Morgunblaðið - 14.12.1994, Side 28
28 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
ÁHÆTTA í
TSJETSJNÍU
RÚSSNESKAR hersveitir héldu á sunnudag inn í Kákasuslýð-
veldið Tsjetsjníu. Krafa Rússa er sú að Tsjetsjenar aftur-
kalli sjálfstæðisyfirlýsingu sína frá árinu 1991. Vonast þeir til
að geta neytt þá til viðræðna með hernaðarafskiptunum og jafn-
vel bolað Dzokhar Dúdajev forseta frá völdum.
Þetta er áhættusöm aðferð líkt og sjá má af hinum hörðu
bardögum sem nú geisa í Tsjetsjníu. Þrátt fyrir gífurlegan við-
búnað hefur Rússum ekki enn tekist að ná höfuðborginni Grosní
á sitt vald.
Enn á eftir að koma í ljós hvort aðrar múslimskar þjóðir í
Kákasus svari kalli Tsjetsjena um aðstoð. Verði sú raunin kunna
Rússar að eiga langvinna styrjöld fyrir höndum þar sem jafn-
vel er hætta á að skæruliðar frá múslimaríkjum utan Rúss-
lands, s.s. Afganistan, taki þátt í átökunum. Dúdajev forseti
hefur hótað „blóðugu stríði" um allt Kákasus og hafa slíkar
yfirlýsingar valdið ótta í Rússlandi um að ný Afganistan-styij-
öld sé í uppsiglingu.
Dragist átökin á langinn mun það óhjákvæmilega hafa áhrif
á rússnesk stjórnmál og að öllum líkindum veikja mjög stöðu
Borísar Jeltsíns Rússlandsforseta, þótt þjóðerniskenndin geti
verið honum notadrjúg fyrst í stað. 'En þegar litið er til lengri
tíma gæti þessi sjálfhelda orðið Rússlandi svo dýrkeypt, að það
yrði ekki jafnvíðlent til suðurs og verið hefur.
Vesturlönd hafa til þessa verið mjög varfærin í yfirlýsingum
sínum. Óneitanlega er Tsjetsjnía hluti af Rússlandi. Þó að lýð-
veldið hafi lýst yfir sjálfstæði hefur það ekki verið viðurkennt
af neinu vestrænu ríki. Samskiptin við Rússland hafa að auki
einkennst af spennu undanfarna mánuði ekki síst vegna áforma
um fjölgun aðildarríkja NATO og ágreinings um stefnumörkun
gagnvart Bosníu. Ekki er vilji til að auka þann ágreining frekar.
Rússar telja sig ekki hafa efni á að gefa eftir í deilum sínum
við Tsjetsjena. Lýðveldið er ríkt að olíu og að auki myndi það
hafa mikið fordæmisgildi fyrir önnur þjóðarbrot í Rússlandi ef
Tsjetsjenum yrði veitt sjálfstæði. Hins vegar er erfitt að sjá að
deilan verði Ieyst með vopnaskaki. Jafnvel þótt Rússar nái form-
legum yfirráðum í Tsjetsjníu eiga þeir, rétt eins og í Afganist-
an, yfir höfði sér stöðug átök við skæruliðasveitir í fjallahér-
uðum Kákasus. Sterkasti leiðtogi þeirra afla er berjast gegn
Dúdajev forseta er Rúslan Khasbúlatov, fyrrverandi forseti
rússneska þingsins. Það er vandséð að sjá hvaða tilgangi það
þjónar fyrir Jeltsín að styrkja stöðu hans, eins helsta andstæð-
ings hans á gamla þinginu og hefur jafnvel verið talinn samsær-
ismaður gegn lýðræðisþróun í Rússlandi, af helstu stuðnings-
mönnum Jeltsíns.
Viðræður standa nú yfir milli ráðamanna í Moskvu og Grosní.
Það er hinn rétti farvegur málsins. Einungis með viðræðum
verður hægt að finna frambúðarlausn á þessari deilu.
