Morgunblaðið - 14.12.1994, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Bærinn veitir leikskóla
FSA rekstrarstyrk
MEIRIHLUTI bæjan-áðs Akureyrar Akureyrarbær rekstrarstyrk með
hefur lagt til að frá og með 1. mars hvetju barni sem vistað er á leikskól-
síðastliðnum til ársloka 1994 greiði anum Stekk á vegum Fjórðungs-
Óviss framtíð
Menntasmiðju
Morgunblaðið/Rúnar Þór
OLAFUR Jensson sæmdi Jakob Tryggvason gullmerki Iþrótta-
sambands fatlaðra í afmælishófi Iþróttafélagsins Akurs.
Heiðraðir á afmæli
Iþróttafélagsins Akurs
UNNIÐ er að því að tryggja fram-
tíð Menntasmiðjunnar, en starfsemi
hennar hófst síðla sumars og lýkur
seinna/iámskeiði af tveimur í viku-
lokin. í Menntasmiðjunni hefur at-
vinnuiausum konum staðið til boða
að stunda nám og eru ijölmargar
greinar í boði. Hugmyndin er sótt
til lýðháskóla á Norðurlöndum.
Jákvæðar undirtektir
Valgerður Bjarnasdóttir, jafn-
réttis- og fræðslufulltrúi Akur-
eyrarbæjar, sagði að málið hefði
hlotið jákvæðar undirtektir en eng-
ar ákvarðanir verið teknar um fjár-
framlög nema hvað Akureyrarbær
hefði gefið fyrirheit um 500 ,þúsund
króna framlag sem allir væru þó
sammála um að væri ekki nóg.
Menntamálaráðuneyti og félags-
málaráðuneyti stóðu að mestu und-
ir kostnaði við rekstur Mennta-
smiðjunnar í ár og sagði Valgerður
að í báðum ráðuneytum hefði verið
lýst yfir að um áhugavert verkefni
væri að ræða og væri vilji til að
styðja við það áfram.
„Það ríkir nokkur óvissa um
framhaldið á þessari stundu en mér
finnst allt benda til að þetta muni
ganga upp, ég hef ekki trú á öðru,“
sagði Valgerður en áætlað er að
rekstur Menntasmiðjunnar kosti 9
milljónir króna á næsta ári. Er þá
miðað við að haldin verði tvo nám-
skeið bæði á vor- og haustmisseri
auk þess sem efnt yrði til nám-
skeiðs yfir sumarmánuðina.
sjúkrahússins á Akureyri. Styrkurinn
verður 6.000 krónur á mánuði fyrir
hvert barn. Á sama tímabili greiðir
Akureyrarbær auk þess rekstrarstyrk
með börnum einstæðra foreldra sem
vistuð eru á leikskólanum Stekk, 21
þúsund krónur á mánuði fyrir hvert
bam í fullri vist, en styrkupphæðin
skerðist í hlutfalli við vistunartíma.
Málið verður tekið fyrir á bæjarstjóm-
arfundi þriðjudaginn 20. desember.
Andstaða
Sigríður Stefánsdóttir fulltrúi Al-
þýðubandalags , í bæjarráði sat hjá
við afgreiðslu málsins, þar sem hún
hafi alltaf lýst andstöðu við að fallist
yrði á kröfu ríkisins, að sveitarfélög
taki þátt í rekstri leikskóla sjúkra-
húsanna á árinu 1994.
Á sama fundi var gerð grein fyrir
hljóðmælingum í íþróttahöllinni sem
fyrirtækið Hljóð hf. í Reykjavík gerði
og tillögum sem lagðar hafa verið
fram til úrbóta svo í húsinu geti orð-
ið góður hljómleikasalur jafnframt
því að vera fjölnotasalur.
Þá var bæjarstjóra falið að fara
nieð umboð Akureyrarbæjar á hlut-
hafafundi í Kaupþingi Norðurlands
hf. sem haldinn verður á föstudag,
en fyrir fundinum liggur tillaga um
aukningu hlutafjár um 16 milljónir
króna.
HALDIÐ var upp á 20 ára afmæli
Iþróttafélagsins Akurs, sem áður
var íþróttafélag fatlaðra á Akur-
eyri á sunnudaginn var. í hófi sem
haldið var að þessu tilefni voru
veittar viðurkenningar, 13 manns
hlutu silfurmerki félagsins og 11
fengu gullmerki þess. Olafur Jens-
son formaður íþróttasambands
fatlaðra veitti Jakobi Tryggvasyni
gullmerki sambandsins en hann
hefur frá upphafi starfað mikið að
íþróttamálum fatlaðra á Akureyri.
Gunnlaugur Björnsson og Guð-
mundur Sigurbjörnsson hlutu silf-
urmerki Íþróttasambands fatlaðra
í afmælishófinu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Dáðst að dótinu
SPENNAN vegnajólahátíðar-
innar eykst dag frá degi hjá
yngstu kynslóðinni. Eitt af því
sem mðrgum börnum þykir
gaman er að skoða í hillur dóta-
búðanna en það var hún Theo-
dóra Karlsdóttir að gera í gær
og bar margt fyrir augu.
