Morgunblaðið - 14.12.1994, Side 22
22 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Gleðigjafi
BÓKMENNTIR
Barnasaga
STAFRÓFSVÍSUR
Skriftarbók-litabók eftir Ania Sigur-
jónsson. G.Ben.-Edda prentstofa hf.
Mál ogmenning, 1994.71 síða.
því þá eg heyrði gamla prestinn
minn halda því fram við mig, að
víst gæti eg lesið, þá breyttust orð
hans í töfrasprota, hann hætti að
vera hjólbeinóttur stubbur, breytt-
ist í engil með skegg. Hlekkir féllu
af mér, og í lautum las eg ævin-
týri fyrir Kóp, sem glaður sleikti
gleðitárin af kinnum mér. Þetta
segi eg við foreldra lítilla barna,
en snúum okkur nú að bókinni.
A bráðsnjallan hátt reynir Árni
að gera stafina að
skiljanlegum vinum, -
og tekst vel. Hefði mér
dottið í hug að tengja
saman B og barma-
stórar, ófriskar konur,
þá hefði jafnvel Kópur
getað munað. Nú eða:
M er svipað tindum tveim
sem tróna eins og hattar.
Líka má þó líkja þeim
við loðin eyru kattar._
V er eins og opin bók,
og áþekkt peysukraga.
V að læra varla tók
voða marga daga.
Auk vísnanna
skreytir höfundur bókina með
skemmtilegum myndum, hug-
myndaríkur, og lætur bami eftir
að lita að vild. Síðan eru æfingalín-
ur sem munu gera kverið að ger-
semi, safngrig, því þetta verður bók
barnsins og Árna. Fyrir alla muni
réttið barni þessa bók, áður en það
. lokast í hlekkjum óttans, og tekið
er að draga það í dilk heimsku.
Höfundi og útgáfu færi eg inni-
lega þökk.
Sig. Haukur Guðjónsson
ÉG ER eitt þeirra ólánssömu
barna, sem áttu og eiga erfitt með
að þekkja sundur stafi, var mjög
seinn til stautsins. Þá
var ekki vitað, að 1 af
hveijum 10 strákum
er haldinn slíkum van-
þroska, - ekki búið að
læra af erlendum að
tala um lesblindu, -
ekki vitað, að milli 6
ára aldurs og tánings-
ára þarf aðgát í nær-
veru slíkra sálna, leti
einni kennt um, og
gæti strákskömmin
lært annað allt, þá var
um að gjöra að draga
ekki af vandarhöggun-
um. Þar sem eg var
holdgrannur fékk eg Árni Siguijónsson
að vísu fáa rassskel-
lina, vangahöggin með bókinni lát-
in nægja. Víst þótti mér vænt um
litlu gulu hænuna og fræið hennar,
vænt um sætabrauðsdrenginn og
eg kem út í kerrunni og keyri hart,
en þessi tákn sem voru allt í kring-
um þau, þau ollu mér skelfing.
Hvorki eg né Kópur, hundurinn á
bænum, mundum degi lengur, hver
munur var á M og N, eða B og D,
og þegar „kennari" var tekinn að
heimta lestur, þá runnu orð í óað-
skiljanlegan graut. Að þetta er
andleg hömlun efast eg ekki um,
s , A m % . 9 , m * \
Tónleikar Karlakórsins Fóstbræðra
KARLAKÓRINN Fóstbræður
heldur tónleika í Skálholts-
kirkju fimmtudaginn 15.
desember kl. 20.30, Lang-
holtskirkju föstudaginn 16.
desember kl. 19.30 og í Digra-
neskirkju sunnudaginn 18.
desember kl. 20.30.
Flytjendur auk kórsins eru:
Þórunn Guðmundsdóttir sópr-
an, Hallfríður Ólafsdóttir
þverflauta og Bjarni Jóna-
tansson orgel. Á efnisskránni
eru verk eftir J.S. Bach, G.F.