ÁKVÖRÐUN DELORS
JACQUES Delors, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins, ætlar ekki að gefa kost á sér í frönsku forseta-
kosningunum á næsta ári, þrátt fyrir að skoðanakannanir sýndu
að hann var sá frambjóðandi, sem líklegastur var til að sigra
i þeim.
Þessi ákvörðun Delors á hugsanlega eftir að hafa mikil áhrif,
ekki aðeins í Frakklandi, heldur Evrópu allri.
Delors hefur sem forseti framkvæmdastjórnarinnar verið ötul-
asti talsmaður þess, að Evrópusambandið þróist í átt að evr-
ópsku sambandsríki. Hann mun nú ekki lengur leiða þá um-
ræðu, hvorki sem forseti framkvæmdastjórnarinnar né forseti
Frakklands. í staðinn bendir flest til þess að kjörinn verði hægri-
maður sem eigi meira sameiginlegt með efahyggju Breta í garð
ESB en eldmóði þeirra Delors, Kohls Þýskalandskanslara og
Mitterrands núverandi Frakklandsforseta.
Kohl var endurkjörinn kanslari fyrr í vetur en staða hans er
mun veikari en hún hefur verið. Það liggur líka fyrir að hann
mun ekki sitja lengur í embætti en út þetta kjörtímabil og ekki
er útilokað að hann láti af embætti fyrr. Arftaki hans mun
væntanlega koma úr röðum þeirra yngri forystumanna kristi-
Iegra demókrata, sem hafa tilhneigingu til að taka hreina hags-
muni Þýskalands fram yfir „þýsk-franska“ eða „evrópska" hags-
muni.
Alls staðar í Evrópu má sjá efasemdir um of mikinn sam-
runa. Þjóðaratkvæðagreiðslurnar í Svíþjóð, Finnlandi og ekki
síst Noregi lýsa greinilegum ótta við samrunaþróunina. Að auki
bendir allt til þess að í Bretlandi verði síðar á þessum áratug
haldin þjóðaratkvæðagreiðsla um hinn evrópska samruna.
Ríkjaráðstefna Evrópusambandsins, sem hefst árið 1996,
verður því haldin í öðru andrúmslofti en ef Delors og Kohl hefðu
verið þar í forystuhlutverki líkt og í Maastricht árið 1991.
Sú ákvörðun Jacques Delors að bjóða sig ekki fram kann því
að hafa þau langtímaáhrif að ESB þróist í aðra átt en til þessa
hefur verið stefnt að af forystumönnum sambandsins.
ÞJÓÐARBÓKHLAÐAN
Safnið sjálft ber h
en umræðu um frc
Iumræðu um fjármál Þjóðar-
bókhlöðu hefur komið fram,
m.a. í máli landsbókavarðar,
að til að rekstur hússins á
næsta ári verði eins og best verður
á kosið þurfi 80-140 milljón króna
hærra framlag en gert er ráð fyrir
í fjárlagafrumvarpi. Fyrri talan, 80
milljónir, er mismunur á áætlun
fjármálaráðuneytis (242 milljónir)
og fjárlagafrumvarpi (160,8 millj-
ónir). Síðari talan er mismunur á
áætlun samstarfsnefndarinnar á
kostnaði þegar allt safnið yrði kom-
ið í fulla notkun (299 mnljónir) og
fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár.
koma eigi af stað óánægju með fjárframlög
Ólafur
Einar
Sveinbjörn
Jóhannes
Menntamálaráðherra segir ósanngjamt ef
Hærri framlög en
nokkru sinni fyrr
Ólafur G. Einarsson, mennta-
málaráðherra, segir að það sé ekki
síst ósanngjarnt að koma af stað
óánægju með fjárframlög til Þjóðar-
bókhlöðu í ljósi þess, að veitt hafi
verið meira fjármagni til þessa
nauðsynlega verkefnis heldur en
gert hafi verið á nokkru kjörtíma-
bili áður. Þá þyki honum óviðeig-
andi af landsbókaverði, Einari Sig-
urðssyni, að láta liggja að því að
ef ekki fáist 140 milljónir króna til
viðbótar verði hin nýja stofnun rek-
in með kotungsbrag. „Mér hefur
verið það ljóst og ég hef látið þess
getið að æskilegt væri að fá meira
framlag á fjárlögum næsta árs til
Þjóðarbókhlöðu," segir Ólafur. „Að
því var verið að vinna og það vissi
landsbókavörður mæta vel. Svona
málflutningur er ekki til þess fallinn
að greiða fyrir framgangi þess hjá
fjárlaganefnd Alþingis. Þetta segi
ég vegna þess að þarna er verið að
flytja inn í óvenju glæsi- --------
lega byggingu, öll aðstaða
gerbreytist þrátt fyrir að
eitthvað kunni að skorta
í upphafi sem eðlilegt er.