50 ára afmæli hita-
veitu á Ólafsfirði
HITAVEITA Ólafsfjarðar verður
50 ára á morgun, fimmtudaginn
15. desember og af því tilefni verð-
ur opið hús í dælustöð veitunnar
við Hornbrekkuveg frá kl. 13.00
til 18.00 og í Laugarengi frá kl.
17.00 til 19.00. Hitaveita Ólafs-
fjarðar var fyrsta hitaveitan sem
tekin var í notkun fyrir heilt sveit-
arfélag.
Upphaf umræðna um hitaveitu
má rekja til áranna um og eftir
1935 og þá í tengslum við umræð-
ur um sundlaugarbyggingu. Frum-
kvöðull að stofnun veitunnar var
Sveinbjörn Jónsson sem síðan var
kenndur við Ofnasmiðjuna. Fram-
kvæmdir hófust árið 1942 og þá
var vatn tekið úr lindum á Skeggja-
brekkudal og hiti vatnsins var 50
gráður. Vinnu við lagnir í öll hús
lauk 15. desember 1944 en Ólafs-
fjarðarbær fékk kaupstaðaréttindi
1. janúar 1945. Hitaveitan fær nú
heitt vatn úr holum á Skeggja-
brekkudal en aðalorkusvæði veit-
unnar er í Laugarengi, í hlíðinni
gengt bænum.
Endurnýjun
Á síðustu þremur árum hefur
verið unnið að endurnýjun
aðalæðar veitunnar í bæinn og er
hún í einangruðum stálrörum í stað
asbeströra og var því verki lokið
nú á afmælisárinu.
Núverandi veitustjóri er Einar
Þórarinsson en í veitunefnd sitja
nú Gunnlaugur J. Magnússon,
formaður, Ríkharður Sigurðsson
og Magnús Sigursteinsson.
Morgunblaðið/Benjamín
KETILL Helgason formaður
Vitaðsgjafa afhendir Stefáni
Yngvasyni yfirlækni 1,5 millj-
ónir króna í söfnun vegna
sundlaugarbyggingar á Krist-
nesspítala á Akureyri.
Gefur 1,5
milljónir
í sundlaug
Eyjafjarðarsveit.
FORMAÐUR Lionsklúbbsins Vit-
aðsgjafa, Ketill Helgason, afhenti
nýlega 1,5 milljónir króna í söfnun
vegna sundlaugarbyggingar í
Kristnesi, sem ákveðið er að rísi á
endurhæfingardeild spítalans. Við
göfinni tók Stefán Yngvason yfir-
læknir deildarinnar. Inni í þessu
myndarlega framlagi er gjöf frá
Eyjafjarðarsveit 971 þúsund krón-
ur eða sem svarar eitt þúsund krón-
um á hvern íbúa sveitarfélagsins.
Stefán þakkaði stjórn Lionsklúbbs-
ins og sveitarstjórn Eyjaíjarðar-
sveitar fyrir góðar gjafir og undir
það tók Halldór Jónsson fram-
kvæmdastjóri Fjórðungssjúkra-
hússins á Akureyri. Birgir Þórðar-
son oddviti sveitarinnar var einnig
viðstaddur afhendingu peninganna.
Alls hafa safnast 4,2 milljónir
en kostnaðaráætlun vegna bygg-
ingar sundlaugarinnar hljóðar upp
á um 30 milljónir króna.
Nýtt
leikfélag
NÝTT áhugamannaleikfélag
hefur verið stofnað á Akureyri
en það er opið öllu áhugafólki
og starfar undir slagorðinu
„leiklist fyrir alla“. Fyrirmynd-
in er sótt til „Hala-leikhópsins“
í Reykjavík. Stjórn Sjálfsbjarg-
ar á Ákureyri hafði forgöngu
um stofnun félagsins.
Jón Hlöðver Áskelsson var
kjörinn formaður, Árni Valur
Viggósson ritari og Herdís
Ingvadóttir gjaldkeri. Með-
stjórnendur eru Friðþjófur Sig-
urðsson og Jóhanna Valgeirs-
dóttir. Félagið stefnir að því
að halda sem fyrst leiklistar-
námskeið og í framhaldi af því
verður unnið að uppfærslu.
Framhaldsstofnfundur verður
haldinn í bytjun nýs árs en
upplýsingar veita formaður fé-
lagsins eða skrifstofa Bjargs.
Leikfélagið mun starfa sem
sjálfstætt félag í tejigslum við
Sjálfsbjörg á Akureyri og ná-
grenni og er það öllum opið,
jafnt fötluðum sem ófötluðum.
Erfiðleikar
heimilanna
RÆTT verður um mikla erfið-
leika sem mörg heimili standa
frammi fyrir og hvernig Mæð-
rastyrksnefnd og Hjálparstofn-
un kirkjunnar munu reyna að
bæta úr brýnasta vanda fólks
í opnu húsi hjá Miðstöð fólks í
atvinnuleit í Safnaðarheimili
Akureyrarkirkju í dag, mið-
vikudaginn 14. desember, milli
kl. 15 og 18. Fulltrúar þessara
samtaka koma í heimsókn og
svara fyrirspurnum. Kaffi og
brauð verður á borðum þátttak-
endum að kostnaðarlausu og
dagblöð liggja frammi.
Aðventu-
samkoma
AÐVENTUSAMKOMA eldri
borgara verður í Glerárkirkju á
morgun, fimmtudaginn 15.
desember, frá kl. 15 til 17.