Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.12.1994, Blaðsíða 1
BLAÐ ALLRA LANDSMANNA 1994 Jll# ■ MIÐVIKUDAGUR 28. DESEMBER BLAÐ Góður leikur og mikil barátta ÍSLAND vann England 104:95 í fyrsta lands- leiknuni af þremur sem þjóðirnar leika á milli hátíðanna. íslenska liðið lék mjög vel og tókst með bar- áttu og dugnaði að sigra þrátt fyrir að ensku leikmennirnir séu flestir höfð- inu hærri en þeir íslensku. Guðmundur Bragason var stigahæstur með 30 stig en hér skorár hann þrátt fyrir að vera með risann Dunkley Spenc- er yfir sér. Þjóð- irnar leika ann- an leik í kvöld og verður hann í Smáranum í Kópavogi og hefst kl. 20. Morgunblaðið/Sverrir KNATTSPYRNA Ásthildur og Margrét með Fortuna vestra ar Islensku landsliðsstúlkumar, Ásthildur Helgadóttir í KR og Margrét Ólafsdóttir í Breiðabliki, fóru til Bandaríkjanna á annan dag jóla í boði danska liðsins Fortuna. Þær verða með liðinu í hálfan mánuð vestra og koma aftur heim 10. janúar. Þjálfari Fortuna sá leik Hollands og íslands í Evrópukeppni kvenna- landsliða í haust og var ánægður með ieik nokkurra leikmanna íslenska liðsins. Hann hafði þegar fengið Auði Skúladóttur úr Stjörnunni til liðs við Fortuna og vildi fleiri. Upphaflega bauð hann Margréti og Olgu Fær- seth í æfingaferðina til Orlando og Los Angeles en þegar Olga gat ekki farið vegna meiðsla hafði hann samband við Ásthildi rétt fyrir jólin. Henni tókst að gera nauðsynlegar ráðstafanir í tíma og fóru stöllurnar vestur í fyrradag, en þær áttu að leika fyrstu leikina með Fortuna í gær. Morgunblaðið/Skapti Landsliðsstúlkurnar Margrét Ólafsdóttir til vinstri og Ásthildur Helgadóttir. Bergsveinn meiddur og fer ekki með landsliðinu til Svíþjóðar BERGSVEINN Bergsveinsson, markvörður Aftur- eldingar og íslenska landsliðsins, er meiddur á hægri olnboga og verður áð taka sér hvíld fram í miðjan janúar. Listinn yfir meidda landsliðsmenn lengist því stöðugt og er nú heilt byrjunarlið slas- að. Auk Bergsveins markvarðar eru það Héðinn Gilsson, Júlíus Jónasson, Einar Gunnar Sigurðs- son, Gústaf Bjarnason, Ólafur Stefánsson og Valdi- mar Grímsson. „Ég meiddi mig í olnboganum vikuna eftir Reykjavíkurmótið ojg hef því verið meiddur í einn og hálfan mánuð. Eg var sprautaður fyrir leikinn gegn FH, sem var síðasti leikurinn í deildinni fyr- ir jól, og hef ekkert verið í markinu síðan. Í hádeg- inu [í gær] prófaði ég að fara í markið og fann strax til þannig að ég verð að hvíla mig eitthvað. Ég þarf vonandi ekki að fara í uppskurð og geri allt til að losna við það,“ sagði Bergsveinn í sam- tali við Morgunblaðið í gær. Hann sagði að eitthvað væri að liðböndunum í olnboganum og læknar ætluðu að skoða málið gaumgæfilega og fyrr væri ekkert hægt að segja til um hvert framhaldið yrði. „Eins og staðan er núna verð ég að hvíla fram í miðjan janúar,“ sagði Bergsveinn. Sjö meiddir og sjálfvalið í landsliðið í handknattleik ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik heldur til Svíþjóðar á nýjársdagsmorgun en liðið mun taka þátt í fjögurra landa móti ásamt heimamönnum, Norðmönnum og Dönum. Þorbergur Aðalsteinsson landsliðsþjálfari sagði við Morgunblaðið í gær að það væri eiginlega sjálfvalið í landsliðið enda eru sjö leikmenn meiddir, sem væntanlega væru í hópn- um undir eðlilegum kringumstæðum. Fyrsti leikur Islands í mótinu verður gegn Dön- um í Jönköping 2. janúar. Síðan verður leikið gegn Norðmönnum í Eskilstuna daginn eftir og loks gegn Svíum í Linköping miðvikudaginn 4. janúar. Markverðir verða þeir Guðmundur Hrafnkelsson úr Val og Bjarni Frostason úr Haukum. Í hægra horninu verða Jason Ólafsson úr Aftureldingu og Bjarki Sigurðsson úr Víkingi, línumenn eru Geir Sveinsson Val og Róbert Sighvatsson Aftureld- ingu, Konráð Olavson úr Stjörnunni og Gunnar Beinteinsson úr FH verða í vinstra horninu, Rúnar Sigtrygsson úr Víkingi og Patrekur Jóhannesson úr KA eru skyttur vinstra megin, leikstjórnendur verða Valsmennimir Dagur Sigurðsson og Jón Kristjánsson og skyttur hægra megin verða þeir Sigurður Sveinsson Víkingi og Júlíus Gunnarsson Val. Pressuliðið að taka á sig endanlega mynd JASON Ólafsson úr Aftureldingu hefur fengið flest atkvæði í vali lesenda Morgunblaðsins og DV á Pressuliðinu sem mætir landsliðinu í handknattleik í Víkinni á föstudagskvöld, en síðasti dagur til að skila inn seðlum til HSÍ er í dag. Dimiti Filippov, Stjörnunni, er í öðru sæti og Sigurður Sveinsson FH-ingur í þriðja sæti. Eins og staðan var í vali lesenda í gær yrði byijunarlið Pressunar þannig: Sigmar Þröstur Ösk- arsson, KA, í markinu og varamarkvörður Axel Stefánsson, Val. Róbert Sighvatsson, Aftureldingu, línumaður og Birgir Sigurðsson, Víkingi, næstur inn. Vinstri hornamaður yrði Frosti Guðlaugsson, Val og varamaður fyrir hann Páll Þórólfsson, Aft- ureldingu. Vinstri hornamaður Sigurður Sveinsson, FH og næstur inn er Björgvin Rúnarsson, Sel- fossi. Skytta hægra megin Jason Ólafsson, Aftur- eldingu, og næstur inn Magnús Sigurðsson, Stjörn- unni. Skytta vinstra megin Petr Baumruk, Haukum og næstur inn er Gunnar Andrésson, Aftureld- ingu. Leikstjórnandi er Dimitri Filippov, Stjörnunni og varamaður fyrir hann er Páll Ólafsson, Haukum. Þess má geta að Bergsveinn Bergsveinsson er meiddur á olnboga og getur því ekki leikið með landsliðinu. Því fer Bjarni Frostason í landsliðs- markið, en hann væri annars næstur inn sem markvörður í Pressuliðsins. AMERÍSKIFÓTBOLTINIM: KANSAS í ÚRSUTAKEPPNINA / C2 og C3 H-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.