Morgunblaðið - 01.12.1994, Síða 6

Morgunblaðið - 01.12.1994, Síða 6
6 B FIMMTUDAGUR 1. DESEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ÞJÓÐ ARBÓKH LAÐAN Sameinað safn fyrir rannsóknir og Háskólann Níu hundruð þúsund bindi JÓÐARBÓKHLAÐAN sem hýsir Landsbókasafn íslands — Háskólabókasafn er 2.500 m2 að grunnfleti en hefur alls um 13.000 m2 gólfflöt. Rúmmái alls hússins er um 51.000 m’. Sam- anlagður Qöldi bóka er um 900 þús- und eintök við opnun hússins á um 30 hillukílómetrum en safnið mun rýma um eina milljón binda. Fjöldi lessæta er um 800 talsins. Fjöldi stöðugilda þegar safnið verður kom- ið á fyrirhugað ról er 116. Landsbókasafn íslands — Há- skólabókasafn er rannsóknar- og háskólabókasafn en ekki almennt útláns- og lessafn. Utlán eru þó heimil í ríkum mæli en þess vand- lega gætt með eftirlitsbúnaði að rita- kostur rýrni sem minnst. Um form- legan aðskilnað safnanna er ekki að ræða, en þó er Háskólabókasafnið aðallega á efri hæðurn en Lands- bókasafn íslands á jarðhæð og í kjallara. Kaffistofa fyrir gesti er á annarri hæð en matsalur starfsfólks og búningsaðstaða á jarðhæð. Húsið er skreytt margvíslegum listaverk- um, eftir Kristján Davíðsson, Leif Breiðfjörð, Helga Gíslason, Eirík Smith o.fl. Sjálfvirkt að hluta Húsið er fjórlyft auk kjallara og líkir arkitekt þess því við „virki utan um bækur“. Það er umlukið „virkis- vegg“ og síki sem í verður 20 cm djúpt vatn meðan veður leyfir, en yfir það liggur brú frá forhýsi. Bygg- ingin stendur í nokkurs konar skál sem ætlað er að veija safnið fyrir umhverfishávaða, lækka það miðað við nærliggjandi götur og þjóna gestum sem útvist- arsvæði þegar vel viðr- ar. Hæð þess miðast m.a. við íbúðarblokkir á Melunum og litaval einnig. Önnur hæð húss- ins er inndregin og úr gleri, en aðr- ir gluggar í húsinu eru litlir til að vetja það gegn sól, veðri og vindum. Meðfram útveggjunum eru almenn lessæti. Mikið af safninu er sjálfvirkt og þannig geta gestir keypt sér kort og stimplað út lánsbækur sjáifir, eða með tilstuðían korta opnað „sérher- bergi grúskara" sem leigð verða út fyrir þá sem vinna að rannsóknum í lengri tíma. Safnið er vel búið tölv- um, bæði til þess að leita heimilda og skráa, en einnig í þágu gesta við vinnu sína. Þjónusta safnsins styðst einnig við gögn á örfilmum, geisla- diskum, notkun gagnaneta, mynd- sendinga o.s.frv. Notendur eiga að geta flett upp í skránum með bein- iínusambandi og útstöð, þótt þeir séu staddir utan safns. Krafa um sveigjanleika Aðalinngangur í húsið er á ann- arri hæð úr forhýsi þannig að göngu- leiðir þaðan eru stuttar og auðratað um allt hús. Gólf eru víðast hvar lögð teppum, en í forhýsi og á sum- um gangsvæðum eru granítflísar og á vinnusvæði starfsfólks eru kork- flísar. 