Morgunblaðið - 14.12.1994, Síða 40
40 MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÓLYMPÍUSKÁKMÓTIÐ í MOSKVU
England í efsta sætið þegar
tveimur umferðum er ólokið
Islenska sveitin vann sveit Víetnam 2V2-IV2 í tólftu umferð gær
SKÁK
Umsjón
Karl Þorstcins
ÍSLENSKA skáksveitin sigraði
sveit Víetnam 2‘/2-1'/2 í tólftu
umferð í gær. Áætlað er að sveit-
in sé í kringum þrítugasta sæti á
mótinu með 27 vinninga af 48
mögulegum þegar tveimur um-
ferðum er ólokið. Enska skáksveit-
in skaust óvænt uppí efsta sætið
á mótinu með stórsigri gegn Hol-
landi, SV2-V2, en sveitir Rússlands
I og Bosníu Herzegovinu fylgja í
kjölfarið með 31 vinning.
Urslit í einstökum viðureignum:
Ísland-Víetnam 2-2
Jóhann Hjartarson - Thien Hai
Dao 0-1
Hannes H. Stefánsson - Hoang
Tu 1-0
Margeir Pétursson - Nguyen 1-0
Jón L. Árnason - Sang Cao V2-V2
Aðalliðið tefldi gegn Víetnam.
Jóhann mætti hinum unga stór-
meistara Dao sem hefur staðið sig
mjög vel á mótinu. Jóhann tefldi
kóngindverska vöm og skákin
varð mjög flókin með möguleikum
á báða bóga. Jóhann hefur ekki
náð sér á strik í mótinu og í við-
kvæmri stöðu missti hann þráðinn
og varð að gefast upp.
Hannes Hlífar hefur staðið sig
best íslensku skákmannanna og
sigraði nú Hoang Tu. Hannes vann
peð í byijuninni og þróaði stöðuna
í rólegheitunum uns hann lagði
lokahnykkinn fyrir andstæðinginn.
Margeir tefldi drekaaf-
brigðið af sikileyjarvöm
gegn Nguyen og náði fmm-
kvæðinu. Hann vann peð og
síðan skákina eftir sex tíma
setu.
Jón L. Árnason þáði
mannsfórn Cao en lenti í
erfiðleikum. Hann gaf
skiptamun til baka og náði
að halda jafntefli eftir miklar
þrengingar.
Baráttan um gullið á
ólympíuskákmótinu er æsi-
spennandi. Enska skáksveit-
in, sem byrjaði illa á mótinu,
skaust óvænt í efsta sætið
með sigri gegn Hollandi,
3V2-V2. Ensku sveitina skipa
Short, Adams, Speelman,
Nunn, Hodgson og Chandler.
Helstu úrslit í öðmm viður-
eignum í tólftu umferð urðu
þessi:
Rússland I-Rússland II
2-2, Úkraína-Bosnía
Herzegovina 1-3, Armenía-
Ungveijaland 2-2, Eistland-
Búlgaría 1-3, Georgía-Tékk-
land 1 Vi-2.V\, Bandaríkin-
Rúmenía 3-1.
Staða efstu þjóða eftir
tólf umferðir:
1. England 31*/2 vinning-
ur, 2.-3. Rússland og Bosnía
Herzegovina 31, 4. Rússland
II 30'/2, 5. Búlgaría 30, 6. Banda-
ríkin 29'A, 7.-13. Armenía, Ung-
veijaland, Eistland, Tékkland,
Þýskaland, ísrael og Filippseyjar
29 vinningar.
Hannes Jón L.
Þing alþjóðaskáksambandsins
FIDE hófst í gær og er búist við
átakaþingi. Kasparov og Campo-
manes, forseti FIDE, lögðu fram
tillögu í gær þess efnis að ný stjórn
verði kosin á þinginu sem
eigi að sameina samkeppni-
söflin í skákheiminum, þ.e.
alþjóðaskáksambandið FIDE
og PCA, þ.e. samtökin sem
Kasparov stofnaði til höfuðs
FIDE! Samkvæmt tillögunni
mun Campomanes verða
áfram forseti FIDE en bráða-
birgðastjórn muni skipa auk
hans Kasparov, Makropolous
frá Grikklandi og Gobas.