Handel, E. Poulenc, Frank
Martin og fleiri, auk sálma
og sígildra laga tengdum
jólum.
Hin munnlega geymd
Blíðustroka
BOKMENNTIR
Barnasaga
VALLI Á ENGA VINI
eftir Amheiði Borg Prentverk
G.Ben.-Eddu prentstofa hf. Mál og
menning 1994 - 72 síður.
UNDARLEGT kannski, en mér
kom ekkert í hug við lestur þessar-
ar bókar annað en blíðustrokur
vorsins. En þó ekki, því síður henn-
ar hreinlega anga af kærleika.
Höfundur ann börnum; ann lítil-
magnanum, byrðin hans er byrðin
hennar, en höfundur ann líka
Stretsbuxur
kr. 2.900
Mikið úrval af
allskonar buxum
Opið á laugardögum
kl. 11 -16
hrottanum, trúir því, að skilningur
og trúnaðartraust leiði á réttan
veg.
Valli, 7 ára, og Helgi, 5 ára
bróðir, eru fluttir í nýtt umhverfi,
og komið að skóladögum. í fyrstu
reynast þeir Valla erfiðir. Hann
hefir enn ekki náð að kveða rétt
að erri, og bekkjarsystkin henda
gaman að. í vasa ber hann Rauð
og Vin, kær leikföng bernskunnar,
og í hinu nýja umhverfi verða þeir
hans einu vinir. Hann þolir því illa,
er Þór og Nonni, neita ekki aðeins
að hengja úlpur sínar við hlið yfir-
hafnar hans, heldur ná af honum
Rauð og Vini, hafa þá að háði og
henda síðan frá sér.
Valla verður mikil leit að, finn-
ur, en flýr skólann. Góður kenn-
ari, Anna, kemst að því með hjálp
Hildar, að einelti á sér stað í bekk
hennar, og tekst að breyta martröð
Valla í sólskinsdag.
Þetta er bráðvel gerð saga um
efni sem á erindi til allra, ekki
aðeins barna, heldur fullorðinna
líka. Höfundur hefir myndskreytt
sögu sína sjálf, og gerir listavel.
Allt helzt því í hendur: Vandað
efni; vönduð vinna prentara; metn-
aður útgefanda að spara í engu.
Þökk fyrir góða bók, sem örugg-
lega gleður fleiri en mig.
S'ig. Haukur Guðjónsson
BOKMENNTIR
Hljódbækur
LAXDÆLA SAGA, GRETT-
IS SAGA, DRAUGAR
"VILJA EKKI DÓSAGOS,
í FAÐMI LJÓSSINS
Tvær síðastnefndu bækumar eftir
Kristinu Steinsdóttur annarsvegar
og Betty J. Eadie og C. Taylor hins-
vegar. Lesarar em Sijja Aðalsteins-
dóttir, Óskar Halldórsson, Kristín
Steinsdóttir og Anna Pálína Áma-
dóttir ásamt Sigurði Hreiðari (þýð.).
Laxdæla er 5 snældur og kostar
2.480 kr., Grettla 6 snældur, 2.480
kr.,Draugar... 3 snældur, 1.690 kr.,
í faðmi... 3 snældur, 1.990 kr.
Blindrafélagið 1994
HLJÓÐBÓK er góð bók! er kjör-
orð hljóðbókagerðar Blindrafé-
lagsins sem á þessu ári sendir frá
sér fjórar hljóðbækur. Kjörorðið
gefur til kynna að hugur sé í
mönnum varðandi þessa útgáfu
og er það vel því hljóðbækur hafa
fram á síðustu ár verið fágætir
gripir á aimennum bókamarkaði.
Tilburðir hafa'þó verið í þessa átt
og fyrir fáeinum árum komu til
að mynda Brennu-Njáls saga og
Egils saga út á hljóðbók hjá Al-
menna bókafélaginu í samvinnu
við Blindrafélagið. Þá hafa öðru
hveiju slæðst hingað erlendar
hljóðbækur, oftast engilsaxneskar
metsölubækur. Lítillega hefur
komið út af barnaefni á snældum,
einkum ævintýri og útdrættir úr
Óskar Kristín
Halldórsson Steinsdóttir
leikritum — eyrnakonfekt allra
foreldra.