1 húsinu eru fjórar lyftur, ætlaðar fötluðum og starfsfólki. Kröfur um sveigjanleika hafa ráðið mestu um gerð og lögun hússins. Burðargeta gólfa, loftræsting og lýsing er miðuð við að setja megi upp bókastæður á lessvæðum safns- ins ef þörf krefur og öfugt. Til þess að samfelldur, nýtanlegur gólfflötur sé sem mestur og gönguleiðir á sama gólfi sem stystar, er húsið því sem næst ferningslaga, um 50 m2 á hvern veg. I þágu þessarar hnitmiðunar eru stigar, lyftur, snyrtingar og allar lóðréttar lagnir í sérstökum „kjörn- um“ við útveggi hússins. Hengiloft úr stáli eru eitt ein- kenna byggingarinnar, en þau eru gerð úr fjölda hvelfinga, um 1.000 talsins og kemur lýsing frá þessum hvolfum í lofti en er ekki við einstök borð. Vonast er eftir að hvolfin veiti gestum hugmynd um næði, að þeir sitji undir eigin þaki. Allt litaval inn- andyra, á veggjum, hillum og hús- gögnum, miðast við hlýleika og eru daufir viðarlitir og ljósgráir fletir algengir, en á t.d. sætum við lesborð er blár litur. Lýsing í safninu er alls staðar hin sama, eða 500-600 lux. Lofthæð frá gólfi til gólfs er 3,6 metrar en 3,9 metrar á 2. hæð. Burðarþol hvers fermetra gólfs er 750 kg. Um 6,8 metrar eru á milli burðarsúlna. Lítil hljóðmengun Gert er ráð fyrir hljóðeinangrun í safninu með sérstökum efnum á gólfi og í lofti sem „soga í sig hljóð“. Gler í glugg- um er tvöfalt en skilar betri hljóðeinangrun en hefðbundnar rúður. Loftræsting fer fram með sjálfvirku og afar öflugu loft- ræstikerfi. Útiloft er tekið inn um ventla í forhýsi og er gert ráð fyrir sex loftskiptum á klukkustund. Áður en loftinu er hleypt inn eru ryk og ftjókorn síuð frá og raka bætt við. Þar sem flötur útveggja er lítill mið- að við rúmmál hússins, eru hita- sveiflur vegna breytinga á hitastigi útifyrir mjög Iitlar. Gert er ráð fyrir að hitastig verði jafnt 21 gráða á Celsius. Bókasafnið er búið vatns- úðurum að kröfu yfirvalda eldvarna en til að draga úr hættu á hugsanieg- um leka er ekki vatn í lögnum að staðaldri. Komi upp eldur, er sér- stakri lofttegund dælt um svæðið sem hindrar að hann fái súrefni til frekari útbreiðslu, en lofttegundin á ekki að granda fólki. Myndavél- araugu eru víða og vaktmenn. í kjall- ara, sem lokaður er almenningi, eru þéttiskápar til að spara rými, svo og eldþolin öryggisgeymsla fyrir helstu gersemar safnanna tveggja. Gætt að rita- kosturrýrni sem minnst Inn í Þjóbar- bókhlöbuna 4. HÆÐ Háskólabókasafn. Lessvæöi og lesbásar, mál- stofur og kennslustofur, hóp vinnuherbergi, bækur, plötur, bönd, geisladiskar, kvikmyndir, myndbönd og skyggnur Lesherbergi eru á 3. og 4. hæö sem hægt er að leigja a.m.k. til mána&ar í senn 2. HÆÐ Abföng og skráning, útlán og upplýsingar, handbækur, stjórnsýsla, fyrirlestra- salur, sýningarsvæöi, kaffistofa 1. HÆÐ Lestrarsalur, hand- ritadeild, sérsöfn, kortasafn, íslandsdeild (þjóbdeild), skrár og skjáir, bókband og vi&gerðarstofa KJALLARI Bókageymslur (þéttiskápar), handrita- geymsla, öryggisgeymsla, mynda- stofa, prentstofa og tölvumi&stöö Hringstigi ni&ur á 1. hæ& Stigar upp á 3. og 4. hæð Sýningarsvæbi Lestrarsalur Landsbókasafns Turnarnir þjóna m.a. sem samgönguæ&ar. Þar eru lyftur, og stigar milli hæba svo og salerni Öryggisgeymsla Hver hæ& er um 2.500 fermetrar 3. HÆÐ Háskólabókasafn. Lessvæ&i, lesbásar og lesherbergi, tímarit, gömul og ný, námsbókasafn Kaffistofa Fyrirlestrasalur A&alinngangur er um turn viftubrú

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.