagafrumvarp fyrir at- beina Sverris Hermannssonar um „þjóðarátak til byggingar Þjóðar- bókhlöðu", er felst í sérstökum eignarskatti. Bæta skal 0,25% á eignaskattsstofn landsmanna árið 1987,1988 og 1989 og þær tekjur sem þannig fást eiga að renna óskiptar til byggingar Þjóðarbók- hlöðu. Taka á Þjóðarbókhlöðu í notkun 1990. Tekjur af eignaskatt- inum voru, framreiknaðar miðað við Iánskjaravísitölu; 347,4 millj- ónir árið 1987, en þar af runnu 145,2 milljónir til framkvæmda en afgangur, 202,2 milljónir, til ann- arra verkefna á vegum rikisins; 360.7 milljónir árið 1988 en þar af runnu 78,4 milljónir til Þjóðar- bókhlöðu en 292,3 til annarra verkefna á vegum ríkisins; 378,4 milljónir árið 1989 en þar af runnu 119.7 milljónir til bókhlöðunnar en 258,7 milljónir til annarra verk- efna. SVERRIR Hermannsson varð menntamálaráðherra í ríkis- stjóm Steingríms Hermanns- sonar 16. október 1985, eftir að hafa gegnt stöðu iðnaðarráðherra um tveggja ára skeið. Sama ár lýsti Sverrir því yfir að hann ætlaði að leggja embætti sitt að veði, tækist ekki að „svipta upp“ Þjóðarbókhlöð- unni á næstu árum. Næsta vor sam- þykkti Alþingi lagafrumvarp fyrir atbeina Sverris um „þjóðarátak til byggingar Þjóðarbókhlöðu", er fólst í sérstökum eignaskatti. Tekjur þær sem þannig fengust áttu að renna óskiptar til byggingar Þjóðarbókhlöðu og var stefnt að því að sameining safnanna og vígsla hússins yrði að veruleika árið 1990. Sverrir kveðst hafa gert sér grein fyrir því á fyrstu dögum sínum í embætti menntamálaráðherra, að ástand framkvæmda við Þjóðarbók- hlöðu væri með öllu óviðunandi. „Ég gerði mér grein fyrir um leið og ég kom að því, að þetta gat ekki gengið. Ég hafði haft nógu öðru að sinna og ekki veitt þessu athygli sem skyldi í embætti iðnaðarráð- herra, en mér er minnis- stætt að á fyrstu dögum mínum í menntamála- ráðuneytinu blasti þetta mái við,“ segir Sverrir. „Þegar ég leit í áætlun Ijárlaga, var ekkert ætl- að í Þjóðarbókhlöðu. Hún var þá búin að vera í byggingu lengi og menn geta ímyndað sér hvað það kostar að eiga óarð- bæran steinsteypukassa árum saman. Að koma Þjóðarbókhlöðu upp þýð- ir að við getum farið að vinna eins og menn, því í ört vaxandi tækniþjóð- félagi er lífsspursmál að eiga nógu góða bókhlöðu með tölvubúnaði og öðru slíku. Okkar beið tölvubylting, sem nú hefur brunað yfir, og þörfin fyrir safnið var gífurleg. Bókasafn fyrir sjálfan Háskóla íslands, ríkulega búið bókum og tölvukosti, er heilinn í þjóðfélagi okkar, ef svo má að orði komast. Þeim mun ótrúlegri var skammsýni og óforsjálni þeirra sem hirtu ekki um safnið, og hafa menn þó séð margt skuggalegt. Ég einsetti mér að breyta þessu og heppn- aðist það að nokkru leyrti, því ég náði fram lögum um eignaskatt fyrir Þjóðarbókhlöðu.“ Metnaður þjóðar Eignaskatturinn var umdeildur á sínum tíma, meðal annars innan þingflokks Sverris. Hann segir að mótbyrinn hafi verið töluverður í upphafi, en menn hafi þó að lokum sameinast um rétta ákvörðun. „Þegar ég fitjaði upp á skattinum var ég satt að segja ekki mjög bjartsýnn, og sérílagi ekki með eigin þingflokk. Það var skiljanlegt því þingmenn Sjálfstæðisflokks stóðu fastir á þeirri meginskoðun sinni að hækka ekki skatta. En mér tókst jafn- vel að sannfæra mann eins og Eyjólf Konráð Jónsson um réttmæti skatts- ins, en hann var þó eitraður andstæð- ingur skattahækkana. Hann lagði málefninu lið vegna þeirrar brýnu nauðsynjar sem bar til, og sama gilti um aðra. Menn létu undan mér því þeir sáu nauðsynina. Engin önnur ráð voru hugsanleg en skatturinn, því ég gat ekki fengið eyri á fjárlögum enda gekk rolluketsniðurgreiðslan fyrir þar eins og alltaf áður. Viðbrögð almenn- ings og fjölmiðla voru líka jákvæð því fólk sá að í þessu húsi lá þjóðarmetn- aður.“ Seilst í skattinn Sverrir bendir á að þegar sam- þykki Alþingis lá fyrir, hefðu tekjur af skattinum nægt til að láta vígja fullbúið hús 1. desember 1990. Ákvarðanir misvitra stjórnmála- manna hafi hins vegar verið ljón á vegi þessara áforma. „Gripdeildar- menn í stöðu fjármálaráðherra ráð- stöfuðu fjármagninu annað sem var fullkomið lagabrot, hver fram af öðr- um, fyrst Þorsteinn Pálsson, síðan Jón Baldvin Hannibalsson og Ólafur Sverrir Hermannsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.