Frambjóðendur til forseta-
embættis hjá FIDE munu
samkvæmt tillögunni víkja.
Tillagan er þvert gegn lögum
og reglugerðum FIDE, en
fullkomin óvissa mun ríkja
um hvort tillagan fær braut-
argengi á þinginu.
Það er ljóst að Kasparov
stendur í ströngu þessa dag-
ana, en skoðum að lokum
handbragð hans úr sjöundu
umferð gegn franska stór-
meistaranum Lautier.
Hvítt: Kasparov
Svart: Lautier
Sikileyjarvörn
1. e4 — c5
Það er athyglisvert að Lauti-
er kýs að endurtaka ekki
byijunina sem hann tefldi
gegn Kasparov í Evrópu-
keppni félagsliða í Lyon fyrir
mánuði. Þá lék hann 1. -
e5 og áframhaldið varð 2. Rf3 -
Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4 - d6 5.
c3 - f5 6. exf5 - Bxf5 7. d4 - e4
8. d5!? - exf3 9. Dxf3 - De7+
10. Kdl. Eftir miklar flækjur end-
Helgi Jóhann
aði skákin með jafntefli eftir 42
leiki.
2. Rf3 - e6 3. d4 - cxd4 4.
Rxd4 - Rf6 5. Rc3 - Rc6 6.
Rdb5 - d6 7. Bf4 - e5 8. Bg5
- a6 9. Ra3 - b5 10. Rd5 - Be7
11. Bxf6 - Bxf6 12. c3 - 0-0
13. Rc2 - Hb8 14. h4 - Re7 15.
Rxf6+ - gxf6 16. Bd3
Endurbót Kasparovs á skák sinni
við Kramnik, sem raunar teflist
með annarri le'kjaröð. Þá lék
Kasparov Dd2 og eftir 16. - Bb7
17. Bd3 - d5 18. exd5 - Dxd5
19. 0-0-0 - e4 20. Be2 - Dxa2
21. Dh6 vann Kasparov eftir stór-
fenglega taflmennsku.
16. - d5 17. exd5 - Dxd5 18.
Re3 - De6 19. Dh5 - e4 20.
Be2 - b4?
Byijunarvalið hefur mistekist hjá
Lautier. Hvítur hefur traust frum-
kvæði og að auki hafði Kasparov
aðeins eytt tíu mínútum af um-
hugsunartímanum en Lautier tæp-
lega klukkustund.
21. c4 - Kh8 22. 0-0-0 - f5 23.
Dg5 - Hb6? 24. h5 - Hc6 25.
Kbl - Hc5 26. h6! - De5 27.
Hh5! - Hg8
28. Rg4!
Svartur gafst upp. Liðstap er
framundan eftir 28. - Hxg5 29.
Rxe5 því svartur má ekki leika
29. - Hxh5 vegna 30. Hd8+ -
Rg8 31. Rxf7++.
ÞAÐ kom lítill jólagestur
til mín í morgun. Ég
opnaði búrskápinn, þar
sat þá á einni hillunni
falleg hagamús og horfði á mig
glampandi augum eins og hún
vildi segja:
„Er ekki allt í lagi þótt ég sé
hér, mér var svo kalt úti.“ Ég
var nú ekki alveg á því og vildi
koma henni út, en hún sat þarna
hin spakasta eins og hún biði
þess að ég klappaði henni og var
alls ekkert hrædd við mig. Ég
fór að skoða ískápinn, þar voru
tveir vænir staflar af laufa-
brauði, en músin hafði ekki litið
við því, en hún hafði aftur á
móti fengið sér ótæpilega af
marsiþan sem var blandað
rommi, en ég var í konfekt-hug-
leiðingum. Þarna var komin skýr-
ing á rósemi músarinnar, hún var
bara undir áhrifum. Ég greip
langa mjóa krukku og lagði á
hliðina, innst í krukkuna setti ég
rommmarsipan, og þar hreif,
músin vildi meira og skreið inn
í krukkuna, ég var fljót að loka
krukkunni og hugsaði um leið:
„Bara að hún eigi ekki stóra
fjölskyldu, sem vill komast
í veisluna.“ Ég var að verða
of sein í kennslu og skildi
lokaða krukkuna eftir á
gólfinu. Ég vissi að ef
ég sleppti músinni út
þarna heima kæmi hún
strax aftur. Henni leið
vel í krukkunni enda
var marsipanið þar
hjá henni. Að vinnu-
degi loknum sleppti
ég henni hinum megin
á holtinu I þeirri von
að hún rataði ekki til
baka. Pallur er undir
húsinu og mikið gijót.