Hljóðbókagerð Blindrafélagsins
hefur verið starfrækt nokkur und-
anfarin ár og virðist sækja í sig
veðrið jafnt og þétt eins og útgáfa
þessa árs sýnir. Alþekktar perlur
íslenskra bókmennta halda áfram
að verða heyrinkunnar á hljóðbók,
fjörleg barnabók hljómar af snæld-
um, athyglisverð reynslusaga
konu sem dó en snéri afturtil jarð-
arinnar úr heimi ljóssins — og í
fyrra kom á hljóðbók reyfarinn
Meðleigjandi óskast. Fjölbreytni
er sem sé að aukast í útgáfu hljóð-
bóka á íslensku og því ættu bækur
á þessu formi að höfða til stækk-
andi hóps; þar að auki verður út-
gáfan æ reglulegri sem auðveldar
„lesendum" að nálgast bækurnar.
Það sem hljóðbók hefur umfram
prentaða bók er vitanlega röddin
sem les. Hlutlaus lesari segir sög-
una nokkurnveginn eins og hún
kemur fyrir af beljunni en góður
lesari margfaldar gjarna áhrif
góðrar sögu. Hann getur þó sjaldn-
ast bætt vonda bók með lestri sín-
um, enda er það oft svo að góðum
lesurum leiðast vondar bækur og
slíkt fer helst ekki framhjá hlu-
standanum. Blindrafélagið hefur á
sínum snærum marga fyrirtaks
lesara og með samningi við RÚV
hefur það fengið mikið af vel fluttu
efni þaðan til útgáfu á hljóðbókum,
einkum fyrir Blindrabókasafnið.
Það sem hljóðbæk-
ur hafa ennfremur
umfram aðrar bækur
er að þær eru lesnar
með eyrunum og
henta því vel við að-
stæður sem annars
útiloka lestur. Þær
má t.d. lesa undir
stýri, við heimilisstörf
eða létta vinnu, í baði,
á göngu eða hlaupum
útí guðsgrænni nátt-
úrunni og síðast en
ekki síst í myrkri. Að
auki geta margir lesið
í einu og þannig má
með einföldum hætti
skapa baðstofustemmningu með
sögumanni sem segir hópi manna
og kvenna sögu af hjartans list.
Og þar með erum við komin aftur
að upphafinu: listinni að segja
sögu I heyranda hljÓði — við nálg-
umst hina munnlegu geymd.
Hljóðbækur eru fyrir alla sem
unna rituðu máli, ekki aðeins
blinda og sjónskerta. Allur ótti um
afdrif prentmáls með aukinni út-
gáfu hljóðbóka er að mínu mati
ástæðulaus. Þvert á móti tel ég
ótvíræðar iíkur á að hljóðbækur
geti flutt sagnalist og skáldskap
til enn stærri hóps en raun er nú.
Nokkur galli á umræddum
hljóðbókum þykir mér vera að þær
virðast ekki ætlaðar blindum og
sjónskertum: númer snældu og
merking fyrir A eða B hlið eru á
alltof litlu letri fyrir sjóndapra og
engar upphleyptar merkingar eru
fyrir blinda. Ur þessu er auðvelt
að bæta og verður vafalaust gert.
Blindir og sjónskertir hafá ekki
síður en aðrir áhuga á að eiga
bækur og geta notað þær.
Frá síðustu helgi eiga blindir
og sjóndaprir kost á að fá Mogg-
ann í áskrift inná einkatölvur
tengdar talgervli. Þetta er merkur
áfangi í blindrastarfi og ástæða
til að óska þessum hópi íslend-
inga, Blindrafélaginu og Morgun-
blaðinu til hamingju með þessi
tímamót.
Kjartan Árnason