Auðvitað er stefnt að því
að þessi stórbætta aðstaða verði
nýtt til fullnustu. Ekki var hægt
til Þjóðarbókhlöðu og háskólarektor segir að
tímabundin vandræði eigi ekki að glepja mönn-
um sýn. Landsbókavörður segir að tölur um
æskilegt ijárframlag ættu ekki að koma á
óvart og formaður safnstjórnar telur fjárþörf-
ina skýrast á næsta ári. Ragnhildur Sverrís-
dóttir ræddi við þá um safnið.
Stefnt að því
að nýta safnið
til fulls
þær tölur sem hafi verið öllum
kunnar, sem fylgst hafi með undir-
búningi málsins. „Þrátt fyrir að
hærri talan, um 140 milljónir, sé
nefnd ætti hún ekki að koma nein-
um á óvart, því samstarfsnefnd um
nýtt þjóðbókasafn gerði rækilega
skýrslu um áætlaðan rekstur, sem
hún taldi kosta nærri 300 milljónir
á ári, eftir að allir þættir starfsem-
inna. eru komnir í rekstur, sem
-------- verður árið 1996. Fjár-
lagaskrifstofa fjármála-
ráðuneytisins lagði til að'
veittar yrðu 242 milljónir
________ til Þjóðarbókhlöðu á
næsta ári, en fjárlaga-
frumvarpið gerir ráð fyrir 160,8
að ganga lengra núna og minni ég
á hve miklu fjármagni hefur verið
varið tii Þjóðarbókhlöðu á þessu
kjörtímabili, eða rúmum milljarði
króna.“
Tölurnar öllum kunnar
Einar Sigurðsson landsbókavörð-
ur segir að hann hafi aðeins nefnt
kvæð; þeir telja bókhlöðuna hlýlega
og notalega og finnst mjög vandað
til hennar, en án íburðar.“
Einar segir að starfsfólk Þjóðar-
bókhlöðu hafi ekki verið alveg við-
búið gífurlegri aðsókn að safninu.
Enn eigi eftir að bæta við húsgögn-
um og tækjabúnaði, en mennta-
málaráðherra hafi þegar tryggt
fjárframlögtil þess. „Umfjöllun fjöl-
miðla hefur að miklu leyti verið um
þann ótta stúdenta að ------------
opnunartími safnsins
verði of stuttur. Nú
opið frá 9-19 virka daga,
frá 9-17 á laugardögum
og lokað á sunnudögum.
Safnið
er gjöfse
enga
milljónum."
Einar segir að umræða um fjár-
veitingar sé honum þó ekki efst í
huga, því hún falli í skuggann af
sjálfri opnun Þjóðarbókhlöðu.
„Hingað hefur komið ótrúlegur
fjöldi fólks frá opnun og sem dæmi
má nefna að helgina 3. og 4. desem-
ber komu um 20 þúsund manns.
Viðbrögð gesta hafa verið mjög já-
Stúdentar hafa farið fram á að opið
væri fram til 22. Við gerðum ráð
fyrir rýmri opnunartíma á næsta
ári, en það kostar sitt. Við getum
ekki aðeins horft til opnunartímans,
því safnið hefur víðtækum skyldum
að sinna.“
Vanþakklæti að kvarta
Sveinbjörn Björnsson háskóla-
rektor segir að tímabundin vand-