undir honum, þaðan
Matur og matgerð
Mýs og marsipan
„Maður á að gera vel við menn og málleysingja
um jólin,“ segir Kristín Gestsdóttir brosandi,
en hún rakst á hagamús í búrskápnum sínum
emn morgunmn.
heyrir maður oft klór á nóttunni,
en mýsnar sækja í hlýjuna við
húsið. Þar mega þær vera ef þær
fara bara ekki inn. Snjó hafði
fennt upp að loftröri sem liggur
í skápinn og þar hafði músin
komist inn. Eg var raunar mú-
sinni þakklát fyrir að hafa látið
laufabrauðið og annað ískápn-
um í friði, hrærði nýtt
XXXV
'Vk xwrjf
X X X * XX
«XV vxvxxx-yxix '•XVXXV V*»»
rommmarsipan um kvöldið og bjó
til konfektjólatré, sem ég færði
kærri vinkonu, sem átti afmæli
daginn eftir.
Þegar búa á til „konfektjóla-
tré“ er notuð keila sem ætluð er
til þurrskreytinga, hún fæst í
blómabúðum. Um hana er vafinn
álpappír. Molarnir eru festir á
með tannstönglum, heilum neðst
en hálfum efst. Molarnir þurfa
að vera misstórir og eru þeir
stærstu hafðir neðst en minnka
síðan upp á við. Molarnir eru
húðaðir með súkkulaði og
skreyttir með hvítu súkkulaði eða
bara hvítu glassúr, einnig má
setja alls kona skrautsykur á
molana. Ef sprautað er á molana
þarf að nota sprautu með mjög
mjóum stúti. Best er að nota
mjúka mola, t.d. úr marsipan eins
og hér er gert. Gert er ráð fyrir
að hjúpsúkkulaði sé brætt í bak-
araofni við 70-80°C og sett á
, þykkan eldfastan disk. Diskur-
inn hitnar um leið og súkku-
laðið og heldur því heitu í
10-15 mínútur og mjög auð-
velt er að eiga við það. í ör-
bylgjuofni hitnar diskurinn
ekki og er því betra að nota
í bakaraofninn. Þetta er mun
5* auðveldari aðferð en að nota
gufu. Milli konfektmolanna
er stungið smá grenigreinum.
Gott er að stinga með pijóni
í keiluna áður en greinunum
er stungið í.
Gráfíkju/marsipan
200 g marsipan
1 dl flórsykur
innan úr 10 grófíkjum
200 g hjúpsúkkulaði
1. Setjið marsipan og flórsyk-
ur í skál og hrærið vel saman.
Skafið aldinkjötið innan úr gráfíkj-
unum og setjið saman við. Hnoð-
ið vel. Búið til misstórar kúlur.
2. Bræðið súkkulaði, sjá hér
að ofan. Húðið síðan. Stingið
prjóni í molana og notið hníf til
að smyrja súkkulaðinu um þá.
3. Smyrjið álpappír með
smjöri (ekki smjörlíki) leggið mol-
ana á hann þegar búið er að
húða þá.
4. Ef notaðurerskrautsykur
þarf að setja hann strax á, en ef
notað er hvítt súkkulaði eða
glassúr er það sett á þegar mol-
arnireru orðnirþurrir.
Mozartkúlur m/rommi
200 gnúgga
250 g marsipan
2 dl flórsykur
dl romm
200 g hjúpsúkkulaó.
1. Skerið núggað í litla ten-
inga, 1 cm ó kant.
2. Hnoðið marsipan með flór-
sykri og rommi. Best er að gera
það i hrærivél. Þrýstið marsipani
utan um núggað. Hafið molana
vel hnöttótta og misstóra.
3. Bræðið súkkulaðið, sjó hór
að ofan. Húðið molana og leggið
ó smurðan ólpappír.
Athugið: Molana mó skreyta
með hvítu súkkulaði, glassúr eóa
skrautsykri.